Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 8

Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Miðasala: 4 600 200 / www.leikfelag.is brúðkaupiðheldur áfram! Vegna fjölda áskorana höfum við bætt við aukasýningum í janúar og febrúar: 7/1, 13/1, 14/1, 20/1, 21/1, 27/1, 28/1, 3/2, 4/2, 10/2, 11/2, 18/2 Sala hafin á allar aukasýningar. Uppselt var á allar sýningar árið 2005! Tryggðu þér miða í tíma. Visa-korthafar fá 200 kr afslátt. Nú skella allir sér norður! Miðasalan er opin virka daga kl. 13-17 og fram að sýningu á sýningar- dögum. Á laugardögum opnar miðasalan kl. 15. Búið er að fara yfirallar umsagnirnarog verður útdrátt- ur úr niðurstöðum birtur fljótlega eftir áramótin, að sögn Hrafnkels V. Gísla- sonar, forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar. Síðan mun PFS leggja fram til- lögur um notkun tíðni- sviðsins, bjóða það upp eða út eða úthluta því, allt eftir eðli athugasemda og ábendinga hagsmuna- aðila. Rekstur NMT-450 far- símakerfisins hófst 1985. Í dag eru rúmlega 130 sendistaðir í NMT-kerfinu og þekur það stærstan hluta landsins og haf- svæðið í kringum Ísland. Notend- ur NMT-kerfisins eru fyrst og fremst sjómenn og þeir sem eiga leið um þá hluta landsins sem GSM-þjónusta nær ekki til. Fyrir liggur að NMT-kerfið verður lagt niður. Búnaður þess og tæknin eru að úreldast og svara ekki kröfum tímans. NMT- rekstrarleyfi Landssíma Íslands (LÍ) rennur út 31. desember 2007 og hefur LÍ tilkynnt að fyrirtækið áætli að hætta rekstri kerfisins frá og með 1. janúar 2007. Sam- kvæmt leyfisbréfi LÍ vegna 450 MHz tíðnisviðsins getur PFS kveðið á um að fyrirtækið veiti NMT-þjónustu í allt að tvö ár eftir það, eða til ársloka 2008. Hrafn- kell lagði áherslu á að nýtt kerfi tæki samfellt við af gamla NMT- kerfinu þannig að notendur gætu flutt sig á milli kerfa og ekki yrði eitthvert tímabil þar sem ekki nyti langdrægrar farsímaþjónustu á eða við Ísland. Samkvæmt fjarskiptaáætlun, sem samþykkt var á Alþingi í maí síðastliðnum, voru m.a. sett fram markmið um að byggja upp lang- dræg stafræn farsímakerfi til að þjóna landinu öllu og miðunum. Langdræga stafræna farsíma- þjónustan á að standa til boða um allt land og á miðunum eftir að rekstri NMT-kerfisins lýkur. Í fyrrgreindu umræðuskjali segir að PFS muni taka mið af stefnu- mörkun stjórnvalda við endurút- hlutun á 450 MHz-tíðnisviðinu, sem NMT-kerfið hefur notað. Það er túlkun stofnunarinnar að í framtíðinni verði hið minnsta boð- ið upp á talþjónustu á 450 MHz- tíðnisviðinu. Ný langdræg farsímakerfi Erlendis hafa langdræg staf- ræn farsímakerfi á 450 MHz-tíðni- sviðinu verið að ryðja sér til rúms. Þau hafa svipað drægi og núver- andi NMT-kerfi, en bjóða upp á fjölmarga kosti 2. og 3. kynslóðar farsímakerfa. Annars vegar er um að ræða 2. kynslóðar GSM-kerfi fyrir 450 MHz-tíðnisvið. Hér á landi og í nágrannalöndum eru nú notuð 900 og 1.800 MHz-tíðnisvið- in fyrir GSM en t.d. 850 og 1.900 MHz-tíðnisvið í Bandaríkjunum. Hins vegar er um að ræða 3. kynslóðar CDMA (Code Division Multiple Access) farsímakerfi á 450 MHz-tíðnisviði, en CDMA- fjarskiptakerfi eru til á ýmsum tíðnisviðum. Langdræg CDMA- farsímakerfi hafa m.a. verið að ryðja sér til rúms á Norðurlönd- unum og eru orðin talsvert út- breidd í Rússlandi, Austur-Evr- ópu, Asíu, Afríku og víðar. Í 3. kynslóð er auk talflutnings boðið upp á mun meiri gagnaflutnings- hraða en í 2. kynslóð. Má í raun búast við yfir 500 Kb þráðlausum tengingum sem ná 100 km út í haf eða upp á fjöll. Mögulegt er t.d. að flytja útvarp eða sjónvarp með gagnaflutningnum. „Okkur virðist að CDMA-tækn- in geti uppfyllt fleiri skilyrði en GSM-tæknin hvað varðar framtíð- aráform í fjarskiptamálum,“ sagði Hrafnkell. Varðandi val á framtíð- ar langdrægu farsímakerfi skiptir útbreiðsla þess á heimsvísu máli. Hún ræður miklu um hvort hægt er að fá handtæki fyrir notendur á viðráðanlegu verði. Hrafnkell seg- ir að þar sé gjarnan miðað við 5 milljón notendur á heimsvísu. CDMA- markaðurinn á 450 MHz- tíðnisviðinu er að ná því. Rætt hefur verið um að á mark- að komi handtæki sem gerð verða bæði fyrir stafrænt langdrægt farsímakerfi CDMA og GSM- kerfið sem nú er í notkun. Dreifikerfi NMT- og GSM-sím- kerfanna sem fyrir eru geta að hluta nýst við uppsetningu nýs langdrægs farsímakerfis. Hrafn- kell sagði að skipta mætti dreifi- kerfinu í nokkra þætti. Í fyrsta lagi þarf aðstöðu fyrir senda, hús- næði með rafmagni og fjarskipta- tengingu. Svo þarf mastur til að festa á loftnet. Þá þarf loftnet og í fjórða lagi sendinn. Hýsing og möstur eru fyrir hendi, hugsan- lega mætti nýta eldri loftnet, þótt það sé ólíklegt vegna örrar þróun- ar í gerð loftneta. Víst er að skipta þarf um sendana sjálfa og eins að setja upp nýjar símstöðvar. Not- endur þurfa að skipta um búnað og fá sér nýja síma eða fjarskipta- búnað sem vinnur með nýju tækninni. Hýsing fyrir dreifikerfið, sem hægt væri að nýta að hluta, er í eigu ýmissa aðila. Þeirra á meðal eru t.d. Ríkisútvarpið, Síminn, Fjarski/Landsvirkjun, Siglinga- stofnun, Flugfjarskipti, 365 miðl- ar, Orkubú Vestfjarða og jafnvel fleiri orkufyrirtæki auk einstak- linga. Fréttaskýring | Langdrægt farsímakerfi Sími sjómanna og fjallafólks Langdræg stafræn kerfi með mikla flutningsmöguleika í stað NMT-símans Hvað tekur við af NMT-kerfinu? Leitað eftir áhuga og sjón- armiðum hagsmunaaðila  Nær tíu aðilar, innlendir og erlendir, brugðust við umræðu- skjali Póst- og fjarskiptastofn- unar (PFS) um framtíðarnotkun NMT-450 tíðnisviðsins á Íslandi, sem gefið var út hinn 24. október síðastliðinn. Tilgangurinn var að kanna áhuga markaðarins og sjónarmið hagsmunaaðila á framtíðarnotkun þessa tíðni- sviðs. Óskað var eftir umsögnum þessara aðila eigi síðar en 21. nóvember síðastliðinn. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LÍKLEGA eru ekki margir sem standa í gróðursetn- ingum þessa dagana en nú milli jóla og nýárs var þó verið að gróðursetja tré við Umferðarmiðstöðina og er það hluti af frágangi við nýju Hringbrautina. Svo er bara að bíða og sjá hvernig veturinn fer með trén og hvort þau nái að festa rætur og standa um ókomna tíð. Þó hér sé ekki verið að gróðursetja skóg líkt og ræktaður hefur verið víða í borgarlandinu, er bæði mikil prýði og gott skjól af trjám sem sett eru niður við göngustíga og umferðarmannvirki á borð við nýju Hringbrautina. Mörgum finnst ekki frágangi við slíkar framkvæmdir lokið fyrr en birkihríslur eða grenitré hafa þar verið sett niður. Morgunblaðið/Golli Gróðursetning um áramót

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.