Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
SALKA VALKA
Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Fi 26/1 kl. 20
WOYZECK
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14
Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14
CARMEN
Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Fi 19/1 kl. 20 Gul kort
Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Su 8/1 kl. 20 Lau 14/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í FEBRÚAR!
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
EFTIR GARY OWEN.
Í SAMSTARFI VIÐ STEYPIBAÐSFÉLAGIÐ STÚT
Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Naglinn
e. Jón Gnarr í samstarfi við Leikfélagið Regínu
Fö 20/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 21 /1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20
Lau 28/1 kl. 20
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup - heldur áfram!
Fim. 29.des kl. 20 UPPSELT
Fös. 30.des. kl. 20 UPPSELT
Ósóttar pantanir seldar daglega!
Aukasýningar í jan og feb í sölu núna:
Lau. 7.jan. kl. 19 Örfá sæti
Fös. 13.jan. kl. 20 Örfá sæti
Lau. 14.jan. kl. 19 Laus sæti
20/1, 21/1, 27/1, 28/1
Gleðilegt nýtt ár – þökkum liðið!
Miðasala opin
kl. 13-17 23., 28.,
29., 30. des og allan
sólarhringinn á netinu.
Allir
norður!
Miðasalan er lokuð til 2. janúar. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn: www.opera.is
Íslenska óperan óskar landsmönnum öllum farsældar á nýju ári!
ÖSKUBUSKA - La Cenerentola - eftir ROSSINI
Frumsýning sun. 5. feb. kl. 20
2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20
ÖÐRUVÍSI VÍNARTÓNLEIKAR á nýju ári - sunnudagskvöldið 8. janúar kl. 20
Kammersveitin Ísafold flytur Vínartónlist í útsetningum eftir Arnold Schönberg
og Anton von Webern. Stjórnandi: Daníel Bjarnason, einsöngvari: Ágúst Ólafsson baritón
Tryggðu þér miða á óvenjulega og skemmtilega tónleika!
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Vínartónleikar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
2
8
græn tónleikaröð í háskólabíói
aukatónleikar í háskólabíói
MIÐVIKUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30
FIMMTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 6. JANÚAR KL. 19.30
LAUGARDAGINN 7. JANÚAR KL. 17.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Hljómsveitarstjóri ::: Peter Guth
Einsöngvari ::: Anton Scharinger
Helstu perlur höfuðtónskálda Vínar með Strauss-
feðga í broddi fylkingar, hinn frábæri einsöngvari
Anton Scharinger og einn mesti sérfræðingur í
Vínartónlist, hljómsveitarstjórinn Peter Guth.
Tryggðu þér miða núna á www.sinfonia.is á hina
bráðskemmtilegu og sívinsælu Vínartónleika
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Frábær byrjun á nýju ári
Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar.
SÝNT Í IÐNÓ KL. 20
MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700
örfá sæti laus
laus sæti
laus sæti
örfá sæti laus
laus sæti
laus sæti
fimmtudagur
föstudagur
laugardagur
föstudagur
laugardagur
sunnudagur
05.01
13.01
14.01
20.01
21.01
22.01
EITURSNJÖLL hugmynd hjá Völu
Þórsdóttur að kafa í smásagnasafn
Svövu Jakobsdóttur eftir efnivið.
Bæði er nú löngu tímabært að vekja
athygli á þessum litlu meist-
arastykkjum sem eiga sér ekki líka í
bókmenntum okkar, og svo er líklega
vandfundið efni sem hentar jafn vel
aðferðum og stíl Völu og sam-
verkakonu hennar, Ágústu Skúla-
dóttur. Það er eins og grótesk stíl-
færslan, bernsk leikgleðin og
sambandið við áhorfendur sem þær
stöllur leggja gjarnan upp með hafi
verið skapað til að miðla hvers-
dagsmartröðum Svövu Jakobsdóttur
með öllum sínum undirliggjandi
óhugnaði og táknræna hryllingi sem
er alltaf við það að detta ofan í lág-
kúrulegan aulahúmor en gerir það
(næstum) aldrei.
Fimm sögur eru lagðar til grund-
vallar sýningunni: Eldhús eftir máli,
Gefið hvort öðru, Saga handa börn-
um, Krabbadýr, brúðkaup, andlát og
Veisla undir grjótvegg. Sú leið er far-
in að flétta þær saman, stuttir kaflar
og atriði úr hverri sögu lifna og
hverfa áður en bútur úr næstu sögu
tekur við. Samsetningin er afar vel
heppnuð og samstilltur leikhópurinn
rennir sér af miklu öryggi milli atriða
og stemninga. Það sem vinnst með
þessari nálgun er sterkur heild-
arsvipur og sýningin fær skýrari
uppbyggingu sem ekki næst endilega
ef hver sagan er kláruð áður en sú
næsta tekur við. Það sem aftur glat-
ast er innri spenna hverrar sögu,
áhrifamáttur hennar sem heildar.
Hér er vitaskuld um meðvitaða
ákvörðun að ræða hjá höfundum sýn-
ingarinnar og útkoman er heildstætt
listaverk sem stendur fyllilega fyrir
sínu.
Það er forvitnilegt að skoða í
hverju verður mestur leikhúslegur
slagkraftur á móti því sem sterkast
er í sögunum við lestur. Upphafs-
mynd sýningarinnar er sótt í Gefið
hvort öðru og það sem slær mig sem
frekar veik og banal hugmynd í bók
verður feiknarlega sterk í þessu nýja
samhengi. Svo er einnig með fleiri
sáraeinfaldar táknrænar myndir úr
sögunum, svo sem eins og líf-
færabrottnámið úr Sögu handa börn-
um, þær lifna á afar skemmtilegan
hátt á sviðinu. Aftur á móti græðir
efnisríkasta og mögulega dýpsta sag-
an, Krabbadýr, brúðkaup, andlát,
ekki á því að vera flutt í þetta nýja
samhengi. Og titilsagan nær heldur
varla að lifna sem skyldi, útfærsla
hins vélvædda eldhúss kannski ekki
alveg nógu sterk sjónrænt séð og
„pönsið“, niðurstaða eiginmannsins
eftir misheppnaða tilraunina, fellur
flatt, hvað sem því veldur.
En heildin virkar, andrúmsloftið
er hárrétt og það eru vel heppnuðu
atriðin sem greypast í minnið.
Eins og við var að búast í ljósi
vinnubragða Ágústu er þetta sýning
liðsheildarinnar. Leikhópurinn er
frábærlega samstilltur og sam-
hentur, en allir eiga líka sín „sóló“.
Það er aldrei við frammistöðu leik-
aranna að sakast þótt einstaka sögu-
brot nái ekki fullu flugi. Þannig var
Margrét Vilhjálmsdóttir fallega
harmræn sem dauðvona lestrarhest-
urinn úr Krabbadýr, brúðkaup, and-
lát og Aino Freyja Järvelä skilar afar
skýrt teiknaðri húsmóður í Eldhús
eftir máli í þessari opinberu frum-
raun sinni á sviði Þjóðleikhússins.
Unnur Ösp Stefánsdóttir var sterk
sem brúðurin sem tekur gifting-
arheit sín svo bókstaflega í Gefið
hvort öðru. María Pálsdóttir nýtir vel
fimi sína og kraft í meðferð sinni á
ófrískri konu, og fæðingarsenan er
óneitanlega hápunktur sýning-
arinnar, þar sem gróteskri leiktækni
og írónískri tónlist er listilega beitt
til að segja grafalvarlega hluti um
hlutskipti konunnar á öllum tímum.
Flottasta sólóið á samt að mínu
mati Þórunn Lárusdóttir, sem gerir
hina fórnfúsu móður úr Sögu handa
börnum að algerlega skýrum, þrí-
víðum karakter, stækkar þannig
myndina sem sagan sjálf dregur upp
í sínu stranga og tvívíða táknsögu-
formi. Tvímælalaust það besta sem
ég hef séð til Þórunnar.
Kjartan Guðjónsson fær það öf-
undsverða hlutverk að bregða sér í
gervi allra mótleikara kvennanna, en
í sögum Svövu er alltaf ljóst að þótt
ólíku sé saman að jafna hlutskiptum
karla og kvenna þá eru karlarnir líka
fangar hefða, krafna neysluhyggj-
unnar og samskiptahátta borg-
arasamfélagsins. Kjartan gerir
mönnum sínum öllum góð skil á hóf-
stilltan hátt og greinir skýrt á milli
þeirra á öfgalausan hátt.
Umgjörðin öll er snjöll og þénug
hjá Stíg Steinþórssyni, hugkvæm,
tímalaus og hæfilega abstrakt til að
nýtast í öllu því fjölbreytta samhengi
sem sýning af þessu tagi krefst,
rækilega studd af lýsingu Harðar
Ágústssonar. Búningar og gervi
Katrínar Þorvaldsdóttur eru og sér-
lega skemmtileg.
Hljóðmyndin er mikilvægur þátt-
ur í lími sýningarinnar. Auk frum-
samins efnis hefur Björn Thor-
arensen unnið af mikilli hugkvæmni
úr fjölbreyttum efnivið sem stækkar
merkingarsvið sýningarinnar með
vísunum hingað og þangað. Eft-
irminnilegast fyrir mig er sennilega
notkunin á White Wedding með Billy
Idol, sem nýtur sín sérlega vel bæði í
nýju samhengi og snjallri útsetning-
unni.
Allir þessir umgjarðarþættir, svo
og margt í vinnu leikaranna, er upp-
fullt af snjöllum smáatriðum sem
krydda upplifunina, nýtast í að draga
fram kjarnann í meginefninu og eru
líka í sjálfu sér gleðigjafi. Eitt dæmi:
kökurnar í saumaklúbbnum í Veislu
undir Grjótvegg voru algerlega
óborganleg smíð.
Eldhús eftir máli er skemmtilegt
leikhúsverk, þar sem kraftarnir sem
að henni koma eru virkjaðir til sam-
stillts átaks með góðum árangri.
Sýningin er bæði fyndin og hryllileg
vegna þess að sögur Svövu eru sann-
ar og Vala og Ágústa eru trúar
kjarna þeirra, og langar að koma efni
sínu til okkar. Það finnst, og tekst.
Unaðshrollvekjur
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Vala Þórsdóttir upp úr smásög-
um Svövu Jakobsdóttur. Leikstjóri:
Ágústa Skúladóttir, leikmynd: Stígur
Steinþórsson, hljóðmynd: Björn Thor-
arensen, búningar, grímur og hattar:
Katrín Þorvaldsdóttir, lýsing: Hörður
Ágústsson. Leikendur: Aino Freyja Järv-
elä, Kjartan Guðjónsson, Margrét Vil-
hjálmsdóttir, María Pálsdóttir, Unnur Ösp
Stefánsdóttir og Þórunn Lárusdóttir.
Smíðaverkstæðinu 29. desember 2005.
ELDHÚS EFTIR MÁLI
„Heildstætt listaverk sem stendur fyllilega fyrir sínu,“ segir í leikdómnum.
Þorgeir Tryggvason
HIÐ íslenska bókmenntafélag hefur
gefið út bókina Ísland Land frosts
og funa eftir finnska rithöfundinn
Iivari Leiviskä í þýðingu Borgþórs S.
Kjærnested.
Höfundur bókarinnar, Iivari Leiv-
iskä var prófessor í jarðfræði og kom
í tvígang til Íslands um miðjan þriðja
áratug síðustu aldar. Fór hann um-
hverfis landið með strandferðaskip-
um, akandi og ríð-
andi eftir því sem
tök voru á hverju
sinni. Lýsing hans
á landi og þjóð er
afar hlýleg og ein-
kennist af að-
dáun á lands-
mönnum, sem
honum finnst búa
við hörð kjör í óblíðu en fallegu landi.
Ritstíll hans er einfaldur og aðgengi-
legur í þessari upplýsandi ferðasögu
úr fortíðinni.
Land frosts
og funa