Morgunblaðið - 20.12.2005, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 55
DAGBÓK
Marimekko flytur um áramót úr
IÐU húsinu að Laugarvegi 7.
30-40%
afsláttur af öllum fatnaði til jóla.
Vönduð jólagjöf á góðu verði.
STÓRÚTSALA V/FLUTNINGA
Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla
Menningarmiðstöð Spánar, Cervantes-stofnunin (Instituto Cervantes), opn-aði fyrr á þessu ári aðalstöðvar sínará Norðurlöndunum í Stokkhólmi.
Í kjölfar heimsóknar fulltrúa þaðan hingað til
lands fyrir skömmu verður opnað útibú stofn-
unarinnar hér á landi, Cervantes-stofa (Aula
Cervantes) undir verndarvæng Stofnunar Vigdís-
ar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og
tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands. Cerv-
antes-stofunni er ætlað það hlutverk að efla
menningar- og menntasamskipti Íslendinga og
spænskumælandi þjóða.
Dr. Hólmfríður Garðarsdóttir, dósent við Há-
skóla Íslands, er meðal þeirra sem eru í forsvari
fyrir Cervantes-stofu: „Menningarmálastofnunin
stendur fyrir þríþættri starfsemi: að auka veg
spænskukennslu, halda alþjóðleg spænskupróf,
og síðast en ekki síst miðla menningararfleið
Spánar sem og annarra spænskumælandi landa,
ekki ósvipað því starfi sem á sér stað innan
Goethe-stofnunarinnar og Alliance Francaise,“
segir Hólmfríður.
Cervantes-stofan mun hafa aðsetur í Tungu-
málamiðstöð Háskóla Íslands í Nýja Garði: „Stof-
an mun, auk þess að standa fyrir námskeiðum og
stuðla að útbreiðslu spænsku, standa fyrir margs-
konar menningarviðburðum, s.s. heimsóknum rit-
höfunda, ráðstefnum og kynna íslendingum kvik-
myndir á spænsku, svo nokkuð sé nefnt.“
Samfara opnun Cervantes stofu er tekið í notk-
un nýtt kennsluforrit í spænsku, AVE: „Forritið
var þróað af Cervantes stofnuninni og er hugsað
til aðstoðar fyrir kennslu í grunnskólum, mennta-
skólum eða málaskólum en einnig er hægt að nýta
forritið til sjálfsnáms.“ Hólmfríður segir Háskól-
ann í Reykjavík hafa prófað forritið við kennslu og
hafi það gefist vel. „AVE-forritið er ekki hvað síst
athyglisvert fyrir það að lögð er áhersla á að
kynna spænsku frá mismunandi menningar-
samfélögum hins spænskumælandi heims, unnið
með málnotkun og orðfæri þeira og þannig gefin
sýn á fjölbreytileika spænskrar tungu.“
Hólmfríður segir vinsældir spænskunnar hafa
aukist töluvert undnafarin ár hér á landi: „Við
verðum vör við sífellda fjölgun nemenda og þykir
mér jákvætt að sjá að grunnskólar hafa leitað til
okkar og bjóða margir upp á spænsku sem val í 9.
og 10. bekk. Ekki hvað síst er spænskan vinsæl á
framhaldsskólastigi og bæði við Háskóla Íslands
og Háskólann í Reykjavík er hún vinsæl og virðist
ekkert lát á.“
Á heimasíðu Cervantes-stofnunarinnar,
www.cervantes.es má fá ýmsar upplýsingar um
spænskt mál og menningu auk ýmissa kennslu-
tækja og gagnabanka.
Spænska | Cervantes-stofa opnuð við Háskóla Íslands
Mála- og menningarmiðstöð
Dr. Hólmfríður Garð-
arsdóttir fæddist á
austur á fjörðum 1957.
Hún lauk stúdentsprófi
frá VÍ 1977. Eftir
heimshornaflakk sett-
ist hún aftur á skóla-
bekk og lauk B.A.-prófi
frá HÍ 1988. Kennslu-
réttindanámi lauk
Hólmfríður 1992, M.A.-
prófi frá Texasháskóla í
Austin 1996 og doktorsprófi í suður-amerísk-
um fræðum og bókmenntum frá sama skóla
2001. Hólmfríður hefur starfað við Hugvís-
indadeild Háskóla Íslands frá 1998. Hún er gift
dr. Páli Biering geðhjúkrunarfræðingi og eiga
þau einn son.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Brúðkaup | Gefin voru saman 2. júlí
sl. í Ingjaldskirkju af sr. Óskari Haf-
steinssyni þau Kolbrún Ívarsdóttir og
Jóhann Anton Ragnarsson. Heimili
þeirra er í Hraunási 13, Hellissandi.
Svipmyndir/Fríður
Brúðkaup | Gefin voru saman 10.
september sl. á Akranesi af sýslu-
manni þau Ingunn María Þorbergs-
dóttir og Arnar Hjartarson. Heimili
þeirra er á Skarðsbraut 3, Akranesi.
Svipmyndir/Fríður
Brúðkaup | Garðar Agnarsson og Sig-
ríður Pétursdóttir voru gefin saman af
séra Jónu Hrönn Bolladóttur 16. júlí
síðastliðinn. Heimili brúðhjónanna er í
Reykjavík.
75 ÁRA afmæli. Í dag, 20. desem-ber, er 75 ára Jón Sigurðsson,
vélstjóri, Lækjargötu 4, Hvamms-
tanga. Hann mun í dag taka á móti
gestum eftir kl. 20 á heimili dóttur
sinnar, Suðurhúsum 7, Grafarvogi,
Reykjavík.
Þetta er illa skrifað
AF HVERJU ætli það sé að það les
enginn bækur nema á jólunum.
Kringum jólin þá er ekki þverfótað
fyrir auglýsingum um nýútgefnar
bækur sem eru flestar misvel skrif-
aðar (ekki það að ég viti neitt um
það, þetta er bara mín skoðun, ég
forðast að eyða dýrmætum tíma í að
lesa bækur sem eru illa skrifaðar),
kannski að það sé fullhart að segja
að þetta sé illa skrifað án þess að
lesa þær. Kannski að ég segi bara að
ég hafi ekki skoðun á þeim. Sjálfum
þykir mér það vera verri dómur.
Ekki að ég geti gert betur en ég hef
rétt á minni skoðun, enda allar skoð-
anir rangar.
Um jólin verða langflestir lands-
menn fluglæsir bókmenntasérfræð-
ingar og leggjast í lestur og ræða
bókmenntir af eldmóð í matarboðum
hjá ættingjum, sjálfur forðast ég þau
líka.
Það má ekki halda því fram að
þetta sé slæmur siður, að lesa á jól-
unum, allt sem kemur að bókalestri
er gott að mínu mati, en mér þykir
þetta óskiljanlegt. Það finnst mér
óskiljanlegt að miðað við allan þenn-
an áhuga, þá um leið og bækurnar
hafa verið lesnar, kannski örfáum
vikum eftir jól, þá þykir engin
ástæða til þess að lesa fyrr en um
næstu jól. En í staðinn plantar fólk
sér í sófann og skýtur rótum fyrir
framan sjónvarpið fram að næstu
jólum.
Halda mætti að bækur séu ávextir
sem vaxa ekki allan ársins hring.
Bækurnar blómstra því miður ekki
fyrr en í nóvember, einu sinni á ári,
það þykir mér slæmt. Hægt er að
rækta næstum alla skapaða hluti all-
an ársins hring nú á dögum, væri
ekki gaman ef við gætum öll fengið
bækur allan ársins hring (og jafnvel
lesið þær). Auðvitað er ekki hægt að
alhæfa eins og ég hef gert núna, ég
veit það. En mér þótti þetta bara
umhugsunarvert.
Þess má einnig geta að ég verð
ekki sár þó þetta verði ekki lesið,
mér er líka sama þó að einhverjum
þyki þetta illa skrifað.
Einn sem er vonandi
á leið í skóla.
Eftirsjá að Sirrý
ÉG VIL hæla þættinum hjá henni
Sirrý, hann var bæði fræðandi og
gaf manni mikið. Horfði mikið á
hann og finnst mér leiðinlegt að
þátturinn skuli vera hættur.
Svo vil ég kvarta yfir Frétta-
blaðinu, sem er hent inn í ganga í
fjölbýlishúsum. Fólk er mjög þreytt
á að þurfa að henda þessu sífellt í
ruslatunnuna.
Guðný Jóhannsdóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 20. desem-ber, er sjötug Kolbrún Viggós-
dóttir (Kollý frá Stykkishólmi) til
heimilis að Lækjargötu 30, Hafn-
arfirði.
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Leikfimi kl. 9. Boccia kl. 9.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
sund, vefnaður, línudans, boccia, fóta-
aðgerð. Jólaball, dansað verður í
kringum jólatré með jólasveinum í
dag kl. 14. Allir velkomnir.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Fastir liðir eins og venjulega.
Kíktu við, skoðaðu dagskrána, líttu í
blöðin og láttu þér líða vel yfir aðvent-
una t.d. í morgunkaffinu hjá okkur alla
virka daga. Nokkrir miðar til á Vín-
arhljómleikana 6. jan. 2006. Munið
Þorláksmessuskötuna! Uppl.
588 9533
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan að Gullsmára 9 er opin í dag kl
10–11.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Á morgun er
skötuveisla í hádeginu í Kaffi Bergi. Á
fimmtud., 21. des. kl. 14, er jólahelg-
istund í samstarfi við Fella- og Hóla-
kirkju. Fjölbreytt dagskrá, umsjón
Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni.
Strætó S4 og 12 stansa við Gerðu-
berg. Sími 575 7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
aðstoð við böðun, bókband. Spilað frá
kl. 13. Munið að panta Þorláks-
messuskötuna tímanlega. Allir vel-
komnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, Kaffi, spjall, dagblöðin, hár-
greiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leikfimi.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15 ferð í
Bónus. Kl. 15 Kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur hjá
Sigrúnu kl. 9–13. Boccia kl. 9.30–
10.30. Helgistund hjá séra Ólafi Jó-
hannssyni kl. 13.30. Böðun fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir 588 2320. Hár-
snyrting 517 3005. Minnum á
rabbfund FAAS kl. 14.30. Berglind
Indriðadóttir mætir á fundinn.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Fastir liðir eins og venjulega.
Kíktu við, líttu í blöðin, fáðu þér kaffi-
sopa, skoðaðu dagskrána og láttu þér
líða vel á aðventunni í Betri stofunni í
hjá okkur. Jólatréð okkar er verulega
fallegt. Munið skötuna á Þorláks-
messu. Sími 568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Þor-
valdur Halldórsson kemur kl. 10 og
syngur fyrir okkur. Kl. 13 handmennt
og postulínsmálun, kaffiveitingar.
Norðurbrún 1, | Opin vinnustofa kl. 9–
16.30, smíði kl. 9, myndlist kl. 9–12,
boccia kl. 10, postulínsmálun kl. 13–
16.30 og leikfimi kl. 14.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa-
vinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl. 11.45–
12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 postu-
línsmálun. Kl. 13–16 bútasaumur. Kl.
13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, handmennt almenn kl. 9–
16.30, hárgreiðsla kl. 9, morgunstund
kl. 9.30–10, leikfimi og fótaaðgerðir kl.
10, félagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9, Ritningarlestur, sálmur og bæn.
Fermingarfræðsla kl. 15, hópur 3.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.30.
Fríkirkjan Kefas | Bænastundir eru á
þriðjudagskvöldum kl. 20.30.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðar-
stundir eru hvern þriðjudag í Hjalla-
kirkju kl. 18.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
TÓNLISTARHÓPUR Reykjavík-
urborgar, Camerarctica, heldur
sína árlegu kertaljósatónleika á
síðustu dögum aðventunnar.
Enn sem fyrr leikur Camer-
arctica ljúfa tónlist eftir W. A. Moz-
art í þremur kirkjum á höfuðborg-
arsvæðinu og hefur nú fengið til
liðs við sig ungan hornleikara og
verðlaunahafa, Stefán Jón Bern-
harðsson. Stefán mun leika Kvint-
ett fyrir horn og strengi eftir Moz-
art með Camerarctica en einnig
verða á dagskrá kvartett fyrir
flautu og strengi, einnig eftir Moz-
art og Kvartett fyrir klarinett og
strengi eftir Bernhard Crusell. Að
lokum verður jólasálmurinn „Í dag
er glatt í döprum hjörtum“ eftir
Mozart fluttur eins og hefð er orðin
fyrir á kertaljósatónleikunum.
Fyrstu tónleikarnir verða í Hafn-
arfjarðarkirkju í kvöld. Næstu tón-
leikar eru í Kópavogskirkju á mið-
vikudaginn og að lokum leikur
Camerarctica í Dómkirkjunni í
Reykjavík á fimmtudagskvöldið.
Tónleikarnir eru klukkustund-
arlangir og hefjast allir klukkan
21.
Morgunblaðið/Sverrir
Kertaljósatónleikar Camerarctica
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111