Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 59
MENNING
MIKLAR geðsveiflur eru einkenn-
andi fyrir tónlist Schumanns og
þarf túlkandi tónlistar hans stund-
um að sleppa gersamlega fram af
sér beislinu. Í einu píanóverki hefur
Schumann gefið flytjandanum þau
fyrirmæli að hann eigi að spila eins
hratt og mögulegt er, en nokkru
síðar stendur „ennþá hraðar“.
Eins og margir vita þjáðist Schu-
mann af geðsjúkdómi og hafa sumir
haldið því fram að það hafi verið
vegna sárasóttar. Ef marka má pró-
fessor í geðlækningum við Kaliforn-
íuháskóla, Peter F. Ostwald, sem
hefur skrifað ævisögu tónskáldsins,
Schumann: Music and Madness, er
það ekki alveg rétt. Ostwald segir
að ekki séu neinar vísbendingar um
að Schumann hafi þjáðst af sára-
sótt, en hins vegar hafi hann borið
öll merki geðhvarfasýki, sem ein-
kennist af gríðarlegum geðsveiflum.
Taka verður fram að sjúkleiki
Schumanns kom ekki niður á gæði
tónlistar hans, nema kannski í allra
síðustu verkunum. Tilfinningarnar
eru hins vegar óheftar og allt litróf
þeirra er að finna á nýjum geisla-
diski þar sem Kristinn Sigmunds-
son söngvari og Jónas Ingimund-
arson píanóleikari flytja eftir
tónskáldið Söngvasveig (Lieder-
kreis) op. 39 og hin svonefndu
Kernerljóð op. 35.
Hástemmd túlkunin er í senn
þróttmikil og þrungin fínlegum blæ-
brigðum og getur maður ekki annað
en hrifist með. Hljómfögur röddin
nýtur sín prýðilega í tærri upptöku
Halldórs Víkingssonar og er hún
ávallt fókuseruð hvort sem söng-
urinn er sterkur eða veikur. Ekki er
Jónas síðri; hver tónn, hver hending
er úthugsuð og mótuð af vandvirkni,
og styður leikur hans svo vel
sönginn að ég get ekki ímyndað mér
að hægt sé að gera betur.
Stundum veit maður varla hvar
mörkin liggja á milli söngs og slag-
hörpu. Slíkt samræmi verður varla
til í einni svipan, enda hafa þeir
Kristinn og Jónas starfað lengi
saman. Megi þeir halda því áfram
um ókomna tíð.
Óheftar tilfinningar
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Schumann: Liederkreis op. 39, Zwölf
Gedichte op. 35. Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson flytja. 2005.
Kristinn Sigmundsson og
Jónas Ingimundarson
Morgunblaðið/Sverrir
Jónas Ingimundarson og Kristinn Sigmundsson. „Stundum veit maður
varla hvar mörkin liggja á milli söngs og slaghörpu,“ segir í umsögninni.
Jónas Sen
JÓLATÓNLEIKAR Kammer-
sveitar Reykjavíkur í Áskirkju á
mánudag voru forkunnarvel sóttir,
þrátt fyrir (eða kannski vegna þess?)
að dagskráin sniðgekk með öllu árs-
tímabundna tónefnið. Músíklega
voru þeir aftur á móti sérlega áhuga-
verðir – einkum þeim
tónlistarunnendum er
tilfinningu hafa fyrir
þeirri ómissandi við-
bótarvídd sem tónlist-
arsagan veitir. Sumir
ganga jafnvel svo langt
að segja að sagan sé
hátt í helming ánægj-
unnar við klassíska
tónlist. Svo mikið er
víst, að fátt veitir tor-
skildri snilld stórmeist-
aranna gleggri við-
miðun en að hlusta á
verk samtímamanna
þeirra – og fyrirmynd-
irnar frá nánustu for-
tíð.
Og hvað fengist svosem betra,
þegar Wolfgang Amadeus Mozart er
annars vegar, en að kynnast verkum
föður hans? Því þó að „kraftaverkið
sem Drottinn lét fæðast í Salzburg“
ætti eftir að reynast það margfaldur
föðurbetrungur að sum verk Leo-
polds voru síðar lengi talin æsku-
verk Wolfgangs, þá var Leopold
Mozart (f. 1719 í Augsburg, d. 1787 í
Salzburg) virtur tónhöfundur um
sína daga. Jafnvel þótt fæst verk
hans hafi haft meiri áhrif en fiðlu-
kennslubókin frá fæðingarári Wolf-
gangs 1756, er forkólfar upphaflegs
strengjaleiks hafa mikið leitað til á
okkar tímum um liðna flutningshefð.
Allt um það var Leopold fyrsti og
mikilvægasti tónsmíðakennari sonar
síns, og því engin spurning hvar
hinn verðandi snillingur hlaut sína
undirstöðu, enda þótt pabbinn hafi
síðar séð til þess að strákur fengi að
ferðast og kynnast helztu nýjungum
í tónsköpun í Þýzkalandi, Frakk-
landi, Bretlandi og Ítalíu. Sjálfur
taldi Leopold Mozart sig nútímalega
sinnað tónskáld, eins og mátti raun-
ar heyra á díverterandi og stundum
jafnvel „galöntu“ yfirbragði verka
hans þetta kvöld, þó að stæðu í nú-
tímaeyrum enn öðrum fæti í síðbar-
okki fyrir m.a. rithátt fylgibassa með
sembal, enda lagðist sá fyrst end-
anlega af á 8. áratug aldarinnar.
Einna rammast kvað að barokk-
leifum í elzta verkinu, Es-dúr kons-
erti fyrir 2 horn frá um 1752, þar
sem heyra mátti ábúðarmikil
strengjaúnísónó-innskotsstef að
hætti Vivaldis og Bachs í hæga mið-
þættinum. Á hinn bóginn gat í Sin-
fonia di Camera í
D-dúr fyrir fylgiraddir
fiðlu og horns á móti
strengjum og fylgi-
bassa einnig að heyra
jafnóbarokkleg lag-
línufyrirbrigði og við-
snúin rísandi króma-
tísk andvörp, er urðu
síðar meðal melódískra
fingrafara Wolfgangs.
Á aðsteðjandi 250.
afmælisári Amadeusar
var vel til fundið að
reifa þannig fyrstu lík-
legu fyrirmyndir hans
úr nærtækustu tón-
leifð bernskuheimilis-
ins. Ekki þurfti að
efast um flutningsgæði, því Kamm-
ersveitin og sólistar hennar léku
flestallt af mikilli og örvandi prýði. Í
tvíeinleik þeirra í Sinfonia di Cam-
era hlaut styrkurinn og hljóm-
breiddin úr virtúósu nútímahorni
Stefáns að vísu að bera einleiksfiðlu
Unu ofurliði, meðan jafnara var á
milli eldsnörpu hornistanna tveggja,
Jósefs og Emils, í tvöfalda Es-dúr
konsertinum. Lokaþáttur þeirra
Jósefs var í ekta veiðihornastíl, er
gegnsýrði líka adrenalínsfrussandi
I. þátt síðasta atriðisins, Sinfonia di
Caccia í G f. 4 horn (endurtekinn að
leikslokum með lifandi púðurskotum
pákuleikarans, ásamt munnlegri
veiðihundagá strengjaleikaranna).
Þar áður blés Eiríkur Örn tístandi
háttlægan clarino-einleikspartinn í
tvíþættum D-dúr trompetkonsert
Leopolds af eftirtektarverðu öryggi,
einkum þegar á leið.
Fyrsta fyrirmynd
stórsnillings
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Áskirkja
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavík-
ur. Verk eftir Leopold Mozart. Einleikarar:
Una Sveinbjarnardóttir fiðla; Eiríkur Örn
Pálsson trompet; Stefán Jón Bernharðs-
son, Jósef Ognibene, Emil Friðfinnsson &
Þorkell Jóelsson horn. Mánudaginn 18.
desember kl. 17.
Kammertónleikar
Leopold Mozart
HIN sívinsæla ópera Wolfgangs Amadeusar Mozarts, Don Giovanni, var
sett upp í Hátíðarhöllinni í Santander á Spáni á dögunum. Hljómsveit-
arstjóri var Ítalinn Marco Armiliato og leikstjóri Francisco Lopez frá
Spáni. Hér sést spænska sópransöngkonan Beatriz Lanza í hlutverki Zerl-
ínu í sýningunni.
Reuters
Don Giovanni á Spáni
Munið að slökkva
á kertunum
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Eldtefjandi efni sem sprautað er á
kertaskreytingar koma aldrei
í veg fyrir bruna