Fréttablaðið - 12.09.2002, Page 6
Bæjarstjórn Vestmannaeyjahefur ákveðið að stofna sjóð
til að styðja við bakið á íbúum
Vestmannaeyja sem vilja stunda
endur- og símenntun með fjar-
námi, einstaklingum og bæjar-
félaginu til heilla. eyjafrettir.is
Grunnskólanemendur á gagn-fræðistigi á Ísafirði ganga
nú allir sem einn á fjöll. Til
stendur að láta allar bekkjar-
deildir skólans ganga á mismun-
andi fjall öll haust. Með því
næst sá árangur að eftir nokkur
ár hafa allir ísfirskir 16 ára
unglingar gengið á öll fjöllin í
grennd við heimabæ sinn. bb.is
Undanfarna daga hafa staðiðyfir viðgerðir á þaki Fjórð-
ungssjúkrahússins á Ísafirði.
Kostnaður við viðgerðina er um
sex milljónir króna. bb.is
Landsíminn tók nýverið aðfullu við umsjón með dreif-
ingu á útsendingum Skjás eins á
útsendingarsvæði sjónvarps-
stöðvarinnar á Vestfjörðum og í
kjölfarið hafa mynd og hljóð
batnað til muna. bb.is
6 12. september 2002 FIMMTUDAGURSPURNING DAGSINS
Er fátækt á Íslandi?
Það er sko ekki spurning, það er
fátækt á Íslandi.
Sigurbjörg Stefánsdóttir
UPPGRÆÐSLA „Þetta er vissulega
miður,“ segir Björn Guðbrandur
Jónsson, framkvæmdastjóri Gróð-
urs fyrir fólk í landnámi Ingólfs,
sem stóð fyrir því að græða upp
stóra fláka á Bolaöldu rétt sunnan
við Litlu kaffistofuna á Sandskeiði
síðastliðið sumar. Þar standa nú
kindur á beit og eru langt komnar
með að éta upp gróðurátakið.
Flokkar skólabarna unnu við verkið
og var mikið í lagt. „Við vissum að
hætta var á þessu og erum því með
viðbúnað þegar sést til fjár þarna
og smölum í samvinnu við Reykja-
víkurborg,“ segir Björn Guðbrand-
ur sem hefur þó meiri áhyggjur af
ágangi fjár í Krísuvík og í Vatns-
skarði norðan Kleifarvatns: „Þar
orkar mjög tvímælis að vera með
trjárækt á meðan fé gengur þar
laust.“
Talið er fullvíst að rollurnar á
Sandskeiði komi úr Ölfusi því búið
er að girða vel fyrir fé úr öðrum
áttum norðan Suðurlandsvegar upp
að Kolviðarhóli og austur yfir Hell-
isheiði allt til Hveragerðis.
Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs:
Rollur úr Ölfusi éta
gróðurátak á Sandskeiði
KINDUR
Orkar tvímælis að reyna trjárækt þar sem
þær ganga en lausar.
Eftir mikil átök í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í vor byrjaði nýr vetur í borgarstjórn
með látum. Sjálfstæðismenn og Reykjavíkurlistafólk hafa tekist á um lækkun fasteignaskatta.
Fram undan eru átök um skipulagsmál, menntamál og orkumál svo fátt eitt sé nefnt.
ÓLÍK SJÓNARMIÐ
Tekist á í borginni
Ég hef nú ekki fundið fyrir þvíað minnihlutinn hafi nokkurt
tak á okkur. Það er búið að reyna á
flest stóru málin og umræðuefnin í
borgarstjórnarkosningunum fyrir
nokkrum mánuðum. Þar var tekist
á um stóru átakapunktana. Ég hef
ekki fundið fyrir því að þeir hafi
nokkurt tak á okkur þar. Við getum
því farið ótrauð í okkar mál.“
„Ef ég horfi fyrst til þess sem
ég stýri, sem er innra starf í
grunnskólum, þá bíða okkur
spennandi verkefni þar. Þau snúa
að mjög aukinni fjölbreytni og
blómlegu starfi í grunnskólum. Við
höfum líka sett á laggirnar starfs-
hóp sem á að fara ofan í samstarf
og samþættingu leikskóla og
grunnskóla.“
„Við höfum einnig samþykkt að
taka orkustefnu Reykjavíkur til at-
hugunar. Ræða hana í kjölinn og
birta orkustefnu okkar. Þar er allt
lagt undir, hlutur okkar í Lands-
virkjun og hlutverk og starfsemi
Orkuveitunnar. Lýðræðisverkefn-
ið Greiðar götur er komið af stað.
Breytingar í stjórnkerfi borgar-
innar sem eiga að miða að því færa
áhrifavald fólks nær borgarkerf-
inu og bæta þjónustu út í hverfin,
meðal annars með hverfaráðum.
Við viljum opna áhrif fólks á borg-
arkerfið.“
„Í framhaldi af þessu verða
skipulagsmálin stór hluti af okkar
málum. Vatnsmýrin kemur inn á
okkar borð á kjörtímabilinu. Þétt-
ing byggðar og miðborgin eru stór
mál. Að auki er í undirbúningi stór
og glæsileg byggð í hlíðum Úlfars-
fells sem verður spennandi að byg-
gja upp.“
„Við höfum auðvitað áhyggjur
af atvinnumálum. Það er samdrátt-
ur í þjóðfélaginu. Menn vita ekki
hversu mikill hann verður og
hvernig hann snertir okkur í borg-
arkerfinu. Það er þó ljóst að félags-
leg aðstoð hefur aukist vegna þess
að fólk hefur ekki jafn mikið milli
handanna. Það mun kalla á aðhald í
fjármálum. Ég var reyndar búinn
að spá því í prófkjörsbaráttu minni
að við yrðum að vera mjög varkár
í fjármálum á þessu kjörtímabili.
Við verðum að vera stöðugt á tán-
um gagnvart stöðunni í þjóðfélag-
inu í heild.“
Veturinn byrjar ekki vel. Viðáttum ekki von á því að R-list-
inn myndi fella tillögu okkar um
að lækka fasteignaskatta á eldri
borgara og öryrkja. Það er mjög
ódýr aðgerð fyrir borgina en mun-
ar mjög miklu fyrir þetta fólk. Al-
menningur getur rétt ímyndað sér
hvort það séu ekki hagsmunir
þeirra sem og borgarinnar og
samfélagsins alls að þessu fólki sé
gert auðveldara að búa þar áfram.
Sérstaklega þeim sem minna eiga.
Það var fellt og hefði einhvern
tíma þótt saga til næsta bæjar.“
„Framundan er eitt og annað
sem verður mikið tekist á um. Þar
má nefna Norðlingaholt. Það er
afskaplega fallegt svæði þar sem
R-listinn hefur áform um að reisa
gríðarlega þétta byggð þvert á
vilja íbúanna í nágrenninu. Þetta
er náttúruperla í kringum Elliða-
vatnið. R-listinn gagnrýndi Kópa-
vogsbæ fyrir að vilja reisa byggð
við vatnið en leggur nú upp með
þrefalt þéttari byggð. Óskoraður
vilji íbúanna er hafður að engu.
Hvort R-listinn ætlar að hlusta á
fólkið eins og hann boðar oft á
tyllidögum verður að koma í
ljós.“
„Menn hljóta að taka á því hver
orkustefna borgarinnar á að vera.
Hvað á að gera við Orkuveituna
og hvert það fyrirtæki á að stefna.
Fræðslu- og leikskólamálin eru
málaflokkar sem tengjast fólkinu
mjög.“ Þar hafa Sjálfstæðismenn
lagt fram tillögu um að koma upp
fjórum til fimm skólahverfum í
borginni. „Ef það er eitthvað sem
stendur fólki nærri, sérstaklega
fjölskyldufólki, eru það skólamál-
in. Við erum með eina skólanefnd
í borginni. Ég hef setið í henni
sjálfur. Sá sem heldur því fram að
þeir sem sitja í fræðsluráði hafi
sérstaka tilfinningu fyrir því hvað
er að gerast í öllum 45 skólum
borgarinnar er að tala gegn betri
vitund eða veit ekki hvað hann tal-
ar um. Þetta snýst ekki um að
skerða sjálfstæði borgarinnar
heldur þvert á móti að efla það.
Það skiptir gríðarlega miklu máli
að þeir sem fara með þessi mál
séu í eins miklum tengslum við þá
sem njóta þjónustunnar og hægt
er.“
Stefán Jón Hafstein, Reykjavíkurlista:
Förum ótrauð
í okkar mál
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki:
Fer ekki vel af
stað hjá R-lista
Bandaríkjamenn segjast hafaupplýsingar um að al-Qaida,
hryðjuverkasamtök Osama bin
Laden, fyrirhugi árásir á banda-
rísk skotmörk í Asíu og Mið-
Austurlöndum. Einnig hefur ver-
ið varað við sjálfsmorðsárásum í
Mið-Austurlöndum.
Bush, Bandaríkjaforseti, erekki æstur í að fara í stríð
við Írak og ætlar að leita frið-
samlegra lausna þegar hann
ávarpar öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna í dag. Þetta sagði John
Howard, forsætisráðherra Ástr-
alíu, í gær er hann greindi frá
samtali sem hann átti á laugar-
dag við Bush.
ERLENT
INNLENT
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 86.7 -0.29%
Sterlingspund 134.92 -0.16%
Dönsk króna 11.39 -0.32%
Evra 84.53 -0.38%
Gengisvístala krónu 127,76 -0,34%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 338
Velta 6.591 m
ICEX-15 1.299 -0,09%
Mestu viðskipti
Tangi hf. 244.627.052
Bakkavör Group hf. 186.589.233
Baugur Group hf. 128.458.082
Mesta hækkun
Skýrr hf. 10,00%
Tangi hf. 4,00%
Bakkavör Group hf. 3,30%
Mesta lækkun
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. -3,61%
Sjóvá-Almennar hf. -1,89%
Frumherji hf. -1,87%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8618,1 0,20%
Nsdaq: 1326,4 0,50%
FTSE: 4210,7 0,80%
DAX: 3572,8 2,20%
Nikkei: 9400,1 1,00%
S&P: 915,7 0,70%
Hraðfrystistöð Eskifjarðar:
Eignast
hálfan
Tanga
VIÐSKIPTI Hraðfrystistöð Eski-
fjarðar tryggði sér með samning-
um í gær 47% hlut í Tanga á
Vopnafirði. Er þetta framhald á
fyrri kaupum fyrirtækisins í
Tanga. Að sögn forsvarsmanna
Hraðfrystistöðvarinnar eru ekki
fyrirhuguð frekari kaup í Tanga.
Markmiðið með fjárfestingunni
er að styrkja samstarf fyrirtækj-
anna. Lögð verður áhersla á að
það samstarf verði báðum byggð-
arlögunum til hagsbóta.