Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 65

Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 65 MENNING Hjörleifur Ingason véliðnfræðingurmun flytja erindi á vegum Mál-bjargar í Bláa lóninu að kvöldi 3.janúar um kenningar Johns Harr- isons sem er bandarískur blaðamaður er hefur mikið rannsakað stam og orsakir þess. Hjörleif- ur segir að um 100 manns hafi skráð sig í Mál- björgu og telur víst að hlutfall Íslendinga sem stami sé svipað og annars staðar. Stam geti ver- ið mikill kvilli eða lítill og misjafnt hve mikið það hái fólki í lífinu. Fyrirbærið sé til um allan heim og tíðnin mjög svipuð meðal þjóða, enginn munur sé á menningarheimum í því tilliti. Hjörleifur segist hafa kynnst nýjum kenn- ingum Harrisons í Danmörku í haust en þar hafi þær vakið mikla athygli. „Þetta er ný sýn á þetta vandamál og lausnir á því, Harrison nefn- ir þetta Stam-sexhyrninginn. Hingað til hafa menn litið á stam sem mjög afmarkaðan vanda og jafnvel talið að um væri að ræða eitt gen sem stýrði þessu. En hann skýtur þá kenningu eiginlega í kaf og segir lík- legra að um sé að ræða félagslegar erfðir en lík- amlegar. Hann nefnir sem dæmi um slíkar fé- lagslegar erfðir stríðið í Kosovo 1999. Þar hafi fólk í héraðinu í gegnum aldirnar erft hatur á vissum þjóðum, þetta sé félagslegt hegð- unarmynstur en ekki líffræðilegt, sé ekki gena- tengt. Harrison setur fram góð rök fyrir því að um sé að ræða samspil sex þátta og milli þeirra séu sterk, innbyrðis tengsl. Þættirnir eru sál- fræðileg viðbrögð, hegðun, tilfinningar, skynjun, skoðanir og loks ætlanir. Ekki sé nóg að takast á við einn þáttinn, helst verði að fást við þá alla, þetta er því heildræn sýn sem hann boðar.“ – En hvernig tengjast þættirnir innbyrðis, hvernig er samspilið? „Hann segir að sé hróflað við einum þætt- inum breytist hinir líka, eins og í dómínóspili. Ef manni tekst að bæta einn þáttinn þá batna hinir líka og öfugt, ef einn versnar þá versna flestir eða allir. John Harrison er á sjötugsaldri, hann stam- aði sjálfur í um 30 ár en hefur verið laus við kvillann í um 20 ár og hefur ritað mjög áhuga- verða bók um stam, How to Conquer your Fear of Speaking before People. Hann er ekki með sérmenntun á þessu sviði en hefur upplifað stam sjálfur og hefur rannsakað það ofan í kjöl- inn,“ segir Hjörleifur Ingason. Stam | Erindi um nýjar kenningar á vegum Málbjargar 3. janúar Sex þættir sem tengjast innbyrðis  Hjörleifur Ingason er fæddur árið 1954 í Keflavík en er búsettur í Reykjavík, hann bjó áður í mörg ár í Dan- mörku. Hjörleifur er véliðnfræðingur að mennt og starfar hjá fyrirtæki á Ísafirði þótt hann búi í höfuðborg- inni. Hjörleifur hefur verið virkur í starfi Mál- bjargar (mal- bjorg@stam.is), félags fólks sem stamar. Öryggið í fyrirrúmi. Norður ♠ÁKG ♥ÁG2 ♦K10862 ♣D7 Suður ♠104 ♥K9876 ♦ÁD ♣ÁK92 Suður spilar sex hjörtu og fær út spaða. Hvernig er áætlunin? Einn slag má gefa á tromp og því þarf ekki að hafa áhyggjur af 3–2-legunni (68%). Það er fyrst og fremst 4-1-legan (28%) sem kallar á umhugsun. Í flestum tilfellum virkar vel að spila hjarta á gosann, því þannig má ráða við D10xx í hjá báðum mótherjum. En í einu tilfelli reynist það illa … Norður ♠ÁKG ♥ÁG2 ♦K10862 ♣D7 Vestur Austur ♠9876 ♠D532 ♥10543 ♥D ♦54 ♦G973 ♣G83 ♣10654 Suður ♠104 ♥K9876 ♦ÁD ♣ÁK92 … þegar austur á staka drottningu. Þótt líkur á slíkri legu sé ekki miklar er sjálfsagt að taka þessa stöðu inn í reikningsdæmið ef hægt er. Og það kostar ekkert að taka fyrst á hjartaás. Ef báðir fylgja smátt er farið heim á laufás og hjarta spilað að gosa og þann- ig má ráða við D10xx hvorum megin sem er. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Ertu á leið til Spánar? Spænskunámskeið í boði 9. jan. til 7. feb. Kennt verður á miðvikudögum kl. 10–11.30 í Afla- granda, ef næg þátttaka fæst. Skráning og uppl. í síma 411 2700 og á staðnum. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Óskum þátttakendum og samstarfs- aðilum gleðilegs nýs árs, þökkum liðnar samverustundir. Dagskrá næstu annar birtist í Garðapóst- inum 5. janúar næstkomandi en Garðaberg verður opnað eftir jólafrí miðvikudaginn 4. janúar. Félagsstarf Gerðubergs | Starfsfólk sendir þátttakendum, samstarfs- aðilum og velunnurum um land allt bestu óskir um heillaríkt komandi ár, með þakklæti fyrir góðar stundir, gott og gefandi samstarf, samskipti og veittan margvíslegan stuðning. Furugerði 1, félagsstarf | Starfsfólk Furugerðis 1 sendir öllum íbúum og gestum í félagsstarfi óskir um gleðilegt ár og farsælt nýtt ár með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári. Hæðargarður 31 | Fastir liðir hefj- ast strax eftir áramótin. Kynning- arfundur á dagskránni föstudag 6. janúar kl. 14. Skráning á ný og spennandi námskeið. Laugardag kl. 10 árdegis eru Göngu-Hrólfar og Hana-nú göngugestir „Út í bláinn“. Líttu inn, það eru allir alltaf vel- komnir í Hæðargarðinn. Síminn er 568 3132. Norðurbrún 1, | Óskum íbúum og gestum gleðilegs árs og þökkum fyrir árið sem er að líða. Vesturgata 7 | Eftirtalin námskeið byrja í janúar. Bútasaumur þriðjud. 3. jan. Glerbræðsla fimmtud. 5. jan. Enska þriðjud. 10. jan. Spænska fimmtud. 12. jan. Einnig byrjar leik- fimi mánud. 2. jan. Boccía fimmtud. 5. jan. Tréskurður miðvikud. 11. jan. Nánari upplýsingar og skráning í síma 535 2740. Kirkjustarf Fella- og Hólakirkja | Á nýársdag verður Ingólfur Margeirsson, rithöf- undur og blaðamaður, gestur í há- tíðarmessu kl. 14. Í stað hefðbund- innar prédikunar verður sr. Svavar Stefánsson, sóknarprestur í Fella- sókn, og Ingólfur með sam- talsprédikun. Ætla þeir að fjalla um kristna trú og trúarlíf í ljósi veik- inda og erfiðleika eftir missi. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Jólahátíð fyrir eldri borgara í fé- lagsmiðstöðinni Víðilundi 24, kl. 14.30. Jólastund á dvalarheimilinu Hlíð, 29. des. kl. 14. Fjölskyldu- jólatréskemmtun 30. des. kl. 17. Unglingahátíð verður á gamlárs- kvöld kl. 1. Hátíðarsamkoma verður á nýársdag kl. 17. Á NÝÁRSDAG verður Ingólfur Mar- geirsson, rithöfundur og blaðamaður, gestur í hátíðarmessu kl. 14 í Fella- og Hólakirkju. Í stað hefðbundinnar prédikunar verða sr. Svavar Stefánsson, sókn- arprestur í Fellasókn og Ingólfur með samtalsprédikun. Ætla þeir að fjalla um kristna trú og trúarlíf í ljósi veikinda og erfiðleika eftir missi. M.a. um það hvernig trúin og bænin veita styrk og huggun í andstreymi lífsins. Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson Ingólfur Margeirsson í Fella- og Hólakirkju SÍÐUSTU tónleikar ársins verða að vanda í Hallgrímskirkju í dag, gamlársdag, kl. 17. Það eru tromp- etleikararnir Ásgeir H. Stein- grímsson og Eiríkur Örn Pálsson og orgelleikarinn Hörður Áskels- son sem kveðja gamla árið og fagna því nýja með viðeigandi lúðraþyt og orgelleik. Á efnisskrá tónleikanna við þessi áramót eru verk eftir Dubois, Hol- loway, Pezel, Bach, Albinoni/ Giazotto og Scarlatti. Fyrst á efn- isskránni eru tvö verk eftir núlif- andi tónskáld. Það eru Prelude eftir franska tónskáldið Pierre Max Dubois og Pastorale sem Mal- colm Holloway samdi árið 1995. Þriðja verkið á tónleikunum er Canzona eftir Frescobaldi en svo hljómar Sónatína nr. 62 eftir Jo- hann Pezel. Fastir liðir á efnisskrá tónleikanna eru hin þekkta Tok- kata og fúga í d-moll eftir J.S. Bach sem Hörður leikur og hið fræga Adagio eftir Giazotto og Albinoni sem þeir leika allir þrír saman. Tónleikunum lýkur svo með hinni líflegu Tokkötu í D-dúr eftir Alessandro Scarlatti. Samstarf Ásgeirs, Eiríks Arnar og Harðar hófst árið 1993, en auk Hátíðarhljóma við áramót hafa þeir tvisvar leikið á tónleikum Sumarkvölds við orgelið. Síðast- liðið sumar léku þeir einnig á veg- um Sumartónleika á Norðurlandi og í október komu þeir fram í Keisarasal Fílharmóníuhljóm- sveitar Sankti Pétursborgar í til- efni af vígslu nýs orgels þar. Félagarnir þrír eru löngu orðnir landsþekktir tónlistarmenn. Ásgeir og Eiríkur leika báðir með Sinfón- íuhljómsveit Íslands auk þess að vera virkir í tónlistarlífinu al- mennt, m.a. með Hljómsveit Ís- lensku óperunnar, Kammersveit Reykjavíkur og Caput-hópnum, svo eitthvað sé nefnt. Þeir hófu báðir tónlistarnám sitt hér á Ís- landi, en stunduðu framhaldsnám vestanhafs, Ásgeir í New York, en Eiríkur í Boston og svo í Los Ang- eles. Eftir að hafa verið í framhalds- námi í orgelleik í Þýskalandi var Hörður ráðinn organisti og kantor Hallgrímskirkju árið 1982. Hann stjórnar Mótettukór Hallgríms- kirkju og kammerkórnum Schola cantorum og er listrænn stjórn- andi Kirkjulistahátíðar og Sum- arkvölds við orgelið. Þá er Hörður Borgarlistamaður Reykjavíkur ár- ið 2002 og hann var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu árið 2004. Ný- lega var Hörður skipaður söng- málastjóri þjóðkirkjunnar. Forsala aðgöngumiða er í Hall- grímskirkju og er hún opin kl. 9– 17. Morgunblaðið/Ómar Hátíðar- hljómar við áramót Enskuskóli Erlu Ara auglýsir enskunám í Hafnarfirði • Tíu getustig með áherslu á tal • Enska á framhaldsskólastigi Enskunám í Englandi fyrir hópa og einstaklinga Framúrskarandi ensku- nám sniðið að þörfum hvers og eins, til dæmis 1-2 vikur til þess að öðlast þjálfun í að halda fyrirlestur, kynningu eða fundi á ensku eða 2-6 vikur til þess að efla almenna enskukunnáttu. Hóptímar og einka- kennsla. Ath. skráning er hafin í vinsælu námsferðirnar fyrir 12-15 ára. Skráning í síma 891 7576 og á erlaara@simnet.is Happy New Year enskafyriralla.is Afmælisþakkir 70 ára afmæli 17. desember 2005. Sendi elsku börnunum mínum, tengdabörnum og barnabörnum þakkir fyrir ógleymanlegan dag og líka þeim mörgu kunningjum mínum sem hugsuðu hlýtt til mín og sendu mér afmæl- iskveðjur Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka fyrir öll þau liðnu. Kær kveðja, Helgi Jónsson, Felli, Kjós.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.