Fréttablaðið - 30.09.2002, Síða 23
23MÁNUDAGUR 30. september 2002
www.hagkaup.is
Kringlan - Skeifan - Smáralind
Loksins á Íslandi
Þjóðleikhúsið:
Stólaskipti í Veislunni
LEIKHÚS Sýningar á hinu vinsæla
leikriti Veislunni, sem byggt er á
dönsku kvikmyndinni Festen eftir
Thomas Vinterberg og Mogens
Rukov, hefjast að nýju á Smíða-
verkstæðinu fimmtudagskvöldið
26. september.
Veislan var frumsýnd í apríl á
liðnu leikári og uppselt var á allar
sýningar leikársins. Verkið gerist í
sextugsafmæli Helga þar sem ætt-
ingjar hans og vinir fagna tíma-
mótunum með viðhöfn. Þegar
veislan stendur sem hæst tekur at-
burðarásin skyndilega óvænta og
ógnvænlega stefnu. Leikið er við
stórt veisluborð og á hluti áhorf-
enda þess kost að sitja við borðið
og njóta þar þríréttaðrar veislu-
máltíðar.
Tvær breytingar hafa orðið á
hlutverkaskipan í Veslunni. Nanna
Kristín Magnúsdóttur tekur við
hlutverki Michelle af Maríu Páls-
dóttur og Baldur Trausti Hreinsson
tekur við hlutverki Lars af Friðriki
Friðrikssyni. Aðrir leikarar eru
Hilmir Snær Guðnason, Arnar
Jónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Rúnar Freyr Gíslason, Elva Ósk
Ólafsdóttir, Inga María Valdimars-
dóttir, Erlingur Gíslason, Þóra
Friðriksdóttir, Yapi Donatien
Achou, Kjartan Guðjónsson, Stefán
Jónsson og Brynhildur Guðjóns-
dóttir.
NANNA KRISTÍN OG BALDUR TRAUSTI
Leysa þau Maríu Pálsdóttur og Friðrik Friðriksson af í Veislunni í Þjóðleikhúsinu.
Arnold Schwarzenegger:
Vill ekki styttu af
Tortímandanum
KVIKMYNDIR Hinn stirði leikari,
Arnold Schwarzenegger, hefur
farið þess á leit við listamannahóp
að hann byggi ekki styttu af Tor-
tímandanum, úr mynd sem hann
lék eitt sinn í, í heimabæ sínum.
Hann biðlar til listamannanna að
eyða frekar peningunum í góð-
gerðarmál.
Listasafnið Forum Stadtpark
vill byggja 25 metra háa styttu,
sem kostar um 3 milljónir dollara,
miðsvæðis í borginni Graz í Aust-
urríki. Styttan á að halda á risa-
stórum hnetti. Angelika Reitzer,
framkvæmdastjóri safnsins, segir
að hún hafi fengið bréf frá
Schwarzenegger.
„Hann sagðist vera upp með
sér en vill frekar að peningunum
verði eytt í góðgerðarmál og í
Ólympíuleika fatlaðra,“ sagði
Reitzer.
Schwarzenegger er ekki eina
tröllið sem listahópurinn þarf að
glíma við því hann á eftir að fá
leyfi frá borgaryfirvöldum. „Eins
og staðan er nú segjast borgaryf-
irvöld ekki vera bjartsýn,“ sagði
framkvæmdastjórinn að lokum.
STYTTAN GÓÐA
Ekki er víst að styttan úr Tortímandanum
verði reist í Graz.
Fitness
saumalausu
líkamsræktarfötin
frá Oroblu
Í LIKAMSRÆKTINA
INGIBJÖRG OG ÓLAFUR
Fluttu verk Ólafs ásamt nemendum Öskjuhlíðarskóla.
TÓNLIST Ingibjörg Aldís Ólafsdótt-
ir sópransöngkona sótti krakkana
í Öskjuhlíðarskóla heim í vikunni
sem leið. Hún flutti verkin Tumi
og fjársjóðurinn og Töfratónar
ásamt nemendum skólans við
undirleik föður síns Ólafs B.
Ólafssonar, sem er höfundur
verkanna.
Þau feðginin heimsóttu einnig
grunnskóla Mosfellsbæjar og
fluttu Töfratóna. Við það tæki-
færi frumfluttu þau nýtt sönglag
um Mosfellsbæ sem einnig er eft-
ir Ólaf.
Feðgin á flakki:
Sungið með grunnskólabörnum