Fréttablaðið - 02.11.2002, Page 2
2 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
SAN GIULIANO DI PUGLIA, AP Á Ítalíu
var í gær leitað fram eftir öllum
degi í rústum grunnskóla, sem
hrundi í jarðskjálfta á fimmtu-
dagsmorgun.
Staðfest var í gær að 27 manns
hefðu látist af völdum jarð-
skjálftans í þorpinu San Giuliano
di Puglia. Þar af voru 23 börn og
tveir kennarar í skólanum og
tvær eldri konur sem bjuggu
skammt frá. Talið var að tvö börn
væru enn í rústunum, að öllum
líkindum látin. Síðast var níu ára
dreng bjargað á lífi út úr skólan-
um stuttu fyrir dagrenningu í
gær.
Þegar jarðskjálftinn varð voru
56 börn í skólanum ásamt fjórum
kennurum og tveimur húsvörð-
um. Flest þau börn sem lifðu af
voru úti í skólagarðinum til þess
að halda upp á hrekkjavöku,
bandarískan sið sem jafnt og þétt
er að ná fótfestu á Ítalíu.
Einn björgunarstarfsmanna
segir að flest látnu börnin hafi
setið við borðin sín þegar þakið
hrundi ofan á þau.
Einn kennaranna, Clementina
Simone, vildi fara aftur inn í
skólann til þess að hjálpa við
björgunarstörfin strax eftir að
henni hafði verið komið út. „Mér
var sagt að ég hefði misst alla níu
nemendurna mína í fyrsta bekk,“
sagði hún.
Nærri 30 manns fórust í
jarðskjálftanum á Ítalíu:
Heill ár-
gangur
barna lést
CostGo svikahrappur:
Dæmdur
fangelsi
DÓMSMÁL Goði Jóhann Gunnarsson
hefur verið dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir fjársvik. Goði greid-
di í apríl í fyrra tæplega 490 þús-
und króna reikning sinn hjá Byko
með ávísun sem hann skrifaði und-
ir með bleki sem var horfið eftir
þrjá daga. Byko-greiðslukort sitt
notaði Goði til að kaupa raftæki í
Elkó.
Í nóvember í fyrra blekkti Goði
85 manns til að greiða sér samtals
450 þúsund krónur í trú um við-
skipti með lygilega ódýr raftæki.
Goði auglýsti rafmagnsvörurnar
með heilsíðuauglýsingu í Frétta-
blaðinu í fyrra. Viðskiptavinir áttu
að panta í gegn um síma og greiða
5 þúsund króna pöntunargjald fyr-
irfram hjá fyrirtækinu CostGo.
Framkvæmdastjóri símasvör-
unarfyrirtækis sem Goða gerði
samning við lýsti ástandinu þannig
að „hún hefði þurft að kalla út
aukamannskap til að sinna þessu
verki þar sem mikið hefði verið
hringt.“
Meðal þeirra sem bitu á agn
svikahrappsins voru verkakona,
öryggisvörður, innkaupafulltrúi og
flugfreyja . En Goði átti engin raf-
tæki: „Við rannsókn lögreglu fund-
ust engin merki um samskipti við
aðila vegna hugsanlegra vöru-
kaupa erlendis frá,“ segir Héraðs-
dómur Reykjavíkur.
„Viðskiptavinir“ CostGo fengu
síðar endurgreitt að stærstum
hluta.
Magnús Þorsteinsson fer fyrir hópi fjárfesta sem kaupa í Atlanta:
Kaupin breyta ekki starfsemi félagsins
VIÐSKIPTI Magnús Þorsteinsson
einn kaupenda Landsbanka Ís-
lands fer fyrir hópi fjárfesta sem
keypti í gær 22,73% hlut í flugfé-
laginu Atlanta. Félagið sem Magn-
ús er í forsvari fyrir heitir Pilot
Investors Ltd og er skráð í Lux-
emburg. Pilot Investors keypti
hlut Búnaðarbanka og sjóða
tengdum bankanum. Einnig var
ákveðið að hlutafjáraukning muni
fara fram sem Pilot Investors
kaupa. Eftir viðskiptin er Atlanta
um það bil helminga í eigu Pilot
Investors og hjónanna Arngríms
Jóhannssonar og Þóru Guðmunds-
dóttur.
Staðan var kynnt fyrir starfs-
mönnum Atlanta í gær. Magnús
segir að félagið sé karftmikið og
búi að góðu starfsfólki. Ekki séu
ráðgerðar breytingar á yfirstjórn
eða starfsemi félagsins.
Atlanta var stofnað af Arn-
grími Jóhannssyni og Þóru Guð-
mundóttur fyrir sextán árum. Fé-
lagið hefur vaxið mjög hratt og
var velta þess um 20 milljarðar á
síðasta ári.
Hugmyndir nýrra kaupenda
eru að þau hjón verði áfram við
stjórn fyrirtækisins. Stjórnendur
félagsins hafa yfirburðar þekk-
ingu á rekstri leiguflugfélags.
Fyrirtækið brást hratt við sam-
drætti í greininni í kjölfar atburð-
anna 11. september og hefur
reksturinn gengið ágætlega þessu
ári.
Samningsaðilar vildu ekki gefa
upp verð. Í fréttum DV og Ríkis-
útvarpsins var talað um að verð
fyrir helmings hlut sé 2,5 millj-
arðar. Samkvæmt því mun Búnað-
arbankinn hagnast töluvert á við-
skiptunum. Atlanta var metið á
helmingi lægri upphæð þegar
bankinn keypti í því fyrir þremur
árum.
Sándor Pál:
Byrjaður að
borða
FLÓTTAMAÐUR Rúmeninn Sándor
Pál hefur hætt hungurverkfallinu
sem stóð yfir í þrjátíu og einn dag.
Þórir Guðmundsson upplýsingar-
fulltrúi Rauða Kross Íslands segir
Sándor hafa skrifað undir yfirlýs-
ingu í gærdag
þess efnis að
hætta hungur-
verkfallinu og
þiggja læknisað-
stoð. Búið er að
flytja Sándor á
s j ú k r a h ó t e l
Rauða krossins á
R a u ð a r á r s t í g
þar sem hann
hefur verið und-
ir eftirliti hjúkr-
unarfræðinga.
Sándor Pál hitti fulltrúa Út-
lendingaeftirlitsins í gær og er
mál hans enn til skoðunar.
Ólöglegt samráð græn-
metisfyrirtækja:
Sektir
lækkaðar
DÓMSMÁL Sölufélag garðyrkju-
manna, Bananar hf. (áður Ágæti
hf.) og Mata hf. voru í gær dæmd
í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
ólöglegt samráð á grænmetis-
markaði.
Með dómi héraðsdóms er stað-
festur úrskurður Samkeppnis-
ráðs og síðar niðurstaða áfrýjun-
arnefndar samkeppnismála.
Sektir sem fyrirtækjunum er
gert að greiða hafa hins vegar
lækkað verulega frá því í úr-
skurði Samkeppnisráðs. Hann
kvað á um samtals 105 milljónir.
Áfrýjunarnefndin lækkaði sekt-
irnar í 47 milljónir. Dómur hér-
aðsdóms kveður á um samtals 37
milljónir í sekt.
Glæpur skekur
Íbúðalánasjóð
Lögreglan reynir að klófesta peninga í milljónasvikamáli fasteignasala.
Ekki enn vitað í hvað peningarnir fóru. Íbúðalánasjóður skoðar um 100
fasteignaveðbréf. Svikin er misaugljós segir sérfræðingur hjá stofnun-
inni.
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild
lögreglunnar er að rannsaka
hvert þær 80 milljónir króna fóru,
sem eigandi Fasteignasölunnar
Holts sveik frá kaupendum. Holt
var úrskurðað gjaldþrota í Hér-
aðsdómi Reykjaness í fyrradag.
„Við erum að athuga hvort það
séu einhversstaðar peningar sem
hægt er að klófesta til að hafa upp
í þessar kröfur,“ segir Jón H.
Snorrason, yfirmanns deildarinn-
ar. „Það er full snemmt að segja
nokkuð til um að hvort það tekst.
Verið er að yfirheyra og taka
skýrslur af fólki, en það er ekkert
sem bendir til þess að aðrir en
eigandinn séu viðriðnir málið.
Ómögulegt er að segja hvað þessi
rannsókn mun taka langan tíma.“
Jón segir að lögreglan hafi ekki
enn áttað sig á því í hvað pening-
arnir hafi farið. Jafnvel var talið
að fjármunirnir hefðu farið í
rekstur fyrirtækisins, en nú hefur
komið í ljós að það skuldar opin-
ber gjöld, húsaleigu og laun.
Íbúðalánasjóður er að skoða
tæplega 100 fasteignaveðbréf
sem framseld hafa verið af Fast-
eignasölunni Holti og eiganda
hennar síðasta árið að sögn Halls
Magnússonar, sérfræðings hjá
Íbúðalánasjóði. Jón H. Snorrason,
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra, sagði að verið
væri að reyna að upplýsa það
hvert þessir peningar hefðu farið.
„Þessi svik eru misaugljós,“
segir Hallur. „Við erum að tala um
svona 10 til 12 bréf eins og staðan
er í dag, en við erum ekki búnir að
fara yfir þetta allt. Svikin eru
tvenns konar. Annars vegar fékk
fasteignasalinn fólk til að fram-
selja honum bréfin á fullkomlega
eðlilegan hátt til þess að ganga frá
öðrum lausum endum tengdum
fasteignaviðskiptunum. Hann hef-
ur síðan ekki gert það heldur not-
að fjármunina í eitthvað annað.
Þetta er mjög algengt í fasteigna-
viðskiptum og Félag fasteignasala
hefur haft áhyggjur af þessu
mjög lengi. Hins vegar hefur ver-
ið fiktað við bréf og framsalið
falsað eftir þinglýsingu.“
Hallur segir að í sumum tilfell-
um hafi hann greitt fólki kannski
tveimur mánuðum of seint. Þetta
hafi verið eins og keðjubréf og
sprungið allt framan í hann þegar
hann náði ekki lengur að bjarga
sér fyrir horn.
„Í fyrstu var það mat manna að
ekki væri um beina fölsun að
ræða heldur handvömm við af-
greiðslu bréfanna sem félli innan
eðlilegra marka.“
trausti@frettabladid.is
HARMLEIKUR Á ÍTALÍU
Íbúar í þorpinu San Giuliano di Puglia voru harmi slegnir í gær. Þak grunnskólans í þorp-
inu hrundi í jarðskjálfta á fimmtudagsmorgun.
AP
/G
R
EG
O
R
IO
B
O
RG
IA
FASTEIGNASALAN HOLT Í GÆRMORGUN
Héraðsdómur Reykjanes úrskurðaði Holt gjaldþrota í fyrradag. Í gærmorgun voru skipta-
stjóri og fulltrúar frá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra mættir á staðinn ásamt starfs-
manni til að fara yfir gögn.
SAMNINGUM LOKIÐ
Flugfélagið Atlanta hefur verið í meiri-
hlutaeigu Arngríms Jóhannssonar og
Þóru Guðmundsdóttur í sextán ár.
„Nei. Ég hafði vit á því að koma þar hvergi
nærri enda reyndi enginn að svíkja þessi
bréf inn á mig og hefði ekki tekist.“
Sverrir Hermannsson hefur lagt fram þingsályktun-
artillögu þess efnis að skipuð verði nefnd til að
rannsaka umsvif deCODE og aðstoðarmanna fyrir-
tækisins í íslensku fjármálakerfi.
SPURNING DAGSINS
Átt þú bréf í deCODE?
SÁNDOR PÁL
Var í hungurverk-
falli í 31 dag
ERLENT
ENGAR BREYTINGAR Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, segist
ekki ætla að breyta stefnu stjórn-
ar sinnar þótt hann neyðist til þess
að fá litlu harðlínuflokkana til liðs
við sig. Í gær bauð hann einum
helsta andstæðingi sínum innan
Likudflokksins, Benjamín Net-
anyahu fyrrverandi forsætisráð-
herra, utanríkisráðherrastól.