Fréttablaðið - 12.09.2002, Síða 1
bls. 6
STJÓRNMÁL
R-listi
byrjar illa
bls. 6
FIMMTUDAGUR
bls. 10
173. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 12. september 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Skemmtanir 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
Útvarp 21
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Fullveldi á 21. öld
RÁÐSTEFNA Er hægt að halda full-
komnu þjóðlegu fullveldi í Evrópu
á sama tíma og samrunaferlið held-
ur áfram? Þessi spurning og fleiri
verða ræddar á ráðstefnu um
merkingu fullveldis á 21. öldinni
sem haldin verður á Hótel Sögu í
dag. Það er Rannsóknarstofnunin í
Evrópurétti í Trier sem stendur að
ráðstefnunni.
Ófrjósemi rædd
FUNDUR Tilvera, samtök gegn ófrjó-
semi, halda aðalfund í Bíósal Hótel
Loftleiða. Allir sem hafa áhuga á
málefnum félagsins eru velkomnir.
Fundurinn hefst klukkan 20.00.
Hjúkrunarnám
á Íslandi
FYRIRLESTUR Margrét Guðmunds-
dóttir verður með rabb á vegum
Rannsóknastofu í kvennafræðum.
Rabbið nefnir hún Hjúkrunarnám á
Íslandi 1922 til 1930 og hefst það
klukkan 12.00
Styrktartónleikar
í Hafnarborg
TÓNLEIKAR Kór Flensborgarskólans
heldur tónleika í Hafnarborg. Allur
ágóði af tónleikunum rennur í sjóð
til styrktar Kristínu Ingu Brynjars-
dóttur og börnum hennar er lentu í
mjög alvarlegu bílslysi fyrir
skemmstu. Þeir hefjast klukkan
20.00.
STJÓRNMÁL
Förum ótrauð
í málin
BANDARÍKIN
Brösulegar
kosningar
11. SEPTEMBER „Hér er öðruvísi
andrúmsloft en maður á að venj-
ast og mun meiri öryggisráðstaf-
anir. Þegar ég fór út snemma í
morgun fannst mér borgin vera
svipuð og oft áður. Ég finn það
hins vegar eftir því sem líður á
daginn að það er mikil sorg í loft-
inu,“ sagði Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra í gærkvöldi.
Hann er nú staddur í New York
og tók í gærkvöld fyrir Íslands
hönd, þátt í minningarathöfn
vegna árásanna á Bandaríkin fyr-
ir ári.
„Samhugur og sorg eru þau orð
sem eru einkennandi hér í dag.
Það er alveg ljóst að upprifjun
þessara atburða kemur við alla.
Hér létust yfir 3.000 manns. Þús-
undir barna misstu sína foreldra
og tugþúsundir fjölskyldna eiga
um sárt að binda. Maður finnur
það mjög sterkt að hugur borgar-
búa er hjá þessu fólki. Það hefur
haft áhrif á mig að rifja upp þessa
atburði, fylgjast með ættingjum í
sjónvarpi koma og leggja blóm við
rústir tvíburaturnanna og annarra
staða sem ráðist var á,“ sagði
Halldór og bætti við að gildismat
fólks hefði án nokkurs vafa breyst.
„Þetta hefur sameinað Banda-
rísku þjóðina betur en oftast áður.
Það ríkir mikill samhugur en jafn-
framt mikil ákveðni í því að halda
áfram að berjast gegn þessum ill-
mennum. Bandaríkjamenn ætla
sér að kosta öllu til og þeir ætla sér
að vinna þetta stríð. Það má segja
að dagurinn í dag sé líka dagur
sem notaður er til að efla sam-
stöðu, ekki aðeins hér Í Bandaríkj-
unum heldur um allan heim,“ sagði
Halldór Ásgrímsson.
AFMÆLI
Jól á
lágmarks-
launum
SÍÐA 16
Út að
borða
SÍÐA 22
KVIKMYNDIR
Byggðu á þínum tíma
Grafarvogi
Vestur í bæ
Kópavogi
Ármúla
EINKAVÆÐING Steingrímur Ari Ara-
son sagði sig úr einkavæðingar-
nefnd vegna vinnubragða við
sölu Landsbankans.
Hann ritaði forsætisráð-
herra harðort bréf þar
sem hann segir vinnu-
brögð sem viðhöfð voru í
aðdraganda ákvörðunar-
innar hafi leitt til þess að
aðrir áhugasamir kaup-
endur séu sniðgengnir, þrátt fyr-
ir hagstæðari tilboð fyrir ríkis-
sjóð á alla hefðbundna mæli-
kvarða. „Ég hef setið sem fulltrúi
fjármálaráðherra í fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
frá árinu 1991 og aldrei kynnst
öðrum eins vinnubrögðum.“
Steingrímur Ari neitaði að tjá sig
um málið þegar eftir því var leit-
að. Vísaði hann til bréfs til for-
sætisráðherra um ástæð-
ur afsagnar sinnar. Stein-
grímur segir í bréfinu að
vegna þess að hann sé
bundinn trúnaði um ein-
staka þætti þessa máls,
treysti hann því að óhlut-
drægur aðili verði feng-
inn til að fara ofan í saumana á
þeim vinnubrögðum sem séu or-
sök afsagnarinnar.
Forsætisráðuneytið sendi frá
sér yfirlýsingu vegna málsins í
gær. Þar kemur fram að einka-
væðingarnefnd hafi notið ráð-
gjafar HSCB bankans í London.
Afstaða nefndarinnar hafi byggst
á yfirferð bankans og niðurstöðu
hans. Allir nefndarmenn utan
Steingríms Ara hafi verið sam-
mála um niðurstöðuna. Í ráð-
herranefnd um einkavæðingu
sitji fjórir ráðherrar og hafi nið-
urstaðan að ganga til samninga
við Samson hf. verið einróma í
þeim hópi.
Vegna ávirðinga í bréfi Stein-
gríms Ara hefur ráðuneytið ósk-
að eftir því við Ríkisendurskoðun
að hún fari yfir þau vinnubrögð
sem viðhöfð voru í málinu.
Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks sem átti
samkvæmt heimildum blaðsins
hæsta tilboðið í Landsbankann
vildi ekki tjá sig að svo stöddu
um afsögn Steingríms Ara og
ávirðingar hans á vinnubrögðin.
„Ég er bara orðlaus,“ sagði fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks.
Steingrímur Ari Arason er
annar meðlimur einkavæðingar-
nefndar sem segir af sér, en
Hreinn Loftsson sagði af sér for-
mennsku í kjölfar deilna við for-
sætisráðherra. Þeir hafa báðir
verið aðstoðarmenn ráðherra
Sjálfstæðisflokksins. Hreinn í
forsætisráðuneytinu og Stein-
grímur í fjármálaráðuneyti. Fjár-
málaráðherra segir afsögnina
hafa komið sér í opna skjöldu.
haflidi@frettabladid.is
Sjá einnig á blaðsíðu 2
Aldrei kynnst öðrum
eins vinnubrögðum
Steingrímur Ari Arason sagði sig úr einkavæðingarnefnd. Hefur aldrei kynnst öðrum eins
vinnubrögðum. Telur að nefndin hafi sniðgengið tilboð sem voru hagstæðari fyrir ríkissjóð.
Málið verður sent Ríkisendurskoðun. Framkvæmdastjóri Kaldbaks er orðlaus.
ÞETTA HELST
Húsleit var gerð í höfuðstöðv-um SMS verslunarkeðjunnar
í Færeyjum í fyrrakvöld að kröfu
Ríkislögreglustjórans á Íslandi.
SMS er að hálfu í eigu Baugs
Group hf. bls. 2
Framkvæmdir við stálpípu-verksmiðju í Helguvík hefjast
í desember. Áætlaður heildar-
kostnaður hefur aukist um helm-
ing og verður nálægt 6 milljörð-
um króna. bls.4
Hannes Hólmsteinn Gissurar-son veldur ólgu með sjón-
varpsþætti um hvernig Íslending-
ar geti orðið ríkasta þjóð í heimi.
Áróðursþáttur sem kallar á skýr-
ingar, segir Mörður Árnason full-
trúi í útvarpssráði. bls. 8
BYKO íhugar að flytja glugga -og hurðaverksmiðju sína í
Reykjanesbæ til Lettlands. 34
starfsmenn verksmiðjunnar bíða
nú eftir uppsagnarbréfum. bls. 4
REYKJAVÍK Austlæg átt, 5-8
m/s og lítilsháttar rigning
síðdegis. Hiti 10 til 14 stig
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Rigning 11
Akureyri 5-10 Léttskýjað 16
Egilsstaðir 5-10 Léttskýjað 16
Vestmannaeyjar 5-10 Súld 12
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
„Ég er bara orð-
laus,“ sagði
framkvæmda-
stjóri Kaldbaks.
Halldór Ásgrímsson, utanríksiráðherra:
Samhugur og sorg einkenna New York
AP
/S
U
ZA
N
N
E
PL
U
N
KE
TT
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 39
ára á fimmtudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
18,6%
D
V
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuðborgarsvæðinu
á fimmtu-
dögum? 48,0%
55,7%
BANDARÍKJAMENN SAMEINUÐUST Í SORG Þúsundir ættingja og vina þeirra sem fórust þegar tvíburaturnarnir í New York hrundu
komu saman í gær þar sem turnarnir stóðu til þess að minnast fórnarlambanna. Minningarathafnir voru haldnar víða um Bandaríkin og
heim allan í gær í tilefni af því að eitt ár var liðið frá því hryðjuverkamenn gerðu árás á Bandaríkin. sjá einnig bls. 2