Fréttablaðið - 30.09.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.09.2002, Blaðsíða 10
FÓTBOLTI Fylkismenn urðu bikar- meistarar karla í knattspyrnu á laugardag þegar þeir lögðu Fram að velli í úrslitaleik á Laugardalsvell i . Það var Valur Fannar Gíslason sem skoraði fyrsta markið og kom lið- inu yfir en Andri Fannar Ottósson jafnaði fyrir Fram. Staðan í hálfleik var því jöfn. Í síð- ari hálfleik komu Fylkismenn ákveðnir til leiks og uppskáru í samræmi við það þegar Sverrir Sverrisson kom þeim yfir, 3-1. Theódór Óskarsson tryggði síðan sigurinn með þriðja markinu í opnum og skemmtilegum leik. Leikurinn var skemmtilegur og fullur af opnum færum eins og úr- slitaleikir eiga að vera. Áhorfend- ur voru fjölmargir og skemmtu sér vel í blíðskaparveðri. „Sigurinn var frábær endir á góðu sumri. Það voru gríðarleg vonbrigði að ná ekki Íslands- meistaratitlinum og því var það sárabót að vinna þennan leik,“ segir Finnur Kolbeinsson fyrirliði Fylkis. „Við vorum svo nærri því að ná Íslandsmeistaratitlinum og því var sérlega ánægjulegt að vinna þennan leik. Hann segir leikinn hafa verið opinn og skemmtilegan eins og úr- slitaleikir eigi að vera. „Það var feikilega gaman að spila þennan leik enda vorum við sterkari aðil- inn og unnum fyrir þessum sigri. Stuðningsmenn okkar hafa fylgt okkur eftir í sumar og verið liðinu mikil hvatning sem skipti máli í þessum leik.“ Finnur telur allar líkur vera á að þjálfari liðsins, Aðalsteinn Víglundsson, verði áfram með lið- ið enda eigi hann tvö ár eftir af sínum samningi. „Við erum ánægðir með hann og ég veit að það er vilji strákanna í liðinu að hann verði áfram. Árangur liðsins í sumar er sá besti sem við höfum náð og hann á vitaskuld þátt í því. Annað sætið í Íslandsmótinu og bikarmeistari annað árið í röð er frábær árangur. bergljot@frettabladid.is 10 30. september 2002 MÁNUDAGURFÓTBOLTI Evrópukeppni U-liða að hefjast: Ísland Ísrael á Akranesi í dag FÓTBOLTI Í dag hefst 3. riðill und- ankeppni Evrópukeppni U-17 landsliða hér á landi. Í riðli með Íslendingum eru landslið Sviss, Armeníu og Ísrael. Íslendingar hefja keppni með því að leika við Ísrael á Akranesvelli klukkan 16. Á sama tíma leika Sviss og Armenía á Kópavogsvelli. Ís- lenska liðið sem tekur þátt í þess- um riðli er hið sama og varð Norð- urlandameistari í þessum aldurs- flokki fyrr í sumar. Áhorfendur eru hvattir til að mæta og fylgjast með landsliðs- mönnum framtíðarinnar. Aðgang- ur er ókeypis.  GOLF Evrópa vann Bandaríkin í Ryder-keppninni í golfi sem haldin var í Bretlandi með 15,5 vinningum gegn 12,5. Lið Banda- ríkjanna var talið mun sterkara á pappírnum. Keppninni var frestað í fyrra vegna hryðju- verkanna í Bandaríkjunum. Keppnin var jöfn og spenn- andi. Lið Evrópu byrjaði betur og hafði forystu eftir fyrsta hluta keppninnar. Bandaríkja- menn sóttu í sig veðrið og voru liðin jöfn þegar síðasti keppnis- dagurinn rann upp. Keppnin er holukeppni þannig að sigur á holunni telur, en ekki heildar höggafjöldi. Evrópubúar náðu strax góðri stöðu í tvímenn- ingi síðasta daginn. Tæplega einn og hálfur tími leið áður en Bandaríkjamenn náðu forystu í nokkrum af leikjum dagsins. Af öðrum leikmönnum ólöst- uðum var það Bretinn Colin Montgomerie sem kom, sá og sigraði. Fyrir síðasta keppnis- daginn hafði hann unnið alla sína leiki. Hann sló líka tóninn fyrir það sem koma skyldi og innbyrti fimmta sigur sinn á mótinu. Þar með var Evrópa komin yfir. Það var svo Írinn Paul McGinley sem tryggði Evrópu sigur með fjögurra metra pútti á 18 holu.  Spennandi Ryder-keppni lokið: Sætur sigur fyrir Evrópu Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Slá›u til - sumarauki í sólinni í Portúgal Vi›bótarsæti 1. 8. 15. og 22. október 39.900 kr. Innifalið er flug, gisting í 1 viku í íbúð, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. Miðað við 2 í íbúð. Ver› frá Vikutilbo› NÝJAR SENDINGAR Í HVERRI VIKU SONET • BRAUTAHOLT 2 • REYKJAVÍK • OPIÐ ALLA DAGA KL 12-19 „Komnir til að vera“ Alltaf ódýrari! Geisladiskar TILBOÐ Taktu 6 á 2000 100 titlar 999,- 999,- 999,- 1.39 9,- 1.39 9,- 1.39 9,- 1.39 9,- Geisladiskar frá 99 kr. Tölvuleikir frá kr. 499 KANU FAGNAR FYRRA MARKI SÍNU Í LEIK ARSENAL GEGN LEEDS Tvö mörk frá Kanu tryggðu Arsenal sigur yfir Leeds í ensku úrvalsdeildinni á laugar- dag. Sigurinn var sá sjötti í átta leikjum frá því keppnistímabilið hófst en Arsenal er á toppi deildarinnar. „Kærkominn sigur“ Fylkir sigraði Fram 3-1 í skemmtilegum úrslitaleik í Bikarkeppninni í knattspyrnu á laugardag. Finnur Kolbeinsson, fyrirliði Fylkis, segir sárabót að hafa unnið eftir að hafa tapað Íslandsmeist- aratitlinum sem þeir voru svo nálægt því að hreppa. Stuðnings- menn okkar hafa fylgt okk- ur eftir í sum- ar og verið lið- inu mikil hvatning sem skipti máli í þessum leik.“ BIKARMEISTARRAR Fylkismenn kátir á sigurstund. Þeir lögðu Fram í úrslitaleik bikarkeppninnar. Það var þeim sárabót eftir að hafa horft á KR tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn fyrir viku. SIGURDANSINN Spænski golfsnillingurinn Sergio Garcia tekur nokkur dansspor kringum félaga sína í fögnuði yfir sigri Evrópu yfir Bandaríkjunum í Ryder-keppninni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.