Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.09.2002, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 30.09.2002, Qupperneq 24
Einhver geggjaðasta hugmyndsem lengi hefur sést á prenti var sett fram í leiðara Fréttablaðsins í síðustu viku. Þar spyr ritstjórinn hvort við gætum séð fyrir okkur að byggja upp vestrænt lýðræðisþjóðfé- lag hér á landi, þjóðfélag sem ekki væri gegnsýrt af pólitísku poti, og baktjaldamakki, þjóðfélag þar sem ríkisforstjórar litu á almenning sem húsbændur sína en ekki stjórnmála- flokkana. Mann sundlar við þessa til- hugsun! ÍSLENDINGAR eru yngsta þjóð Evrópu. Mörg þúsund árum áður en ofbeldismennirnir Ingó og Leifur flýðu hingað eftir að hafa komist upp á kant við lögin með manndráp- um var fólk á Norðurlöndum búið að gera margvíslegar þjóðfélagstilraun- ir með hin ýmsustu lög- og löggæslu- kerfi, refsingasístem, lýðræði og harðræði og þar frameftir götunum. MEÐAN aðrar þjóðir bjuggu að ár- þúsunda þróun byrjuðu Íslendingar á núlli fyrir rúmum ellefu hundruð árum. Þetta fór ekki vel af stað held- ur hófst með blóðsúthellingum þegar Ingólfur fór og brytjaði niður fyrstu Vestmanneyingana sem höfðu lent í fyrstu kjaradeilu sögunnar við Hjör- Leif húsbónda sinn og haft af honum konuna eins og ferðamenn í Flug- leiðaauglýsingu. SAMT fór þetta allt betur en á horfðist. Kannski vegna þess að fyr- ir daga verðbréfa og þekkingariðn- aðar var landrými hið eftirsóknar- verða kapítal þessara tíma. Og það var til nóg landrými handa öllum, nema vitanlega þrælum og kven- fólki. Og allt hefur þetta þróast hægt og rólega í rétta átt. Menn geta gengið til náða án þess að eiga von á því að Sturla Sighvats eða Gizur Þor- valds ríði í hlað um nóttina og geldi þá og brenni ofan af þeim bæinn ef þeir nenna ekki að koma með í stríð. Núorðið eiga menn í hæsta lagi það á hættu að missa vinnuna ef þeir þóknast ekki höfðingjunum. Þetta er vitaskuld allnokkur framför. En þótt víkingarnir séu komnir með tölvur og gsm-síma í staðinn fyrir sverð og spjót eimir eftir af landnema- og gullgrafarastemmingunni þar sem vald og afl og auður má sín meira en lög og réttur. Ef til vill væri það framfaraspor að ganga í bandalag með lýðræðisþjóðum Evrópu. Hvað ungur nemur, gamall temur. SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Geggjuð hugmynd! Bakþankar Þráins Bertelssonar Opi› alla daga frá 10.00 til 17.00

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.