Fréttablaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 4
4 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
Læknadeila:
Ungir læknar öskureiðir
DEILA Oddur Steinarsson for-
maður Félags ungra lækna seg-
ir félagsmenn vera öskureiða
með úrskurð kjaranefndar. Þeir
hafi haft samband við Guðrúnu
Zoega og óskað eftir útskýring-
um. „Okkur sýnist að við mun-
um lækka í launum í mörgum
tilfellum og getum alls ekki
sætt okkur við það,“ segir Odd-
ur.
Unglæknar segja að sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
þeir hafi undir höndum hafi
ungir læknar, sem starfa í
heilsugæslunni, allir lækkað í
launum eftir úrskurð kjara-
nefndar. Fullyrðingar heilbrigð-
isráðuneytisins um að enginn
hafi lækkað í launum séu því
fyrir neðan allar hellur. Dæmi
eru um allt að 35% launalækkun
hjá ungum læknum starfandi á
heilsugæslunni.
Læknarnir krefjast þess að
heilbrigðisráðuneytið upplýsi
hvernig það geti staðið við slíka
fullyrðingu, þar sem ljóst sé að
hún á ekki við um unga lækna í
heilsugæslu. Þessi úrskurður
kjaranefndar mun verða til þess
að ungir læknar ráði sig enn síð-
ur í vinnu í heilsugæslu á Ís-
landi.
SÆTTA SIG EKKI VIÐ LAUNALÆKKUN
Ungir læknar segjast lækka um allt að 35
prósent með úrskurði kjaranefndar.
Lífeyrisgreiðslur:
Ríkið dýrt
á fóðrum
FÉLAGSMÁL „Við erum í raun að
borga beint úr lífeyrissjóðnum í rík-
issjóð,“ segir Guðmundur Gunnars-
son, formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins, og segir fjármálaráð-
herra seilast í vasa lífeyrisþega.
Guðmundur segir reynsluna af
hækkun lífeyrisgreiðslna Lífiðnar
þá að ríkið taki stærstan hluta hen-
nar til sín. Ríkið hirði 5.800 krónur í
skatta af 15.000 króna hækkun og
tekjutrygging lækki um 6.800 krón-
ur. Eftir standi 2.400 krónur sem líf-
eyrisþeginn fái. Menn velti því fyr-
ir sér hvort ekki sé rétt að breyta
kerfinu svo áhersla verði lögð á þá
sem minna mega sín.
RÍKISSJÓNVARPIÐ
Framkvæmdastjórinn fær aðstoð.
Framkvæmdastjóri
Ríkissjónvarpsins:
Fær aðstoð-
armann ráð-
herra í vinnu
STJÓRNMÁL Jóhanna María Eyjólfs-
dóttir, fyrrum aðstoðarmaður
Björns Bjarnasonar er hann var
menntamálaráðherra, hefur verið
ráðin aðstoðarmaður Bjarna Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Ríkissjónvarpsins. Hefur Jóhanna
María þegar hafið störf á skrif-
stofu framkvæmdastjórans en að
auki er henni gert að vinna við
menningarþáttinn Mósaik að
hluta. Jóhanna María lét af störf-
um sem aðstoðarmaður ráðherra
eftir að Björn Bjarnason sagði af
sér ráðherradómi og tók slaginn
um borgina.
MIKILL SAMDRÁTTUR Talsverður
samdráttur hefur verið í veltu
stórra og meðalstórra iðnfyrir-
tækja á árinu. Samdrátturinn
nemur 7% að raunvirði, þannig
að segja má að 14. hver króna
hafi tapast. Samdrátturinn hefur
verið mestur í byggingastarf-
semi, jarðvinnu og upplýsinga-
tækni. Horfur eru þó taldar
bjartar og útlit fyrir tveggja pró-
senta veltuaukningu næsta árið,
mesta í upplýsingatækni og pren-
ti að því er fram kemur í könnun
Samtaka iðnaðarins.
IÐNAÐUR
Áhrif Evrópukosningarinnar
Deilur risu um framkvæmd Evrópukosningar Samfylkingar áður en atkvæði voru greidd. Fréttablaðið leitaði til stjórnmálamanna
og fræðimanna eftir áliti þeirra á því hver yrðu áhrif kosningarinnar og niðurstöður hennar.
Gunnar Helgi
Kristinsson, stjórn-
málafræðingur:
Skapar
vígstöðu
„Þetta er því leytinu til
gott fyrir Samfylkinguna
að ég tel að það sé breiður
s t u ð n i n g u r
við þetta mál
innan flokks-
ins og meðal
s t u ð n i n g s -
manna hans.
Auðvitað eru
aldrei allir sammála.
Kannanir hafa sýnt að töl-
vert stór hluti stuðnings-
manna Samfylkingarinnar
er á þessari skoðun. Þetta
sameinar töluverðan hluta
af flokknum og skapar
honum ákveðna sérstöðu.
Samfylkingin kemst í eld-
línuna í stjórnmálaum-
ræðunni og svo fremi sem
málið sjálft reynist þeim
ekki vonlaust, þá hjálpar
það þeim í kosningum. Að
vera sá sem brýtur á. Svo
fremi að þeim takist að
verja málið sjálft, þá ætti
kosningin að geta skapað
þeim vígstöðu. Þátttakan í
kosningunum er í sam-
ræmi við reynslu af kosn-
ingum af þessu tagi. Það
má nefna að í þjóðarat-
kvæðagreiðslum í Sviss er
kosningaþátttaka um
40%.“
Lúðvík Bergvins-
son, Samfylking-
unni:
Styrkir
flokkinn
„Ákvörðun flokksins að
fara þá leið að leita eftir
afstöðu hins almenna fé-
l a g s m a n n s
hlýtur að
styrkja flokk-
inn til lengri
tíma litið. Það
hlýtur að
skipta máli að
flokksmenn finni að af-
staða þeirra skipti máli.
Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskur stjórnmála-
flokkur fer þessa leið og
verður því að líta á þetta
sem tilraun. Það að um
3.000 manns taki þátt í
þessari tilraun segir okkur
að þessi leið mun verða
farin í auknu mæli.“
„Það að flokkurinn
leggi áherslu sína á að
leita eftir því að sækja um
aðild að ESB skerpir línur
í íslenskri pólitík og hlýtur
að skerpa umræðuna um
sambandið. Hvort það hafi
einhver áhrif á stjórnar-
myndunarviðræður eftir
kosningar skal ósagt látið,
en úrslit þeirra hljóta að
ráða miklu í slíkum við-
ræðum.“
Magnús Stefáns-
son, Framsóknar-
flokki:
Áhrif á
umræðu
„Ég tel að þessi at-
kvæðagreiðsla hafi ekki
mikil áhrif á stöðu Sam-
fylkingarinn-
ar þó þátttak-
an hafi ekki
verið meira
en þetta. Það
er ljóst að
Samfylkingin
mun skerpa á sínum
áherslum í þessu máli í
umræðunni. Að því leyti
hefur þetta mikil áhrif á
umræðuna að einn flokkur
taki þessa afstöðu.“
„Það er ómögulegt að
segja nú hvort þetta hafi
einhver áhrif á möguleika
til stjórnarsamstarfs eftir
kosningar. Þegar menn
mynda ríkisstjórnir fara
menn yfir sviðið og skoða
hvort þeir nái saman um
málefni. Svo er auðvitað
óljóst hverjir eiga mögu-
leika á að mynda ríkis-
stjórnir.“
„Við ræðum þessi mál á
flokksþingi okkar. Það er
erfitt að sjá fyrir núna hvort
þetta hefur þau áhrif að
Samfylking og Framsóknar-
flokkur nálgast eða hvort
þeir fjarlægist hreinlega.“
Baldur Þórhallsson,
stjórnmálafræðing-
ur:
Sóknar-
færi
„Þetta markar Sam-
fylkingunni ákveðna sér-
stöðu. Hún hefur verið
sökuð um það
að vera með
óskýra stefnu
í mörgum
málum. Þarna
kveður hún á
um það, fyrst
stjórnmálaflokka, að
sækja skuli um aðild að
Evrópusambandinu. Þetta
gefur Samfylkingunni
ákveðin sóknarfæri, því
skoðanakannanir hafa
sýnt að 30 - 60% þjóðar-
innar vilja sækja um aðild.
Hún gæti því höggvið í
raðir sjálfstæðis- og fram-
sóknarmanna. Hins vegar
skapar þetta líka ákveðnar
hættur ef ekki verður
haldið vel á spilunum. Ef
Samfylkingin setur aðild á
oddinn, heldur illa á spil-
unum og Framsóknar-
flokkurinn tekur upp svip-
aða stefnu og Sjálfstæðis-
flokkur og Vinstri-grænir,
þá getur það leitt til ein-
angrunar Samfylkingar-
innar í íslenskum stjórn-
málum.“
Lára Margrét Ragn-
arsdóttir, Sjálfstæð-
isflokki:
Ræðst af
framhaldi
„Ég hefði búist við að
það yrði afdráttarlausari
stuðningur við sjónarmið
forystunnar
miðað við
hvernig málið
var lagt fyrir
en við vitum
að oft og tíð-
um er þátt-
taka í svona könnunum
ekki mikil.“
„Hvaða áhrif þetta hef-
ur á stöðu Samfylkingar
og samstarf við aðra
flokka fer svo allt eftir því
hvernig forystan velur að
halda á málinu. Það er
ómögulegt að segja til um
hvað gerist eftir kosning-
ar. Það fer eftir því hvaða
áherslu forysta Samfylk-
ingar leggur á þetta í
kosningabaráttunni og
hvernig hún leggur þetta
fram.“
LÍÚ Rekstur Stýrimannaskólans í
Reykjavík og Vélskóla íslands
verður falinn einkahlutafélagi.
Undirbúningur hefur staðið allt
þetta ár og mun einkahlutafélagið
Menntafélagið undirrita samning
við menntamálaráðuneytið um
rekstur skólanna til 5 ára. Að
Menntafélaginu standa Landssam-
band Íslenskra útvegsmanna,
Samband kaupskipaútgerða og
Samorka, samtök orkufyrirtækja.
Forystumenn Farmanna- og fiski-
mannasambandsins og Vélstjóra-
félags Íslands hafa verið upplýstir
um gang þessa máls og gert er ráð
fyrir að þeir sitji í stjórn félagsins
auk fulltrúa frá fyrrgreindum
samtökum. Fyrir liggur fullgerður
samningur um þetta efni og bíður
hann nú undirritunar.
Þjónustusamningur SÁÁ:
Föst framlög
HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson
og forsvarsmenn SÁÁ hafa undir-
ritað þjónustusamning um starf-
semi sjúkrasviðs SÁÁ.
Þjónustusamningurinn byggist
meðal annars á heilbrigðisáætlun
til ársins 2010 þar sem sett eru til-
tekin markmið.
Landlæknir og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið sinna
faglegu eftirliti með starfseminni.
Ríkisendurskoðun skal gera fjár-
hagsendurskoðun á allri starfsem-
inni sem samningurinn tekur til og
getur gert stjórnsýsluendurskoð-
un ef ástæða er til.
Samningurinn er fyrsti sinnar
tegundar sem SÁÁ gerir við ríkið.
SJÓMANNASKÓLINN
Einkahlutafélag tekur yfir rekstur skólans.
Stýrimannaskólinn og Vélskólinn:
Menntafélagið
tekur við rekstrinum VOGURStarfsemin tryggð næstu árin.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Á að herða eftirlit með
fasteignasölum?
Spurning dagsins í dag:
Eru jólaskreytingar í búðum of
snemma á ferðinni?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Já
EFTIRLIT ER
NAUÐSYNLEGT
Langflestir telja
hert eftirlit með
fasteignasölum
bráðnauðsynlegt
Nei 10,9%
89,1%