Fréttablaðið - 30.09.2002, Page 1
bls. 10
PERSÓNAN
Nútímaleg Íslend-
ingasaga Banda-
ríkjamanns
bls. 22
MÁNUDAGUR
bls. 8
188. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 30. september 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Samfylkingin
ákveður aðferð
STJÓRNMÁL Samfylkingin í Reykja-
vík tekur ákvörðun í kvöld um með
hvaða hætti valið verður á lista
flokksins í báðum kjördæmum höf-
uðborgarinnar.
Fjárlaganefnd
fundar með
sveitarstjórnum
RÍKISFJÁRMÁl Fjárlaganefnd Alþing-
is er sú nefnd þingsins sem starfar
hvað mest. Í dag fundar nefndin
með sveitarstjórnarmönnum.
Konur í breyttri
kjördæmaskipan
RÁÐSTEFNA Nefnd um aukinn hlut
kvenna í stjórnmálum boðar til ráð-
stefnu með yfirskriftinni: Áhrif
breyttrar kjördæmaskipunar á hlut
kvenna á Alþingi. Ráðstefnan verð-
ur haldin í Norræna húsinu og
hefst klukkan 16.00.
Landslagslist og
fjarlægir staðir
FYRIRLESTUR Anna Guðjónsdóttir
listakona heldur fyrirlesturinn
Gallerí fyrir landslagslist og Safn
fjarlægra staða í stofu 24 í Listahá-
skóla Íslands í Laugarnesi kl. 12.30.
Tilfinningar í
Gallerí Skugga
MYNDLIST Kimmo Schroderus og
Charlotte Mickelsson sýna verk sín
í Gallerí Skugga. Á jarðhæð sýnir
Kimmo skúlptúra sem bera yfir-
skriftina Tilfinningar. Í kjallara
umbreytir Charlotte rýminu með
gagnsæjum gúmmíþráðum.
ÍÞRÓTTIR
Fylkir bikar-
meistari í
knattspyrnu
LÍFSSTÍLL
Tattoo í stað trúlof-
unarhringa
Ísraelsmann hafa lokið umsátrium höfuðstöðvar Arafats. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa beitt Ísra-
elsmenn miklum þrýstingi. bls. 2
Lögreglan lokaði um helginaspilavíti sem rekið hefur verið
í Reykjavík í nokkur ár. Eigandi
og gjafari voru handteknir. bls. 2
Neyðarástand ríkir í vistunar-málum geðveikra afbrota-
manna, segir formaður Geðhjálp-
ar. bls. 4
Það hillir undir breytingar áflugi til og frá landinu en verið
er að leggja lokahönd á stofnun
nýs lággjaldaflugfélags. bls. 4
SVÍÞJÓÐ Umhverfissinnar og
Vinstriflokkurinn í Svíþjóð höfn-
uðu í gær tilboði Görans Perssons
forsætisráðherra sem átti að fela í
sér grundvöll nýrrar ríkisstjórnar.
Það stefnir því í stjórnarkreppu í
landinu. Að sögn talsmanna flokk-
anna gekk tilboð jafnaðarmanna
ekki nógu langt. „Þetta var ekki
nóg,“ sagði Gudrun Schyman, leið-
togi vinstriflokksins. Umhverfis-
sinnar vilja skýrar línur um ýmis
af stefnumálum sínum. Þeir hafa
einnig gert kröfu um ráðherrastól.
Rík hefð er fyrir minnihlutastjórn
jafnaðarmanna með stuðningi
minni flokka. „Án ráðherrastóls
erum við í stjórnarandstöðu,“ var
haft eftir talsmanni umhverfis-
sinna.
Bo Lundgren, formaður hægri-
flokksins, hefur hvatt Persson til að
segja af sér, þar sem stjórn hans
hafi ekki lengur meirihluta. Vinstri-
flokkurinn vill halda viðræðum
áfram, en talsmenn umhverfissinna
segjast styðja vantraust á stjórnina.
Borgaraflokkarnir hafa átt í við-
ræðum við umhverfisflokkinn, en
upp úr þeim viðræðum slitnaði.
Umhverfissinnar hafna jafnaðarmönnum:
Stefnir í stjórnarkreppu í Svíþjóð
LYFJAKOSTNAÐUR „Við höfum séð
þessa þróun undanfarin misseri.
Það er hraðari vöxtur í notkun
geðlyfja hér en í löndunum í
kringum okkur. Við
vitum ekki hvort
við erum almennt
þunglyndari eða
hvort við með-
höndlum ákveðna
sjúkdóma betur og
fyrr en nágranna-
þjóðirnar. Það er til
að mynda notað meira af geðlyfj-
um ýmis konar á íslenskum hjúkr-
unarheimilum en í nágrannalönd-
unum. Ef til vill er þunglyndi með-
al aldraðra vanmeðhöndlað í ná-
grannalöndunum, við vitum það
ekki,“ segir Haukur Valdimars-
son, aðstoðarlandlæknir.
Lyfjakostnaður almannatrygg-
inga fyrstu átta mánuði ársins var
fimmtungi hærri en á sama tíma-
bili í fyrra, nam 3.587 milljónum
króna. Þrátt fyrir að lyfjaverð
hafi almennt farið eilítið lækkandi
síðustu mánuði, er það mat heil-
brigðisráðuneytisins að lyfja-
kostnaður á þessu ári verði 12 til
14 prósentum hærri en á því síð-
asta og verði að minnsta kosti
fimm og hálfur milljarður króna.
Á fjárlögum er gert ráð fyrir
4.973 milljónum í lyfjakostnað.
Hann fer því tæplega 530 milljón-
ir framúr fjárlögum. Hlutur
tauga- og geðlyfja hefur vaxið
hröðum skrefum og er nú nálægt
þriðjungi af heildarkostnaðinum.
„Þetta er svolítið sérstakt og
veldur okkur áhyggjum. Við velt-
um því fyrir okkur hvort þörfin sé
raunverulega svona mikil. Ef svo
er þá er ástæða til að huga að öðr-
um úrræðum en lyfjagjöfinni
einni. Svo er auðvitað áhyggjuefni
ef það fara sífellt meiri fjármunir
í lyfin, einkum geðlyf. Þá fjár-
muni verður að taka einhvers
staðar,“ segir Haukur Valdimars-
son.
Hann segir enga einhlíta skýr-
ingu á þessum hraða vexti hér. Ný
og dýrari lyf séu hluti skýringarinn-
ar. Einnig vegi þungt hve aðgengi að
sérfræðingum hefur aukist.
„Sjúklingur getur gengið
milli sérfræðinga. Þá tapast
stundum heildaryfirsýn yfir
krankleika viðkomandi og það
sem gert hefur verið. Lyfjagjöf
er þá í mörgum tilfellum nær-
tækasta lausnin,“ segir Haukur
Valdimarsson.
Landlæknisembættið hefur
gefið út klínískar leiðbeiningar til
lækna um notkun einstakra lyfja-
flokka. Það hefur þó ekki verið
gert hvað varðar geðlyf.
„Það er eitt af því sem rétt er
að skoða hvort hægt er að setja
fram slík tilmæli eða leiðbeining-
ar, frekar en fyrirmæli,“ segir
Haukur Valdimarsson.
the@frettabladid.is
Við veltum því
fyrir okkur
hvort þörfin
sé raunveru-
lega svona
mikil.
REYKJAVÍK Suðvestan átt 8-13
m/s og rigning síðdegis.
Hiti 5 til 10 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-5 Rigning 8
Akureyri 3-5 Skýjað 8
Egilsstaðir 3-8 Skýjað 5
Vestmannaeyjar 5-10 Súld 8
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
ÞETTA HELST
Þriðjungur vegna
tauga- og geðlyfja
Lyfjakostnaður Tryggingastofnunar stefnir í hálfan sjötta milljarð króna á þessu ári.
Lyfjakostnaðurinn verður að líkindum 530 milljónum króna hærri en fjárlög heimila. Ekki í takt
við þróunina í nágrannalöndunum. Nýjungagirni og aðgengi að sérfræðingum skýrir hluta.
LOKSINS LAUS Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, fagnar lokum umstáturs Ísraelsmanna við höfuðstöðvar sínar í Ramallah. Ísraels-
menn létu undan þrýstingi Sameinuðu þjóðanna og Bandaríkjastjórnar og héldu á brott af svæðinu í gær. Ísraelsstjórn er gagnrýnd heima-
fyrir og sögð styrkja pólitíska stöðu Arafats. sjá nánar á bls. 2.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49 ára á
mánudögum samkvæmt
fjölmiðlakönnun Gallup frá
september 2002
33%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa
25 til 49 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu
á mánudögum?
81%
Skeifan 4, s. 585 0000, www.aukaraf.is
GPS
SporTrak Map
Kr. 39.900 m/ íslandskorti
AP
-M
YN
D