Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 2
2 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Líkamsrækt
í vatni
Þegar æft er í vatni minnkar álag um liði
þar sem áhrif þyngdarkraftsins minnka.
Það verður því auðveldara að þjálfa upp
úthald og styrk án þess að það valdi of
miklu álagi á liðina.
Bæði rólegir og kröftugir tímar í hádeginu
og eftirmiðdaga, undir leiðsögn sjúkra-
þjálfara, í hlýrri og bjartri sundlaug við
Laugarás.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 897-2896
Netfang: harpahe@hi.is
Finnur þú fyrir verkjum í fótleggjum
eða baki við líkamsþjálfun?
LAUN HÆKKI UM 2,5%
Laun embættismanna og þjóð-
kjörinna fulltrúa hækka um 2,5% 1.
febrúar nk. nái boðað frumvarp rík-
isstjórnarinnar, þar um, fram að
ganga. Það verður lagt fram er Al-
þingi kemur saman að nýju 17. jan-
úar nk. Á sama tíma stendur til að
fella úr gildi úrskurð Kjaradóms, um
að hækka þessi laun um u.þ.b. 8%.
Mikið mannfall í áhlaupi
Að minnsta kosti tuttugu Súdanar
týndu lífi í gær þegar egypska
óeirðalögreglan réðst til atlögu gegn
mótmælabúðum súdanskra flótta-
manna nálægt bækistöðvum Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna
(UNHCR) í Kaíró. Um 5.000 lög-
reglumenn voru sendir á vettvang til
að loka búðunum.
Neitar að framlengja frest
Forsvarsmenn gasfyrirtækisins
Gazprom í Rússlandi synjuðu í gær
beiðni forseta Úkraínu um að frest-
ur til að ná samningum í gasdeilu
landanna tveggja yrði framlengdur
til 10. janúar.
Landsvirkjun seld?
Geir H. Haarde segir í áramóta-
grein sinni að eftir nokkur ár kunni
að verða tímabært að losa um eignir
þjóðarinnar í Landsvirkjun og Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Af listum 41
Úr verinu 11 Umræðan 42/45
Viðskipti 14 Auðlesið 46
Erlent 16/20 Minningar 46/51
Minn staður 22 Hugvekja 48
Akureyri 23 Myndasögur 62
Landið 23 Dagbók 62/65
Suðurnes 28 Víkverji 62
Árborg 28 Velvakandi 63
Daglegt líf 30/31 Staður og stund 64
Ferðalög 32 Sjónvarp 61/74
Forystugrein 38 Staksteinar 75
Menning40/41, 66/73 Veður 75
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
bæklingurin Tyrkland frá Úrvali
Útsýn.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FRÁ 1. janúar 2006 hækkar
áskriftarverð blaðsins úr 2.600
krónum í 2.800 krónur á mánuði.
Helgaráskrift, sem er föstu-
dagar, laugardagar og sunnudag-
ar, hækkar úr 1.500 krónum í
1.700 krónur.
ÞYRLUÁHÖFN Landhelgisgæslu
Íslands var kölluð út kl. 16.17 síðast-
liðinn fimmtudag vegna vélsleða-
manns sem fallið hafði niður um ís á
Lyngdalsheiði, við Kálfstinda. Þegar
þyrlan kom á staðinn var búið að
koma manninum fyrir í sjúkrabíl við
Gjábakkaveg.
Sveinn Ævarsson húsasmíðameist-
ari segir að fimm manna föruneytið
hafi verið að keyra sleðana eftir dal-
botni, með hamraveggi í kring. Tíu til
fimmtán sentimetra snjólag var yfir
öllu og um átta stiga frost. Glitta sást í
smávök sem sleðarnir fóru yfir og
hægði Sveinn á sér en allt í einu lætur
ísinn undan sleðanum. „Ég reyni að
gefa í botn en þá stendur hann upp á
endann og ég sekk. Ég var sallaró-
legur og hélt að þetta væri í mesta
lagi hálfs metra djúpt. Svo sé ég sleð-
ann hverfa ofan í djúpið og ég náði
ekki einu sinni að tipla með tánum of-
an á hann,“ segir Sveinn sem var vel
búinn, í brynju undir gallanum og
með hjálm. Hann segir að næstu mín-
útur hafi verið hrikalega erfiðar.
„Maður er svo fljótur að klára orkuna
þegar maður er svona þungur að
berjast um í vatninu. Ég var einnig í
sérstökum sleðaskóm sem eru stórir
og miklir og þegar þeir fylltust af
vatni var það eins og eitthvað togaði
mig niður.“ Félagar Sveins brugðust
snöggt við og hófu björgunaraðgerðir
en það var hægara sagt en gert.
Dreginn tugi metra
eftir ísnum
„Þeim leið mjög illa því þeir reyndu
allt til að komast til mín og til að
mynda reyndu þeir að skríða á mag-
anum, en þá var búið að binda í þann
sem skreið. Þegar fór að braka í ísn-
um stóð félagi minn upp og lenti sjálf-
ur ofan í upp að höndum en þeir voru
fljótir að kippa honum upp úr aftur,“
segir Sveinn. Eftir um það bil tíu mín-
útur tókst loks að koma til hans bandi,
um 30 metra löngu, en þá var hann
hættur að finna fyrir höndum og fót-
um. Aðeins ein hugsun komst þá að.
„Það var bara að halda í bandið. Þeir
ætluðu að reyna draga mig tveir en
höfðu ekki afl í það, því ég var orðinn
svo þungur og lenti alltaf á ísbrúninni
en komst ekki upp úr.“
Þá var öðru bandi bætt við og það
bundið við vélsleða. Þá var hann dreg-
inn tugi metra til að komast af ísnum
áður en nokkuð var hægt að gera til
aðhlynningar. Sveinn segist hafa ver-
ið hálfmeðvitundarlaus þegar hann
var dreginn og man lítið eftir það.
Eftir því sem Sveinn kemst næst af
frásögnum félaga sinna var hann fest-
ur við bróður sinn, sem með var í för,
og hékk á bakinu á honum meðan
reynt var að ná í hjálp. Fleiri vélsleða-
menn voru á sömu slóðum og var
jeppi um 20 km frá slysstaðnum. Þar
var miðstöðin sett á fullt og beðið eftir
sjúkrabíl. Líkamshiti Sveins var í
kringum 32 gráður þegar hann komst
í sjúkrabílinn. „Þetta fór allt vel en
tæpara mátti það ekki standa,“ segir
Sveinn sem þakkar félögum sínum
fyrir frækilegt björgunarafrek en
þeir lögðu sjálfa sig í lífsháska.
Björgunarþyrla Landhelgisgæsl-
unnar sótti Svein og flutti í Landspít-
ala – háskólasjúkrahús í Fossvogi þar
sem hann var fram eftir kvöldi en
vildi ekki dvelja yfir nótt. „Svo er ég í
dag eins og það hafi jarðýta keyrt yfir
mig, gjörsamlega búinn. Það kólna öll
líffæri og maður er enn svolítið skrít-
inn í höfðinu en það lagast á næstu
dögum.“
Vélsleðaferð Sveins Ævarssonar og fimm félaga hans endaði með ósköpum
Féll í vök og líkamshitinn
fór niður í 32 gráður
Eftir Andra Karl
andrikarl@mbl.is
lestir og hefur ekki verið minni í
aldarfjórðung. Hörpudiskveiðar
voru engar á árinu. Humarafli
jókst um nærri sex hundruð tonn
frá fyrra ári.
Vegna aukinnar vinnslu síldar-
afla um borð í fiskiskipum var
aflaverðmæti ársins 2005 áþekkt
og á árinu 2004 þrátt fyrir minni
afla.
AFLI íslenskra skipa á árinu 2005
er áætlaður 1.667 þúsund lestir.
Það er minnsti afli síðan 1995 þeg-
ar aflinn var 1.605 þúsund lestir.
Mestur var aflinn 1997 eða 2.199
þúsund lestir. Næst kemur árið
2002 þegar aflinn var 2.133 þúsund
lestir.
Þorskaflinn 2005 var 14 þúsund
lestum minni en 2004. Ýsu- og
ufsaafli var hins vegar talsvert
meiri en árið áður. Botnfiskafli
minnkaði um 6 þúsund lestir milli
ára. Afli uppsjávartegunda var
1.135 þúsund lestir 2005 sem er 36
þúsund lestum minni afli en 2004.
Loðnuafli var 78 þúsund lestum
meiri en 2004 en 156 þúsund lesta
samdráttur var í afla kolmunna.
Rækjuaflinn 2005 var 9 þúsund
!
Minnsti
afli í
áratug
ÞAU voru með öryggisatriðin á
hreinu, systkinin Pétur Jökull og
Júlía Sóley, 11 og 9 ára, og höfðu
sett upp hlífðargleraugun strax í
gærkvöldi, þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins rakst á þau í
flugeldasölu Landsbjargar í
Toyota-húsinu við Nýbýlaveg.
Pétur og Júlía búa allajafna í
Lúxemborg en koma til Íslands um
jólin, enda ekki nærri því jafn-
spennandi áramót þar, eins og þau
sögðu blaðamanni.
Sala með
besta móti
Flugeldasala hófst af fullum
krafti í gær og var mikið að gera á
flestum sölustöðum fram eftir
kvöldi.
Jón Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar, sagði í gær-
kvöldi að salan hefði verið með
besta móti en stærstur hluti hennar
færi þó allajafna fram á gaml-
ársdag og svo yrði sennilega í ár
líka.
Alls er Landsbjörg með um 30
sölustaði á höfuðborgarsvæðinu og
um 120 staði á landinu öllu.
Jón áætlaði að hátt í þúsund
manns kæmi að vinnu fyrir
Landsbjörg um áramótin.
Mikil áhersla er á það lögð að
kaupendur flugelda fari að öllu
með gát og fá kaupendur hlífð-
argleraugu gefins með í öllum
regnbogans litum.
Það er spáð góðu veðri fyrir skot-
glaða Íslendinga í kvöld og skiptir
þar mestu að vindátt verður hæg,
en þó verður nokkuð kalt í veðri, að
sögn Veðurstofunnar.
Morgunblaðið/Ómar
Með ör-
yggisat-
riðin á
hreinu