Fréttablaðið - 12.09.2002, Side 13
13FIMMTUDAGUR 12. september 2002
MOLAR
FÓTBOLTI Freddie Ljungberg, mið-
vallarleikmaður Arsenal, virðist
vera búinn að jafna sig af meiðsl-
um sem hafa hrjáð hann frá því á
heimsmeistaramótinu í Suður-
Kóreu og Japan. Hann lék með
æfingaleik gegn Reading Rovers
og kenndi sér ekki meins. Arsenal
vann leikinn með þremur mörk-
um gegn engu.
„Ljungberg virðist vera ná
sínu fyrra formi og verður vænt-
anlega til í slaginn innan nokkurra
vikna,“ sagði Joe Gamble, mið-
vallarleikmaður Reading. „Hann
þarf nokkra leiki í viðbót til að
komast í leikform en hann var
mjög kraftmikill í leiknum.“
Freddie Ljungberg:
Styttist í
endurkomu
Svíans
FREDDIE LJUNGBERG
Sænski miðvallarleikmaður Arsenal fór
mikinn á síðasta tímabili. Hann er að jafna
sig af meiðslum.
GLÍMA Yokozuna Takanohana fagn-
aði sínum þriðja sigri á Autumn
Grand mótaröðinni í Súmóglímu í
gær. Hann lagði Miyambiyama að
velli í úrslitaglímu og tryggði sér
þar með efsta sæti mótaraðarinn-
ar. Takanohana hafði verið frá í
síðustu sjö mótum vegna hné-
meiðsla.
Í mongólsku mótaröðinni sigr-
aði nýliðinn Asashoryu þegar hann
fleygði Kyokutenho, sem er þriðji
á styrkleikalistanum, út úr hringn-
um á sannfærandi hátt. Asashoryu
er þar með efstur á mótaröðinni og
hefur ekki tapað glímu.
Súmóglíma:
Ósigraður nýliði
HARKAN SEX
Asashoryu lendir hér ofan á andstæðingi sínum í mongólsku Súmó-glímumótaröðinni.
Asashouryu er efstur í sínum flokki og hefur ekki tapað viðureign.
HENRY
Thierry Henry skoraði sigurmarkið í
2:1 sigri Arsenal gegn Manchester City
á Highbury.
Sýndi skilaboð undir
keppnistreyju:
Henry
sleppur
við sekt
FÓTBOLTI Thierry Henry, framherji
Arsenal, verður ekki sektaður af
enska knattspyrnusambandinu
fyrir sýna skrifuð skilaboð undir
keppnistreyju sinni, eftir að hann
skoraði sigurmarkið gegn Man-
hcester City í fyrrakvöld. Á boln-
um sem hann var í innan undir
treyjunni stóðu skilaboðin: „fyrir
nýfædda barnið.“ Talið er að
skilaboðunum hafi verið beint til
góðvinar Henry, Sharleen Spiteri,
söngvara hljómsveitarinnar
Texas, sem eignaðist barn á dög-
unum.
Samkvæmt nýjum reglum Al-
þjóða knattspyrnusambandsins,
FIFA, er leikmönnum óheimilt að
sýna skilaboð undir treyjum sín-
um. Enska knattspyrnusambandið
ætlar að bregðast við með því að
senda Henry bréf þar sem hann er
minntur á nýju reglugerðina og
hvattur til að endurtaka ekki at-
hæfið. „Það var greinilega hlýr
hugur á bak við skilaboðin og við
skiljum það. Samt sem áður er
þetta brot á alþjóðlegum reglum
og þess vegna þurfum við að
minna hann á það,“ sagði talsmað-
ur enska knattspyrnusambands-
ins.
Ítalski boltinn mun loks byrjaað rúlla á ný á laugardaginn
kemur eftir óvissuástand í úr-
valsdeildinni. Úrvalsdeildar-
keppninni var frestað þar sem
ekki var búið að semja um sýn-
ingar frá leikjunum. Átta félög
höfðu hótað að draga sig úr kepp-
ni þar sem ekki hafði náðst sam-
komulag um greiðslur til þeirra.
Samningar tókust hins vegar og
loks ljóst að boltinn fær að rúlla,
mörgum til mikillar gleði.