Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ A lltaf kemur það jafn skemmtilega á óvart hversu erfitt það er að velja myndasögur árs- ins. Eins og flestum ætti að vera ljóst eru svona árs- uppgjör enginn stóridómur um gæði þeira myndasagna sem ekki komast á listann. Undirritaður er eins og aðrir ofurseldur persónu- legum áhuga, tímaskorti, vana- festu og takmörkuðum fjárráðum við innkaup og lestur mynda- sagna. Þrátt fyrir góðan vilja er ekki nokkur einasta leið að fara yfir allt það myndasöguefni sem berst hingað til lands á hverju ári. Sömuleiðis setur takmörkuð tungumálaþekking strik í reikn- inginn varðandi lestur á meðal annars frönskum, þýskum og jap- önskum teiknimyndasögum sem ekki hljóta náð fyrir augum þýð- enda. Alger spæling. Íslenska myndasöguárið var gróskumikið og má segja að vísir sé kominn að almennilegri mynda- sögumenningu á íslandi. Fyrir jól- in komu út fjórar frumsamdar ís- lenskar myndasögubækur, allar góðar í sínum margvíslegu mynd- um. Þrjú dagblöð birta íslenskar myndasöguskrítlur að staðaldri. Út komu þrjú myndasögublöð; Gisp og Blek sem hafa verið við lýði í fjölda ára og Very Nice Comics sem skaut nú upp koll- inum. Sala myndasagna er með besta móti og útlán á bókasöfnun ganga mjög vel. Hápunktur ís- lenska myndasöguársins var síðan myndasöguhátíð sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur í sumar með glæsibrag. Þótt íslenskar myndasögur rati ekki á árslistann í þetta sinn fer biðin eftir því að styttast með þessu áframhaldi. Nú verður ekki aftur snúið. Vonandi. Black Hole eftir Charles Burns – Pantheon gefur út Þessi bók er alger hlunkur bæði að umfangi og innihaldi. Það kem- ur ekki á óvart að það hafi tekið Charles Burns tíu ár að ljúka við Black Hole. Svona lagað er ekki hrist út úr erminni. Sagan er mar- traðarkennd stúdía á einangrun og kynferðiskvíða unglingsáranna. Óhugnanlegur sjúkdómur herjar á unglinga í bandarískum smábæ. Hann smitast við samfarir og ger- ir það að verkum að hinir veiku afskræmast á óhugnanlegan hátt og sjá sig tilneydda að búa í ein- angrun frá samfélaginu. Umfjöll- unarefnið og níðþung blekáferðin gera það að verkum að Black Hole verður varla lesin í einum rykk þrátt fyrir góðan vilja. Fullkomin blanda innilokunar- og útilok- unarkenndar. Strangehaven: Conspiracies eftir Gary Spencer Millidge – Abiogenesis Press Eins og Burns vinnur Millidge á skriðjökulshraða. Hann byrjaði að gefa út Strangehaven-seríuna árið 1995 og enn sér ekki fyrir endann. Conspiracies er þriðja bókin sem kemur út í bálkinum. Barnaskóla- kennari verður strandaglópur í breska þorpinu Strangehaven. Í fyrstu reynir hann að komast burt úr bænum en tekst ekki af ein- hverjum orsökum. Hann ákveður Myndasögur árs Morrison skilar frábærri sögu með marglaga skilaboðum eins og honum er einum lagið en þrátt fyrir alla hans hæfileika er það teiknarinn Quitely sem stelur senunni. We3 er myndasaga ársins 2005. Nýárstilboð á frábæra fjölskyldumynd! Töfrandi staðir, latir álfar, lævísar nornir og óþekk tröll ... allt þetta og meira til í þessari frábæru fjölskyldumynd. 2 fyrir 1 dagana 1. - 7. janúar! MasterCard korthafar fá tvo miða á verði eins fyrstu viku nýs árs, eða dagana 1. - 7. janúar 2006, alls staðar sem myndin verður sýnd, greiði þeir með kortinu. Nánar á www.kreditkort.is/klubbar. Sýnd í kvikmyndahúsum um land allt á nýársdag! fyrir alla fjölskylduna! Skeifunni 3j Sími 553 8282 www.heilsudrekinn.isGJAFABRÉF GJAFAVÖRUR JAFNVÆGI FYRIR LÍKAMA OG SÁL ÁRLEGIR tónleikar til styrktar SKB (Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna) voru haldnir í Háskólabíói á fimmtudagskvöldið. Þar tróðu margar af vinsælustu popp- stjörnum landsins upp en allur ágóði af tónleikunum rann óskiptur til samtak- anna. Alls söfnuðust 2.425.000 krónur og var ávísun með upp- hæðinni afhent SKB í lok tón- leikanna. Allir þeir sem komu fram í Háskólabíói gáfu vinnu sína og sama var að segja um alla tæknimenn og aðra starfsmenn. Öll fyr- irtæki sem að verk- efninu komu gáfu einnig sína vinnu og tæki sem til þurfti og Háskólabíó hýsti tónleikana að kostn- aðarlausu. Eftirtaldir listamenn komu fram á fimmtudaginn: Bubbi Morthens, Sálin hans Jóns míns, Jónsi, Skíta- mórall, Nylon, Heiða, Hildur Vala, Lummurnar, Kung Fu, Davíð Smári og Paparnir. Kynnar voru þeir Simmi og Jói úr Idol stjörnu- leit. Tónlist | Á þriðju milljón safnaðist Húsfyllir í Háskólabíói Bubbi Morthens kom fram á styrktartónleikunum. Morgunblaðið/Sverrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.