Morgunblaðið - 31.12.2005, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 45
UMRÆÐAN
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.
Starfsfólk Eignamiðlunar.
Efling-stéttarfélag
sendir þér og þínum
bestu jóla- og nýársóskir
með þökkum fyrir
samstarfið á liðnu ári
Stendur með þér!
E
I
N
N
,
T
V
E
I
R
O
G
Þ
R
Í
R
ÞAÐ verður ekki beint sagt að
það komi á óvart að Dagur B. Egg-
ertsson ætli sér að fara í framboð
fyrir Samfylkinguna í borgarstjórn-
arkosningunum í vor þrátt fyrir
fyrri og margítrekaðar yfirlýsingar
hans um að hann hefði slíkt alls
ekki í hyggju. Ekki er heldur hægt
að segja að það komi mönnum í
opna skjöldu að „óháði“ borg-
arfulltrúinn hafi loks ákveðið að
ganga með formlegum hætti í Sam-
fylkinguna. Dagur sagðist ekki sízt
hafa tekið þessa ákvörðun vegna
þess að endalok R-listans hafi
skapað ákveðið tómrúm sem hann
vildi fylla. Í lok síðasta sumars
sagðist hann hins vegar ætla að
hætta í borgarmálunum ef R-listinn
liði undir lok enda væru forsend-
urnar fyrir þátttöku hans í þeim
þar með brostnar. Kannski hann
hætti aftur við eftir áramót?
En hvað sem því líður hefur
slagorð Dags vakið nokkra athygli:
„Nýja Reykjavík: kraftmikil,
skemmtileg, örugg, heilbrigð.“
Eðlilega hafa margir spurt sig
hvernig eigi að skilja þetta. Ef
Dagur vill nýja Reykjavík, hver er
þá sú gamla? Reykjavík R-listans
sem hann sjálfur tilheyrir og er
einn af forystumönnunum fyrir?
Það hlýtur að vera enda hefur
R-listinn stjórnað borginni nú í ríf-
lega 11 ár. Og ekki er heldur hægt
að skilja Dag öðruvísi en svo að
gamla Reykjavík R-listans hafi ver-
ið kraftlaus, leiðinleg, óörugg og
óheilbrigð.
Sjálfur er ég alls ekki sammála
Degi þó ljóst sé að R-listinn hafi
haldið afskaplega illa á málum á
mjög mörgum sviðum í valdatíð
sinni, þá ekki sízt þegar kemur að
fjármálum Reykjavíkurborgar.
Þessi lýsing á hins vegar mun bet-
ur við um þá sem farið hafa með
stjórn borgarinnar sl. 11 ár. En
það er auðvitað ágætt að Dagur
gangist með þessum hætti við eigin
verkum sem hann ber ekki síður
ábyrgð á en aðrir forystumenn
R-listans. Vandséð er hins vegar
hvers vegna kjósendur ættu að
treysta honum, eða öðrum sem
komið hafa að R-listasamstarfinu,
til að taka upp ný og betri vinnu-
brögð eftir margra ára tækifæri til
þess.
Hins vegar ber auðvitað að fagna
því að Dagur hyggist sækjast eftir
því að skipa forystu Samfylkingar-
innar fyrir næstu borgarstjórnar-
kosningar. Eitt mesta klúður R-
listans í valdatíð hans er vitanlega
nýja Hringbrautin. Sem formaður
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar
undanfarin ár ber Dagur öðrum
fremur ábyrgð á þeirri framkvæmd
og með hann sem einn af for-
ystumönnum Samfylkingarinnar í
borginni verður erfiðara en ella
fyrir hana að reyna að fría sig
ábyrgð á því hörmulega slysi. Eitt-
hvað sem hún mun reyna en eðli
málsins samkvæmt ekki takast.
Dagur og gamla
Reykjavík R-listans
Hjörtur J. Guðmundsson fjallar
um framboðsmál í Samfylkingu
og störf R-listans í Reykjavík
Hjörtur J.
Guðmundsson
’Eitt mesta klúður R-listans í valdatíð hans
er vitanlega nýja Hring-
brautin. Sem formaður
skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar undanfarin
ár ber Dagur öðrum
fremur ábyrgð á þeirri
framkvæmd …‘
Höfundur er einn af ritstjórum
vefritsins Íhald.is og fram-
kvæmdastjóri hugveitunnar Veritas
(www.veritas-iceland.com).
Fréttir á SMS