Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 30
daglegtlíf ídesember GAMLÁRS- KVÖLD Að ganga um gleðinnar dyr TAÍLENSKA BORGIN G arðhúsgögn, skápar, skilti, stólar og sófa- sett úr gegnheilum viði, kókoshnetur til að gróðursetja og búa til kókoshnetutré, búddastyttur, gerviblóm, speglar, blómavasar, taílenskt grænmeti, sósur, krydd, núðlur og hrísgrjón er meðal þess sem hægt er að kaupa í Thai City á Íslandi. Í Kópavogi er nefnilega að verða til vísir að taílenskri verslunar- miðstöð. Fimm verslanir, sem allar versla með taílenskan varning, hafa nú þegar verið opnaðar og er stefnt að því að þeim fjölgi á nýju ári. Taílenski tónlistarkennarinn Sekson Kompamong hefur aðstöðu í miðstöðinni til að kenna börnum á alls konar hljóðfæri og Búddista- félaginu verður boðin aðstaða til fundahalda og bænahalds. Áform- að er að opna taílenskan veit- ingastað þarna innan fárra vikna og hugmyndir eru uppi um nám- skeiðahald í taílenskri matargerð. Á líka að höfða til Íslendinga „Við viljum skapa hér taílenska stemningu og menningu og aust- urlenskt samfélag,“ segir athafna- konan Prapasiri Sareekhad, sem keypt hefur stærstan hluta hús- næðisins af fasteignafélaginu Fófn- ir ehf., en samtals er um að ræða yfir eitt þúsund fermetra. Sjálf rekur Prapasiri þarna þrjár verslanir, sem nú þegar hafa verið opnaðar; matvöruverslun, gjafavöruverslun og húsgagna- verslun. Tvær taílenskar athafnakonur til viðbótar hafa auk þess komið sér fyrir í nýju verslunarmiðstöðinni og eiga líka sitt verslunarpláss. Rung Arun Sorada rekur versl- unina Shiangmai Giftshop og versl- ar þar meðal annars með fatnað, undirföt, snyrtivörur og gjafavör- ur. Rattanawadee Roopkhom rek- ur svo verslun með skartgripi, gerviblóm og gjafavöru. Verslunarmiðstöðin er til húsa á neðri hæð verslunarkjarnans við Engihjalla 8. Þegar inn er komið tekur við gangur með verslunar- rýmum á báða bóga. Á miðju torgsins er svo stefnt að því að skapa skemmtilega stemningu með ýmsum uppátækjum, sem eiga að kæta Asíubúa jafnt sem Íslend- inga, sem vilja heimsækja Thai City til að versla, skemmta sér og smakka framandi mat. Fyrstu verslanirnar voru opn- aðar skömmu fyrir jól og hafa margir Taílendingar og aðrir As- íubúar fagnað framtakinu. „Við viljum endilega líka höfða til Ís- lendinga með því til dæmis að kenna þeim að elda taílenskan mat og svo getum við kennt áhugasöm- um að kaupa inn réttu hráefnin í  VERSLUN | Taílenska verslunarmiðstöðin Thai City er að verða til í Kópavogi „Við viljum skapa taílenska stemningu“ Notalegur reykelsis- ilmur frá framandi landi liggur í loftinu í Thai City, vísi að glænýrri taílenskri verslunarmið- stöð við Engihjalla í Kópavogi. Jóhanna Ingvarsdóttir kíkti í nýju búðirnar og spjall- aði við athafnakonurnar þrjár. Morgunblaðið/Ómar Taílensku athafnakonurnar. Þær eru frá vinstri: Rung Arun Sorada, Prapasiri Sareekhad og Rattanawadee Roopkhom. Taílensk garðhúsgögn, sem unnin hafa verið úr trjárótum. Prapasiri Sareekhad innan um húsgögnin sín. Rung Arun Sorada selur taílenskan fatnað, gjafavöru og fleira í sinni búð. TAÍLENSK kjúklinga- og sveppasúpa og kjúklinga- og kók- ossúpa urðu fyrir valinu þegar Daglegt líf falaðist eftir taí- lenskum uppskriftum. Á taí- lensku heita réttirnir Kang- Judhed og Tom Ka Kai og eru uppskriftin, sem hér er gefnar upp, fyrir fjóra. Kjúklinga- og sveppasúpa 2 kramin hvítlauksrif 4 kóríandergreinar 1 tsk. malaður svartur pipar 1 lítri kjúklingasoð 1 msk. matarolía 5 niðurskornir sveppir 1 msk fiskisósa (Fish Soya, fæst í Thai City) 115 g kjúklingur, skorinn í strimla 55 g vorlaukur, skorinn þunnt Blandið saman hvítlauk, kórí- ander og pipar í mortéli. Hitið ol- íu í wok. Setjið kryddið í og látið það steikjast í eina mínútu. Hellið kjúklingasoðinu út í, sveppunum og fiskisósunni. Látið sjóða létt í fimm mínútur. Bætið síðan kjúk- lingi út í. Lækkið hitann og látið sjóða við mjög vægan hita í fimm mínútur til viðbótar. Bætið vorlauknum út í. Stráið kóríander yfir súpuna til skrauts og berið fram. Kjúklinga- og kókossúpa 950 ml kókosmjólk 115 g kjúklingabringa, skorin í littla bita 2 stk af sítrónugrasi, skorið niður 2 vorlaukar 3-4 ferskir chilli, skorið niður safi úr einum og hálfum lime 1 msk fiskisósa (Fish Soya) 1 msk af kóríander laufum, skor- ið niður Hitið kókosmjólk að suðumarki í potti. Bætið svo kjúklingi og sítrónugrasi út í. Hækkið hitann örlítið, en haldið honum samt mjög lágum. Látið kjúklingin sjóða í u.þ.b.fjórar mínútur. Bæt- ið við vorlauk og chilli. Takið pottinn af hellunni, bætið við limesafa, fiskisósu og nið- urskornum kóríander og berið fram. Taílenskar kjúklingasúp- ur með sveppum og kókos
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.