Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 51
upphafsorðum hér að framan. Hann sjálfur tók orðið lítið pláss í þessum heimi, en boðskapur hans þeim mun meira. Hann var annarra þjónn í gegnum sína djúpu visku og var tilbúinn að deila henni með öðrum, en sjálfan sig bar hann ekki á borð. Þess vegna kvartaði hann ekki á ög- urstundu heldur gaf af sér öðrum til íhugunar. Hversu oft hafði hann ekki verið til kvaddur við svipaðar aðstæður öðrum til huggunar. Hann var meistari orðanna og að sinna öðrum við beð sorgarinnar. Fumlaus, trúr fagmennskunni og með sannfæring- arkrafti lagði hann til atlögu við sorg annarra, sannfærður um að rétt við- brögð væru lykillinn að farsælu sorgarferli. Ef ekki tókst sem skyldi var það annarra fagmanna að taka við uns ferlið var ásættanlega til lykta leitt. Mikill kennimaður er kvaddur. Djúpvitur maður er ber byrði ann- arra hlýtur að skilja eftir sig djúp spor í mannlegu samfélagi. Hann kom svo víða við og lét sér fátt óvið- komandi. Þegar áföll dundu á stóð hann knarrreistur í stafni og lét á sér brjóta öðrum til friðþægingar. Hann gat ekki sætt sig við að ung- menni gripu til óyndisúrræða í þrengingum og taldi slíkt vera mein- semd í þjóðfélagsgerðinni, enda þjóðfélagsgagnrýnandi og bar slíkt oft á borð. Hann var boðberi rót- tækra breytinga og taldi okkur geta miklu betur. Hann vann að slíkum málum af heilindum bæði innan skól- anna og í sínum boðskap út á við. Hann var frumkvöðull í þeirri vinnu. Hann var málsvari hins minnsta en jafnframt víðsýnn. Hann var mik- ill jafnaðarmaður sem mótaðist fyrst og fremst af hans trúarlegu skoð- unum. Kristin trú átti rými að hans mati fyrir alla án tilliti til kynferðis eða skoðana. Hann veigraði sér ekki við að taka afstöðu með minnihluta- hópum samfélagsins sem berjast fyrir rétti sínum, stundum í and- stöðu við eigin skoðanabræður. Hann hafði djúp áhrif á fermingar- börnin sín sem færðu boðskap hans inn á heimili sín til umræðu. Mín eig- in börn geta þar um vitnað. Við stóðum á sínum tíma að stofn- un Bjarma, samtaka um sorg og sorgarferli af því að slík samtök vantaði í þetta samfélag. Hann var einnig fyrsti maðurinn um borð er stofnað var áfallateymi hér á Suð- urnesjum í kjölfar voveiflegra at- burða sem tengdu okkur saman. Sem fæðingarlæknir við upphaf lífs og hann sem stóð við hinn end- ann lágu leiðir okkar oft saman bæði í orði og verki. Við tókumst á og deildum skoðunum. Stundum sveið undan en er sviðinn dvínaði varð maður þroskaðri. Og ætíð leitaði maður á þessi mið ef orð vantaði eða til að fylla á sálina. Ég vona að virð- ingin hafi verið gagnkvæm. Hann leiddi mig inn í Rotary- hreyfinguna þar sem hann um árabil var virkur félagi og sinnti öllum störfum af sömu fagmennsku og annars staðar þar sem hann bar nið- ur. Nútíma upplýsingatækni inn- leiddi hann á fundi sem og hann hef- ur gert innan kirkjunnar. Nú má hlýða á kirkjulegar athafnir í gegn- um kapalkerfið beint inn á sjúkra- stofur Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja, eitt síðasta verk þessa mikil- mennis sem við eigum eftir að sakna svo mjög. Fátækleg orð sem þessi verður að líta á sem þökk til þess manns, sem mikil áhrif hefur haft á sitt samfélag og lét engan ósnortinn sem á hlýddi. Skarð hans verður vandfyllt, enda ábyrgðin mikil. Örlögin haga því þannig að fjölskylda mín sameinast á erlendri grund er kveðjustundin rennur upp. Lífið heldur áfram, þess er lifir, og orðstír þess er kveður. Sá er lifir ber sorgina. Handtakið fylgir mér, fyrir það er ég þakklátur. Ég kveð þig með djúpri virðingu og þakklæti fyrir samfylgdina um leið og ég votta sonum þínum, Eddu og nánustu ættingjum mína dýpstu samúð. Konráð Lúðvíksson. Ólafur Oddur Jónsson var meðal kennara minna í Guðfræðideild Há- skóla Íslands. Kenndi siðfræði í leyfi dr. Björns Björnssonar. Hann var góður og samviskusamur kennari. Lagði mikla vinnu í fyrirlestra sína og lét okkur hafa þá í lok annarinnar sem þá a.m.k. var ekki lenska. Síðar kynntist ég feikilega vönd- uðum og öguðum vinnubrögðum sr. Ólafs er hann leiddi nefnd á vegum þjóðkirkjunnar um réttindi samkyn- hneigðra. Hann kallaði til leika og lærða og skilaði ásamt samnefndar- fólki sínu gífurlega vel unninni skýrslu með þeirri afgerandi niður- stöðu að kirkjan ætti í öllu tilliti að taka á móti öllum jafnt án tillits til kynhneigðar viðkomandi. Fordómar sem samkynhneigðir hafa búið við lágu mjög þungt á Ólafi. Sjálfsvíg ungmenna vegna for- dóma í garð samkynhneigðra lágu mjög þungt á honum og honum fannst kirkjan allt of hægfara í því að viðurkenna full réttindi þeirra. Hann var alvörumaður. Hann gaf sig allan í verkefni sín. Hann tók fræði sín mjög alvarlega. Hann var mikill fræðimaður. Hann bjó yfir mjög greinandi huga. Viðkunnanleg- ur maður Ólafur Oddur. Hlýr í við- móti. Þakkað er að leiðarlokum fyrir kynnin sem byggðust fyrst og fremst á fræðandi samtölum, fræð- andi af hans hálfu. Baldur Kristjánsson. Kveðja frá Félagi guðfræðinema Fljótt skipast veður í lofti. Nem- endur guðfræðideildar horfa nú fram á síðari önn þess skólaárs sem nú stendur, og vita að það skarð sem nú er höggvið í kennarahópinn er vandfyllt. Nemendur guðfræðideild- ar biðu þess með eftirvæntingu að sækja tíma hjá sr. Ólafi Oddi Jóns- syni þessa vorönnina, hann var af- bragðs kennari og miðpunktur þeirrar siðfræðikennslu sem fram fer við guðfræðideild. Meðal þess sem gerði Ólaf Odd að góðum kennara var það að hann storkaði nemendum með áleitnum spurningum. Mörgum hefur þótt óþægilegt að mæta þeim spurning- um og er undirritaður einn þeirra. Þegar frá hefur liðið hafa nemendur Ólafs Odds þó skilið hversu mikið kennsla hans hefur skilið eftir, dýpk- að skilning á siðfræðinni, ekki síst þeirri er snýr að lífi og dauða. Það er með miklum söknuði sem sr. Ólafur Oddur er kvaddur, nem- endur guðfræðideildar hafa misst góðan kennara, kennara sem einnig reyndist nemendum vel utan kennslu. Sá missir er þó lítilvægur þegar hugsað er til fjölskyldu Ólafs Odds. Nemendur guðfræðideildar senda henni alúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum með ósk um blessun Guðs. Megi algóður Guð geyma Ólaf Odd Jónsson, hann á fastan sess í huga þeirra sem honum kynntust. Stefán Einar Stefánsson. Vil ég hér minnast sr. Ólafs Odds í fáum orðum. Er ég varð fyrir áfalli í mínu lífi fyrir nokkrum árum þá tók hann mér opnum örmum og veitti mér sáluhjálp. Á einlægan hátt fræddi hann mig um sorgina og hvernig lifa mætti með henni. Hjartahlýja og samhugur einkenndi allt hans fas og orð hans „Gleði og sorg eru jú systur“ og annar sann- leikur sem hann miðlaði á óeigin- gjarnan og einlægan hátt eru og verða mér veganesti í lífinu. Góð- mennska hans snerti mig líkt og marga aðra og er hvatning til að gera vel og vera betri manneskja. Ég votta aðstandendum og vinum sr. Ólafs Odds samúð mína. Sigurrós Antonsdóttir. Síðast á jólaföstu rétt undir heil- aga jólahátíð kvaddi hann. Í þrjá áratugi var hann sóknarprestur í Keflavík og í 11 ár vorum við sam- starfsmenn þar. Ég verð við störf á hafi úti þegar hann verður kvaddur hinstu kveðju og vil þess vegna kveðja hann hér með þessum orðum. Á þeim árum sem ég var í Kefla- vík má segja að ég hafi gengið í gegnum sælustu og einnig sárustu stundir lífs míns, og eðlilega var sr. Ólafur Oddur aldrei langt undan. Þar fékk ég að kynnast trúmann- inum Ólafi Oddi og eins fagmann- inum og guðfræðingnum. Eins var sá tími sem við störfuð- um saman tími mikilla breytinga í lífi hans og sóknarinnar og má segja að gætt hafi allra veðrabrigða í þeim efnum. Í gegnum þau veðrabrigðin öll sigldi hann og kjölfestan hans var hin einlæga trúarvissa. Honum hugnaðist ekki mærð og lof, það er víst, og það er fjarri mér að hugsa til hans með þeim hætti við leiðarlokin. Við vorum ekki sammála um alla hluti, en samtaka vorum við þegar þjónustan var annars vegar og milli okkar ríkti alltaf mikið traust í öllu sem viðkom helgum athöfnum og undirbúningi þeirra. Ég er þakklát- ur fyrir það traust og það frelsi sem hann veitti mér í starfinu. Hann var dulur og vildi halda sig til hlés og undi sér vel við fræðistörf, þar blómstraði hann og var brunnur visku á mörgum sviðum guðfræðinn- ar. Þegar áföllin dundu yfir sýndi hann sínar sterkustu hliðar, hvort sem um slysfarir eða sjálfsvíg var að ræða. Hann opnaði á opinbera um- ræðu um sjálfsvíg og gat fjallað á af- ar hreinskilinn hátt um það við- kvæma málefni án þess að ýfa sárin. Ég kveð hann í sátt og minnist hans með virðingu og víst er að ég tek margt með mér inn í framtíðina af því sem ég lærði af honum í okkar samstarfi. Ég sendi sonum hans og fjölskyld- um þeirra og Keflavíkursöfnuði mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Ég vona að sú sókn sem hann helgaði krafta sína blómgist og dafni hér eft- ir sem hingað til. Hann sagði oft að maður ætti að haga lífinu þannig að maður gæti óttalaust mætt kalli sínu því engin vissi sinn næturstað. Hann talaði líka um dauðann sem heimkomu, heimkomu í Guðsríkið. Ég veit að hann hefur átt góða heimkomu í ríki ljóssins, á hátíð ljóssins, „meira að starfa Guðs um geim“. Einar Örn Einarsson. Sóknarprestur minn og góður kunningi, séra Ólafur Oddur Jóns- son, er látinn. Svo snöggt – svo óvænt. Sóknin situr eftir agndofa. Þær systur, sorg og eftirsjá, láta vita af sér en nú vantar séra Ólaf. Eng- inn var betri á slíkum stundum en sá mæti maður. Þegar höggvin voru stærstu skörðin var enginn betri en hann til að sefa hugann, veita ólgu tilfinninga útrás í heppilegum far- vegi þannig að einstaklingar og bæj- arfélag náðu áttum að nýju – náðu tökum á sorginni og tilfinningum sínum. Við allt of mörg slík tilefni reyndist séra Ólafur betri en enginn enda maðurinn djúpur í hugsun – þar sem siðfræði, heimspeki og náungakærleikur gegndu lykilhlut- verki. Hann sá samhengi hlutanna og lukti upp fyrir samferðafólki sínu þeim torræðu dyrum. Vissulega var hann Ólafur Oddur ekki skaplaus maður og gátu brimskaflar samtím- ans brotnað á honum – stundum með hvelli. Þá ornaði guðsmaðurinn sér við trú sína og sannfæringu fyrir réttum hugsjónum. Hann var enda mikilmenni andans og aldrei skynj- uðum við það betur en þegar helst á reyndi. Nú er hann horfinn sjónum okkar og verður sárt saknað. Áhrifa hans og andríkis mun hins vegar áfram gæta í bæjarfélaginu sem hann unni svo heitt. Svo margir eiga honum svo margt að þakka. Ég kveð séra Ólaf með söknuði en þakklæti fyrir verk hans. Um leið og ég sendi fjöl- skyldu hans og ástvinum dýpstu hluttekningu bið ég blessunar fyrir minningu séra Ólafs Odds Jónsson- ar. Hjálmar Árnason.  Fleiri minningargreinar um Ólaf Odd Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Gunnþór Þ. Ingason; Lára G. Oddsdóttir; Gylfi Ingvars- son, Svæðisstjóri Ægissvæðis; Guð- björg Ólöf Björnsdóttir-Larsen; Lilja G. Hallgrímsdóttir; Hrannar Hólm. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 51 MINNINGAR Jónas Aðalbjörn Andrésson var fæddur á Þórisstöðum, Gufu- dalshreppi, hinn 27. mars 1905. Hann var sonur Andrésar Sig- urðssonar, bónda á Þórisstöðum, og konu hans Guðrúnar Sigríð- ar Jónsdóttur. Þau áttu 15 börn. Jónas var ungur settur í fóstur til föðurbróður síns Kristjáns á Kolla- búðum í Reykhóla- hreppi og konu hans Sesselju Einarsdóttur. Þau áttu tvö börn, Guðrúnu og Sigurð, sem Jónas leit alltaf á sem systkini sín. Einnig ólst þar upp systurdóttir Kristjáns, Arnfríður Aradóttir. Jónas var bóndi á Kollabúðum í þríbýli árin 1926–7. Ráðskona hans var systir hans Valgerður, síðar húsmóðir í Gufudal. Hann bjó í Skógum í Þorskafirði 1930–33 og giftist fyrri konu sinni, Ketilríði Gísladóttur ljósmóður, f. 1. október 1897, 1931. Hún lést 12. desember 1932. Þau áttu ekki börn sem lifðu. Hún átti tvö börn með fyrri manni sínum, Birni Jónssyni frá Kinnar- stöðum, Aðalheiði, síðar á Hólma- vík og Sigríði á Akranesi. Jónas bjó á Hallsteinsnesi í Gufudalshreppi 1936–7 með seinni konu sinni, Guðbjörgu Bergþórs- dóttur, f. 21. júní 1917 í Flatey á Breiðafirði. Þau giftust 1936. Frá 1937 til 1943 bjuggu þau í Skógum en fluttu þá að Múla í sömu sveit vorið 1943. Guðbjörg lést stuttu síðar, komin langt á leið að fjórða barninu, hinn 29. júní 1943. Þau Guð- björg og Jónas eign- uðust tvo syni sem komust upp, þá Kristján Jón, f. 3. mars 1938, og Inga Bergþór, f. 24. októ- ber 1940. Jónas smitaðist af berklum 1937 og var á Vífilsstöðum um veturinn. Jónas bjó sonum sínum heimili, fyrst á Kollabúðum í skjóli fóstur- föður og móður, en 1945 fær hann til sín Ingibjörgu Helgu Guð- mundsdóttur ljósmóður, f. 3. júlí 1904. Hún lést 5. ágúst 1988. Hún var hálfsystir Ketilríðar, fyrri konu hans. Árið 1948 fluttum við að Víðivöll- um í Staðarhreppi í Strandasýslu og vorum þar til 1950 er við flutt- um að Múla í Þorskafirði og vorum þar til 1962 þegar þau brugðu búi og fluttusuður til Reykjavíkur. Jónas var vörður við mæðiveiki- girðingu úr Þorskafirði tvö sumur. Eftir að suður kom vann Jónas hjá Kjartani í Álímingum í nokkur ár. Jónas var meðalmaður á hæð, grannvaxinn og stæltur. Hann fékk að finna fyrir sorginni meir en margir aðrir. Að lokum varð byrðin of þung. Hann lést á Ási í Hveragerði 14. júlí 1974 og hvílir að Kollabúðum hjá þeim sem hann unni. Ingi B. Jónasson. JÓNAS AÐALBJÖRN ANDRÉSSON ALDARMINNING Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru LÁRU HALLDÓRSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á dvalarheimilinu Birkihlíð fyrir góða umönnun. Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýárs. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Elín Ásta Káradóttir, Lúther Steinar Kristjánsson, Rósfríður María Káradóttir, Magnús Friðriksson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.