Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 44
44 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG HEF lengi haft brennandi
áhuga á heimspeki og trúarbrögðum.
Það var því af töluverðri eftirvænt-
ingu sem ég lagði leið mína í næstu
bókaverslun þegar ég frétti að búið
væri að gefa út nýja ís-
lenska bók, „Hin
mörgu andlit trúar-
bragðanna“, sem fjallar
um hin ýmsu trúar-
brögð mannkyns. Þær
bækur sem fáanlegar
hafa verið á íslensku
um þessi efni hafa að
mínu mati margar
hverjar einkennst af af-
ar yfirborðslegum vest-
rænum skilningi á hlut-
unum þar sem
yfirborðið er skoðað án
nokkurs skilnings á
þeirri hugmyndafræði, sögu eða
samfélagi sem að baki liggur.
Því er ekki að leyna að ég varð fyr-
ir nokkrum vonbrigðum þegar ég las
kaflann þar sem fjallað var um þá trú
og heimspeki sem ég aðhyllist og hef
lagt stund á frá því að ég var ung
stúlka. Ekki var það að höfundur
væri að fjalla vísvitandi á niðrandi
hátt um mína trú, enda ætla ég ekki
þessum ljúfa manni slíkt, heldur ein-
faldlega var misskilningurinn og
rangfærslurnar svo margar að lítið
var eftir af þeirri heimspeki sem ég
hef reynt að byggja líf mitt á. Ástæð-
una tel ég helst vera að höfundur
notar að mestu óbeinar heimildir (að-
eins ein frumheimild í þessu kafla) í
umfjöllun sinni og skoðar ekki nægi-
lega vel hvaðan heimildirnar koma.
Við vinnslu á efni sem þessu er svo
mikilvægt að spyrja sig hver sé staða
höfundar gagnvart því efni sem hann
er að fjalla um. Hvernig hefur hann
náð sér í þessa þekkingu? Er hann að
skoða önnur trúarbrögð í sam-
anburði við sín eigin þar sem hann
reynir að varpa ljósi á það sem gæti
virst framandi og undarlegt fyrir þá
sem ekki þekkir hugmyndafræðina
sem að baki liggur, eða hefur hann
sínar upplýsingar beint frá þeim sem
hafa ástundað fræðin og lifað í sam-
ræmi við kenningar þeirra?
Við á Vesturlöndum erum svo vön
að líta á okkur sjálf og vestræn gildi
sem eitthvað algilt og hafið yfir alla
gagnrýni. Heiminn vilj-
um við túlka út frá eigin
viðmiðunum og gildum.
Heimurinn er bara svo
miklu stærri og marg-
breytilegri en það. Að-
eins þegar ég hlustaði á
múslíma útskýra trú
sína frá eigin sjón-
arhorni gat ég séð feg-
urðina í íslam. Aðeins
þegar ég fór að hlusta á
og lesa bækur skrifaðar
af indíánum Norður-
Ameríku um eigin sögu
og menningu, gat ég
séð hversu fáránleg sú staðalímynd
kvikmyndanna er, sem borin hefur
verið á borð fyrir okkur Vest-
urlandabúa, um líf þeirra, tungumál,
menningu og sögu.
Höfundur bókarinnar „Hin mörgu
andlit trúabragðanna“ segir að til-
gangur hennar sé meðal annars að
eyða fordómum. Það er sannarlega
göfugur tilgangur og þar sem ég
þekki ekki höfund af öðru en góðu
einu er ég sannfærð um að hann vill
líkt og Ari fróði „hafa það heldur er
sannara reynist“. Eftir ánægjulegt
og einlægt samtal við höfund er ég
þess fullviss að hann muni leiðrétta
þann misskilning sem er að finna í
bókinni um Soka Gakkai búddisma.
Í Morgunblaðinu 20. desember
færir höfundur hinum ýmsu trú-
félögum og einstaklingum þakkir
fyrir ábendingar og yfirlestur á
handriti bókarinnar. Þar þakkar
hann Soka Gakkai búddistum fyrir
„frábært spjall og ábendingar“. Þó
það sé eflaust ekki ætlun höfundar,
þá hafa ýmsir komið að máli við mig
og túlkað það svo af orðum hans að
Soka Gakkai búddistar hafi lesið
handritið yfir, ásamt öðrum sem
hann nefnir í greininni. Af þessum
ástæðum tel ég mig tilneydda til að
skrifa þessa grein og benda á að svo
var ekki. Mínar ábendingar komu
eftir að hafa lesið bókina enda vissi
ég ekki af útgáfu hennar fyrr en eftir
á.
Ég fagna þeirri umræðu sem út-
gáfa þessarar bókar hefur vakið.
Höfundur hennar segir um kynni sín
af ólíkum trúarbrögðum: „Vonandi
hef ég um leið öðlast auðmýkt og
virðingu gagnvart öðrum trúar-
brögðum og boðskap þeirra.“ (bls.11)
Virðing fyrir skoðunum og lífs-
viðhorfum annarra ætti að vera und-
irstaða samfélags sem vill kenna sig
við jafnrétti og mannúð. Slík virðing
byggist á því að við lærum að hlusta
hvert á annað og leitumst stöðugt við
að dýpka skilning okkar á fjölbreytni
mannlífsins og gerum okkur grein
fyrir því að sá skilningur er aldrei
endanlegur heldur skref í þeirri stöð-
ugu viðleitni sem við þurfum að hafa
í leit okkar. Að mínu mati felst
grunnurinn að jákvæðum sam-
skiptum milli ólíkra trúar- og menn-
ingarhópa ekki síst í því að fólk hætti
að einblína á það sem aðgreinir það
og setur í öndvegi það sem sameinar
okkur, vonina um frið og betri heim
fyrir öll börn á þessari jörð. Þess
vegna tel ég að þær samræður sem
þessi bók hefur vakið séu afar mik-
ilvægar og óska ég höfundi til ham-
ingju með það.
„Að hafa það heldur er
sannara reynist“
Eygló Jónsdóttir fjallar
um trúarbrögð ’Þess vegna tel ég aðþær samræður sem
þessi bók hefur vakið
séu afar mikilvægar og
óska ég höfundi til ham-
ingju með það.‘
Eygló Jónsdóttir
Höfundur er kennari og félagi
í SGI, mannúðar- og
friðarsamtökum búddista.
HUGURINN reikar um áramót,
hvernig gengur og hvert stefnir?
Hugur minn reikar sí-
fellt að málefnum
eldri borgara. Það eru
ófáir eldri borgarar
sem hafa leitað til mín
um úrlausn á ýmsum
málum, fengið leið-
beiningar og upplýs-
ingar um hina og
þessa hluti innan kerf-
isins. Þessi málaflokk-
ur er að mestu á hönd-
um ríkisins og óljúft
að sjá hversu lítill
kraftur er í heibrigð-
isráðherra að sinna
þessum málaflokki hér í Hafnarfirði
er lýtur að Sólvangi og uppbyggingu
hjúkrunarheimila.
Það er í sjálfu sér athyglisvert að
þegar undirbúningsfundur um stofn-
un félags aðstandenda eldri borgara
verður að veruleika. Þar er á ferðinni
eitt merkasta framtak síðustu mán-
aða í þessum málaflokki og jákvætt
að sjá hversu mikill kraftur var í
þeim aðilum sem komu þessi verkefni
af stað. Og auðvitað gerist það í
Hafnarfirði, hvar annars staðar. Það
er einnig frábært að sjá að þeir sem
eru tílbúnir til starfa í fyrstu stjórn
hafa breiða þekkingu og reynslu úr
öllum störfum mannlífsins. Fólk á öll-
um aldri.
Nýr kraftur leystur úr læðingi
Félag eldri borgara í Hafnarfirði
sem vinnur m.a. að öflugu félags- og
tómstundastarfi mun njóta góðs af
þessu nýstofnaða félagi. Samstaða
þessara félaga mun
þrýsta á ríkið og rík-
isstjórnina um úrbætur.
Við þurfum fjölgun
hjúkrunarrýma hér í bæ,
hækkun lágmarkslífeyr-
irs eldri borgara, lækkun
virðisauka á lyf og svo
lengi mætti telja.
Mín afstaða er að Fé-
lag eldri borgara verður
líka að láta til sín heyra
er kemur að þessum
málum er tengjast
hjúkrunarþáttum. Við
eigum í samstöðunni að
kalla hátt á heilbrigðisráðherra, sem
fljótur var að skipa nýja nefnd um
hátæknisjúkrahús til að bjarga fram-
boðsmálum síns flokks í Reykjavík,
en hefur dregið lappirnar svo árum
skiptir varðandi málefni Sólvangs.
Það er ekki nóg að bæjaryfirvöld láti
til sín heyra. Við eldri borgarar verð-
um að styðja bæjarstjórnina og allt
það frábæra fólk sem starfar á Sól-
vangi, dvelur þar eða styður Sólvang
á einn eða annan hátt. Rödd okkar
verður að hljóma hátt – við verðum
að leysa okkar kraft úr læðingi.
Nýir hlutir í Hafnarfirði
Það er einnig gleðilegt að allt það
nýja sem er að gerast í þessum mála-
flokkum gerist í okkar bæ, Hafn-
arfirði. Á næstu mánuðum mun bæj-
arstjórn skipa Öldrunarráð líkt eins
og gert var á síðasta ári er fyrsta
Ungmennaráð á Íslandi var sett á
laggirnar hér í Hafnarfirði. Það að
þessir aldurshópar fái sinn vettvang
innan stjórnsýslunnar er framfara-
spor. Sveitarfélög hér á landi líta til
okkar Hafnfirðinga þegar rætt er um
framfarir, kraft, vilja og að láta verk-
in verða að veruleika.
Stefna okkar jafnaðarmanna er
skýr á þessum sviðum. Við höfum
sýnt það hér í Hafnarfirði að okkar
verk eru þau sem fólkið vill. Með
þeim vinnubrögðum að leyfa hags-
munahópum að taka þátt í samráði
og nýta sér öfluga þekkingu þeirra
náum við markmiðum heildarinnar
fram. Samfylkingin vinnur með fólk-
inu og mun áfram ná góðum árangri
Hafnfirðingum til heilla.
Málefni eldri borgara
sett í öndvegi
Jón Kr. Óskarsson fjallar um
málefni eldri borgara í Hafn-
arfirði og stefnu Samfylkingar ’Á næstu mánuðummun bæjarstjórn skipa
Öldrunarráð líkt eins og
gert var á síðasta ári er
fyrsta Ungmennaráð á
Íslandi var sett á lagg-
irnar hér í Hafnarfirði.‘
Jón Kr. Óskarsson
Höfundur er formaður 60+ Hafn-
arfirði og varaþingmaður Sam-
fylkingar í Suðvesturkjördæmi.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Til eru eldtefjandi
efni sem hægt er
að úða yfir
kertaskreytingar
Munið að
slökkva á
kertunum
i