Fréttablaðið - 30.09.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 30.09.2002, Blaðsíða 11
11MÁNUDAGUR 30. september 2002 Auglýsing um innköllun þriggja myntstærða H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA SEÐLABANKI ÍSLANDS Samkvæmt reglugerð nr. 673 frá 19. september 2002, sem sett er með heimild í lögum um gjaldmiðil Íslands, nr. 22/1968, sbr. lög nr. 36/1998, hefur forsætisráðherra, að tillögu Seðlabanka Íslands, ákveðið innköllun eftirtalinna þriggja myntstærða: 5 aurar Útgefnir: 1981 Þvermál: 15 mm Þyngd: 1,5 grömm Málmur: brons 10 aurar Útgefnir: 1981 Þvermál: 17 mm Þyngd: 2 grömm Málmur: brons 50 aurar Útgefnir: 1981 Þvermál: 19,5 mm Þyngd: 3 grömm Málmur: brons Frestur til að afhenda ofangreinda mynt til innlausnar er fram að 1. október 2003. Allir bankar og sparisjóðir eru skyldugir að taka við peningunum til þess tíma og láta í staðinn peninga, sem ekki á að innkalla. Peningarnir, sem innkalla á, eru lögmætur gjaldmiðill í lögskiptum manna til loka innköllunarfrestsins. Seðlabanki Íslands mun þó innleysa ofangreinda mynt eigi skemur en í 12 mánuði þar á eftir, fram að 1. október 2004. Útgefnir: 1986 Þvermál: 19,5 mm Þyngd: 2,65 grömm Málmur: koparhúðað stál Reykjavík, 30. september 2002. Efni er varðar innköllunina má finna á vef Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is). Knattspyrnufélagið Þróttur: Ásgeir ráðinn til tveggja ára FÓTBOLTI Ásgeir Elíasson hefur verið endurráðinn þjálfari meist- araflokks karla hjá Þrótti. Samn- ingurinn er til tveggja ára. Félag- ið vann sér sæti í úrvalsdeild á næsta ári. Ásgeir er einn reyndast þjálf- ari hér á landi og hefur margoft stýrt liðum í efstu deild. Flest fé- laganna sem leika í efstu deild næsta sumar hafa gengið frá þjálfaramálum. Óvissa er hjá FH, Fram og Fylki.  Louis Saha, framherji enska úr-valsdeildarliðsins Fulham, verður frá næstu þrjár vikurnar. Saha meiddist á læri í 3:2 sigri Fulham gegn Tottenham um miðjan september. Harry Redknapp, knattspyrnu-stjóri enska 1. deildarliðsins Portsmouth, segist hafa áhuga á að fá silfurrefinn Fabrizio Ravan- elli og miðjumanninn Tim Sherwood til liðs við félagið. Hollendingurinn í liði Arsenal,Dennis Bergkamp, verður frá næstu þrjá leiki vegna ökkla- meiðsla sem hann hlaut í leik liðsins við PSV í Meistaradeild- inni á miðvikudag. Paolo Vanoli, fyrrverandi varn-armanni ítalska liðsins Fior- entina, hefur verið boðinn tveggja ára samningur hjá West Ham. Fulham og Arsenal hafa einnig áhuga á leikmanninum. Tölfræðiskýrsla FIFA um HM í knattspyrnu: 30% mark- anna skoruð úr föstum leikatriðum FÓTBOLTI Þrjátíu prósent þeirra marka sem skoruð voru á HM í knattspyrnu í sumar voru skoruð úr föstum leikatriðum. Þetta kem- ur fram í nýrri skýrslu Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, þar sem finna má allar þær töl- fræðilegu staðreyndir sem lúta að HM-keppninni, sem haldin var í Japan og Suður-Kóreu. Reyndir sérfræðingar rannsökuðu ítarlega alla 64 leiki keppninnar ásamt því að taka saman tölfræðilegar upp- lýsingar um frammistöðu hvers liðs fyrir sig. Í skýrslunni kemur fram að tuttugu prósent markanna í keppninni voru skoruð eftir hraðaupphlaup. Fimmtungur markanna, sem alls voru 161 tals- ins, var aftur á móti skoraður eft- ir einstaklingsframtak.  Asíuleikarnir: Afganar með ASÍULEIKARNIR Asíuleikarnir voru settir í Busan í Suður-Kóreu í gær en þeir standa yfir í tvær vikur. Rúmlega 10 þúsund íþróttamenn víðsvegar að úr álfunni taka þátt í þessari íþróttahátíð sem fer nú fram í 14. sinn. Íþróttamenn frá 43 löndum erum skráðir til leiks. Þeirra á meðal eru afganskir knattspyrnumenn. Afganar taka nú í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegu íþróttamóti eftir að stjórn talí- bana féll. Meðan talíbanastjórnin ríkti var svo til öll íþróttaiðkun bönnuð í Afganistan, þar með taldar æfingar hvers konar. Það kom enda í ljós þegar landslið Afganistan í knattspyrnu lék vin- áttuleik við landslið Íran á laugar- dag. Leiknum lyktaði með 10-0- sigri Íran.  SKRIFAÐ UNDIR Ásgeir Elíasson skrifar undir samning við Þrótt. KNATTSPYRNA Liverpool sigrað Manchester City 3-0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Michael Owen skoraði öll mörk Liverpool og þaggaði þar með niðri í öllum gagnrýnisröddum en hann hefur ekki verið á skotskónum undan- farið. Stjórinn Gerard Houllier var hæstánægður með kappann að leik loknum og segir Owen hafa vitað það að liðið allt stóð þétt að baki honum í lánleysinu undanfarið. Manchester United sigraði Charlton 3-1 á útivelli eftir að Charlton hafði komist yfir í lok fyrri hálfleiks. Scoles, Giggs og Nistelroy skoruðu fyrir United. Chelsea tapaði 3-2 á heima- velli fyrir West Ham. Eiður Smári allan leikinn með Chelsea en tókst ekki að skora. Bolton og Southampton skildu jöfn, 1-1, Ev- erton lagði Fulham 2-0, Sunder- land hafði betur gegn Aston Villa 1-0 og Tottenham steinlá fyrir Middlesbrough 0-3. Arsenal er í efsta sæti deild- arinnar eftir leiki helgarinnar og Liverpool fylgir í kjölfarið en liðin eru þau einu sem hafa ekki enn tapað leik. Middlesbro er í þriðja sæti, Man.Utd. í því fjórða og Chelsea í fimmta.  HITAÐ UPP FYRIR ÁTÖKIN GEGN ÍRAN Afganskir landsliðsmenn í knattspyrnu hita upp fyrir viðureign sína við landslið Íran. RIVALDO Rivaldo, leikmaður heimsmeistaraliðs Bras- ilíu, stóð sig vel á HM í sumar og skoraði mikilvæg mörk fyrir lið sitt. MICHAEL OWEN, SAMI HYYPIA OG MILAN BAROS Fagnar fyrsta marki Owens í þrennunni sem hann gerði í leik Liverpool gegn Manchester City. Enski boltinn: Owen með þrennu gegn Man. City

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.