Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 9
SÆVAR Pétursson, formaður
Fornbílaklúbbs Íslands, og Alfreð
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur, tóku
fyrstu skóflustungur að nýjum hús-
um undir fornbílasafn og þjón-
ustuaðstöðu Orkuveitu Reykjavík-
ur skammt frá gömlu rafstöðinni í
Elliðaárdalnum í gær. Þetta verður
fyrsta sérhannaða húsið undir
fornbílasafn í Reykjavík og sagði
Alfreð Þorsteinsson við þetta til-
efni að allar borgir í Evrópu sem
stæðu undir nafni hefðu innan
borgarmarkanna fornbílasafn og
nú bættist Reykjavík í þann hóp.
Við hlið fyrirhugaðs húss er Orku-
veitan með rafveitusafn og ráðgert
er að tengja þessar byggingar og
nýja þjónustumiðstöð Orkuveit-
unnar, sem þarna rís einnig, með
tengibyggingu. Alfreð benti á að
Elliðaárdalurinn væri mest sótta
útivistarsvæði innan borgarmark-
anna og mikil þörf væri fyrir þjón-
ustu eins og veitingasölu og salern-
isaðstöðu á svæðinu.
Hús Fornbílaklúbbsins verður
um 800 fermetrar að grunnfleti og
á tveimur hæðum. Safnið verður á
neðri hæð en félagsaðstaða á þeirri
efri. Þjónustubygging Orkuveit-
unnar verður 100 fermetrar að
grunnfleti. Áætlaður kostnaður við
byggingu Fornbílasafnsins er 100–
130 milljónir króna og ráðgert er
að byrjað verði á grunni hússins í
janúar og húsið verði tekið í notk-
un í byrjun árs 2007.
Skóflustunga að fornbílasafni
Morgunblaðið/RAX
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 9
FRÉTTIR
Mjódd, sími 557 5900
Við sendum viðskiptavinum okkar
bestu óskir um gleðilegt ár
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
s: 570 2790www.baendaferdir.is
til Saalbach - Hinterglemm
4. febrúar - 1 vika / 11. febrúar - 1 vika / 4. febrúar - 2 vikur
Fararstjórar: Sævar Skaptason & Guðmundur K. Einarsson
Skíðaferð Ferðaþjónustu bænda árið 2006 er til Saalbach - Hinterglemm
í Austurríki. Gist verður á 4 stjörnu hóteli í þorpinu Hinterglemm.
Hótelið er vel staðsett í jaðri bæjarins rétt við skíðalyfturnar.
Saalbach - Hinterglemm oft nefnt skíðaparadís Alpanna og hefur verið
valið eitt af 10 vinsælustu skíðasvæðum Austurríkis. Farastjórar eru með
hópnum og skipuleggja daglegar ferðir um skíðasvæðið fyrir þá sem vilja.
Verð: 104.900 kr. á mann í tvíbýli í 1 viku
Verð: 154.500 kr. á mann í tvíbýli í 2 vikur
Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is
„MARKMIÐ laganna er að stuðla
að þjóðhagslega hagkvæmu raf-
orkukerfi og þeim er ætlað að
skapa forsendur fyrir samkeppni í
vinnslu og sölu, tryggja öryggi raf-
orkukerfisins og stuðla að nýtingu
endurnýjanlegra orkulinda,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, en frá ára-
mótum geta allir, jafnt heimili og
fyrirtæki, keypt rafmagn af þeim
söluaðila sem þeir kjósa helst.
Vegna tafa við aðlögun sænsks
hugbúnaðar að íslenskum aðstæð-
um verður flutningur notenda á
milli fyrirtækja þó ekki virkur fyrr
en í maí eða júní næstkomandi.
Hins vegar verður hægt að semja
við söluaðila strax eftir áramót.
Valgerður segir að þrátt fyrir
þessar tafir hafi flest raforkufyr-
irtæki nú þegar boðað og birt
lækkaðar gjaldskrár og í nokkrum
bæjarfélögum eru raforkufyrirtæki
farin að berjast um nýja notendur.
Hún segir samkeppnina því vera
hafna og afar ánægjulegt að útlit
sé fyrir að markmið raforkulag-
anna um samkeppni náist.
Töfin hefur ekki áhrif á þá not-
endur sem eru tímamældir, en svo
er einkum háttað um fyrirtæki og
einstaklinga sem kaupa mikið af
raforku, og geta þeir skipt um
söluaðila um leið í janúar.
Orkustofnun með
almennt eftirlit
Til að koma á samkeppni á raf-
orkumarkaði þurfa raforkufyrir-
tæki að skilja sundur starfsemi
dreifiveitna og raforkusölu. Flutn-
ingur og dreifing eru háð einka-
leyfi eins og verið hefur og mun
Orkustofnun hafa eftirlit með
einkaleyfisþáttunum. „Við erum að
fylgjast með gæðum og öryggi af-
hendingar. Það lýtur aðallega að
dreifiveitum frekar en framleiðend-
um,“ segir Þorkell Helgason orku-
málastjóri og bætir við að Orku-
stofnun gegni stóru hlutverki og
eigi að hafa almennt eftirlit með
raforkulögunum og einnig til dæm-
is að veita umsagnir um virkjana-
leyfi.
Ekki aðeins sett útaf ESB
Þorkell segir lögin ekki aðeins
sett, eins og margir haldi, til að
innleiða tilskipun ESB um frelsi á
raforkumarkaði því í raun leysi þau
af hólmi fyrirkomulag sem að
flestra mati hafi verið orðið úrelt.
„Þannig að hvort sem ESB-tilskip-
unin hefði komið til eða ekki, hefðu
menn þurft að taka sig til og setja
ramma utan um raforkustarfsem-
ina.“
Raforkukaupendur hafa hingað
til keypt rafmagn af því orkufyr-
irtæki sem á dreifikerfi þar sem
þeir búa en með nýja kerfinu geta
þeir valið á milli allra söluaðila raf-
orku á landinu. Fá notendur þá tvo
reikninga í stað eins, frá dreifiveitu
og söluaðila. Ekki er tekinn kostn-
aður fyrir flutning og á vefsvæði
Orkustofnunnar er sérútbúin
reiknivél til að áætla á einfaldan
hátt útgjöld heimila vegna raforku-
notkunar og bera saman gjaldskrár
fyrirtækjanna sem keppa um við-
skiptavini á markaðinum
(www.os.is/raforkuverd). Talið er
að nýjar gjaldskrár fyrirtækja liggi
fyrir um miðjan janúar en nokkur
þeirra hafa nú þegar birt nýjar
gjaldskrár á vefsvæðum sínum.
Ef notandi kýs að færa ekki við-
skipti sín annað verður lítið um
breytingar með nýju lögunum og
skiptir sá áfram við sína dreifi-
veitu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Rafmagn verður selt á samkeppnismarkaði frá og með 1. janúar.
Samkeppni á raforku-
markaði er nú hafin
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Rafmagn selt á samkeppnismarkaði frá og með 1. janúar
Gleðilegt ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030