Fréttablaðið - 30.09.2002, Qupperneq 14
YOKO ONO
Vann fullan sigur á Seaman auk afsökunar-
beiðni. Getur hún fyrirgefið honum? Ono
rak Seaman árið 1983 eftir að hún komst
að því að hann væri byrjaður að ganga í
fötum eiginmanns síns.
Yoko Ono:
Nær sáttum
við fyrrum
aðstoðar-
mann
FÓLK Yoko Ono, ekkja bítilsins
John Lennon, náði sáttum við
Frederic Seaman fyrrum aðstoð-
armann þeirra hjóna áður en
dómur var kveðinn upp í málinu.
Hún hafði kært Seaman fyrir
brot á trúnaðarsáttmála sem
Seaman undirritaði við hjónin
þegar hann hóf störf hjá þeim
árið 1979. Þar með er 20 ára
gremju á milli Ono og Seaman
formlega lokið.
„Ég get á engan hátt afsakað
hegðun mína og get því aðeins
vonað að Yoko, John og Sean geti
fyrirgefið mér fyrir gjörðir mín-
ar,“ segir Seaman í fréttatilkynn-
ingu sem hann sendi frá sér eftir
að sættir náðust. „Eftir rúmlega
20 ár er kominn tími á afsökunar-
beiðni.“
Seaman lét Ono eftir einka-
réttinn af 374 ljósmyndum sem
hann tók af þeim hjónum á þeim
4 árum sem hann starfaði fyrir
þau. Hann verður líka að skila
öllum eignum Ono í hans vörslu
innan tíu daga.
Seaman gaf út bók um síðustu
ævidaga Lennons árið 1991.
Hann viðurkenndi í réttarsalnum
á miðvikudag að það hefði verið
ætlun hans allan þann tíma sem
hann starfaði fyrir hjónin.
14 30. september 2002 MÁNUDAGUR
THE SWEETEST THING kl. 8
LITLA LIRFAN - Stuttmynd 4 og 5
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4 og 6
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
K 19 kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40
Sýnd kl. 4.45, 7.30 og 10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
kl. 8SIGNS
kl. 6 og 8MAÐUR EINS OG ÉG
24 HOUR PARTY P. kl. 10.05
THE BOURNE IDENTITY 5.30, 8 og 10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
HAFIÐ kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT433LILO OG STITCH kl. 4 og 6
VIT
430
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 3.45 VIT429
SIGNS kl. 8 og 10.10 VIT427
PLUTO NASH kl. 4 VIT432
MAX KLEEBLE´S... 4, 6, 8 og 10.10 VIT441
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 435Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 427Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 436
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÓNLIST „Platan er náttúrulega al-
gjör snilld,“ segir bassaleikari
Ensíma, Guðni Finnsson með sín-
um ofur-yfirvegaða tón, um vænt-
anlega þriðju breiðskífu sveitar-
innar sem kemur í búðir þann 14.
október. „Hún er öll tekin upp í
okkar eigin hljóðveri sem heitir
Ástarsorg. Þar er okkar æfinga-
og vinnuaðstaða. Við erum búnir
að vera að taka hana upp með hlé-
um frá því í vor. Við hljóðblönd-
uðum hana í „Svörtu holunni“ hjá
Adda 800. Hún er að fara í fram-
leiðslu og við erum mjög sáttir
við árangurinn.“
Það er kannski ekki undarlegt
að Guðni skuli vera sérstaklega
ánægður með þessa skífu. Platan
er sú fyrsta sem hann leikur á
með sveitinni því hann gekk til
liðs við Ensíma skömmu eftir út-
gáfu plötunnar „BMX“ á árinu
1999.
„Ég held að nýja platan sé
frekar rökrétt framhald af „Kaf-
bátamúsík“ en „BMX“. Önnur
platan var unnin að hluta til af
Steve Albini og að hluta til af
Adda 800. Hún var því í sjálfu sér
ekki eins heilsteypt plata og hún
hefði geta orðið. Auk þess var hún
unnin í miklum flýti. Núna erum
við komnir aftur í það að blanda
saman raftónum og rokki.“
Ensími tók upp 15 lög fyrir
plötuna en tvö þeirra heltust úr
lestinni á leið þeirra á plast. Lag-
ið „Burstabær“ sem var afar vin-
sælt á Radíó X í sumar verður að
finna í nýrri útgáfu.
Lagið sem Ensími var að
hleypa í spilun heitir „Brighter“.
„Þetta er kannski poppaðasta lag
plötunnar. Við erum dálítið að
leika okkur með órafmögnuð
hljóðfæri eins og kassagítar og
kontrabassa. Í bland við forritan-
ir og rafmagnsgítara að sjálf-
sögðu. Þetta lag fer svolítið víða
en endar svo í sæmilegum
„grodda“. Rafmagnið tekur völd-
in í viðlögunum.“
Lagið er eins og platan öll
sungin á ensku. „Það var í raun-
inni ómeðvituð ákvörðun að
skipta. Lögin bara urðu til svona.
Það var tekinn upp prufusöngur á
ensku og stór hluti hans svo not-
aður. Við vildum síður vera að
blanda tungumálunum saman,“
segir Guðni að lokum.
biggi@frettabladid.is
kl. 10.10
FILMUNDUR
BATTLE ROYALE
ENSÍMI FARIÐ ÚT Á ÖLDUR LJÓSVAKANS
Þar sem Ensími hafa aftur fært sig nær raftónunum er ekki ólíklegt að sveitin bæti við sig hljómborðsleikara á næstunni. Það er þó
algjört leyndarmál hver það verður. „Hann kemur til með að leika með okkur á Airwaves. Við sjáum bara til hvort það virkar,“ út-
skýrir Guðni bassaleikari.
Rafmagnið tekur völdin í viðlögunum
Nýtt lag með hljómsveitinni Ensími er nú farið að kitla útvarpsbylgj-
urnar. Sveitin gefur út þriðju plötu sína, „Ensími“, um miðjan október.
TÓNLIST Björk Guðmundsdóttir
ætlar að gefa út DVD-disk 18.
nóvember næstkomandi með tón-
leikum sem hún hélt í Konung-
lega óperuhúsinu í London í
fyrra. Auk tónleikanna verður 30
mínútna aukaefni sem tekið var
upp á tónleikaferðalagi hennar
þegar hún kynnti plötuna
Vespertine. Útgáfu disksins var
seinkað vegna „tæknilegra örð-
ugleika“ án þess að það væri
skýrt frekar.
Tveimur vikum síðar kemur
út safndiskurinn Volumen 2 sem
inniheldur kynningarmyndbönd
og nýupptekið myndband af lag-
inu It¥s In Our Hands sem mun
brátt líta dagsins ljós. Safnið mun
einnig innihalda myndband við
lagið My Snare, frá 1997.
Kvartettinn Quarashi hefurfundið nýjan gítarleikara til
þess að leika undir hjá sér á
næstu tónleikaferð. Sá heitir
Franz Gunnars-
son og er gítar-
leikari Ensíma.
Lagt verður af
stað í ferðina 4.
október og kemur
hópurinn heim
fyrir Airwaves-
hátíðina. Þátttaka
Franz með sveit-
inni ætti því ekki að trufla starf-
semi Ensíma sem eru í þann
mund að gefa út þriðju breið-
skífu sína. Hvort Franz komi svo
til með að leika undir á tónleik-
um sveitarinnar í framtíðinni er
alveg óráðið.
Courtney Love, ekkja KurtCobains, söngvara Nirvana,
er við það að ná sáttum við
plötufyrirtækið
Universal. Fyrir-
tækið stefndi
söngkonunni og
sagði að sveit
hennar Hole
skuldaði sér
fimm plötur til
viðbótar. Love
stefndi því fyrir-
tækinu á móti og hélt því fram
að það skuldaði sér þúsundir
dollara í ógreidd höfundarlaun.
Réttarhöld í fyrra málinu eiga
samkvæmt áætlun að hefjast
eftir helgi en talað er um að búið
verði endanlega að ná sáttum
fyrir þann tíma. Talað er um að
hluti sáttmálans tryggi Love
endanlegt frelsi frá fyrirtækinu.
MarieFrederiks-
son, söngkona
sænsku
poppsveitarinnar
Roxette, þarf að
gangast undir
skurðaðgerð á
heila til þess að
fjarlægja æxli
Björk Guðmundsdóttir:
Gefur út DVD-disk
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
Ætlar að gefa út tvo diska í þar næsta
mánuði.
TÓNLIST
Það hlýtur að teljast gæða-stimpill þegar Dave Grohl,
fyrrum trommari Nirvana og
núverandi söngvari/gítarleikari
Foo Fighters, ákveður skyndi-
lega að ekkert sé mikilvægara
en að leika á trommur í hljóm-
sveitinni þinni. Í þessu lentu
liðsmenn Queens of the Stone
Age og var Grohl innleiddur
sem tímabundin liðsmaður
sveitarinnar á upptökum þriðju
breiðskífu þeirra „Songs for the
deaf“.
Útkoman er skotheld rokk-
skífa þar sem hvert grípandi
lagið á fætur öðru rennur í
gegn. Kröftugur trommusláttur
Grohls smellpassar við grípandi
rokkkróka QOTSA. Það er engu
líkara en að þátttaka Grohls hafi
verið vítamínssprauta í hljóm-
sveitina því spilagleðin er alls-
ráðandi. Adrenalínið hreinlega
rennur af plötunni. Platan á und-
an þessari, „R“, var einnig full
af slögurum en þessi virkar bet-
ur á mig sem heild. Þau lög sem
eru út úr kú er hent aftast undir
yfirskriftinni; „Hidden tracks“
þó svo að lítið sé gert til þess að
fela þau.
Það virðist vera að leiðin sé
upp fyrir sveitina Queens of the
stone age. Hér eru alvöru
töffarar að leika alvöru rokk.
Fullkomin plata fyrir föstu-
dags- eða laugardagskvöld.
Birgir Örn Steinarsson
Adrenalín fyrir
föstudagskvöld
QUEENS OF THE STONE AGE:
SONGS FOR THE DEAF