Fréttablaðið - 30.09.2002, Side 16

Fréttablaðið - 30.09.2002, Side 16
30. september 2002 MÁNUDAGUR HÖNNUN Listaháskóli Íslands var stofnaður árið 1999 þegar skól- inn yfirtók nemendur Mynd- lista- og handíðaskólans. Árið 2000 tók hann við leiklistar- kennslu og 2001 opnaði hönnun- ardeildin. Í ár urðu þau tímamót að kennsla í arkitektúr varð hluti af starfsemi deildarinnar sem heitir nú hönnunar- og arki- tektúrdeild. Halldór Gíslason, arkitekt, er forseti deildarinnar sem hefur að markmiði að skila hæfum hönnuðum með víðsýni yfir mörg ólík fagsvið þannig að þeir bindist ekki gagnrýnislaust á klafa hefðarinnar. Allir nemendur deildarinnar fara í gegnum sömu námskeiðin á fyrsta ári en námið greinist svo í þrjár brautir; arkitektúr, grafíska hönnun og vöruhönn- un. Arkitektúr, eða bygginga- list, er ný námsgrein hér á landi. Greinin var í upphafi skilgreind sem listin að reisa hús og fegra eftir ákveðnum reglum. Inntak fagsins hefur í seinni tíð orðið víðtækara og tekur til allrar mótunar mannsins á umhverfi sínu. Sérstaða greinarinnar felst í því að hún er eins konar brú á milli listar og tækni. Nemendur og kennarar í deildinni starfa hlið við hlið og skoða tísku, tíðaranda, tækni- lausnir, efni, listir og markað. Námskeiðin eru oftast stutt og fjöldi gestakennara kemur við sögu þannig að gagnrýni og skoðun verða virk samhliða sköpuninni. Það kraumar hressilega í þessum potti hjá þeim sem hafa lagt fyrir sig vöruhönnun sem greinist í textíl- og fatahönnun annars vegar og þrívíða hönnun hins vegar. Nemendur á öðru ári í textílhönnun taka alla jafna tveggja vikna námskeið og ljúka þeim með upphengingum þar sem verkin eru skoðuð, met- in og gagnrýnd. Á föstudag luku þau vinnu sinni með Suður- Kóreumanninum Kim Do Hyun. Hann starfar í París og lærði fagið í Frakklandi. LHÍ er fyrsti skólinn utan Frakklands sem hann heimsækir í þeim tilgangi að leiðbeina nemendum um það hvað er „inni og úti“, eins og hann orðar það sjálfur. „Ég þekki Lindu Björgu Árnadóttur, sem er umsjónarkennari í fata- og textílhönnun, og hún fékk mig til að koma hingað.“ Kim hefur hjálpað nemendum að átta sig á því hvað þau vilja segja í verkum sínum og hvern- ig best er að ná því fram. Í næstu viku hella þau sér svo út í heimspekilegar pælingar um efni og áhrif þeirra.  Listin að móta umhverfi mannsins Nemendur í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands læra allir það sama á fyrsta ári en greinast svo í ýmsar áttir. Markmið kennslunnar er þó alltaf að leiða til viðbragða í formi og efni sem höfða til samfélagsins. KIM DO HYUN Ásamt nemendum á öðru ári í fata- og textílhönnun. Hann segir vinnuna með krökkunum hafa verið mjög skemmtilega og hann er hæstánægður með árangurinn. HRÓLFUR KARL CELA Á fyrsta ári í arkitektúr: „Fólk er oft í þannig aðstöðu að það getur ekki stokkið beint til útlanda, þannig að það er mikill munur að geta tekið fyrstu 3 árin hérna heima og klára svo erlendis.“ FUNDIR 12.30 Anna Guðjónsdóttir listakona heldur fyrirlesturinn Gallerí fyrir landslagslist og Safn fjarlægra staða í stofu 24 í Listaháskóla Íslands í Lauganesi. 16.00 Nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum boðar til ráðstefnu með yfirskriftinni: Áhrif breyttrar kjördæmaskipunar á hlut kvenna á Alþingi. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu. SKEMMTUN 22.00 Haukur Sigurðsson heldur uppi- stand á Vídalínvið Ingólfstorg. SÝNINGAR Í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg er sýning á verkum Eero Lintusaari skart- gripahönnuðar og Harri Syrjanen gull- smiðs og leðursmiðs. Sýningin er opin mánudaga til föstudaga frá 10 til 18 og laugardaga frá 11 til 16 og lýkur 2. októ- ber. Margrét St. Hafsteinsdóttir er með myndlistarsýningu í kaffistofunni Lóu- hreiðri, Kjörgarði, Laugavegi 59, Reykjavík. Lóuhreiður er opið virka daga klukkan 10.00 - 17.00 og laugardaga klukkan 10.00 - 16.00. Sýningin stendur til 14. október. Austurríski ljósmyndarinn, Marielis Seyler sýnir í Listasal Man, Skólavörðustíg 14. Myndirnar á sýningunni voru teknar á Íslandi sumarið 2001. Þóra Þórisdóttir sýnir í Gallerí Hlemmur undir titlinum „Rauða tímabilið“ (“The red period“). Gallerí Hlemmur er í Þver- holti 5, Reykjavík. MYX Youth Artist Exchange sýnir í Gall- erí Tukt, Hinu húsinu. MYX Youth Artist Exchange er hópur ungra myndlistar- manna frá Bandaríkjunum og Íslandi. Á sýningunni gefur að lita verk sem þau unnu saman á Íslandi síðastliðið sumar út frá þemanu „landslag, fólk og menn- ing“. Sýningin Þrá augans - saga ljósmyndar- innar er í Listasafni Íslands. Sýningin lýsir þróunarskeiðum ljósmyndarinnar frá um 1840. Sýningin stendur til 3. október. Sýningin Rembrandt og samtíðarmenn hans; hollensk myndlist frá 17. öld er í Listasafninu á Akureyri. Sýning Kimmo Schroderus og Charlottu Mickelsson í Gallerí Skugga. Á jarðhæð, í aðalsal og bakatil, sýnir Kimmo skúplt- úra sem bera yfirskriftina „Tilfinningar“. Charlotte nefnir verk sitt í kjallara Gallerí Skugga „Kjallari“, en þar umbreytir hún rýminu með gagnsæjum gúmmíþráðum. MÁNUDAGURINN 30. SEPTEMBER FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FYRIRTÆKI TIL SÖLU LÍTIÐ SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ SÍÐUMÚLA 15 SÍMI: 588 5160 Gissur V. Kristjánsson hdl. og lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali BLÓMAKAFFI, stór og þekkt blómabúð með mjög vaxandi kaffihús í sama húsnæði HEILSUSTUDIO ÞEKKT OG VINSÆLT engrar sérþekkingar krafist, flott trygg af- koma. KAFFIHÚS TIL SÖLU EÐA LEIGU í góðri verslunar miðstöð, stórt hverfi EFNALAUG rótgróin mjög góð staðsetning , þarf að hressa við , verð aðeins 5 millj SÓLBAÐSTOFA, TEKJUR 10 millj , flott aðstaða, góð kjör, einfaldur rekstur verð 5 mill ÞEKKT SKOTVEIÐI HEILDSALA áratugi á markaðinum, verð 2 millj + lager 1,5 millj KAFFIHÚS á Laugavegi, kaffi,kökur,matur, vín, huggulegur staður í fínum rekstri. BÚSÁHALDAHEILDS þekkt merki , góð álagning, miklir möguleikar, fínt verð. SMURBRAUÐ OG VEISLUÞJÓNUSTA gott og velbúið húsnæði, mjög þekkt nafn SNYRTISTOFA – HÚÐMEÐFERÐIR stór- glæsileg stofa í 101 Rvk, gott verð BILLJARDSTOFA öflugur rekstur , með vínveitigar, ábyggilega vinsælasta stofan LISTKAFFI, SALATBAR, VEISLUÞJ öflug- ur staður með mikla möguleika VIDEO-GRILL-NAMMI-ÍS, mjög þekkt nafn, mikil velta, ekta fjölskyldufyrirtæki BÍLASALA Á AUSTURLANDI notað og nýtt, eigið húsnæði , áberandi staðsetning. VEISLUÞJÓNUSTA – VEITINGASALUR traustar tekjur, föst viðskipti, flottur staður HEILDV, með búnað og tæki fyrir verklegar framkvæmdir, 115 – 160 millj velta GRÍÐARLEGA ÞEKKT KVENFATAV. 100 % lánað besti tíminn framundan, MIKIL SALA – MIKIL SALA SÖLUSTJÓRI GUNNAR JÓN YNGVASON Skoðaðu heimasíðuna www.fyrirtaekjasala.is Það er dýrmætt fyrir unglinga að eiga val BORGARALEG FERMING 2002 • Skráning er í fullum gangi. • Upplýsingar á heimaslóð: www.sidmennt.is og í síma 567 7752, 557 3734, 553 0877. • Skráning í sömu símu, eða sidmennt@sidmennt.is • Boðið verða upp á aukanámskeið ætlað landsbyggðarfólki. Mörkinni 6, sími 588 5518. Síðustu dagar Yfirhafnir í úrvali Klassa stuttkápur 50% afsláttur Ullarkápur 50% afsláttur Fallegar vörur á kr. 2.000 FYRSTIR KOMA – FYRSTIR FÁ S T Ó R Ú T S A L A Opnið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. VETRARDEKK Engar tímapantanir. Komdu núna! REYKJAVÍK • AKUREYRIAB X / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.