Morgunblaðið - 31.12.2005, Page 49

Morgunblaðið - 31.12.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 49 MINNINGAR ina frá henni í höndunum á aðfanga- dagskvöld, vitandi það að nú væri hún Bettý frænka farin. Bettý var afskaplega hæglát, kurt- eis og hógvær kona. Hin dæmigerða húsmóðir af „gamla skólanum“, ef þakkað var fyrir sig, þá kvað t.d. við: „fyrirgefðu“. Hún var hins vegar afar þakklát hvaða lítilræði sem að henni var rétt. Hún var lágvaxin og nokkuð kvik í hreyfingum, brúneygð eins og faðir hennar var, það einkenndi reyndar öll hans börn. Hún var hláturmild eins og systurnar allar þegar þær komu saman, að ekki sé talað um þeg- ar amma var líka í hópnum, þá var oft kátt í eldhúsinu hér á Austurvegi 7 á Ísafirði. Í fyrrasumar kom Bettý hingað vestur til Ísafjarðar, ásamt Eyrúnu dóttur sinni, manni hennar og dóttur þeirra. Það var ánægjuleg heimsókn. Í maí sl. kom hún aftur vestur ásamt Áslaugu systur sinni og nöfnu minni, þær komu ekki síst til að sjá nýju íbúðina hennar Öddu systur þeirra á Hlíf. Bettý hélt alltaf til hjá mömmu, enda voru þær systur mjög nánar. Þær hringdust oft á og þegar þær áttu saman síðasta símtalið, áður en hún hélt suður til að gangast undir aðgerðina hinn 13. desember sl., þá kallaði ég fram í og bað fyrir kveðju til hennar, hún bað mömmu að segja mér að við skyldum bara hugsa sem svo að hún væri að fara í „berjamó“, hvernig sem henni datt það í hug á þessum árstíma. Um árabil, síðla sumars fóru mamma og Þórður stjúpfaðir minn, norður í Hofsós og var þetta orðið eitt af föstu punktunum í tilveru þeirra og Bettýjar. Þar dvöldu þau yfirleitt í a.m.k. viku og fóru víða um Skaga- fjörð og jafnvel út fyrir fjörðinn um Norðurland, hittu ættingja og skoð- uðu merka staði. Þau eiga margar góðar minningar frá þessum heim- sóknum, en því miður varð ekki af heimsókn þeirra í ár. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Við fjölskyldan hérna á Austurveg- inum viljum senda ástvinum Bettýjar fyrir norðan, Bubba, Magnúsi, Bertu, Finni, Guðmundi, Eyrúnu og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðja Guð að styrkja þau í þessari miklu sorg og tómarúmi. Við skiljum mætavel hversu stórt skarð hefur nú myndast í hópinn og munum hugsa mikið til þeirra allra. Áslaug, Helga systir, Þórður, Finnur og fjölskylda, Magnús, Helga, Rakel og fjölskylda. Einstaka samverustundir og augnablik verða manni kærari en önnur. Slíkar stundir þurfa ekki að láta mikið yfir sér en geisla frá sér hlýju og krafti á svo sjálfgefinn hátt að við tökum ekki eftir þeim fyrr en þessi dýru augnablik eru liðin hjá og verða ekki endurtekin. Það eru einmitt þessar stundir sem auðga mannlífið og gera það fagurt. Það er síðsumars 1981. Við fjöl- skyldan erum að flytja búslóðina vestan af Snæfellsnesi norður í Skagafjörð heim að Hólum í Hjalta- dal. Búslóðin okkar var nú ekki stór, komst í einn lítinn rútukálf frá Gunn- ari á Helgafelli. Jobba, Jóhanna Guð- mundsdóttir, var með og var skutlað út í Hofsós. Þá kom ég í fyrsta skipti í kaffi til Bettýar. Jobba var gömul ná- grannakona hennar. „Má ekki bjóða þér að setjast hér í eldhúshornið og fá kaffisopa?“ Þetta var eitt fyrsta heimilið í Skagafirði sem ég heim- sótti, þá nýráðinn skólastjóri á Hól- um. Þarna voru dætur og synir þeirra hjóna Sigurbjörns og Bettýar og hressilegt og einlægt spjall yfir góð- gerðum húsmóðurinnar stendur mér eins ljóslifandi fyrir hugskotssjónum og það hefði gerst í gær. Í þetta eld- húshorn hefur nokkrum sinnum verið sest á undanförnum árum og nú þeg- ar Bettý er farin finnum við að gjarn- an hefði átt að setjast þar oftar og njóta stundanna. Áframhaldandi samskipti voru þó stopul en jukust hin síðari ár. Það var svo notalegt að banka bara upp á hjá Bettý og Bjössa á Hofsósi og setjast í eldhúshornið. Sigurbjörn settist svo á móti og saman tókum við öll spjall um heima og geima og ekki síst póli- tíkina og þá var gjarnan talað frjáls- lega. Bettý með þetta fallega bros og hlýja fas sem sagði meira en mörg orð bauð ábót af kaffi og bakkelsi. Það var seint í ágúst að við Ingi- björg litum síðast þar inn, bönkuðum bara upp á eins og venjulega, fyrir- varalaust. Sigurbjörn sem annars var kominn til aðhlynningar á sjúkrahús- inu var heima og fleiri úr fjölskyld- unni. Farið var létt yfir málin og góð- gerðir þegnar. Þeim hjónum var svo eiginlegt að taka vel á móti gestum. Bettý fylgdi okkur út á tröppur. Blessunarorð hennar og góðar ferða- óskir fylgdu okkur úr hlaði. Við hlökkuðum til að koma aftur við um jólin. Sú heimsókn verður með nokkuð öðrum hætti en ætlað var. Nú er vin- ar saknað í stað. Í dag erum það við sem kveðjum Bettý og fylgjum úr hlaði og þökkum henni fyrir samferðina. Við þökkum ljúfar minningar um góða konu sem gæddi samfélagið kærleik og hlýju. Blessuð sé minning Bettýar Mars- ellíusardóttur. Sigurbirni og fjölskyldunni allri sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason. Nú hefur yndisleg kona horfið á braut og það allt of fljótt. Elsku Bettý mín, mér er í fersku minni hve ljúf og indæl þú varst og aldrei skiptir þú skapi á hverju sem gekk. Þegar ég var lítill þá var heimili þitt mitt annað heimili og skipti ekki máli hvort ég kom rennandi blautur eða snjóugur upp fyrir haus inn til þín, alltaf fékk maður hlýjar mót- tökur, heitt kakó og eitthvað gott í magann sem þótti nú ekki slæmt fyr- ir strák sem var að vaxa. Alltaf saknaði ég ykkar þegar þið fóruð vestur á sumrin, þá staflaði Sig- urbjörn í Land-Roverinn alveg upp á topp, öllum komið fyrir inni í bíl og brunað af stað til Ísafjarðar, sem var nú ekkert smáferðalag í þá daga. Þegar þið komuð aftur þá hýrnaði nú heldur betur yfir okkur bræðrum í Birkihlíð því þá komu leikfélagarnir aftur. Þú kenndir mér að borða skötu- stöppu enda sú besta sem ég hef smakkað. Eins er mér afar minnis- stætt þegar Eyrún fæddist, við Finn- ur vorum að koma heim og ruddumst inn eins og alltaf og Ebba ljósa ætlaði að loka hurðinni á okkur en þá sagðir þú henni að lofa okkur bara að koma inn og sjá barnið sem varla var nema nokkurra mínútna gamalt, þetta lýsir þér alveg hvernig þú tókst alltaf vel á móti öllum, sama hvernig stóð á. Elsku Bettý mín, kærar þakkir fyrir allt og ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Hvíl þú í friði. Elsku Bubbi, Maggi, Berta, Finn- ur, Gummi, Eyrún og fjölskyldur. Mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra, Steini litli Stebbu Munda Steins, Steinn Márus Guðmundsson. Þegar ég hringdi í Bertu, og spurði hvort mamma hennar væri vöknuð eftir aðgerðina, og hún sagði nei, þetta er búið, var sú hugsun ein sem flaug um huga minn að ef ég hendi símanum, þá hef ég ekki heyrt þetta. Þetta getur ekki verið satt. Ég vissi að Betty var ekki heilsu- hraust, hún var reglulega hjá lækni. Við töluðum um það að karlar sem voru með sama sjúkdóm voru sendir strax í aðgerð, konur eru látnar koma tvisvar á ári í eftirlit. Samt hafa kon- ur og karlar sömu dánartíðni, einu sinni hver. Eftir að hún fór síðast í eftirlit, sagði hún mér að hún ætti að fá bréf eftir jól. En þá var hringt og henni sagt að koma strax. Hún hringdi í mig og sagði ég verð líka að segja „þriðju dótturinni“. Og ég fór út í Ásbyrgi, frá af kvíða en hún var róleg. Maggi var að festa upp einn fing- urbjargarskápinn enn, en þú sagðir samt að það vissi á eitthvað, þú værir búin að setja upp jólagardínurnar sem þú gerðir ekki fyrr en á Þorlák, og eins og venjulega sátum við og töl- uðum um heima og geima. Þú áttir svo marga símavini að oft fór kvöldið í að bíða eftir að tími væri fyrir erindið, þá réttir þú mér gleraugu og kross- gátur, því þú varst svo mikil handa- vinnukona og gast alltaf hjálpað með allt, og þú sýndir mér í hverri heim- sókn það sem þú gerðir seinast, því næst varst þú búin að gefa það og varst byrjuð á öðru sem þú gafst svo líka. Við vorum báðar aðfluttar í stað- inn og ég er þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að þekkja þig. Og í haust þegar þú sagðir; „staðurinn er að fara í eyði, það er enginn í húsunum í kring“ þá lét ég mér fátt um finnast, en nú sé ég að það er satt, staðurinn er auður, þú ert farin og við getum ekki setið og spjallað og botnað setn- ingar hvor fyrir aðra eins og þegar ég kvaddi þig og við sögðum saman „stattu þig stelpa“. Betty mín, ég sakna þín. Kær kveðja, Sylvía. Það brá dimmum skugga á jóla- ljósin þegar fréttist að Bettý Mars- ellíusdóttir hefði andast eftir erfiða aðgerð. Það er með þakklæti í huga sem ég minnist þessarar góðu vin- og samstarfskonu til margra ára og allra þeirra ljúfu stunda sem við áttum saman. Bettý fæddist á Ísafirði og ólst þar upp á miklu myndarheimili. Systkin- in voru mörg og þurftu fljótt að taka til hendi enda kunni hún ung vel til verka. Um tvítugt lá leið hennar til Skagafjarðar og þar átti hún eftir að lifa og starfa. Hún settist að á Hofsósi þegar hún giftist Sigurbirni Magnús- syni rafvirkja. Heimili þeirra var fal- legt og þangað var gott að koma. Bettý annaðist heimili og barnaupp- eldi framan af. Okkar kynni hófust fyrst og fremst þegar við unnum saman á Saumastof- unni á Hofsósi. Það var mikið lán að fá þessa ágætu konu til starfa. Bettý var dugleg, vandvirk, bráðlagin og sérstaklega útsjónarsöm. Inn á borð til okkar komu margvísleg verkefni. Þá var gott að leita til hennar, hún fann ætíð bestu lausnina. Yfirleitt vildi hún hvers manns vanda leysa enda held ég að margir hafi leitað til hennar með hin margvíslegustu verkefni, sem hún leysti eftir bestu getu. Bettý átti ekki alltaf auðvelda ævi. Sigurbjörn, eiginmaður hennar, er búinn að vera sjúklingur um árabil og heilsa hennar sjálfrar var lengi slæm en hún harkaði svo lengi af sér að fáir vissu hversu þjáð hún var. Bettý átti marga góða vini og fyrr- um starfsfélaga sem sakna hennar nú enda hafði hún einstaka nærveru. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Nú eru blessuð jólin nær liðin og árið að líða í aldanna skaut. Jólin eru tími fjölskyldunnar, tími nærveru og gleði en stundum tími sorgar og saknaðar eins og núna hjá fjölskyld- unni frá Ásbyrgi. En minningarnar eru ljúfar og dýrmætar. Ég færi fjöl- skyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur. Svanhildur Guðjónsdóttir. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAKEL BJARNADÓTTIR, Grænukinn 26, Hafnarfirði, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, föstudaginn 16. des- ember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 2. hæð Sólvangs. Grétar Már Guðjónsson, María Ingibjörg Guðjónsdóttir, Sólveig Guðjónsdóttir, Andrés Hafberg, barnabörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HULDA FINNBOGADÓTTIR, er látin. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gunnar Smárason, Christine Vinum, Elín Smáradóttir, Hjalti Nielsen Hrafnhildur Huld Smáradóttir, Alexander Wiik og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, DAGUR HERMANNSSON, Snægili 6, Akureyri, lést á heimili sínu að morgni föstudagsins 30. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jóna Kristín Jónsdóttir, börn, tengdabörn og afabörn. Okkar ástkæra GUÐRÚN HALLGRÍMSDÓTTIR SULLIVAN lést í Reno, Nevada í Bandaríkjunum mánudaginn 26. desember. Minningarathöfn fer fram í Bandaríkjunum. Jarðsett verður á Íslandi síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Rannveig Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.