Fréttablaðið - 30.09.2002, Page 6
8 30. september 2002 MÁNUDAGUR
INNLENT
SKIPULAG „Þetta er merkilegt verk-
efni sem er bæði stórt og flókið.
Það hefur verið lögð í það mikil
vinna og það er enginn vafi á því
að við náum að setja fram áætlan-
ir og stöndum við samninginn,“
segir Árni Páll
Árnason, lögmaður
Sigurjóns Sighvats-
sonar og Sigurðar
Gísla Pálmasonar.
Þeir keyptu Eiða
ásamt drjúgum
hluta lands þar um-
hverfis af sveitar-
félaginu Austur-
Héraði á alls 46 milljónir króna í
júní fyrra. Sú upphæð miðuð við að
þeir nýti sér til fulls kauprétt sem
þeir tryggðu sér í fyrra.
Tillögur Sigurjóns og Sigurðar
Gísla um framtíðarnýtingu eign-
anna eiga að liggja fyrir áður en
októbermánuður er á enda.
Með kaupunum skuldbundu sig
til að leggja að minnsta kosti 75
milljónir króna af eigin fé til upp-
byggingar á staðnum. Á þeim hvíl-
ir einnig sú skylda að leggja fram
rekstraráætlun fyrir „mennta- og
menningarsetur“ á Eiðum. Það er
þessi áætlun sem beðið er.
Lítið hefur spurst út um fyrir-
ætlanir tvímenninganna sem
komu upp sérstökum starfshóp
utan um verkefnið. Þess má geta
að ríkið hefur uppi áform um
menningarhús á Héraði sem tengj-
ast á sviðslistum. Eiðamenn eru
sagðir hafa sýnt því áhuga að þeir-
ri starfsemi yrði valinn staður á
eign þeirra. Þá hefur því jafnvel
verið fleygt að staðurinn henti sem
hvíldar- og hressingarathvarf fyr-
ir dægurhetjur úr kvikmyndaiðn-
aðinum í Los Angeles.
Árni Páll segir að þó tíminn sem
hafi verið til stefnu til að móta
áætlunina fyrir Eiða hafi verið í
allra stysta lagi, eða fimmtán mán-
uðir, muni hún liggja fyrir í tilsett-
um tíma. Hann segir ekki tíma-
bært að greina frá þeim ákvörðun-
um sem þegar hafa verið teknar.
Flugleiðahótelin hafa rekið
sumarhótel á Eiðum sem leigutaki
bygginganna. Samningur er um
framhald á því fyrir tvö næstu
sumur.
gar@frettabladid.is
Beðið eftir áætlun
um framtíð Eiða
Lítið hefur spurst um áformin. Eigendurnir eru sagðir áhugasamir um
að menningarhúsi á vegum ríkisins verði valin staður á Eiðum. Því hef-
ur verið fleygt að staðurinn verði afdrep fyrir dægurhetjur úr heimi
kvikmyndagerðarmanna í Hollywood.
SIGURJÓN SIGHVATSSON ER ANNAR EIGANDI EIÐA
Kynna á rekstraráætlun mennta- og menningarseturs á Eiðum fyrir lok október. „Það er
enginn vafi á því að við náum að setja fram áætlanir og stöndum við samninginn,“ segir
Árni Páll Árnason, lögmaður Sigurðar Gísla Pálmasonar og Sigurjóns Sighvatssonar sem
keyptu Eiða í fyrra.
Flugleiðahót-
elin hafa rekið
sumarhótel á
Eiðum sem
leigutaki bygg-
inganna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Formaður VR:
Mikið um
uppsagnir
ATVINNUMÁL „Það sem við höfum
heyrt gefur til kynna að það sé
mikið um uppsagnir núna um
mánaðamótin,“ segir Gunnar Páll
Pálsson, formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur. Hann
segir að starfsfólk félagsins hafi
undanfarið orðið vart við að
óvenju margir leiti ráðlegginga
um rétt sinn vegna uppsagna. Sé
það til vísbendingar um að fyrir-
tæki séu að segja fólki upp nú um
mánaðamótin en uppsagnirnar
komi til framkvæmda um áramót.
„Við héldum að við værum búin
að ná botninum,“ segir Gunnar
Páll. Frekari uppsagnir hljómi
ekki vel. Þó megi vona að þær
komi ekki allar til framkvæmda.
NORÐURLJÓS
Veðjar uppá nýtt.
Þremur útvarpsstöðvum
lokað:
Styrkja Sögu
og Bylgjuna
FJÖLMIÐLAR Útvarpssvið Norður-
ljósa hefur ákveðið að loka þrem-
ur útvarpsstöðvum og nota senda
þeirra til að styrkja Útvarp Sögu
og Bylgjuna víða á landsbyggð-
inni:
„Það missir engin vinnuna við
þetta. Stöðvarnar voru allar sjálf-
virkar og þar vann engin maður,“
segir Jón Axel Ólafsson, útvarps-
stjóri Norðurljósa, en stöðvarnar
sem lagðar verða af eru Klassík
FM, jassstöð og Vitund FM. „Við
erum að endurskipuleggja dreifi-
kerfi okkar og styrkja þær stöðv-
ar sem við veðjum á,“ segir Jón
Axel og á þar við Útvarp Sögu og
Bylgjuna.
SPURNING DAGSINS
Er vínmenning á Íslandi?
Nei, en hluti af þjóðinni kann þó að fara
með áfengi.
Kristín Sigurðardóttir. 58 ára.
Fyrstu námsmannaíbúðirnar íGarðabæ voru afhentar leigj-
endum í gær. Börn námsmanna
sem flytja í íbúðirnar fengu gjaf-
ir við sama tækifæri.
Seyðisfjörður:
Útlendingar í
Herðubreið
AUSTFIRÐIR Talið er að hátt í tvö
þúsund Austfirðingar hafi mætt á
þjóðahátíð sem haldin var í fé-
lagsheimilinu Herðubreið á Seyð-
isfirði á laugardaginn. Á þjóðahá-
tíðinni voru samankomnir útlend-
ingar af margs konar þjóðerni
sem eiga það sameiginlegt að hafa
sest að á Austurlandi. Voru þeir
með bása og kynningar á ýmsu
sem tengist heimahögum þeirra
og varð af mikil skemmtan og
fróðleikur í bland. Þjóðahátíðin
fór hið besta fram en mikil um-
ferð var á Seyðisfirði á meðan á
henni stóð.
Byggðastofnun:
Auglýst eftir
forstjóra
BYGGÐASTOFNUN Starf forstjóra
Byggðastofnunar hefur verið aug-
lýst laust til umsóknar. Aðalsteinn
Þorsteinsson, forstöðumaður lög-
fræðisviðs Byggðastofnunar hef-
ur gegnt starfi forstjóra frá því
Theodór Bjarnason, hætti eftir
deilur við stjórnarformanninn
Kristinn H. Gunnarsson, sem lét
af stjórnarformennsku í kjölfarið.
Lög kveða á um að skipað sé í
starfið til fimm ára en þessa er
ekki getið sérstaklega í auglýsing-
unni. Meðal ríkisstjórnarflokk-
anna hafa menn hreyft þeirri hug-
mynd að rétt væri að afnema
fimm ára ákvæðið, að minnsta
kosti varðandi ákveðnar stofnan-
ir. Umsóknarfrestur um stöðu for-
stjóra Byggðastofnunar er til 14.
október en nýjum forstjóra er
ætlað að taka við um næstu ára-
mót.
LONDON, AP Anna, prinsessa Breta,
og eiginmaður hennar Tim
Laurence hafa verið sótt til saka á
grundvelli laga um hættulega
hunda. Hundur þeirra réðst á par
í almenningsgarði. Talsmaður
Buckinghamhallar staðfesti að
hjónin ættu að mæta fyrir rétt í
East Berksire vegna málsins. Há-
marksdómur fyrir brot af þessu
tagi er fimm þúsund punda sekt
og sex mánaða fangelsi. Auk þess
getur dómstóllinn látið lóga hund-
inum og svipt þau hjónakorn rétt-
inum til að halda hund.
Að sögn blaðsins Mail on
Sunday átti atburðurinn sér stað í
júlí síðastliðnum. Að sögn blaðs-
ins var hundinum leyft að ganga
lausum í almenningsgarði
Windsor með þeim afleiðinum að
hann réðst á parið og veitti þeim
áverka.
Þetta mun í fyrsta skiptið sem
svo hátt settur meðlimur kon-
ungsfjölskyldunnar er stefnt fyr-
ir refsidómstól fyrir brot önnur
en hraðakstur.
STEFNT FYRIR REFSIDÓM
Anna prinsessa og eiginmaður hennar Tim
Laurence eiga yfir höfði sér dóm fyrir að
leyfa hættulegum hundi sínum að ganga
lausum með þeim afleiðingum að hann
réðst á fólk..
Anna prinsessa í vondum málum:
Braut lög um meðferð
hættulegra hunda
STJÓRNMÁL Útgjöld utanríkisráðu-
neytisins á síðasta ári voru nærri
einum milljarði króna hærri á síð-
asta ári en gert hafði verið ráð
fyrir á fjárlögum. Ráðuneytinu
höfðu verið ætlaðir rétt rúmir
fjórir milljarðar á árinu en út-
gjöld þess reyndust nær fimm
milljarðar. Það er rúmlega fimmt-
ungi meira en stefnt hafði verið
að. Ráðuneytið heldur sig þó tals-
vert innan fjárheimilda miðað við
fjáraukalög sem samþykkt voru í
lok ársins. Þá hafði fjárheimild
ráðuneytisins verið aukin í 5,6
milljarða króna.
Fjármálaráðuneytið var eina
ráðuneytið til að halda sig innan
upphaflegs fjárlagaramma. Út-
gjöld þess námu 23,7 milljörðum.
Það er 15,9% minna en ráðuneyt-
inu var ætlað á fjárlögum.
Sé litið til peningalegra upp-
hæða var það heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið sem fór
lengst fram úr fjárheimildum. Út-
gjöldin urðu 4,7 milljörðum meiri
en stefnt hafði verið að. Það er
frammúrkeyrsla upp á 5,9%. Út-
gjöld fjármálaráðuneytisins voru
hins vegar fjórum og hálfum
milljarði lægri en ráð var fyrir
gert í fjárlögum.
Misjafn árangur ráðuneyta við að fylgja fjárlögum:
Utanríkisráðuneyti
fimmtung fram
úr fjárlögum
Vettvangur útgjalda Fjárlög Ríkisreikningur Frávik frá fjárlögum
Æðsta stjórn ríkisins 2.058 2.111 2,6%
Forsætisráðuneyti 1.058 1.146 8,3%
Menntamálaráðuneyti 23.850 26.803 12,4%
Utanríkisráðuneyti 4.084 4.965 21,6%
Landbúnaðarráðuneyti 10.526 11.039 4,9%
Sjávarútvegsráðuneyti 2.581 2.813 9,0%
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 11.944 12.901 8,0%
Félagsmálaráðuneyti 15.965 16.767 5,0%
Heilbrigðis og tryggingamálaráðun. 79.873 84.559 5,9%
Fjármálaráðuneyti 28.193 23.706 -15,9%
Samgönguráðuneyti 15.301 15.869 3,7%
Iðnaðarráðuneyti 2.751 2.972 8,0%
Viðskiptaráðuneyti 1.338 1.450 8,4%
Hagstofa Íslands 370 399 7,8%
Umhverfisráðuneyti 3.074 3.290 7,0%
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.07 -0.68%
Sterlingspund 135.49 -0.97%
Dönsk króna 11.46 -0.74%
Evra 85.17 -0.72%
Gengisvístala krónu 128,57 -0,64%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 296
Velta 6.107 milljónir
ICEX-15 1.299 0,60%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf. 146.932.281
Búnaðarbanki Íslands hf. 81.811.786
Delta hf. 55.467.500
Mesta hækkun
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 40,00%
Jarðboranir hf. 2,63%
Olíuverslun Íslands hf. 2,17%
Mesta lækkun
Ker hf. -4,17%
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. -3,66%
SR-Mjöl hf. -3,23%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 7701,4 -3,70%
Nsdaq: 1199,2 -1,80%
FTSE: 3907,2 1,50%
DAX: 2918,9 -3,40%
Nikkei: 9530,4 2,30%
S&P: 827,4 -3,20%