Fréttablaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 23
FÓLK Í FRÉTTUM KOMINN TIL ÍSRAELS Ísraelski píanóleikarinn og stjórnandinn Daniel Barenboim klappar hér 14 ára skólastúlku lof í lófa í skóla í Ramallah á Vesturbakkanum. Barenboim hugðist heimsækja Ramallah fyrir sex mánuðum og halda þar námskeið fyrir stúdenta, en ísraelsk stjórnvöld meinuðu honum að- gang að landinu. KR-ingar kalla nú allt og allatil hjálpar fyrir úrslitaleik sumarsins í Símadeild karla í knattspyrnu. Á sunnudag mætast toppliðin í deildinni, Fylkir og KR á Fylkisvelli og geta Fylkismenn með sigri tryggt sér titilinn. KR- ingar eru þó ekki á þeim buxun- um og leggja allt undir. Þeir ætla meðal annars að leita til æðri máttarvalda fyrir leikinn. Klukk- an ellefu á sunnudagsmorgun skunda KR-ingar í Neskirkju og hyggjast sækja styrk í bænina. Nú er að sjá hvort Vesturbæingar verða bænheyrðir, það skýrist klukkan fjögur á sunnudag. Frændur vorir í Færeyjumtelja sig geta lært sitt hvað um nektardans af biturri reynslu Íslendinga. Í frétt á heimasíðu Útvarps Færeyja er greint frá áhyggjum eyjaskeggja af því að vændi sé að skjóta rótum í land- inu. Nektardans hefur verið stundaður um árabil í Færeyjum og súludans getur verið „upp- havið til prostitusjon“, eins og þar segir. Útvarpið segir að raun- in hafi orðið sú á Íslandi en þar eru nú sjö „skækjuhús“ starfandi samkvæmt upplýsingum Færey- inganna. Þetta yfirvofandi vanda- mál og sorgarsagan úr gleðinni á Íslandi verður rætt á almennum fundi í Norðurlandahúsi Færeyja í kvöld. Friðarpostulinn Ástþór Magn-ússon hefur opnað heimasíð- una www.althing.org, en síðan er tileinkuð skelfingaratburðunum þann 11. september í fyrra. Á vefnum segir að Jerúsalem geti orðið miðstöð friðar í heiminum og er lagt til að gamla góða ís- lenska alþingismódelið verði lagt til grundvallar, þannig að blóð- vellirnir megi, væntanlega, verða e. k. friðarþingvellir. Ástþór fylg- di vefnum úr hlaði með tilkynn- ingu þar sem hann segir „byssu- glaða kúrekann“ í Hvíta húsinu vera mestu ógnina sem steðjað hefur að heimsbyggðinni síðustu 50 ár. Hann hafnar því einnig al- farið að Íslendingar leyfi „brjál- uðum stríðshundum“ að nota Keflavíkurflugvöll til hergagna- flutninga og „saurga“ þannig landið. FIMMTUDAGUR 12. september 2002

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.