Fréttablaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 12.09.2002, Blaðsíða 14
14 12. september 2002 FIMMTUDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Tökum á þriðju Terminatormyndinni er nú lokið. Tvísýnt var á tímabili með myndina þar sem kostnaður á bak við hana var kominn upp úr öllu valdi. Fram- leiðendurnir segja að síðasta takan hafi verið sú erfiðasta. Þá var atriði þegar kventortímandinn kemur aftur í tímann tekið. Það reyndist þeim afar erfitt því eins og allir vita mæta vélmennin úr framtíðinni án klæða. Atriðið var tekið úti á götu í Beverly Hills og áttu framleiðendur erfitt með að halda æstum múginum frá töku- staðnum en hann vildi líta beran líkama norsku fyrirsætunnar Kristanna Loken, sem leikur aðal illmennið, augum. Madonna ætlar að gera kvik-mynd byggða á leikriti Guy Oseary „Pygmalion“. Það var eft- ir sama leikriti og söngleikurinn „My Fair Lady“ var unninn. Út- gáfa Madonnu á að gerast í Suður- Ameríku og mun myndin heita „How To Be A Perfect Latino Pop Star“. Fyrirtæki hennar Ma- verick leitar nú að óþekktum söngvurum og leikurum í aðal- hlutverkin. Þann 29. nóvember, þegar eittár er liðið frá dánardegi Bít- ilsins George Harrison, verður ókláruð breið- skífa hans „Brainwashed“ gefin út. Harrison hafði ekki gefið út plötu eftir hina geysivinsælu „Cloud 9“, sem meðal annars innihélt lagið „I Got My Mind Set On You“, árið 1987. Á plötunni verða 11 lög sem Harrison hafði verið að vinna að. Það yngsta var hljóðritað tveim- ur mánuðum áður en hann lést. Vinir Harrisons hafa verið að klára plötuna. Þar á meðal eru Jeff Lynne og Dhani Harrison, sonur Bítilsins. Söngvarinn Morrissey segistaldrei hafa fengið tilboð frá plötufyrirtækjum um að setja saman endurkomu The Smiths. KVIKMYNDIR Það er nýjasta kvik- mynd hins virta leikstjóra Pedro Almodóvar sem opnar spænsku kvikmyndahátíðina í Regnbog- anum. Myndin heitir „Hable con ella“ (Ræddu málin) og fjallar um hvernig mismunandi menn bregðast misjafnlega við svipuð- um aðstæðum. Hér tekur Almó- dóvar á einmanaleika, ástarþrá, losta og hvaða áhrif ástin hefur á menn. Aðalleikari myndarinnar Javier Camáras verður viðstadd- ur frumsýninguna í dag. Fyrir hátíðina voru svo sér- staklega valdar tíu kvikmyndir sem taldar eru hafa skarað fram úr í spænskri kvikmyndagerð síðustu ár. Þar má nefna „Tesis“, fyrstu kvikmynd undrabarnsins Alej- andro Amenábar (“The Others“ og „Abre Los Ojos“), sem fjallar um háskólastúlku sem rannsak- ar ofbeldi í kvikmyndum. Hún kemst yfir svokallaða „snuff“ mynd, þar sem raunveruleg morð eða ofbeldisverk eru kvik- mynduð. Fljótlega kemst hún að því að fórnarlambið í myndinni er samnemandi hennar í skólan- um. Síðar kemst hún að því að hún sjálf er næsta fórnarlamb „kvikmyndagerðamannsins“. Myndin er hvorki fyrir börn né viðkvæma. Leikkonan Penelópe Cruz fer með stórt hlutverk í myndinni „Lluvía En Los Zapatos“ (Rign- ing í skónum). Um er að ræða ástarsögu í svipuðum dúr og breska myndin „Sliding Doors“ með Gwyneth Paltrow. Áhorf- andinn fylgist með því hvernig vefur örlaganna þræðist á mis- munandi hátt eftir því hvort kærastan kemst að framhjáhaldi kærasta síns eða ekki. Kvikmyndin „Solas“ (Einar) hlaut áhorfenda verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Berlín ‘99 sem og sérstök verðlaun dóm- nefndar. Myndin er hámdramat- ísk og fjallar um mæðgur sem neyðast til að deila íbúð í stutt- an tíma. Þær eiga báðar sinn djöful að draga. Móðirin er í ástlausu sambandi við drykkju- sjúkling sem liggur á spítala vegna veikinda. Dóttirin er óá- nægð í starfi sínu sem ræsti- tæknir og á von á barni með trukkbílstjóra sem neitar allri ábyrgð. Myndin var frumraun andalúsíska leikstjórans Benitos Zambranos. Lokamynd hátíðarinnar er spænsk-argentínska kvikmynd- in „El Hijo de la novia“ (Gifstu mér loksins), eftir Juan José Campanella, en hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna 2002. Frek- ari upplýsingar um dagskrárliði er finna í dagskrárbæklingi sem fáanlegur er í Regnboganum. biggi@frettabladid.is THE SWEETEST THING kl. 8 og 10 MAN IN BLACK 2 kl. 6 og 8 LITLA LIRFAN - Stutt kl. 4 og 4.30 STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6 Sýnd kl. 5, 8 og 11 Sýnd kl. 6.30 og 9.30 Sýnd kl. 5, 8, 10 og 11 kl. 8 LILO OG STITCH kl. 6, 8 og 10MAÐUR EINS OG ÉG THE SUM OF ALL FEARS kl. 10LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 4 VIT410 LILO OG STITCH 4, 6, 8 og 10.10 VIT430 LILO OG STITCH ísl. tali kl. 4 og 6 VIT429 MAÐUR EINS OG ÉG 6, 8 og 10.20 VIT422 FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 4 VIT418 PLUTO NASH 4, 6, 8 og 10.10 VIT432 Sýnd kl. 8.15 og 10.20 VIT 431 Sýnd kl. 6, 8 og 10.20 VIT 427 Sýnd kl. 8 og 10.20 VIT 428 Spænskir dagar undir Regnboganum HABLE CON ELLA Þykir af margra mati vera ekta Almódóvar mynd. Aðalleikari myndarinnar, Javier Cámara, er staddur hér á landi til þess að vera viðstaddur frumsýninguna. Í dag hefst fyrsta spænska kvikmyndahátíðin sem haldin hefur verið í Reykjavík. Sýndar verða tólf kvikmyndir, fjórar heimildamyndir og ein stuttmynd. Allar sýningar fara fram í Regnboganum fram til 22. september. Aðdáendur sveit- arinnar hafa haldið því fram í mörg ár að Morrissey hafi stöðugt neitað himinháum til- boðum fyrir- tækja. Sveitin lagði árar í bát eftir að illindi komu upp á milli Morrissey og gítarleikarans Johnny Marr. Morrissey hefur ekki verið með plötusamning í mörg ár en segir þó að ný sólóplata sé tilbúin til útgáfu. Tónleikahaldarar í Bret- landi segjast sumir vera reiðu- búnir til þess að greiða sveitinni yfir milljón punda fyrir að leggja í tónleikaferðalag. Breski leikarinn Michael Elp-hick lést á mánudag. Hann var 55 ára gamall. Elphick var þekktastur fyrir hlutverk sín í myndunum „The Elephant Man“, „The Krays“, „Whitnail and I“ og kvikmynd hljómsveitarinnar The Who „Quadrophenia“. Síðasta árið lék hann í bresku sápunni „East Enders“. Söngkonan Whitney Houston erenn og aftur búin að koma sér í vandræði. Nú er það ekki vegna eiturlyfjanotkun- ar, heldur vegna notkunar garðúð- ara fyrir utan heimili sitt í New Jersey. Hefur henni verið stefnt fyrir að brjóta lög sem kveða á um takmörkun vatns- notkunar í borginni. Garðúðarinn við heimili hennar hafði verið í gangi um nótt og fékk lögreglan í New Jersey kvörtun þess efnis. Talsmaður Houston segir að hún hafi ekki verið á heimili sínu í nokkurn tíma þar sem hún sé að vinna að næstu breiðskífu sinni, sem ber heitið „Just Whitney.“ Söngdívan á yfir höfði sér allt að 86 þúsund króna sekt fyrir at- hæfið. HUGEFLI Háskóla Íslands 17. sept. kl. 19:00 • Eflt eigin getu og hæfileika og fjölgað tækifærum í þínu lífi. • Aukið persónulega auðlegð og velgengni í leik og starfi. • Losnað við takmarkandi hömlur og hindranir. • Aukið sjálfsöryggi, ákveðni og viljastyrk. • Losnað við fíknir og slæma ávana. • Fyrirbyggt streitu, kvíða og áhyggjur. Með Hugefli getur þú m.a.: “Ég er öruggari með sjálfa mig og rólegri við vissar kringumstæður. Hugurinn hefur opnast fyrir möguleikum til að ná langþráðu markmiði.” --María. “Í fyrsta skipti í mörg ár er eitthvað að ganga hjá mér.” --Íris Arthúrsdóttir. Námskeiðið verður haldið á hverju þriðjudagskvöldi í 3 vikur og byggist á fyrirlestrum, könnunum, æfingum og raunhæfum verkefnum. Ítarleg námsgögn og geisladiskur fylgja. Leiðbeinandi er Garðar Garðarsson PNLP. í síma 898 3199 ( 899 7716 á kvöldin ) www.gardar.com Skráðu þig núna A U Ð V E L D A Ð U Þ É R L Í F I Ð FRÁBÆR REIÐNÁMSKEIÐ Námskeið hefjast 17. sept. fyrir pínulítið hrædda byrjendur, lengra komna og fatlaða. Kennt er þriðjudaga, fimmtudaga og um helgar. Kennsla fer fram í reiðhöll Sigurbjörns Bárðarsonar C tröð 4 Víðidal Upplýsingar og skráning í síma 575 1566 Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.