Morgunblaðið - 31.12.2005, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 63
DAGBÓK
Jólatré fyrir alla
28. DESEMBER sl. skrifar Víkverji
og gagnrýnir að stórverslanir skuli
selja viðskiptavinum sínum jólatré
og vill að einungis björgunarsveitir
eða líknarfélög selji þau.
Ég er ekki sammála Víkverja. Ég
hef ekki haft mikinn pening milli
handanna undanfarin ár og hef því
tekið því fegins hendi að geta keypt
lifandi jólatré hjá Krónunni – á verði
sem ég ræð við – og hef getað valið
mér þá stærð af jólatré sem hentar
mínu húsnæði, án þess að þurfa að
hugsa um hvort ég hafi efni á því
eða ekki. Áður hafði ég keypt tré hjá
björgunarsveitunum og einungis
minnstu trén, verðið var það hátt.
Sem sagt, mínar bestu þakkir til
Krónunnar fyrir að bjóða sínum við-
skiptavinum upp á jólatré á verði
sem allir ráða við.
Ánægður viðskiptavinur.
Fyrir hverja er
sjónvarpsdagskráin?
ERLA skrifar miðvikudaginn 28.
des. og spyr hvers vegna sjónvarps-
efni fyrir fullorðið fólk sé farið að
vera eins seint og raun ber vitni. Ég
vil taka undir með henni. Það hentar
hvorki vinnandi fólki – né heldur
gömlu fólki sem hætt er að vinna –
að vaka fram á nótt yfir sjónvarp-
inu.
Ég spyr líka hver vegna sé sífellt
verið að auka dagskrárefni fyrir
börn og unglinga þannig að það
standi oftar en ekki fram til klukkan
23, samtímis því sem verið er að tala
um að börn og unglingar hangi of
mikið fyrir framan sjónvarp og aðra
skjái.
Ellilífeyrisþegi.
Jólakort í óskilum
KORTIÐ er frá Svíþjóð, stílað á
Hönnu og Gulla, falleg mynd af litlu
barni og kveðjan er frá Lilju Ósk,
Guðbjörgu og Árna Þór.
Þetta kort kom í Háulind 31 og ef
Hanna og Gulli lesa þetta bið ég þau
að hafa samband í síma 564 0265.
Sammála Guðríði
ÉG get alveg tekið undir með Guð-
ríði á Blönduósi sem skrifar í Morg-
unblaðið í dag, 28. desember, um
kjarauppbót á ellilífeyri sem við átt-
um að fá fyrir jólin. Það er alveg
eins hjá mér og var hjá henni, það
var allt tekið upp í skatt svo ég sá
ekki krónu af því. Kær kveðja til
Guðríðar.
Aðalheiður.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, gaml-ársdag, er sjötug Anna Schev-
ing, Sporhömrum 8, Reykjavík. Hún
tekur á móti ættingjum og vinum kl.
12–15 í félagsheimili Rafveitunnar v/
Rafveituveg í Elliðaárdal. Allir vel-
komnir.
85 ÁRA afmæli. Í dag, 31. desem-ber, er 85 ára Sveinn Elíasson,
fyrrv. útibússtjóri Landsbanka Ís-
lands. Hann og eiginkona hans, Svein-
björg Zóphoníasdóttir, verða að heim-
an í dag.
60 ÁRA afmæli. 1. janúar nk. verð-ur sextugur Guðmundur Páll
Steindórsson, Seljahlíð 5d, Akureyri.
Í tilefni þess tekur hann, ásamt fjöl-
skyldu sinni, á móti gestum í KEA
salnum í Sunnuhlíð föstudaginn 6. jan.
frá kl. 20.
Rúbínbrúðkaup | Í dag, gamlársdag,
eiga 40 ára brúðkaupsafmæli hjónin
Svanhildur Skaftadóttir og Eggert
Gautur Gunnarsson. Í tilefni dagsins
verður opið hús, á milli 12 og 15, á
heimili dóttur þeirra að Kópavogs-
braut 107. Eru allir vinir og vanda-
menn boðnir innilega velkomnir að
fagna þessum tímamótum með þeim.
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 c6 4. Rf3 d5 5.
Bb3 Bd6 6. exd5 Rxd5 7. 0-0 0-0 8. He1
Rd7 9. Rbd2 Bc7 10. Re4 a5 11. a3 Kh8
12. Bg5 f6 13. Bd2 R7b6 14. h3 Re7 15.
De2 Rf5 16. Had1 De7 17. d4 Rxd4 18.
Rxd4 exd4 19. Df3 De5 20. Rg3 Dc5 21.
Rh5 Bd7 22. c3 dxc3 23. Bxc3 Hae8 24.
Hxe8 Hxe8 25. g4 Be5
Staðan kom upp í heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í Khanty-
Mansiysk í Rússlandi. Stórmeistarinn
Zviad Izoria (2.646) frá Georgíu hafði
hvítt gegn ísraelska stórmeistaranum
Sergey Erenburg (2.582). 26. Rxf6! Hf8
fegurð fléttunnar fólst í afbrigðinu
26. … gxf6 27. Dxf6+ Bxf6 28. Bxf6
mát! Í framhaldinu vinnur hvítur mann.
27. Bxe5 Dxe5 28. Rxd7 Rxd7 29. Hxd7
Dc5 svartur hefði orðið mát eftir 29. …
Hxf3 30. Hd8+. 30. Hf7 He8 31. Kg2 b5
32. Bc2 Kg8 33. Bb1 Dc4 34. Hf4 De6
35. Be4 g5 36. Bxc6 gxf4 37. Bd5 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Fréttasíminn 904 1100
Dummy texti,Dummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
• Matvælavinnsla með góða markaðsstöðu.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 400 mkr.
• Þekkt húsgagnaverslun.
• Gott bakarí í heildsölu og smásölu.
• Heildverslun með fæðubótar- og heilsuvörur.
• Framkvæmdastjóri/meðeigandi óskast að þekktu tæknifyrirtæki í góðum vexti.
• Meðalstór trésmiðja. Leiðandi fyrirtæki á sínu sérsviði.
• Stór heildverslun með þekktar vörur, m.a. fyrir byggingariðnaðinn.
• Glæsileg lítil gjafavöruverslun í Kringlunni.
• Traust tryggingamiðlunarfyrirtæki í Danmörku. Góður rekstur.
• Þekkt undirfataverslun með langa og góða rekstrarsögu. Hentugt fyrir duglega konu sem vill
eignast eigin rekstur. Auðveld kaup.
• Traust fasteignasala óskar eftir framsæknum fasteignasala sem meðeiganda. Fimm starfsmenn í
dag en þörf á fleirum.
• Fjárfestir óskast til að taka stöðu í MBO (Management Buy-Out) í góðu fyrirtæki. 70 mkr. í 4-5 ár.
• Stórt tæknifyrirtæki. Heppilegt fyrir mikinn markaðsmann.
• Meðeigandi óskast að lítilli auglýsingastofu í miklum vexti.
• Lítið málmiðnaðarfyrirtæki með mikla sérstöðu.
• Umboðs- og heildverslun á Vesturlandi. Ársvelta 150 mkr.
• Mjög arðbært sandblástursfyrirtæki sem hægt er að flytja hvert á land sem er.
• Stórt bílaþjónustufyrirtæki.
• Meðalstór heildverslun/sérverslun með heimilisvörur. Mjög góð framlegð.
• Þekkt heildsala með byggingavörur.
• Fjárfestir óskast að þekktu fyrirtæki sem ætlar í útrás.
• Lítið framleiðslufyrirtæki með langa og góða rekstrarsögu.
• Lítil heildverslun með fjölbreyttar vörur og góðan sölumann óskar eftir sameiningu við stærra
fyrirtæki. Góð framlegð.
• Mjög arðbær verslun og veitingarekstur úti á landi. Hagstætt verð.
• Sérverslun með íþróttavörur.
• Arðbært vinnuvélaverkstæði með föst verkefni.
• Stórt þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
• Þekkt heildverslun með gólfefni.
• Meðalstórt framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 150 mkr.
• Rótgróðið fyrirtæki í hreinsun og útflutningi æðadúns. Góð afkoma. Hentar til flutnings út á land.
Jóga
í Garðabæ
Byrjar í Kirkjuhvoli 9. janúar
Framhaldstímar mánud. og miðvikud. kl. 18.00–19.15
Byrjendatímar mánud. og miðvikud. kl. 19.30–20.45
Kennari er Anna Ingólfsdóttir,
Kripalu jógakennari.
Upplýsingar og skráning í símum
565 9722 og 893 9723 eftir kl 17.00
og einnig á annaing@centrum.is. Anna Ingólfsdóttir
Afmælisþakkir
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim sem heiðruðu
mig með nærveru sinni, blómum, gjöfum, skeytum
og símtölum á 100 ára afmæli mínu þann 4.
desember síðastliðinn.
Ég bið ykkur Guðs blessunar á nýju ári.
Ragnheiður Jónsdóttir,
frá Þrúðvangi,
Vestmannaeyjum.
KOMIN er út ný bók hjá Lafleur út-
gáfunni: Katla – saga Kötluelda.
Bókin fjallar um öll þau Kötlugos
sem vitað er
um og því ómet-
anleg jarð-
fræðileg heim-
ild um Kötlu. En
einnig er í bók-
inni að finna
ýmsar lifandi
lýsingar fólksins
sem lifði at-
burðina og vís-
anir í þjóðsögur og aðrar bók-
menntir.
Bókin er rétt rúmlega 200 bls. og
myndskreytt af höfundinum: Werner
Schutzbach. Höf. er Svisslendingur
sem hefur af einskærri ástríðu á Ís-
landi lagt á sig áratugavinnu til að
afla heimilda um Ísland og eldfjallið
Kötlu. Í bókinni er að finna allar þær
heimildir sem til eru um fjallið. Wer-
ner hefur áður ritað bókin: Island,
eine Feuerinsel am Polarkreis, sem
er af mörgum talin hálfgerð biblía
um náttúrur Íslands og notuð af
mörgum leiðsögu- og ferðamönnum.
Werner hlaut fálkaorðuna fyrir þá
bók og nýtur gífurlegrar virðingar fyrir
rannsóknir sínar á Íslandi, sögu
landsins og náttúru.
Hæsta leiðbeinandi verð bókar er
3.775 kr. í búð en 2.900 krónur hjá
Lafleur útgáfunni í Listasetri Lafleur,
Hólmaslóð 4.
Katla – saga
Kötluelda