Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 69

Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 69 loks að setjast að en verður þá var við að ekki er allt með felldu. Íbú- arnir virðast búa yfir torkenni- legum leyndarmálum sem kenn- arinn þarf að ráða í en um leið verður hann sjálfur sífellt meira innlimaður í undarlegheitin. Millidge vinnur myndirnar mikið til upp úr ljósmyndum sem gefur sögunni einhvers konar óraun- verulegan raunveruleikablæ. Sam- tölin eru frábærlega skrifuð og lesandanum finnst hann vera þátt- takandi í atburðarásinni. Sagan silast áfram í hversdagsleikanum sem þegar nánar er gáð er allt annað en eðlilegur og spennan verður sífellt meira þrúgandi. Sambland af Twin Peaks og Póst- inum Páli. Súrrealísk sveitaróm- antík. Identity Crisis eftir Brad Meltzer og Rags Morales – DC Comics gefur út Lustice League of America er stofnun í amerískum ofur- hetjumyndasögum. Þar koma sam- an allar helstu kanónur DC- myndasöguheimsins; Superman, Batman, Wonder Woman, Green Lathern, Flash og fleiri og berjast við þungaviktarandstæðinga. Í Identity Crisis er sagan á lág- stemmdari nótum en oftast áður. Meginuppistaðan er klassísk saka- málasaga þar sem allir liggja und- ir grun og hið sanna kemur í ljós á lokasprettinum. Uppljóstranir í þessari sögu hafa víðtæk áhrif á allan DC-söguheiminn og hetjurn- ar verða ekki samar og áður. Sag- an er stútfull af vísunum í hina flóknu súperhetjuflóru sem kætir okkur nördana en gæti vafist fyrir óinnvígðum. Identity Crisis er frá- bærlega fléttaður krimmi sem sýnir að öll vandamál verða ekki leyst með ofurkröftunum einum saman. Rags Morales skilar glæsi- legu verki. Myndirnar eru ná- kvæmar og lýsandi og myndbygg- ingin framúrskarandi. Ofurhetjumyndasagan hefur alltaf átt þá ósk heitasta að vera tekin alvarlega í hinu menningarlega landslagi. Identity Crisis gæti orð- ið verkið sem leiðir hana út úr eyðimörkinni. Hot Gimmick eftir Miki Aihara – Viz gefur út Með hjálp góðra manna fékk ég kynningu á shojo manga á þessu ári. Það að karlemenn skuli skiptast á skoðunum um þennan undirflokk japanskra myndasagna má heita nokkuð áhugavert þar sem shojo úleggst á íslensku stelpumyndasögur. Iðulega fjallar shojo manga um samskipti ungra menntaskólastelpna við hitt kynið, með öllu því veseni sem slíku fylgir. Hot Gimmick fjallar um Hatsumi sem á í mjög svo flókn- um ástar/haturs-samskiptum við tvo pilta, annan með stjórnunar- áráttu á háu stigi og hinn sem drifinn er áfram af hefndarþorsta í garð fjölskyldu stúlkunnar. Báðir eru fjallmyndarlegir en um leið al- veg snarklikkaðir. Inn í þessar erfiðu aðstæður blandast svo mjög svo óbróðurlegar kenndir fóst- urbróður Hatsumi í hennar garð. Púff. Hott Gimmick er alveg sér- lega góð unglingasápa. Á köflum minna flækjurnar sem skapast á farsa í ætt við Fawlty Towers en dramað er þó allsráðandi. Serían gefur lesendanum óvænta innsýn í japanskan hugarheim þar sem Hatsumi sýnir botnlausa und- irgefni fyrir tiktúrum strákskratt- anna og hefðir í samskiptum virð- ast ráða meiru en persónulegur vilji. Eins og japanskra mynda- sagna er von og vísa verða bæk- unar í seríunni fjölmargar en nú þegar eru níu þeirra komnar út. Hot Gimmick er frábærlega vel skrifað unglingadrama og allir sem einhvern tímann hafa dottið ofan í Unglingana í hverfinu, Bev- erly Hills 90210 eða nú síðast The O.C. ættu að hafa gaman af, jafn- vel gamlir karlar eins og ég. We3 eftir Grant Morrison og Frank Quitely – Vertigo gefur út Grant Morrison klikkar ekki. Á liðnu ári hefur hann sprengt alla ramma hvað varðar myndasöu- framleiðni. Hann hefur verið ráð- inn sem hugmyndafræðilegur ráð- gjafi DC-útgáfunnar og ýtir verkinu úr vör með sjö smáseríum um gleymdar ofurhetjur sem allar tengjast saman í eina stóra sögu. Sömuleiðis gaf hann út þrjár aðr- ar stakar seríur sem allar eru góð- ar. Í lok ársins kom svo út fyrsta blaðið í nýrri Superman-seríu eftir Morrison og Frank Quitely sem lofar góðu. Þessir höfundar eiga einnig heiðurinn af bestu mynda- sögu ársins 2005, We3. Sagan seg- ir af þremur dýrum, hundi, ketti og kanínu, sem notuð eru af hern- um sem eins konar lifandi vopn og hafa verið afskræmd með tækni- legum viðbótum til að duga sem best á vígvellinum. Þau sleppa úr prísundinni og eru hundelt af hernum. Þá kemur hins vegar í ljós að þau eru vel fær um að bíta frá sér með öllum nýfengnu græj- unum. Þau gera allt sem þarf til að komast undan og vinna saman sem ein heild gegn böðlum sínum sem vita ekki sitt rjúkandi ráð. Sagan er að meginefni tragísk rannsókn á grimmd mannsins í garð dýra og taumlausu virðing- arleysi við náttúruna, sem þegar öllu er á botninn hvolft er stór- brotnari og voldugri en við kjósum að halda. Morrison skilar frábærri sögu með marglaga skilaboðum eins og honum er einum lagið en þrátt fyrir alla hans hæfileika er það teiknarinn Quitely sem stelur senunni. Tæplega 70 blaðsíður duga honum til að segja sögu sem aðrir teiknarar hefðu þurft helm- ingi meira pláss til að koma frá sér. Myndirnar eru ótrúlega ná- kvæmar, jafnvel svo að mælt er með notkun stækkunarglers til að skoða suma rammana. Mynda- söguformið er notað til hins ýtr- asta til að lýsa hreyfingu og ring- ulreið og á hverri blaðsíðu má finna atriði sem ekki hafa verið notuð áður innan formsins. Slá- andi verk sem einungis hefði orðið betra ef blessaður útgefandinn hefði séð sér fært að prenta það í stærra sniði. Besta myndasaga ársins 2005. ins 2005 Heimir Snorrason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.