Morgunblaðið - 20.12.2005, Page 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gleðin fylgir hrútnum í dag. Ef hann
heldur áfram að njóta litlu hlutanna,
fær hann senn forsmekkinn af meiri
velgengni. Samband þitt við manneskju
í merki fisksins gerir sitt til þess að
liðka fyrir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Himintunglin ýta undir þá tilfinningu
nautsins að vera eins og hamstur í hjóli.
Einfaldaðu hlutina með því að sleppa
óþarfa athöfnum úr tímatöflunni. Veldu
eitthvað þrennt og notaðu það sem eftir
lifir tímans, til þess að slaka á og dvelja
í núinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Orðspor tvíburans er eitt það verðmæt-
asta sem hann á. Hafðu það í huga og
gættu þess að halda einkalífinu og
vinnunni aðskildri. Láttu öðrum eftir að
verða sögusmettum í vinnunni að bráð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag er einn af þeim örfáu dögum er
krabbinn fær launað í samræmi við
frumleika. Það er ekkert gaman að gera
eins og allir aðrir. Er ekki nóg af Elvis-
eftirhermum í veröldinni? Veldu að vera
stórstjarna eftir eigin höfði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Munurinn á vinnu og frítíma er kær-
leikur. Ef þú nálgast viðfangsefni þitt af
ástúð hverfur viðnámið (eða vinnu-
stimpillinn). Þátttaka tvíbura er lyk-
ilatriði í þessu sambandi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Pantaðu eitthvað nýtt og spennandi af
matseðli lífsins. Nýr smekkur, nýir vinir
og annað umhverfi eru til marks um
aukinn lífsþrótt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ástvinur sem þarfnast vogarinnar er of
þver til þess að biðja hana um aðstoð.
Nú er rétti tíminn til þess að nota
innsæið og bjóða fram aðstoð. Ekki láta
yfirlýsingar um að allt sé í lagi slá ryki í
augun á þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hristu upp í hlutunum til þess að halda
árvekninni. Láttu þægindin lönd og leið.
Gefðu kunningja á netinu kennitölu
þína. Nei!!! Bara að gá hvort þú værir
vakandi. Ekki sofna á verðinum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þolinmæðin er ekki á hverju strái þessa
dagana. Stilltu þig um að rasa um ráð
fram, fyrir vikið nærðu frábærum ár-
angri í verkefni sem þú hefur baksað
við upp á síðkastið. Njóttu hverrar smá-
sóknar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Streitan gæti ýtt steingeitinni út á ystu
nöf. Fjarlægðu stressið, með því hverf-
ur tilhneigingin til þess að fara yfir
strikið. Ný áætlun, íþrótt eða dægra-
dvöl heldur steingeitinni frá því sem er
henni óhollt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Viðhorf vatnsberans gerir hann fagran.
Innilegt brosið yfirskyggir hugsanlegar
misfellur sem hann kann að sjá í spegl-
inum og máir merki liðinna ára af and-
liti hans. Maður er eins ungur og manni
finnst.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Spurðu líkamann, hvernig líður þér? Og
leyfðu honum að svara. Tilraunir til
þess að ná sambandi við þinn efnislega
líkama bæta bæði heilsuna og líf þitt.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Merkúr, hinn hrekkjótti
sendiboði, gerir upp á
milli. Hann þykist ekki sjá
Úranus og daðrar við Satúrnus. Yfirdrif-
ið ástand verður að fréttaefni og veldur
kliði. Enginn skortur er á leiðum til þess
að haga sér illa, en að sama skapi finn-
um við okkur knúin til þess sjálfsaga og
stefnufestu.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 lækna, 4 staup,
7 jöfnum höndum, 8
fugls, 9 keyra, 11 skyn-
færi, 13 hlífi, 14 bor, 15
reka í, 17 hnupl, 20 bein,
22 krumla, 23 dóni, 24
spendýrið, 25 skammt
undan.
Lóðrétt | 1 skessa, 2 upp-
nám, 3 virða, 4 slæma, 5
kurfur, 6 hroki, 10 sívaln-
ingur, 12 flana, 13 bók-
stafur, 15 drengja, 16
stífla, 18 sár, 19 hæð, 20
mæða, 21 Ísland.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skammdegi, 8 sömdu, 9 mussa, 10 lem, 11
merla, 13 annar, 15 skaps, 18 hreif, 21 kál, 22 krana, 23
afurð, 24 sakamaður.
Lóðrétt: 2 kímir, 3 maula, 4 dimma, 5 gisin, 6 ósum, 7
maur, 12 lap, 14 nær, 15 sekk, 16 afana, 17 skata, 18
hlaða, 19 efuðu, 20 fæða.
Tónlist
Hafnarfjarðarkirkja | Camerarctica leik-
ur kertaljósatónleika með ljúfri klassískri
tónist í Hafnarfjarðarkirkju kl. 21–22.
Flytjendur eru Stefán Jón Bernharðsson,
hornleikari og Camerarctica og flytja þau
Hornkvintett og Flautukvartett eftir
Mozart og Klarinettkvartett eftir Crusell.
Langholtskirkja | Graduale Nobili flytur
Cermony of Carols eftir Britten og Danc-
ing Day eftir John Rutter í Langholts-
kirkju kl. 21. Elísabet Waage leikur á
hörpu og stjórnandi er Jón Stefánsson.
Lágafellskirkja | Dr. Douglas Brotchie,
organisti Háteigskirkju, spila kl. 20.30
tónlist eftir Haydn og franska org-
eltónlist fyrir jólahátíð. Ásamt leynigest-
um sem munu auka á hátíðarstemningu.
Kaffi Kúltúra | Tónleikar með hljómsveit-
unum Moskvitch og Hljómsveit Hafdísar
Bjarnadóttur. Á efnisskránni er ný frum-
samin tónlist auk þjóðlagatónlistar frá
ýmsum heimshornum. Kl. 21.
Kaffi Hljómalind | Tribute Band Óskars
Guðjónssonar spilar ábreiður og frum-
samda dægurópusa, klukkan 21:00.
Hljómsveitin inniheldur meðal annars
meðlimi frægra íslenska hljómsveita
sem tilnefndar eru til íslensku tónlist-
arverðlaunanna í ár. Frítt inn.
Myndlist
101 gallery | Jólasýning til 6. jan.
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Bjargar Þorsteinsdóttur til áramóta.
Aurum | Lóa Hjálmtýsdóttir sýnir
fígúratíva mynd sem unnin er með lakki.
BV Rammastúdíó innrömmun | Guð-
munda H. Jóhannesdóttir með sýningu á
vatnslitamyndum til jóla. Opið kl. 10–18
virka daga, 11–14 laugardaga.
Café Babalu | Claudia Mrugowski – Even
if tomorrow is not granted, I plant my
tree – á Skólavörðustíg 22a. (www.-
Mobileart.de)
Gallerí Húnoghún | Soffía Sæmunds-
dóttir til 5. jan.
Gallerí I8 | Þór Vigfússon til 23. des.
Gallerí Sævars Karls | Sex myndlist-
arkonur verða með samsýningu í desem-
ber. Hrund Jóhannesdóttir, Hlaðgerður
Íris Björnsdóttir, Kolbrá Bragadóttir,
Kristín Helga Káradóttir, Margrét M.
Norðdahl og Ólöf Björg Björnsdóttir.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan.
Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. desem-
ber.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugs-
dóttir og Margrét Jónsdóttir til febr-
úarloka.
Handverk og Hönnun | „Allir fá þá eitt-
hvað fallegt" í Aðalstræti 12. Þetta er
sölusýning þar sem 39 aðilar sýna ís-
lenskt handverk og listiðnað úr fjöl-
breyttu hráefni. Sýningunni lýkur 20.
des. Aðgangur ókeypis.
Hitt húsið | Sýningin Skúlprút í gallerí
Tukt, Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3–5.
Þar sýna nemendur af listnámsbraut í FB
verk sín. Sýningarsalurinn er opinn alla
virka daga frá 9–17 til 5. janúar 2006.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadótt-
ir sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar
2006.
Kaffi Mílanó | Ingvar Þorvaldsson sýnir
vatnslitamyndir til áramóta
Kaffi Sólon | Dóra Emils – Heyr himna
smiður – til 14. jan.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II
– Um rými og frásögn. Sýning á verkum
13 ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Guðrún Vera Hjartardóttir til 30. des.
Erró til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk Neskaupstað |
10 listakonur frá Neskaupstað sýna á Eg-
ilsstaðaflugvelli. Til jan.
Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir,
Rósa Helgadóttir, Þorbjörg Valdimars-
dóttir til ársloka.
Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir
– Gegga. Málverkasýning sem stendur til
áramóta.
Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – Post-
cards to Iceland. Opið mán.-föst. 13–16,
sun. 15–18.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Jólasýning Lóu og Hulla er
myndlistasýning með jólaþema. Hér eru
tveir myndasöguhöfundar af krútt-
kynslóðinni að krota á veggi.
Sundlaugin í Laugardal | Ólafur Elíasson
sýnir olíulandslagsmyndir til jóla. Árni
Björn Guðjónsson sýnir í andyri sund-
laugarinnar fram yfir jól.
Yggdrasil | Tolli til 25. jan.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson
til áramóta.
Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastof-
unni Matur og menning eru sýnd málverk
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ARDÍS Ólöf Víkingsdóttir, Rósalind Gísladóttir og Valgerður Guðnadóttir halda tónleika í
Neskirkju kl. 20 í kvöld. Á dagskránni eru jólalög. Verð 1.500 kr.
Jólatónleikar í Neskirkju