Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 41 LISTIR Það er varla hægt að segja aðmargt hafi komið manni áóvart í íslensku djasslífi á þessu ári. Björn Thoroddsen og Sig- urður Flosason hafa verið í framlín- unni, en þriðja laufið í íslenska djasssmáranum miðaldra, Tómas R. Einarsson, hefur haldið sig nokkuð til hlés. Björn hefur leikið mikið í Ameríku með tríói sínu Cold Front, sem sendi frá sér fyrstu plötu sína á árinu, og var hún bæði gefin út í Kanada og á Íslandi. Sigurður Flosason hljóðritaði skífu með kvartetti sínum, Leiðin heim, sem bæði var gefin út hér og í Japan, svo segja má að Íslandsdjassinn hafi flogið víða. Þessar skífur ásamt popplagaskífu Kristjönu Stef- ánsdóttur og Agnars Más og dansk- íslensku skífunum með kvintetti Finn Zieglers og Árna Schevings og íslenska kvartetti Arne For- chhammers voru tilnefndar til ís- lensku tónlistarverðlaunanna í djassflokki. Í fyrra urðu Tómas R. og Samúel Jón hlutskarpastir.    Arne Forchhammer og FinnZiegler létust með stuttu milli- bili fyrir nokkrum vikum og segja má að dauði þeirra hafi snert ís- lenskan djass nokkuð, svo oft sem þeir heimsóttu landið og léku með íslenskum djassleikurum. Þó var fráfall Niels-Hennings mesta áfall er norrænn djass varð fyrir á árinu. Hann varð tæplega 59 ára gamall og heimsóknir hans til Íslands voru ótalmargar og fyrirhugað var að hann léki hér í september á 30 ára afmæli Jazzvakningar og hljóðritaði m.a. með íslenskum djassleikurum. Grettir Björnsson lést einnig á árinu, en hann lék djass prýðilega bæði á aðalhljóðfæri sitt harm- onikkuna, svo og klarinett. Þá hvarf Szimon Kuran alltof snemma af þessari lífstjörnu. Tónleikahald var fjörugt í Reykjavík. Jómfrúardjass í sumar og Múlinn starfaði fyrrihluta ársins á Hótel Borg en þann síðari í Þjóð- leikhúskjallaranum. Meðal eft- irminnilegra Múlatónleika voru tríótónleikar Kjartans Valdimars- sonar, Joe Henderson tónleikar kvartetts hins unga saxófónleikara Steinars Sigurðarsonar og tónleikar Jóns Páls Bjarnasonar með saxófón- leikurunum Óskari Guðjónssyni og Ólafi Jónssyni. Jón Páll er nú 67 ára en batnar bara með aldrinum.    Flaggskip Íslandsdjassins, Stór-sveit Reykjavíkur, starfaði af miklum krafti þetta árið og meðal gestastjórnenda voru Eero Koivist- oinen, John Fedchock, Greg Hopk- ins og Ole Kock Hansen, sem stjórn- aði bæði veraldlegum og andlegum Ellington tónleikum á Djasshátíð Egilsstaða (sem Árni Ísleifs stjórn- aði í síðasta skipti) og Jazzhátíð Reykjavíkur. Langholtskirkjukór- inn söng með hljómsveitinni á helgi- tónleikunum og kórinn söng einnig með Mezzoforte á fyrsta tvennu- disknum íslenska (mynd- og hljóm- diski), er hafði að geyma verk Árna Egilssonar, Kaleidoscope. Um 15 ís- lenskir djassdiskar voru gefnir út á árinu, en margir þeirra voru ansi poppskotnir. Auk Egilsstaðahátíðarinnar voru djasshátíðir haldnar í Vest- mannaeyjum og Skógum undir Eyjafjöllum en að sjálfsögðu var Jazzhátíð Reykjavíkur sú viða- mesta. Þar var helsta stjarnan Kenny Garrett ásamt kvartetti sín- um. Jafnvel áhugaverðari voru tón- leikar þýskjapanska dúettsins er Taiko Saito og Niko Meinhold skip- uðu, en Niko lék auk þess með hljómsveit Róberts Reynissonar gít- arleikara. Ragnheiður Gröndal söng á hátíðinni með oktett sínum söngdansa í útsetningu Hauks Grön- dals, er báru með sér andblæ vest- urstrandardjassins. Söngkonu- flóran íslenska blómstrar, því auk Ragnheiðar má nefna tvær aðrar ungar söngkonur sérlega efnilegar: Þórunni Pálínu Jónsdóttur og Þóru Björk Þórðardóttur. Hér hefur verið stikað á stóru, en ekki má gleyma að þakka Olivier Dintinger, framkvæmdastjóra Alli- ance française í Reykjavik, sem lauk störfum hérlendis í sumar. Hann hefur fært okkur marga frábæra franska djassleikara; í ár Sylvain Luc, er lék með Birni Thoroddsen, og einhverja bestu djassleikara Frakka um þessar mundir: Elios og Boulou Ferré. Íslandsdjassinn árið 2005 ’Tónleikahald varfjörugt í Reykjavík. Jómfrúardjass í sumar og Múlinn starfaði fyrrihluta ársins á Hótel Borg en þann síðari í Þjóðleikhúskjallaran- um.‘ AF LISTUM Vernharður Linnet Morgunblaðið/Sverrir „Stórsveit Reykjavíkur starfaði af miklum krafti þetta árið.“ ÉG ER ekki viss um að mörg börn þekki Nonnabækurnar í dag, bæk- urnar sem fóru um heim allan og voru þýddar á fjölda tungumála. Sögur úr íslenskri sveit eiga í mikilli samkeppni við galdrasögur utan úr heimi, íslensk sveit hefur ekki enn komist í tísku hjá yngstu kynslóðinni og þó að íslensk náttúra sé orðin hipp og kúl eins og sjá má í nýjustu músíkmyndböndunum er ég ekki viss um að sú tíska nái til gamalla sagna. Það er þrautin þyngri að brjóta sér leið gegnum öll þessi kúl- heit sem umvefja íslenska krakka í dag, sérstaklega strákana. Eins mik- ið og áreitið er í daglegu umhverfi þeirra gæti ég trúað að dálítil snið- ugheit þyrfti til að pranga inn á marga þeirra sögunni af Nonna og Manna við silungsveiðar, fallega myndskreyttri vatnslitamyndum Kristins G. Jóhannssonar. En það er engin ástæða til að láta deigan síga í stríðinu við tilgangslausa tölvuleiki, plebbahúmor, botnlausa ofbeld- isdýrkun og ameríkaníseringu. Góð saga stendur alltaf fyrir sínu og svo er einnig hér, sagan af Nonna og Árna á silungsveiðum er spennandi og sýnir fram á að átta ára krakkar geta mun meira en við fullorðna fólk- ið höldum. Í sögunni er boðskap- urinn til barnanna sá að láta full- orðna fólkið ekki draga úr sér kjarkinn og til þeirra fullorðnu að vera ekki of ströng við börnin og treysta þeim til dáða því þau standa fyllilega undir því. Hér er ekki verið að kenna börnum að bursta tenn- urnar eða flokka rusl enda er það ekki hlutverk góðra bóka. Afleið- ingin er sú að ég hef alla trú á því að bækurnar geti náð til barna í dag jafnt sem fyrir margt löngu. Myndir Kristins G. eru bjartar. liprar og sumarlegar. Ef til vill hefðu sterkari andslitsdrættir og svipbrigði per- sóna á myndunum orðið til þess að auka enn frekar á dramað en á móti kemur falleg alltumvefjandi íslensk náttúra sem gefur sögunni sterkan bakgrunn. Textinn í endursögn stingur hvergi í augun og ekkert við hann ætti að trufla unga lesendur. Þetta er fjórða bókin um ævintýri Nonna sem kemur út í þessum bóka- flokki og er ætlað að forða Nonna- bókunum frá gleymsku. Nú má spyrja sig að því hvers vegna svo mikil áhersla sé lögð á að kynna ís- lenska sveit fyrir börnum samtím- ans, hvort ekki væri bara hægt að leyfa nútímanum að hafa sinn gang. Eflaust eru til mörg svör við því en í því stressaða efnishyggjubrjálæði sem við búum við dags daglega held ég að margir fullorðnir njóti þess að slaka á úti í náttúrunni. Slík upplifun byrjar aldrei of snemma og fyrst við erum svo heppin að búa við okkar stórkostlegu náttúru og óspilltu sveit er sjálfsagt að reyna að miðla orku hennar til krakkanna líka. Fátt betra en að gleyma sér úti í móa, rétt eins og Nonni og vinir hans gera. Krakkar í dag myndu líka miklu frekar vilja taka þátt þessu ævintýri Nonna heldur en að prófa nýjan tölvuleik, svo spennandi er það. Átta ára krakkar geta meira BÆKUR Barnabækur Brynhildur Pétursdóttir endursegir eftir sögu Jóns Sveinssonar. Kristinn G. Jóhannsson myndskreytir. Hólar 2005 Ævintýri Nonna, silungsveiðin Ragna Sigurðardóttir Jón Sveinsson – Nonni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.