Fréttablaðið - 30.09.2002, Page 9
MÁNUDAGUR 30. september 2002
ALÞINGI Áætlað er að skálinn við
hlið alþingishússins kosti 810
milljónir króna. Samtals er hann
2.460 fermetrar, þar af er bíla-
kjallari 1.310 fermetrar. Í skálan-
um verður aðalinngangur í alþing-
ishúsið, þjónusta fyrir þingmenn
og starfsmenn Alþingis, fræðslu-
stofa, matstofa og aðstaða fyrir
fjölmiðla.
Þetta er fyrsta nýbygging Al-
þingis frá árinu 1908 að kringlan
var byggð við alþingishúsið. Aðal-
hönnuður skálans er Batteríið.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
opnaði skálann formlega.
Alþingi kemur saman að loknu
sumarleyfi á þriðjudag.
FORSETI ÍSLANDS
Ólafur Ragnar Grímsson forseti var meðal
gesta við vígslu skála Alþingis.
Nýbygging Alþingis:
Kostar yfir
800 milljónir
Nokia 3310 á 9.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.100 kr.
9.900 kr.
Þú hringir
…með GSM áskrift
hjá Íslandssíma.
Nokia 3510 á 18.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.100 kr.
18.900 kr.
Nokia 3410 á 14.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.100 kr.
14.900 kr.
Hringdu í 800 1111, komdu í verslun
okkar í Kringlunni eða líttu á islandssimi.is.
Með Íslandssíma hringir þú frítt í fjögur
númer innan kerfis og á þjónustusvæði okkar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
83
33
07
/2
00
2
SÝNINGAR Mikil aðsókn hefur
verið að hönnunarsýningu Arne
Jacobsen á Kjarvalsstöðum og
allt útlit fyrir að hún slái met í
aðsókn. Skáki jafnvel Odd Ner-
drup sem átti sýningarmetið á
Kjarvalsstöðum í fyrra:
„Þó er of snemmt að spá.
Sýningu Jacobsen lýkur ekki
fyrr en í nóvember,“ segir Ei-
ríkur Þorláksson, forstöðumað-
ur Listasafns Reykjavíkur. „Þá
hefur einnig verið mjög góð að
sókn að höggmyndasýningunni
í Hafnarhúsinu en þeirri sýn-
ingu fer að ljúka,“ segir hann.
Þúsund manns mættu við
opnun á sýningu Arne Jacobsen
og þúsund að auki daginn eftir.
Ekkert lát er á aðsókn.
ARNE JACOBSEN
Hittir í mark á Miklatúni.
Kjarvalsstaðir:
Arne Jacobsen
skákar Nerdrup
NEW YORK, AP Jan Hendrick Schon
þótti ekki aðeins efnilegur vís-
indamaður. Hann þótti ná hreint
ó t r ú l e g u m
árangri í tilraun-
um með að nota
lífræn efni í stað
kísilkubba í tölv-
ur.
„Hann á eftir
að fara til Stokk-
hólms,“ sögðu fé-
lagar hans og voru
orðnir sannfærðir
um að Schon fengi
Nóbelsverðlaun þegar fram liðu
stundir.
Schon er aðeins 32 ára. Hann
hóf störf hjá Bells rannsóknar-
stofunum í New Jersey árið 1997
og hefur birt meira en 80 vísinda-
ritgerðir á síðustu tveimur árum,
margar þeirra í virtum vísinda-
tímaritum á borð við Nature og
Science.
Nefnd virtra vísindamanna
hefur nú komist að því að mikið
af niðurstöðum tilraunanna hafi
verið falsaðar. Tóm blekking.
Ekki bara ævintýri líkar, heldur
ævintýralegur uppspuni.
Undirstaða tölvutækni nútím-
ans eru kísilkubbar. Þeir eru
frekar dýrir í framleiðslu og
bjóða ekki upp á mikla fjöl-
breytni.
Schon einbeitti sér að því að
komast að því hvort hægt væri að
nota lífræn efni í staðinn fyrir
kísilkubbana. Til dæmis plast,
sem er svo ódýrt að það yrði gjör-
bylting í tölvutækninni. Mögu-
leikarnir væru ótæmandi.
Hægt væri að tengja tölvu-
tæknina beint við mannslík-
amann og við ýmsa hversdags-
lega hluti á heimili fólks og
vinnustöðum. Til dæmis mætti
prenta plastrásir á pappír og búa
þannig til rafrænt dagblað sem
gæti uppfært nýjustu fréttirnar
og ljósmyndir af Netinu.
Tilraunir Schons þóttu stað-
festa með ótrúlega glæsilegum
hætti að allt þetta væri mögulegt.
Allt virtist ganga upp í tilraunum
hans, jafnvel þótt aðrir hefðu átt
í erfiðleikum með að sýna fram á
sömu hluti.
Vísindamenn byrjuðu almennt
að efast um að fullyrðingar
Schons gætu staðist þegar tvær
greinar birtust eftir hann, fyrst í
tímaritinu Nature og skömmu
síðar í tímaritinu Science, þar
sem hann sagðist hafa búið til
smára úr aðeins einni sameind,
sem hegðaði sér næstum eins og
venjulegir smárar.
Þetta hljómaði eins og Schon
hefði búið til reiðhjól með
ferköntuðu hjóli sem samt rynni
jafn vel og kringlótt hjól.
„Þessar niðurstöður var hrein-
lega ekki hægt að útskýra í ljósi
hefðbundinna vísinda,“ sagði
Paul Solomon, vísindamaður hjá
rannsóknastöð IBM Watson í
New York.
Schon hefur viðurkennt að
hafa „gert mistök,“ en segist enn
sannfærður um að tæknin sem
hann var að þróa verði möguleg
síðar meir. „Og ef hægt er, þá er
ég reiðubúinn til að vinna hörð-
um höndum að þessu verkefni,“
sagði hann.
STOLTIR VÍSINDAMENN
Jan Hendrik Schon er lengst til vinstri á þessari mynd. Myndin var tekin árið 2000. Með
honum á myndinni eru félagar hans Christian Kloc og Bertram Batlogg. Schon þóttist hafa
sýnt fram á að hægt væri að nota lífræn efni í stað kísilkubba í tölvum. Möguleikarnir sem
það bauð upp á virtust óþrjótandi.
Er ævintýri líkast
AP
/B
EL
L
LA
B
S,
H
O
Vísindamaður staðinn að því að falsa niðurstöður tilrauna.
Starfsbræður höfðu dáðst að vinnubrögðum hans.
Héldu að hann fengi Nóbelsverðlaunin.
Þessar niður-
stöður var
hreinlega ekki
hægt að út-
skýra í ljósi
hefðbundinna
vísinda.