Fréttablaðið - 02.11.2002, Qupperneq 1
bls. 22
VIÐSKIPTI
Smæð
markaðar kallar
á eftirlit
bls. 11
BANDARÍKIN
Hamast
í kosninga-
baráttu
bls. 6
LAUGARDAGUR
217. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 2. nóvember 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 10
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Fjölskyldu-
hátíð skáta
HÁTÍÐ Bandalag íslenskra skáta efn-
ir í dag til fjölskylduhátíðar í Laug-
ardalshöll í tilefni 90 ára afmæli fé-
lagsins. Allir eru velkomnir í af-
mælið.
Laugardagsfundur
um Írak
FUNDUR Vinstri grænir halda opinn
fund á Torginu, Hafnarstræti 20
um Írak og þá atburði sem þar eiga
sér stað um þessar mundir. Fundur-
inn hefst klukkan 11. Frummælend-
ur verða Elías Davíðsson og Stefán
Pálsson.
Upplestur úr
barnabókum
OPNUN Ný barna- og unglingadeild
verður opnuð í bókabúð Máls og
menningar Laugavegi 18 klukkan
tíu. Af því tilefni verður lesið upp
úr nýjum barna- og unglingabókum
á klukkutíma fresti allan daginn.
Orgel í
Akureyrarkirkju
TÓNLEIKAR Björn Steinar Sólbergs-
son organisti heldur hádegistón-
leika í Akureyrarkirkju. Á efnis-
skrá eru verk eftir Pál Ísólfsson og
Sigfried Karg-Elert. Tónleikarnir
hefjast klukkan tólf.
AFMÆLI
Mistök fyrir
framan alþjóð
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Stjórn Íbúða-
lánasjóðs hefur farið fram á það
við Ríkisendurskoðun að hún taki
út verklag og meðferð mála innan
Íbúðalánasjóðs. Ákvörðunin var
tekinn á stjórnarfundi í gær þar
sem rætt var um mál eiganda
Fasteignasölunnar Holts, sem
játað hefur 80 milljóna króna
með því að falsa fasteignaveð-
bréf.
Ákveðið hefur verið að kanna
öll viðskipti fasteignasölunnar
hjá sjóðnum með tilliti til þess
hvort framsal á fasteignaveðbréf-
um sem skipt hafi verið fyrir hús-
bréf hafi verið rangt eða ófull-
nægjandi,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá stjórninni. „Íbúðalána-
sjóður mun rannsaka sérstaklega,
með aðstoð sjálfstætt starfandi
lögmanns, hvort um bótaskyldu
sjóðsins sé að ræða í þeim tilvik-
um. Sé svo mun sjóðurinn bæta
það tjón sem viðskiptavinurinn
hefur sannanlega orðið fyrir.“
nánar bls. 2
Stjórn Íbúðalánasjóðs fjallar um milljónasvik fasteignasala:
Ríkisendurskoðun kannar
verklag stofnunarinnar
MÖRÐUR ÁRNASON OG SAMSTARFSFÓLK Íslenska orðabókin er tæpar 1.900 blaðsíður og er hún um 600 blaðsíðum stærri en út-
gáfan frá 1983 og þar er að finna yfir fimm þúsund ný orð eða alls um níutíu þúsund uppflettiorð. Meðal þeirra orða sem birtast nú í
fyrsta skipti í bókinni eru farsími, netþjónn og salsasósa.
REYKJAVÍK Suðaustan
5-10 m/s og smáskúrir.
Hiti 3 til 7 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
BANKASALA Einn stærsti banki Evr-
ópu, franski bankinn Société
Générale, tekur þátt í fjármögnun
S-hópsins ef af kaupum hans á
Búnaðarbankanum
verður. Bankinn vill
kaupa milli 10 og
12% í bankanum.
Gera má ráð fyrir
að verðið fyrir þann
hlut sé um þrír
milljarðar króna.
Bankinn vann með
S-hópnum að tilboðinu og kemur að
fjármögnun kaupanna. Gengi til-
boðs S-hópsins er 4,2 til 4,7 sem
þýðir að verðið er 10 - 12 milljarð-
ar fyrir 46,6% hlut í bankanum.
Gengið í tilboðinu er á sama bili og
viðskipti með bréf í bankanum
hafa verið á í Kauphöll Íslands síð-
astliðið ár. Kaldbakur sendi einnig
inn verðtilboð sem er lægra. Verð í
bankann segir ekki alla söguna.
Kaldbakur bauð hæsta verðið við
sölu Landsbankans.
Vátryggingafélag Íslands sem
S-hópurinn keypti af Landsbank-
anum bættist í hópinn. Fyrir eru í
hópnum Eignarhaldsfélagið And-
vaka, Eignarhaldsfélagið Sam-
vinnutryggingar, Fiskiðjan Skag-
firðingur hf., Kaupfélag Skagfirð-
inga svf., Ker hf., Samskip hf. og
Samvinnulífeyrissjóðurinn. Með
beinum kaupum bankans er staða
S-hópsins orðin verulega sterkari.
Yfirgnæfandi líkur er því á
þessari stundu að einkavæðingar-
nefnd ákveði að selja S-hópnum
bankann. Margir töldu að kaupum
S-hópsins fylgdi skuldsetning sem
væri á mörkum hins skynsam-
lega. Þátttaka franska bankans er
viðurkenning fyrir fjárhagslega
burði S-hópsins.
Innan S-hópsins er það metið
svo að staða þeirra sé sterk. Kald-
baksmenn gerðu lægra tilboð. Lík-
legt er að þeir hafi gert sér grein
fyrir því að S-hópurinn byði
hærra verð. Kaldbakur var fyrir-
fram tvístígandi um hvort hugur
fylgdi máli hjá einkavæðingar-
nefnd. Degi áður en átti að skila
inn upplýsingum voru þeir ekki
ákveðnir hvort þeir myndu halda
áfram í ferlinu.
Verði niðurstaðan sú, eins og
allt bendir til að S-hópurinn kaupi
bankann er hópurinn sem tengdist
Gildingu lokaður inni með áhrifa-
lausan minnihluta í bankanum.
Kaup Gildingarhópsins olli hækk-
unum á gengi bréfa bankans.
Þessi niðurstaða yrði hópnum
nokkurt áfall.
haflidi@frettabladid.is
Frakkar kaupa í
Búnaðarbanka
S-hópurinn býður hærra verð í Búnaðarbankann en Kaldbakur. Hópurinn nýtur liðsinnis eins
af stærstu bönkum Evrópu. Sá ætlar sér fjórðung af hlut ríkisins að verðmæti um þrír milljarðar
króna. Yfirgnæfandi líkur eru á kaupum S-hópsins. Gildingarhópurinn lokast inni með áhrifa-
lausan minnihluta.
Þátttaka frans-
ka bankans er
viðurkenning
fyrir fjárhags-
lega burði S-
hópsins.
Íslenska orðabókin:
Ný og bætt
endurútgáfa
BÆKUR Edda gaf í gær út aukna og
endurbætta útgáfu Íslenskrar
orðabókar. Bókin byggir á langri
hefð en hún kom fyrst út hjá
Menningarsjóði árið 1963.
Mörður Árnason ritstýrði nýju
útgáfunni sem er í tveimur bind-
um enda hefur bæst við mikill fjöl-
di orða auk þess sem skýringar
hafa verið bættar og dæmum
fjölgað.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, tók við fyrsta eintakinu úr
hendi ritstjórans og lét þess getið
að forveri bókarinnar hafi reynst
sér „trúföst fylgikona“ og hún
væri orðin býsna slitin þó hann
hafi þó aldrei slegið neinn í höfuð-
ið með henni.
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 0
Akureyri 5-10 Léttskýjað 6
Egilsstaðir 5-10 Léttskýjað 6
Vestmannaeyjar 5-10 Skúrir 6
➜
➜
➜
➜
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
27%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu?
57%
72%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI