Morgunblaðið - 20.12.2005, Page 57

Morgunblaðið - 20.12.2005, Page 57
eftir Hjört Hjartarson – Myndir frá liðnu sumri. Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís- lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljósmyndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljósmyndir Péturs Thomsen í Mynda- sal. Til 20. febrúar. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga nema mánu- daga í vetur frá kl. 10–17. Vönduð hljóð- leiðsögn, margmiðlunarsýning og gönguleiðir. www.gljufrasteinn.is Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja- safnið – svona var það, Fyrirheitna landið – fyrstu Vestur-Íslendingarnir; mormónar sem fluttust til Utah, Bókasalur – bók- minjasafn, Píputau, pjötlugangur og diggadaríum – aldarminning Lárusar Ing- ólfssonar, og fleira. Veitingastofa, safn- búð. Þjóðmenningarhúsið | í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveit- ingunni til Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn sett upp sýningu í bókasal Þjóðmenningarhússins. Sjá má sjálfan Nóbelsverðlaunapeninginn, kjólinn sem Auður Laxness klæddist við afhending- arathöfnina, borðbúnað frá Nóbelssafn- inu í Svíþjóð o.fl. Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár- angri fornleifarannsókna sem njóta stuðnings Kristnihátíðarsjóðs eru til sýn- is í anddyri Þjóðmenningarhússins. Rannsóknirnar fara fram á Skriðu- klaustri, Hólum, Þingvöllum, Keldudal, Reykholti, Gásum, Kirkjubæjarklaustri og Skálholti. Auk þess eru kumlastæði um land allt rannsökuð. Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstárlegar og vandaðar sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Bækur Þjóðmenningarhúsið | Einn af öðrum tín- ast spennusagnahöfundarnir í Þjóð- menningarhúsið dagana fyrir jól og skjóta áhlýðendum skelk í bringu með hrollvekjandi upplestri úr nýjum verkum sínum: Í dag kl. 12.15, Stefán Máni les úr bók sinni Túristi. Rauðrófusúpa á veit- ingastofunni. Allir velkomnir. Fréttir og tilkynningar Happdrætti bókatíðinda | Númer dags- ins 20. desember er 12641. Fyrirlestrar og fundir OA-samtökin | OA karladeild fundar á Tjarnargötu 20, Gula húsinu, kl. 21–22. OA (Overeaters Anonymous) er fé- lagsskapur karla og kvenna sem hittast til að finna lausn á sameiginlegum vanda Matarfíkn. www.oa.is. Börn Þjóðminjasafn Íslands | Íslensku jóla- sveinarnir í Þjóðminjasafninu. Jólasvein- arnir koma alla daga 12.–24. desember kl. 11 virka daga (og á aðfangadag) en kl. 14 um helgar. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 57 DAGBÓK Vandvirkni. Norður ♠ÁK65 ♥1043 ♦ÁDG72 ♣6 Suður ♠D83 ♥Á6 ♦65 ♣ÁKG874 Suður spilar þrjú grönd. Út kemur hjartafimma (fjórða hæsta), nían frá austri, sem er dúkkuð. Austur spilar næst hjartadrottningu og vestur sýnir fimmlit með tvistinum. Hvernig er áætlunin? Níu slagir eru auðsóttir ef tíg- ulkóngur liggur rétt, en það er ótíma- bært að svína strax. Hjartað virðist vera 5-3, svo spilið fer beint niður ef svíningin misheppnast. Því er sjálfsagt að kanna svörtu litina fyrst, enda gætu þeir gefið af sér tvo aukaslagi í góðri legu. Fyrst er ÁK í laufi spilað í þeirri von að drottningin falli önnur. Skili það engu, er ekki um annað að ræða en svína tvisvar í tígli. En ef drottningin fellur, eru átta slagir mættir og þá er ástæða til að prófa spaðann með því að taka ÁK og enda heima á drottningu. Þá liggur legan fyrir og sagnhafi veit hvort hann þarf að svína í tígli eða ekki. Norður ♠ÁK65 ♥1043 ♦ÁDG72 ♣5 Vestur Austur ♠G92 ♠1074 ♥K8752 ♥DG9 ♦1094 ♦K83 ♣D3 ♣10952 Suður ♠D83 ♥Á6 ♦65 ♣ÁKG874 Hér er ekki farið fram á annað en vönduð vinnubrögð. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Ba6 5. Dc2 d5 6. cxd5 exd5 7. g3 Be7 8. Bg2 O-O 9. O-O Bb7 10. Rc3 c5 11. Hd1 Rbd7 12. Bf4 a6 13. dxc5 Rxc5 14. Rd4 Bd6 15. Bxd6 Dxd6 16. Rf5 De6 17. Rxd5 Rxd5 18. Bxd5 Bxd5 19. Hxd5 Hfe8 20. Dc3 f6 21. Re3 Hac8 22. Had1 Ra4 23. Dd4 b5 24. Hd7 He7 25. Hxe7 Dxe7 26. Rf5 Dc7 27. Dg4 Kh8 Heimsmeistari unglinga, Azerinn Shakhriyar Mamedyarov (2.674) hafði hvítt í stöðunni gegn Kasak- anum Nurlan Ibraev (2.508) á heims- bikarmóti FIDE sem lauk nýverið í Khanty-Mansiysk í Rússlandi. 28. Rxg7! Hg8 svartur hrókurinn hefði fallið eftir 28. … Dxg7 29. Dxc8+. 29. Re6 De5 30. Hd8! Hxd8 31. Dg7#. Mamedyarov féll nokkuð óvænt úr leik í annarri umferð mótsins gegn rússneska stórmeistaranum Evgeny Naier (2.641). Hvítur á leik. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is 50. Skáldaspírukvöldið verður haldið í kvöld kl. 20.00 í Iðu. Að þessu sinna lesa upp skáldin: Kristján Þórður Hrafnsson og Sig- ríður Jónsdóttir. Kristján les upp úr nýrri skáld- sögu, Hinir sterku. Mun höfundur bjóða upp á sérstakar umræður í kringum verkið. Þá les Sigríður Jónsdóttir upp úr nýrri ljóðabók, Einnar báru vatn. Gestir mega taka með sér hress- ingu úr kaffihúsinu á annarri hæð niður í bókarhornið með fræga gula þægindastólnum. Bækur skáldanna eru til sölu í Iðu með 20% afslætti á þessu kvöldi og Lafleur-bækurnar fást sömuleið- is á vildarkjörum. 50. Skáldaspírukvöldið HELGI frá Hlíð er trúhneigður efa- semdamaður. Aldurhniginn lítur hann yfir farinn veg, horfir með eft- irsjá til bernskuára, saknar þess fá- breytta umhverfis, sem mótaði hann ungan, íhugar hvernig tekist hafi að vinna úr þeirri fjölþættu þraut, sem lífið lagði honum á herðar, og koma að lokum auga á þau bjargföstu sann- indi sem verða mættu leiðarljós fram á veginn til hins óþekkta, ókomna. Stjarnan verður táknmynd hins fjar- læga og háleita, ímynd óska- stundarinnar sem aldrei rennur upp, ástarstjörnunnar sem skín á bak við ský, »minna týndu drauma«, eða með öðrum orðum þeirra fullkomnu og varanlegu lífsgæða sem sóst er eftir en seint verða höndluð. Því tíminn eirir engu, hann líður hjá, árin eru að baki fyrr en varir og tómarúmið blas- ir við. Eða sá blákaldi veruleiki að hversdagslegt amstur okkar, sem okkur þykir einatt vera svo mik- ilvægt, verður harla smávægilegt þegar horft er til víðáttu rúms og tíma; séð frá sandkorni því, þar for- sjónin hefur valið okkur stað hér og nú. Litskrúðugt en hverfult er ævi- skeið blómsins jafnt og mannsins. En tíminn nemur ekki staðar um leið og því lýkur, samanber eftirfarandi kvæði sem ber yfirskriftina Blóm- ljóð: Næturlangt höfðu vorvindar leikið að brumi þínu, áður en þú vaknaðir. Sumarlangt hafa sólgeislar leikið að blómi þínu, meðan að þú vakir. Næturlangt munu laufvindar leika að blöðum þínum, eftir að þú sofnar. Skoðandinn leitast við að ráða drauminn og spá í veruleikann. Leit- andinn hugleiðir hvernig beri að taka því sem átti að verða en aldrei verð- ur. Fyrsta ljóð bókarinnar – Bæn heitir það – er nokkurs konar inn- gangur eða exordium ef rétt er skilið. Trúin er síðan ívaf eða aðalinntak í ljóðunum Verkalaun, Við hylinn, Landnemi og Talað við Krist. Nið- urstaðan verður sú að stjarnan, átta- viti draumsins, vísi að lokum veginn til nokkurs konar eilífðartrúar, hversu veik sem hún kann að vera, samanber ljóðin Spurn og Vonin. Síðasta ljóðið ber yfirskriftina Stjarnljóð. Vel má líta á það sem samnefnara fyrir bókina sem heild, lokaerindi þess felur þá í sér niður- stöðuna: Örlítið bergmál er allt sem heyrist á jörð en einmana bára úti við sandinn grætur, framundan bíður ferð um endalaust haf, skín þú mér, stjarna, í skjóli eilífrar nætur. Enda þótt Helga verði tíðrætt um vonina og drauminn – drauminn sem enginn veit hvort nokkru sinni rætist – og virst geti sem honum sé með köflum svo dimmt fyrir augum að hann sjái einungis auðn og tóm eru ljóð hans með vissum hætti jarð- bundin. Ekki svo að skilja að nokkurt þeirra verði kennt við blákalt raunsæi, síður en svo. Veruleikinn birtist honum þvert á móti sem hug- læg ímynd, uppspretta lífsvitundar, birtu og unaðar. Þannig yrkir hann um ástina, samanber ljóðið Augna- blik. Endurminning hans frá gleði- stundum horfinna daga er þó jafnan söknuði blandin. Minnugur þess að við lifum ekki aðeins í náttúrunni heldur einnig í tímanum – og hvort tveggja er hugsanlega forgengilegt – horfir hann fremur út yfir stóra svið- ið en til stundlegrar nálægðar, til lífs- gátunnar fremur en til þeirra verð- mæta sem mölur og ryð fá grandað. Lífsgátan BÆKUR Ljóð eftir Helga frá Hlíð. 46 bls. Bókaútgáfan Hólar. Akureyri, 2005. Stjarnljóð Erlendur Jónsson SANDSKÚLPTÚRAR eru kannski ekki það fyrsta sem við Íslendingar tengjum við jólin en um helgina var alþjóðleg hátíð með verkum af því tagi opnuð í Hainan-héraði í Kína. Meira en eitt hundrað listamenn leggja hátíðinni til um fimm hundr- uð verk, m.a. þessi ágæti maður. Reuters Sandskúlptúrar í Kína

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.