Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 62
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
MÉR
FINNST ÉG
ÖRUGG MEÐ
ÞÉR
EN EF TARANTÚLAN
NÆR MÉR ÞÁ...
VESKIÐ MITT!
ÉG
SKAL
ÞARNA LIGGUR
SKAMMBYSSA! HVERJU ER
RÓSA AÐ LEYNA
MIG?
ÉG HEF ALDREI VERIÐ Á
FLJÚGANDI TEPPI ÁÐUR
SAMA
HÉR
SVONA NÚ TEPPI,
FLJÚGÐU MEÐ OKKUR
HÆRRA!
ÞETTA ER
MIKLU BETRA EN
AÐ FÁ FAR HJÁ
MÖMMU. KÍKJUM
Í KRINGLUNA
FÁUM
VIÐ EKKI
FRÍAR
SALT-
HNETUR
Í ÞESSU
FLUGI?
FAÐIR ÞINN ER
KOMINN AFTUR
ÚR ENGLANDS
FÖR
EN ÞÚ SKALT SAMT BÍÐA MEÐ AÐ
SPYRJA HVORT HANN HAFI KEYPT GJÖF
HANDA ÞÉR
HJÁLP, MAMMA
ER KOMIN HEIM
ATILA,
ÞÚ
VERÐUR
AÐ
HJÁLPA
MÉR AÐ
FELA MIG!
KEMUR EKKI
TIL MÁLA. ÉG
ÆTLA EKKI AÐ
BLANDA MÉR Í
ÞETTA. ÉG ER
FARINN
AÐ SOFA
ENN OG AFTUR ER
KÓNGULÓAR-
HUNDINUM BJARGAÐ
AF AÐSTOÐARMANNI
SÍNUM, LETI-KISA.
GRÍMUR,
ERTU
HÉRNA?
MIKIÐ ER ÉG FEGIN AÐ ÞÚ
ERT KOMINN HEIM. ÞETTA RAF-
MAGNSLEYSI ER HRÆÐILEGT
VERTU
BARA RÓLEG
ELSKAN
MANNKYNIÐ
HEFUR LIFAÐ
AF ÁN LOFT-
KÆLINGAR Í
MÖRG
HUNDRUÐ
ÁR
KÆLDU
ÞIG AÐEINS
NIÐUR
ÁSTIN MÍN
JÁ EN ÞAÐ
FÓLK LIFÐI
LÍKA HELMINGI
SKEMUR EN
VIÐ!
RÓLEG! ÞAÐ
ER ÞRJÁTÍU
STIGA HITI ÚTI
OG VIÐ ERUM
ÁN LOFT-
KÆLINGAR!
EN ÉG ÞARF
AÐ SINNA MÍNU
STARFI OG TAKA
MYNDIR
Dagbók
Í dag er laugardagur 31. desember, 365. dagur ársins 2005
Víkverji átti yndis-leg jól með fjöl-
skyldu sinni í ár. Þó
voru þau á ýmsan hátt
frábrugðin því sem
hann er vanur. Meðal
annars flakkaði hann
milli ólíkra heimila á
aðfangadagskvöld,
enda orðinn meiri
flækingsköttur en
hann var. Það var
samt ágætt og Vík-
verji kynntist jóla-
stemningu sem var í
senn framandi og
kunnugleg. Það er öll-
um hollt að upplifa
nýja hluti.
En eitt er það sem Víkverja tókst
með eindæmum vel þessi jól, en það
var hófsemin. Víkverji át aðeins tvo
diska af kalkúna á aðfangadagskvöld
og fitnaði ekki um eitt einasta kíló
alla aðventuna. Það er nýr og stór-
kostlegur árangur fyrir Víkverja,
sem hingað til hefur glímt við nokk-
urs konar létta en langvinna lotu-
græðgi í desember.
Víkverji er því mjög feginn að
hafa náð einhvers konar hófsemi í
sitt líf. Hófi í neyslu á mat. Það kætir
Víkverja að geta hafið nýtt ár með
loforðum um áframhaldandi ágæti,
en ekki loforðum um að rífa sig nú
upp úr soranum.
Víkverji verður líka
þrítugur á árinu sem
nú kemur, svo það ætti
að vera kominn tími á
þetta allt saman.
x x x
Víkverji var að áttasig á hræðilegum
hlut á dögunum. Hann
var sem barn aldrei
látinn stunda neinar
íþróttir. Hann komst
upp með að sitja bara
og lesa og leika sér í
tölvunni, enda var
hann oft lasinn og
veikburða barn. En það þýddi að nú
stendur hann uppi, gersamlega fatl-
aður þegar kemur að íþróttasviðinu.
Hann gæti varla sparkað bolta þótt
honum væri borgað fyrir það og á
mjög erfitt með alla samhæfingu og
tæknileg atriði með líkamanum.
En fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott. Víkverji sparaði
nefnilega á sér hnén í æsku og ætlar
nú að taka sig á og verða íþrótta-
maður „á gamals aldri“. Nú getur
hann tekið alla þessa gömlu bak-
veiku og hnésjúku jafnaldra sína í
bakaríið og stokkið yfir skrið-
tæklingar þeirra eins og lipur og
spræk fjallageit.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leikhús | Fyrsta æfing á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen var í Þjóðleikhúsinu í
fyrradag. Með titilhlutverkið fer Björn Hlynur Haraldsson. Pétur Gautur
verður vígslusýning Kassans, sem er nýtt svið í Þjóðleikhúsinu. Í öðrum hlut-
verkum eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún S. Gísla-
dóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Egill Egilsson
og Ólafur Darri Ólafsson.
Karl Ágúst Úlfsson hefur gert nýja þýðingu á verkinu, Gretar Reynisson
gerir leikmynd og leikstjóri og höfundur leikgerðar er Baltasar Kormákur.
Morgunblaðið/Ásdís
Æfingar hafnar á Pétri Gaut
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu
aldrei undir lok líða. (Mark. 13, 31.)