Morgunblaðið - 20.12.2005, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
„ÉG HEF verið í þessu starfi í ell-
efu ár og ég man ekki eftir jafn-
slæmu ástandi,“ segir Gerður Guð-
mundsdóttir, leikskólaráðgjafi hjá
Kópavogsbæ, um þá gríðarlegu
manneklu sem er á leikskólum
bæjarins. Starfsfólk vantar í um 25
stöðugildi frá áramótum og fjöl-
mörg börn sem hefðu átt að byrja í
leikskóla í haust bíða eftir að kom-
ast inn. Aðeins tveir af sextán leik-
skólum bæjarins eru fullmannaðir.
Nær engin viðbrögð hafa verið við
auglýsingum um störf. „Það er al-
gjör ládeyða,“ segir Gerður. „Við
höfum auglýst hálfsmánaðarlega í
tvo mánuði og þær eru teljandi á
fingrum annarrar handar umsókn-
irnar sem hafa borist.“
Margir leiðbeinendur hafa sagt
upp störfum í Kópavogi eftir að
Reykjavíkurborg samdi við ófag-
lært starfsfólk sinna leikskóla með
gerð nýrra kjarasamninga við Efl-
ingu og Starfsmannafélag Reykja-
víkur.
„Staðan eins og hún kemur til
með að vera um áramót er ekki
mjög kræsileg,“ segir Gerður, en
þá hætta margir starfsmenn sem
sögðu upp störfum í haust. Hún
segist hafa átt von á því að staðan
myndi batna en nýir samningar
Reykjavíkurborgar hafa sett stórt
strik í reikninginn.
En áhrif manneklunnar hafa víð-
tækari áhrif. Ekki er hægt að taka
inn börn sem undir venjulegum
kringumstæðum hefðu átt að byrja
á leikskóla í haust. Tekur Gerður
sem dæmi að á tveimur leikskólum
bíða sautján börn, sem hafa fengið
úthlutað plássi, eftir að komast að
á hvorum leikskóla fyrir sig.
Samningar Reykjavíkurborgar draga að starfsmenn leikskóla Kópavogs
Aðeins tveir af 16
skólum fullmannaðir
Morgunblaðið/Ómar
Dæmi eru um að starfsmenn á leikskólum í Kópavogi vilji flytja sig á skóla í Reykjavík eftir að nýir kjara-
samningar voru gerðir. Hér eru börn á nýjum leikskóla í Grafarholti að syngja um jólin.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
BLEIKSTJÖRNÓTT merfolald er nú í
góðu yfirlæti inni í hesthúsi ásamt móður
sinni en það fyrrnefnda kom í heiminn sl.
laugardag, sem er harla óvenjulegur árs-
tími. Tilviljun ein réð því að sú stutta
fannst á lífi en Fífa móðir hennar var í
hagabeit ásamt tugum annarra hrossa
enda vissi enginn að hún væri fylfull.
Magnús Kristinsson, bóndi í Austurhlíð í
Biskupstungum, fór ásamt Guðmundi syni
sínum að gefa í haganum og sá þá eitthvað
liggja á milli þúfna. Þegar betur var að
gáð lá þar lítið merfolald og kepptust eldri
merar í stóðinu um að ganga því í móður-
stað með því að sleikja það í bak og fyrir
og hin raunverulega móðir komst hvergi
nærri því. Þetta rifrildi meranna hafði
þær afleiðingar að sú stutta komst ekki á
fætur og hvað þá á spena og hefði drepist
fljótlega ef Magnús bónda hefði ekki borið
að garði.
Fékk pela frá barnabarninu
„Lífið er tilviljun,“ komst Magnús bóndi
að orði í gær þegar Morgunblaðið ræddi
við hann en folaldið litla var ansi illa á sig
komið þegar það fannst, var orðið kalt og
slappt.
Guðrún Sigurrós Paulsen, Rósa, bóndi
og eiginkona Magnúsar, segist hafa keypt
hryssuna Fífu fyrr á árinu en þá var talið
að hún væri fylfull og myndi kasta sl. sum-
ar. Ekkert gerðist og var því afskrifað að
Fífa væri fylfull og hún send í hagabeit
ásamt öðrum hrossum. Búið var að gefa
Níelsi, yngsta syni hjónanna, folaldið sem
þó aldrei fæddist. En nú hefur það breyst.
Litla merfolaldið hefur fengið nafnið
Ófeig og var flutt í hesthús ásamt móður
sinni þar sem það fór fljótlega að bragg-
ast. „Ég fór og sótti pelann út úr barna-
barninu,“ segir Rósa hlæjandi um þá
umönnun sem Ófeig litla fékk. „Þeir gáfu
henni á fimmtán mínútna fresti að drekka
og í þriðja skiptið þambaði hún kröft-
uglega úr pelanum og fór svo að sjúga.
Þannig að hún er sloppin.“
Magnús og Rósa eru sannfærð um að
Ófeig litla hefði ekki þolað vistina miklu
lengur í haganum, sennilega var það mín-
útuspursmál að hún komst lífs af.
Magnús segir að gefa þurfi móðurinni
eins og snemmbæru, líkt og sagt er um kýr
sem bera að haustlagi. Fær Fífa nú hey og
kjarnfóður til að ná sér á strik og verður
ásamt dóttur sinni inni í hlýju hesthúsi um
jólin.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Ófeig braggast vel eftir að Magnús Krist-
insson tók hana inn og gaf henni pela.
„Lífið er
tilviljun“
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
FIMM starfsmenn, flestir ófag-
lærðir, hætta um áramótin á leik-
skólanum Dal í Lindahverfi í
Kópavogi. Engin viðbrögð hafa
verið við auglýsingum í stöðurnar.
Takist ekki að ráða í stöðurnar
fyrir áramót verður að loka einni
af fjórum deildum skólans dag-
lega. „Það er búið að vera mjög
mikið álag allt frá því í haust. Við
höfum sloppið við lokanir deilda
en nú er ekkert annað í stöðunni,“
segir Hanna María Ásgrímsdóttir,
aðstoðarleikskólastjóri á Dal.
„Við vorum bjartsýn í haust á að
staðan myndi skána en það hefur
ekkert breyst. Fólk er núna að
sækja um í Reykjavík og hætta hjá
okkur og lái ég það engum.“ Hún
segir augljóst að starfsmenn horfi
til Reykjavíkur eftir nýgerða
kjarasamninga.
Hanna María segir foreldra
sýna ástandinu skilning. „Ein
móðirin sagði við mig að hún
mætti vera fegin að þetta hefði
ekki gerst fyrr en það þýðir ekki
að hugsa svoleiðis. Foreldrar
verða að geta vitað af börnum sín-
um í öruggu skjóli meðan þeir
vinna.“
Kópavogsbær samdi við starfs-
fólk sitt fyrr í vetur, áður en borg-
in gerði sína samninga sem nú
hafa vakið mikil viðbrögð hjá leik-
skólakennurum.
Loka þarf einni deild á Dal
VEGNA breytinga sem átt hafa
sér stað á íbúðalánamarkaði hefur
forskráning íbúðalána á skattfram-
töl minnkað um
30–40 milljarða
króna og sam-
kvæmt áætlun
Indriða Þor-
lákssonar ríkis-
skattstjóra fá
um 10–20 þús-
und framtelj-
endur verri
þjónustu fyrir
vikið. Hann seg-
ist telja að allar
lagaheimildir séu fyrir hendi til
þess að krefjast upplýsinga, en að
hingað til hafi fyrst og fremst verið
litið á forskráninguna sem þjón-
ustu sem eigi að leysa eins og gert
sé alls staðar í nágrannalöndum.
Samtök banka og verðbréfafyr-
irtækja hafa lýst því yfir að fjár-
málafyrirtækjum sé óheimilt að af-
henda embætti Ríkisskattstjóra
upplýsingar um skuldir viðskipta-
vina sinna vegna forskráningar á
skattframtöl, en Indriði segir ekk-
ert hæft í þeirri afstöðu. Um sé að
ræða þjónustu sem aðilar ættu að
fagna að geta veitt sínum við-
skiptamönnum en ekki leggjast
þvert í götu þess.
Bendir á ákvæði laga
á Norðurlöndunum
Upplýsingar frá Íbúðalánasjóði,
Lánasjóði íslenskra námsmanna
og fleirum eru forskráðar á framtöl
og Indriði segir lífeyrissjóði hafa
tekið vel í að veita upplýsingar. Þá
segir hann banka og fjármálastofn-
anir nágrannalandanna veita þær.
Indriði segir jafnframt að emb-
ættið hafi aðeins sóst eftir upplýs-
ingum um lánveitingar en ekki um
öll fjármál viðskiptavina bankanna,
eins og látið sé í veðri vaka í bréfi
SBV sem greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær. Þá sé ekki sóst
eftir neinum upplýsingum sem
framteljendum beri ekki lagaleg
skylda til að gefa upp hvort sem er.
RSK hefur sent SBV svarbréf
vegna viðbragða samtakanna þar
sem bent er á ákvæði laga og upp-
lýst um þær reglur sem gilda um
þessi mál hjá hinum Norðurlanda-
þjóðunum.
„Ég hef spurt sem svo: Hverju
er Kaupþing banki hér á landi að
leyna fyrir skattyfirvöldum sem
hann lætur skattyfirvöldum í té af
fúsum vilja í Noregi og Svíþjóð þar
sem hann er með dótturfyrirtæki?“
segir Indriði.
Forskráning íbúðalána á skattframtöl minnkar mikið
Skattstjóri telur sig
hafa fulla heimild
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Undrast fornaldarviðhorf | 4
Indriði H.
Þorláksson
Mývatnssveit | Um mikilvægi
eggja í jólabaksturinn verður
ekki deilt. Það er því mikið
ábyrgðarstarf að stjórna varpi í
einu hænsnabúi fyrir jólin.
Hann er glæsilegur haninn sem
ræður ríkjum í hænsnahúsinu á
Skútustöðum. Hér er hann að
flytja hvatningarræðu yfir hæn-
um búsins og brýnir þær til dáða
fyrir jólin. Íslensk hænsn eru
miklar gersemar og augnayndi,
fyrir utan það að vera ágætlega
viljugar til að verpa.
Morgunblaðið/BFH
Landnáms-
hænur mikið
augnayndi