Fréttablaðið - 12.09.2002, Síða 12
12 12. september 2002 FIMMTUDAGURSKÍÐASTÖKK
Á LEIÐ TIL SIGURS
Veronika Bauer flýgur hér af stökkpallinum
á heimsmeistaramótinu í skíðastökki með
frjálsri aðferð. Hún sigraði í keppninni.
MOLARÍÞRÓTTIR Í DAG
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með
West Union
19.00 Sýn
Kraftasport
(Sterkasti maður Íslands I)
19.30 Sýn
Kraftasport
(Sterkasti maður Íslands II)
20.00 Sýn
Golfmót í Bandaríkjunum
(Air Canada Championship)
22.30 Sýn
Kraftasport
23.00 Sýn
HM 2002
(Írland - Kamerún)
FÓTBOLTI Færeyingar komu á óvart
gegn Skotum í undankeppni Evr-
ópumótsins á laugardaginn var
þegar þeir misstu tveggja marka
forystu niður í jafntefli. Henrik
Larsen, landsliðsþjálfari Færey-
inga, segist ánægður með
frammistöðu sinna manna. „Við
sköpuðum okkur töluvert af fær-
um en skoruðum því miður ekki
fleiri mörk. Í seinni hálfleik voru
við undir mikilli pressu en áttum
samt góða möguleika á að klára
leikinn. Það góða við leikinn voru
færin. Það eina sem ég er óánægð-
ur með er að við skoruðum ekki
fleiri mörk.“
Larsen segir erfitt að meta
möguleika Færeyinga í und-
ankeppninni. Hann segir þá mæta
í hvern leik með sigur í huga. „Við
erum ekki stærsta þjóð í heimi en
erum að nálgast önnur lið í Evr-
ópu. Við munum samt reyna ná í
eins mörg stig og mögulegt er.“
Landsliðsþjálfarinn segir Þjóð-
verja vera með lang sterkasta lið
riðilsins. Skotar hafi ekki verið
sannfærandi í leiknum á laugar-
daginn. Hann segir baráttuna um
annað sætið muni standa á milli
Skotlands, Íslands og Litháa. Fær-
eyingar muni einnig reyna að
blanda sér í þá baráttu.
„Þjóðverjar eru með mjög
sterkt lið. Ef að við myndum
missa fjóra eða fimm leikmenn úr
hópnum okkar værum við í vond-
um málum. Þjóðverjar hafa hins
vegar mjög breiðan hóp og það
hefur lítil áhrif á liðið þótt nokkr-
ir leikmenn detti út úr honum.“
Larsen er danskur og hóf feril
sinn með áhugamannaliðinu HIK.
Hann lék með Lyngby og FC
Köbenhavn áður en hann gerðist
atvinnumaður, með Pisa á Ítalíu
og Aston Villa á Englandi. Hann
var í landsliði Dana sem lagði
Þjóðverja að velli í úrslitum Evr-
ópumótsins árið 1992. „Þetta var
ein stærsta stund landsliðsins.
Þetta var skemmtilegt mót og við
unnum allar stærstu knattspyrnu-
þjóðir heims, Holland, England og
Þýskaland. Við töpuðum bara ein-
um leik og það var gegn Svíum.“
kristjan@frettabladid.is
Íslendingar munu
berjast um annað sætið
Henrik Larsen er landsliðsþjálfari Færeyinga. Færeyingar eru með
Íslendingum í riðli í undankeppni Evrópumótsins. Hann spáir harðri bar-
áttu um annað sætið. Vann Evrópumeistaratitilinn árið 1992 með Dönum.
FÖGNUÐUR
Leikmenn færeyska landsliðsins fagna hér seinna markinu sem John Petterson, fyrrum
leikmaður Leifturs, skoraði gegn Skotum.
LANDSLIÐSÞJÁLFARI FÆREYINGA
Ísland og Færeyjar hafa mæst átján sinn-
um á knattspyrnuvellinum. Ísland hefur
unnið sautján leiki en einn endaði með
jafntefli. Henrik Larsen, landsliðsþjálfari
Færeyinga, segir að tími sé kominn á
breytingar. Liðin mætast á í júní.
Róbert Julian Duranona:
Á leið
til ÍBV
HANDBOLTI Róbert Julian Dura-
nona mun væntanlega leika með
liði ÍBV á Íslandsmótinu í vetur.
Hann á eftir að gangast undir
læknisskoðun og standist hann
hana skrifar hann undir. Dura-
nona verður þó ekki með liði ÍBV
þegar það mætir Haukum í
fyrstu umferð Íslandsmótsins.
Duranona hefur verið búsett-
ur erlendis undanfarin ár og lék
meðal annars í Þýskalandi og
Qatar. Hann hugðist reyna fyrir
sér hjá liði í Grikklandi en þar
sem samningar náðust ekki
ákvað hann að snúa aftur heim.
SKÁK Lið skipað skákmeisturum
víðsvegar að úr heiminum lagði
úrvalslið Rússlands að velli með
52 vinningum gegn 48 í viðureign
sem kölluð hefur verið Einvígi
aldarinnar. Svipuð einvígi voru
háð á árum áður. Þá var það úr-
valslið Sovétríkjanna sem tefldi
gegn heiminum. Sovétríkin unnu
þau mót frekar auðveldlega og
töldu margir að svipað yrði uppi á
teningnum í ár.
„Ef Sovétríkin væru enn við
lýði hefðu þau unnið mótið,“ sagði
Alexei Shirov, sem er Letti af
rússnesku bergi brotinn en er nú
með spænskan ríkisborgararétt.
Allir skákmenn heimsliðsins,
nema fjórir, komu frá fyrrverandi
lýðveldum Sovétríkjanna.
Fyrir síðustu umferðina hafði
úrvalslið heimsins þriggja vinn-
inga forskot. Það vann tvær skák-
ir í lokaumferðinni, gerðu sjö
jafntefli og töpuðu einni. Aðeins
Anatoly Karpov hafði betur í
viðureign sinni við Nigel Short frá
Englandi.
Í ÞUNGUM ÞÖNKUM
Garry Kasparov, fyrirliði
rússneska liðsins, sést hér
í þungum þönkum í
viðureign sinni við Vassily
Ivanchuk frá Úkraínu.
Kasparov tapaði viður-
eigninni.
Skákmót aldarinnar:
Heimurinn lagði Rússland að velli
Gerard Houllier, knattspyrnu-stjóri Liverpool, hefur viður-
kennt að liðið þurfi að láta af
þeirri leiðindaknattspyrnu sem
það hefur verið að spila að und-
anförnu og
taka meiri
áhættu.
Liverpool
hefur ekki
tapað leik í
úrvalsdeild-
inni en gert
tvö, 2-2,
jafntefli.
„Fólk er
ekki vant
því að Liver-
pool fái svo
mörg mörk á sig. Liðið hefur hins
vegar verið að spila betri sóknar-
leik og það er lykillin að ár-
angri,“ sagði Houllier. Hann seg-
ist jafnframt vera smeykur um
varnarlínu liðsins sem hefur ekki
verið jafn traust og áður.
KRIKKET Atvinnumenn í krikket
geta átt von á því að verða teknir í
lyfjapróf í fyrsta sinn í sögu
íþróttarinnar, á heimsmeistara-
keppninni í krikket sem haldin
verður á næsta ári. Malcolm Gray,
formaður alþjóða krikketsam-
bandsins, segir að prófin verði
framkvæmd samkvæmt alþjóð-
legum reglum. „Það er almennt
talin lítil hætta á því að lyf séu not-
uð í krikketíþróttinni. Við viljum
samt sem áður tryggja það að nafn
íþróttarinnar verði ekki svert
vegna lyfjanotkunar,“ sagði Gray.
Gray segir að allir krikketspil-
arar muni á næstunni þurfa að
greina frá því hvaða lyf og
vítamín þeir taki dags daglega.
„Við munum fylgjast náið með
mönnum á HM í krikket og ákveða
síðan hvort við þurfum að útbúa
allsherjar lyfjastefnu fyrir þau
lönd sem eru aðilar að krikket-
sambandinu,“ sagði Gray.
KRIKKET
Þessir kappar gætu þurft að gangast
undir lyfjapróf á heimsmeistamótinu
í krikket sem haldið verður á næsta
ári.
Atvinnumenn í krikket:
Þurfa að fara í lyfjapróf
AP
/M
YN
D
Sprengitilboð
Þú kaupir
1 kíló af
ýsuflökum
og færð
annað frítt
Fiskbúðin okkar
Smiðjuvegi, Álfheimum
og Lækjargötu Hafnarfirði