Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ EITTHVAÐ verulega heillandi er við fiðluleik Jaap Schröders sem er að finna á nýjum geisladiski frá Smekkleysu. Hann flytur þar ein- leiksverk frá sautjándu öld, eftir Bach, Biber, Matteis, Westhoff og fleiri, og hljóðfærið sem hann spil- ar á er barokkfiðla er færð hefur verið til upprunalegs horfs. Kannski er seiðurinn fólginn í því hve tónninn er tær og laus við til- gerð; tónlistin flæðir áreynslulaust áfram og magnaður hljómburður Skálholtskirkju, þar sem geisla- diskurinn er tekinn upp, gæðir fiðluleikinn einstökum sjarma. Í ritgerð eftir Scröder sem lesa má í bæklingnum er fylgir disk- inum heldur hann því fram að „engar marktækar rannsóknir hafa nokkru sinni verið gerðar á upphaflegum hljómeiginleikum þeirra hljóðfæra sem Stradivari og samtímamenn hans létu frá sér fara“. Hann bendir á að á átjándu öld hafi orðið talsverðar breyt- ingar á leiktækni á strengjahljóðfæri; áhersla hafi verið lögð á allskonar flug- eldasýningar og tilþrif er þjónuðu fyrst og fremst þeim tilgangi að vekja athygli á tæknilegum yfirburð- um þess sem spilaði. Þetta kallaði á breyt- ingar á hljóðfærunum sjálfum og segir Schröder að við það hafi „allar gömlu ger- semarnar [verið] teknar og vissum hlutum þeirra breytt þannig að mikil áhrif hafði á hljóm hljóðfær- anna“. Hvað sem þessu líður þá er all- tént ljóst að „upprunalega“ fiðlan virðist henta barokktónlist ein- staklega vel eins og auðheyrt var þegar Barokksveitin frá Den Haag í Hollandi spilaði nýverið í Jóla- óratóríu Bachs í Hallgrímskirkju. Ég mæli sérstaklega með Passakalíunni úr svonefndum Mysteríusónötum eftir Biber, en þar heyrist einfalt stefbrot aftur og aft- ur með ýmiss konar tilbrigðum. Stefbrotið táknar verndarengil- inn sem sumir telja að fylgi hverjum ein- staklingi út allt lífið, sama á hverju bjátar. Túlkun Scröders er þrungin andakt og ljúfsár fiðlutónninn, laus við hvers kyns tilgerð, er svo hríf- andi að það er eins og maður sé kominn aftur í tímann og í aðra veröld þar sem englar eru sýnilegir. Bach er líka fluttur af fallegri yfirvegun og sömu sögu er að segja um hin tónskáldin. Vissulega eru einstakir tónar ekki alveg full- komnir, en það gerir ekkert til; fiðluleikurinn verður bara mann- legri fyrir vikið. Upptaka Halldórs Víkingssonar er auk þess frábær og fyrrnefnd ritgerð í bæklingnum er áhuga- verð. Þetta er flottur geisladiskur! Galdur barokkfiðlunnar TÓNLIST Íslenskur geisladiskur Jaap Schröder flytur tónsmíðar eftir Bib- er, Bach, Baltzer, Westhoff og Matteis. Smekkleysa 2005. Jaap Schröder – Fiðlan á sautjándu öld Jónas Sen Jaap Schröder LÉTTSVEIT Reykjavíkur er með stærri kórum landsins, en hann samanstendur af 125 konum. Ný- útkominn geisladiskur með söng kórsins inniheldur eingöngu tón- leikaupptökur frá árinu 1997 til 2005 og hafa þær verið gerðar í Gamla bíói, Austurbæjarbíói, Langholtskirkju og víðar. Lögin á disknum eru engin ætt- jarðarlög á borð við þau sem margir kórar fást við, heldur Tondeleyjó, Molly Malone, Lauga- vegur um lágnættið og þar fram eftir götunum. Með kórnum spila Rússíbanar og fleiri hljóðfæraleik- arar og er umgjörðin eftir því poppuð. Að þessu leyti sker kórinn sig dálítið frá öðrum kórum, sem yf- irleitt halda sig við virðulegri tón- list, nema Lögreglukórinn, en hann daðrar heldur betur við dæg- urlagageirann á nýja disknum sín- um. Það er þó meiri nostalgía í flutningi Léttsveitarinnar á nokkr- um gömlum dægurlögum og suð- rænt yfirbragð hér og þar eykur á sjarm- ann. Lófaklappið á eftir hverju lagi gerir að verkum að það er eins og maður sé á tónleikum, og eilítið hrár söngurinn undir- strikar það. Tækni- lega séð er hann ekki fullkominn; sumt er dálítið loðið, efstu tónarnir ekki alltaf alveg hreinir og kór og hljómsveit ein- stöku sinnum ósam- taka, en hverjum er ekki sama? Söng- gleðin er svo ótrúlega smitandi að maður fer að slá taktinn ósjálfrátt með tónlistinni æ ofan í æ, og það gerist ekki oft á kórtónleikum. Ég verð að segja að þessi geisla- diskur er einstaklega skemmti- legur. Sum lögin eru hreinustu perlur sem margir hafa örugglega gleymt að væru til og er kórnum hér með þakkað fyrir að draga þau fram í dagsljósið. Önnur lög eru vissulega vafa- samari, eins og Vilja lied og Wien, du Stadt meiner Träume, sem að mínu mati eru svo oft flutt að það er bókstaflega óþolandi, en hér virka lögin undarlega fersk. Kaffihúsaleg harmóníkan bjargar því fyrrnefnda og hlátrasköllin í fiðlu- sólóinu í því síðar- nefnda eru smitandi, þótt maður hafi ekki hugmynd um hvað var á seyði sem kitlaði hláturtaugar áheyr- enda á tónleikunum. Jóhanna Þórhalls- dóttir stjórnar kórnum og gerir það af mikilli lífsgleði eins og ljóst ætti að vera af of- anskráðu. Lögin eru smekklega valin og góða stemn- ingin er allsráðandi fremur en leit að einhvers konar tæknilegri ger- ilsneyðingu. Hljómsveitin er frábær; sér- staklega verður að nefna líflegan píanóleik Aðalheiðar Þorsteins- dóttur, en það er ekki síst honum að þakka hve tónlistin hljómar vel. Óhætt er að mæla með þessum geisladiski og fyrir alla sem hafa skemmt sér á tónleikum Léttsveit- arinnar er hann einfaldlega ómiss- andi. Smitandi sönggleði TÓNLIST Íslenskur geisladiskur Stjórnandi: Jóhanna Þórhallsdóttir. Útgefandi: Léttsveit Reykjavíkur 2005. Léttsveit Reykjavíkur Jónas Sen Jóhanna Þórhallsdóttir HALLVEIG Rúnarsdóttir sópr- ansöngkona og Steingrímur Þór- hallsson orgelleikari mun halda kyrrðar- og íhugunartónleika kl. 21.00 á fimmtudaginn í Neskirkju, Hagatorgi munu þar sem flutt verð- ur íslensk aðventutónlist og maríu- ljóð, ásamt verkum eftir J.S Bach, F. Händel og W.A. Mozart. Tónleikarnir eru hugsaðir sem mótvægi við hinn mikla hraða sem einkennir jólahald á okkar dögum og er þetta tilvalið tækifæri fyrir fólk að koma í miðjum jólaundirbúningi, setjast niður í kirkjunni sem verður aðeins lýst með kertaljósum, hlusta á fagra tónlist og komast í snertingu við hinn sanna anda jólahátíðarinnar og kristninnar. Hallveig og Steingrímur hafa starfað saman við Neskirkju síðast- liðin tvö ár, þar sem þau stofnuðu ásamt fleirum tónlistarhópinn Rinascente. Aðgangseyrir að tón- leikunum er 1.000 krónur en 500 krónur fyrir aldraða og námsmenn. Kyrrðar- og íhug- unartónleikar Morgunblaðið/Árni Sæberg Hallveig Rúnarsdóttir og Stein- grímur Þórhallsson. mbl.is smáauglýsingar Stóra svið SALKA VALKA Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 WOYZECK Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 21 KALLI Á ÞAKINU Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14 CARMEN Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Nýja svið/Litla svið ÞRJÁR SYSTUR e. TSJEKHOV Nemendaleikhúsið, aðeins í desember Þr 27/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 MANNTAFL Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 Síðustu sýningar ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 29/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING BELGÍSKA KONGÓ SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í JANÚAR Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 MIÐAV. 2.500-GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST bókasalur: Upplestur Í dag KL 12:15 Stefán Máni Túristi Blóðrauð rauðrófusúpa á veitingastofu Á MORGUN Reynir Traustason Skuggabörn MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLL FIM. 29. DES kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS FÖS.20. JAN kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAU.21. JAN kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS Gleðileg jól Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup - heldur áfram! Mið. 28.des. kl. 20 UPPSELT Fim. 29.des kl. 20 UPPSELT Fös. 30.des. kl. 20 UPPSELT Aukasýningar í jan og feb í sölu núna: Lau. 7.jan. kl. 19 Nokkur sæti Fös. 13.jan. kl. 20 Í sölu núna Lau. 14.jan. kl. 19 Í sölu núna 20/1, 21/1, 27/1, 28/1 Gjafakort í leikhúsið - góð jólagjöf! Miðasalan opin virka daga frá 13-17 og allan sólarhringinn á netinu. Góð jólagjöf!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.