Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 23 MINNSTAÐUR Gleðilegt ár og takk fyrir viðskiptin Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Sími 462 3505 Opið virka daga 10-18 laugardag kl. 10-22 sunnudag kl. 13-17Christa 30% AFSLÁTTUR AF ÁRAMÓTAFATNAÐI LANDIÐ Fljót | Unnið hefur verið að gerð sjóvarnargarðs í landi jarðarinnar Hrauna í Fljótum undanfarnar vik- ur. Markmiðið með framkvæmdinni er að verja svokallaðan Stakkarðs- hólma fyrir ágangi sjávar en þar er mikið æðarvarp. Framkvæmdinni er nú lokið. Stakkarðshólmi er líkt og eyja í malarkambi sem nefnist Hraun- amöl og er á milli sjávar og Mikla- vatns. Vegna æðarvarpsins er hólminn ákaflega verðmætur. Þarna var gerður um 200 metra langur grjótgarður sem í fóru á þriðja þúsund rúmmetrar af grjóti. Með þessari framkvæmd standa vonir til hægt verði að fyrirbyggja að landbrot haldi áfram. Það var verkfræðistofan Stoð hf. á Sauðákróki sem hannaði garðinn en framkvæmdin er gerð að til- stuðlan Siglingastofnunar þó svo að landeigandi taki nokkurn þátt í kostnaði við verkið. Verktaki var Víðimelsbræður í Skagafirði. Góð ráð dýr Viðar Pétursson, bóndi á Hraun- um, sagði að með þessu væri margra ára baráttu hans við land- brot og sjávargang vonandi að ljúka. Það væri langt síðan sjó- gangur hefði farið að vinna á hólm- anum sem upphaflega hefði verið um hektari að stærð. Hólminn væri búinn að minnka mikið frá því hann var að alast upp á Hraunum. Einna verst hefði hann þó farið í ofsa- brimi 21. september 2003 þá fóru hátt í hundrað fermetrar af hólm- anum. Í janúar á þessu ári gerði líka stórbrim og þá munað sáralitlu að sjórinn græfi sér nýjan farveg inn í Miklavatn við hólmann að vestanverðu. „Ég er búinn að láta keyra þarna miklu efni á undanförnum árum til að verja hólmann en það hefur bara ekki dugað til. Í vetur varð ég að fá jarðýtu til að loka rás sem brimið gróf þarna og náði að loka henni áður en vatnið sprengdi sig fram í þessum nýja farvegi. Þetta er búið að vera dýrt í gegnum tíð- ina, en landið þarna er líka dýr- mætt. Það hafa verið þarna að jafn- aði hátt í tvö þúsund æðarhreiður á ári. Ég vona svo sannarlega að þessi framkvæmd dugi til að verja hólmann í framtíðinni, annars eru góð ráð dýr,“ sagði Viðar Pét- ursson. Gera sjóvarnagarð til varnar æðarvarpinu á Hraunum „Vona að þessi framkvæmd dugi“ Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Varnir Unnið með gröfum við vesturenda Stakkarðshólma í Fljótum. Eftir Örn Þórarinsson Ísafjörður | Halldór Hall- dórsson, bæjar- stjóri á Ísafirði og oddviti bæj- arfulltrúa Sjálf- stæðisflokks- ins, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða framboðs- lista flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á vori komanda. Prófkjör fer fram 11. febrúar næstkomandi. Í tilkynningu sem Halldór hefur sent frá sér af þessu til- efni kveðst hann vonast eftir góðum stuðningi. „Hljóti ég endurnýjað umboð sem oddviti framboðslistans mun ég leggja mig allan fram, ásamt sam- starfsfólki mínu í Sjálfstæðis- flokknum, um að vinna að góð- um árangri flokksins í kosningunum í vor. Undangeng- in tvö kjörtímabil hef ég sem bæjarstjóri unnið af heilum hug að framgangi Ísafjarðarbæjar og ég er stoltur yfir því að hafa hlotið umboð til þeirra starfa. Ég hef öðlast viðamikla reynslu í starfi mínu sem ég vil gjarnan nýta til áframhaldandi uppbygg- ingar í sveitarfélaginu Ísafjarð- arbæ,“ segir Halldór. Halldór gefur kost á sér í fyrsta sætið Halldór Halldórsson AKUREYRI HILDINGUR ehf., dótturfélag KEA, Kristján Kristjánsson, Birg- ir Guðmundsson og Ásprent Stíll hafa stofnað útgáfufélag sem keypt hefur allar eignir Vikudags á Ak- ureyri. Mun félagið hefja rekstur blaðsins frá og með áramótum. Kristján Kristjánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, hefur verið ráð- inn ritstjóri Vikudags og fram- kvæmdastjóri útgáfunnar. Nýja útgáfustjórn skipa Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmda- stjóri Hildings, Birgir Guðmunds- son, lektor við Háskólann á Ak- ureyri og G. Ómar Pétursson, framkvæmdastjóri Ásprents Stíls. Þetta kom fram á blaðamannafundi með nýrri útgáfustjórn . Að sögn Bjarna Hafþórs er ekki gefið upp hvernig nákvæm skipting hlutafjár sé en Hildingur sé eig- andi meirihluta hlutafjár. Ekki er loku fyrir það skotið að hluthöfum Vikudags muni fjölga. Vikudagur var stofnaður árið 1996 af Hjörleifi Hallgríms sem nú hefur selt blaðið til nýja útgáfufélagsins. Blaðið er prentað í tvö þúsund eintökum og selt í áskrift. Vikudagur kemur út einu sinni í viku og er 12 blaðsíður að stærð. Fyrsti útgáfudagur blaðsins eftir áramót er 12. janúar Að sögn Birgis er ætlunin að fara rólega af stað en til álita kem- ur að stækka blaðið og fjölga út- gáfudögum. Enda sé sóknarhugur í þeim sem standa að blaðinu. Krist- ján Kristjánsson hefur starfað sem blaðamaður og ljósmyndari hjá Morgunblaðinu á Akureyri frá árinu 1995. Áður var hann blaða- maður og síðar fréttastjóri Dags frá árinu 1985 og á hann því að baki tuttugu ára starf við blaða- mennsku á Norðurlandi. Í tilkynningu kemur fram að Vikudagur muni taka umtalsverð- um breytingum við þessi eigenda- skipti og er markmiðið að efla og styrkja blaðið á öllum sviðum. Að sögn Kristjáns er fyrst og fremst horft til Eyjafjarðarsvæðisins hvað varðar fréttaöflun. Kristján segir að ekki verði um KEA fréttir að ræða, þrátt fyrir að dótturfélag KEA eigi meirihlutann í útgáfunni, heldur fréttir af Eyjafjarðarsvæð- inu. Að sögn Bjarna Hafþórs fer KEA út í fjárfestingar sem talið er að borgi sig. Það sé markmið fé- lagsins að fjárfesta á Eyjafjarðar- svæðinu og þessi fjárfesting sé lið- ur í því. Kristján segir að ekki liggi fyrir hvernig mannahaldi verður háttað á Vikudegi en ljóst sé að fleiri muni koma að efnisöflun í blaðið. Segir hann að skammur aðdragandi hafi verið að stofnun nýja félagsins. Aðspurður segir Kristján að Vikudagur verði rekinn sem sjálf- stæður fjölmiðill en ekki sé úti- lokað að fara í samstarf við aðra. Jafnframt sé stefnt á útgáfu á Net- inu. Á blaðamannafundinum kom fram að styrkur héraðsblaða sé mikill en öll héraðsmiðlun hefur verið vanmetin að sögn Birgis. Fjölmiðlar eins og Vikudagur, Ak- sjón og Svæðisútvarpið eru mik- ilvægir á stöðum eins og Akureyri. Ýmis málefni sem ekki rata í fjöl- miðla á landsvísu en eru málefni sem skipta fólk á staðnum miklu. Þetta hafi komið skýrt fram í sam- einingarumræðunni nú í haust. Svipað verður eflaust upp á ten- ingnum í vor, að sögn Birgis. Ómar segir að sett verði upp ný prentvél í Ásprenti og sem auki þá möguleika sem fyrirtækið hefur í blaðaprentun. Vikudagur hefur verið prentaður hjá Ásprenti og verður svo áfram. Nýir útgefendur taka við rekstri Vikudags Morgunblaðið/Guðrún Vikudagur Bjarni Hafþór Helgason, Kristján Kristjánsson, Birgir Guð- mundsson og G. Ómar Pétursson kynntu breytingar hjá Vikudegi. Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.is Eyjafjarðarsveit | Sverrir Reyn- isson, bóndi á Bringu, rak upp stór augu þegar hann kom í fjárhúsin á bænum að morgni þriðja í jólum. Hafði veturgömul ær gert sér litið fyrir og borið tveimur lömbum um nóttina. „Þetta er að sjálfsögðu afar óvenjulegt að ær beri á þessum árs- tíma en bara skemmtileg tilbreyt- ing“ sagði Sverrir og bætti við að ekki hefði þurft að segja sonum sín- um, Valdimari, fimm ára, og Sigurði Andrési, átta ára, þetta tvisvar, þeir hefðu þotið eins og eldibrandar út í fjárhús til að skoða lömbin. Rúmt er í fjárhúsunum og fékk Gyðja en svo heitir ærin, því góðan hluta úr kró fyrir sig og lömbin sín. Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Jólalömb Bræðurnir á Bringu, Valdimar og Andrés, stoltir með nýfæddan lambakóng og lambadrottningu, móðirin fylgist einbeitt með. Jólalömb á Bringu STJÓRN Samfylkingarinnar á Ak- ureyri hefur samþykkt ályktun þar sem þess er krafist að Oktavía Jó- hannesdóttir bæjarfulltrúi víki úr öllum trúnaðarstörfum fyrir Sam- fylkinguna þar sem hún hafi sjálf valið að segja skilið við flokkinn. Stjórnin harmar að bæjarfulltrúi flokksins hlaupist frá skyldum sínum og brjóti trúnað við kjósendur flokksins á Akureyri. „Ástæður brotthvarfsins hafa ekki verið kynntar fyrir okkur. Við biðj- um hátt í eitt þúsund félagsmenn okkar afsökunar á að frambjóðandi okkar og bæjarfulltrúi stóð ekki und- ir trausti okkar og ykkar. Samfylkingin á Akureyri undirbýr nú næstu bæjarstjórnarkosningar með öflugum lista og sterka mál- efnastöðu jafnaðarstefnunnar að vopni. Þessi ákvörðun Oktavíu Jó- hannesdóttir mun á engan hátt trufla þann undirbúning,“ segir enn- fremur í ályktuninni. Oktavía Jóhannesdóttir sem verið hefur eini bæjarfulltrúi Samfylking- arinnar í bæjarstjórn Akureyrar til- kynnti úrsögn sína úr flokknum á blaðamannafundi á fimmtudag og jafnframt að hún hefði ákveðið að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Hún ætlar að sitja áfram í bæjarstjórn til loka kjörtímabils. Oktavía víki úr bæjarstjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.