Fréttablaðið - 30.09.2002, Qupperneq 21
SUMARÁST, HJARTA MITT BRANN...
John Travolta og Olivia Newton John syng-
ja hér lagið Sommer lovin í tilefni þess að
söngvamyndin Grease var gefin út á DVD.
Þau léku sem kunnugt er aðalhlutverkin.
Sýning um þróun kvenna:
Konum
meinaður
aðgangur
ENGLAND Listamaðurinn og gallerí-
eigandinn George Harrison í Sund-
erland á Englandi ætlar að halda
sýningu í október sem hann kallar
Konur í 40 ár, og á að sýna þróun
kvenna undanfarna fjóra áratugi.
Harrison ætlar að banna konum
aðgang að sýningunni af því hann
vill að karlmenn geti verið þar óá-
reittir og segir að eina leiðin til að
þeir fái að vera í friði sé að úthýsa
konum. Sýningin, sem opnar 26.
október, sýnir meðal annars konur
spila fótbolta, strippa og drekka
„stóra bjóra,“ sem enn þykir afar
ókvenlegt í Bretlandi. „Konur
verða æ karlmannlegri,“ segir
Harrison. „Ég veit að ég á eftir að
móðga margar konur, en mér er al-
veg sama. Ég á þetta gallerí og get
gert það sem mér sýnist.“ Konur í
Sunderland hafa lýst því yfir í við-
tali við BBC-útvarpsstöðina að
þær hafi engan áhuga á sýningu
Harrisons.
Moby:
Mótmælir aðgerðum
Bush gegn Írak
FÓLK Tónlistarmaðurinn Moby hefur
greint frá því á heimasíðu sinni að
hann styðji ekki aðgerðir Bush
Bandaríkjaforseta. Hann segist ein-
nig hafa óþægilegan grun um að
ástæður Bush fyrir innrás á Írak
séu af öðrum toga en forsetinn gef-
ur upp í fjölmiðlum.
„Mér finnst tímasetningin
óþægileg,“ skrifar hann á síðunni.
„Hún er óþægileg vegna væntan-
legra þing- og ríkisstjórakosninga.
Ef George W. er svona staðráðinn í
því að koma Saddam Hussein frá
völdum af hverju lagði hann ekki
áherslu á það fyrir ári? Af hverju
lagði hann ekki áherslu á það þegar
hann var að bjóða sig fram til for-
seta? Af hverju lagði hann ekki
áherslu á það þegar hann var ríkis-
stjóri Texas? Af hverju er hann
bara núna að einbeita sér að stríði
gegn Írak? Það að hann sé að gera
þetta rétt fyrir kosningar finnst
mér óþægilegt. Illska Saddams
Husseins hefur ekkert aukist á síð-
ustu mánuðum. Hún hefur ekkert
stigmagnast á þeim 20 árum sem
hann hefur verið við völd. Og að
ekki sé minnst á tengsl Bush og
Cheney við olíuiðnaðinn og þá stað-
reynd að í Írak eru fullt af óvirkjuð-
um olíuauðlindum.“ Moby er ekki
eina dægurhetjan sem notar frægð
sína til þess að mótmæla aðgerðum
gegn Írak. Damon Albarn, söngvari
Blur, og liðsmenn Massive Attack
hafa gert sitt til þess að vekja landa
sína til umhugsunar.
GOSI Á ÍTALÍU
Ítalski leikarinn Roberto Benigni fer með
hlutverk Gosa í samnefndri mynd. Þetta
veggspjald var kynnt á blaðamannfundi
síðastliðinn föstudag.
BUSH BANDARÍKJAFORSETI
Moby hefur alla tíð verið mikill andstæð-
ingur hans.
Calista Flockhart:
Herramenn
í útrýming-
arhættu
FRÆGA FÓLKIÐ Leikkonan Calista
Flockhart segist hafa fundið
mann drauma sinna í kærastanum
sínum honum
Harrison Ford.
Hún þvertekur
fyrir það að
hinn sextugi
Ford sé of gam-
all fyrir sig.
„Hann er alvöru
karlmaður á og
svoleiðis menn
eru í útrýming-
arhættu. Hann
er gáfaður,
fyndinn og ver-
aldarvanur, nú-
tíma Cary Gr-
ant.“ Hún heldur
svo lofræðunni áfram og segir:
„Hann var hasarhetjan mín og nú
er hann alvöru hetjan mín. Ég er
ótrúlega heppin. Hvaða kona sem
er myndi glöð vilja hafa hann upp
á arminn. Ég er ekki bara ham-
ingjusöm heldur þakklát líka.“
HARRISON FORD
Hefur heillað Ally
McBeal upp úr
skónum enda
herramaður af
gamla skólanum.