Fréttablaðið - 02.11.2002, Page 6
KOSNINGAR Í BANDARÍKJUNUM Í kosn-
ingunum á þriðjudaginn ræðst
hvort repúblikanar eða demókrat-
ar hafa meirihluta á Bandaríkja-
þingi seinni helminginn af fjög-
urra ára kjörtímabili George W.
Bush forseta. Nái demókratar
meirihluta í báðum þingdeildum
má búast við að þeir snúist af al-
efli gegn stefnu forsetans bæði í
efnahagsmálum og utanríkismál-
um.
Síðustu viku hefur Bush því
lagt ofuráherslu á að leggja félög-
um sínum í Repúblikanaflokknum
allt það lið í kosningabaráttunni,
sem hann getur. Hann hefur mætt
á hvern kosningafundinn á fætur
öðrum og einbeitt sér sérstaklega
að þeim ríkjum, þar sem mjótt er
á mununum milli fylgis flokkanna
tveggja.
Á meðan hefur hann lagt utan-
ríkismálin að nokkru á hilluna, í
bili að minnsta kosti. Ályktun um
Írak í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna má væntanlega bíða
fram yfir kosningar.
Samkvæmt bandarískri stjórn-
skipan er engan veginn sjálfgefið
að forseti og ríkisstjórn hans
njóti meirihlutastuðnings á þingi.
Bush hefur þurft að reiða sig á
stuðning andstæðinga sinna í
demókrataflokknum til þess að
koma málum í gegnum öldunga-
deildina megnið af þessu kjör-
tímabili. Eftir hryðjuverkin ell-
efta september 2001 hefur hann
hins vegar notið þess að
demókratar hafa ekki viljað vera
forseta bandarísku þjóðarinnar
mjög til trafala. Það gæti samt
breyst eftir kosningarnar.
Reynslan sýnir að sá flokkur,
sem stjórnar Hvíta húsinu hverju
sinni, hefur nánast alltaf misst
þingsæti í kosningum á miðju
kjörtímabili forseta. Hingað til
hefur litlu breytt hvort Banda-
ríkin eiga í stríði einhvers staðar
eða stríð sé í aðsigi, eins og nú
virðist vera.
Ef marka má vinsældir forset-
ans hafa repúblikanar reyndar
óvenju góðan meðbyr fyrir þess-
ar kosningar. Samkvæmt nýlegri
skoðanakönnun eru 67 prósent
Bandaríkjamanna ánægðir með
störf Bush forseta. Þetta er meiri
stuðningur en nokkur annar for-
seti Bandaríkjanna hefur notið
fyrir kosningar á miðju fyrsta
kjörtímabili.
Repúblikanar vonast til þess
að þessi meðbyr tryggi þeim
meirihluta í báðum deildum á
þriðjudaginn. Og þá ætti Bush
ekki að verða í vandræðum með
að fá samþykki þingsins til þess
að Bandaríkin fari með hernaði á
hendur Írökum, með eða án
stuðnings Sameinuðu þjóðanna.
gudsteinn@frettabladid.is
6 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR
FULLTRÚADEILD
435 þingmenn sitja í fulltrúadeild, sem
er neðri deild Bandaríkjaþings. Kosið er
um öll sæti deildarinnar á tveggja ára
fresti. Repúblikanar eru nú með meiri-
hluta í deildinni. Þeir hafa 223 þingsæti
en demókratar 208. Einn þingmaður er
utan flokka. Þrjú þingsæti eru auð.
ÖLDUNGADEILD
100 þingmenn sitja í öldungadeild, sem
er efri deild Bandaríkjaþings. Þriðjungur
þeirra, 34 að þessu sinni, er kosinn á
tveggja ára fresti. Demókratar hafa nú
49 þingsæti á móti 49 sætum repúblik-
ana. Einn fyrrverandi repúblikani er utan
flokka og eitt þingsæti varð autt þegar
demókratinn Paul Wellstone fórst í flug-
slysi fyrir viku.
RÍKISSTJÓRAR
Að þessu sinni er kosið er um 36 af 50
ríkisstjórum Bandaríkjanna. Meðal ann-
ars sækist repúblikaninn Jeb Bush,
bróðir forsetans, eftir endurkjöri í Flór-
ída. 27 ríkisstjórar eru nú repúblikanar,
21 er demókrati en tveir eru utan
flokka.
ÖNNUR MÁL OG EMBÆTTISMENN
Margvísleg mál eru auk þess lögð í
hendur kjósenda í þessum kosningum,
mismunandi eftir ríkjum og sveitarfélög-
um. Til dæmis er spurt hvort kjósendur
sætti sig við skattahækkanir, hvort leyfa
eigi áfengissölu eða hver eigi að vera
hámarksfjöldi barna í skólabekkjum.
Einnig er kosið til ýmissa annarra stjórn-
sýsluembætta.
Bæjarstjórn og þingmenn ræða um Reykjanesbraut:
Vilja mislæg gatnamót
samhliða tvöföldun
VEGAMÁL Bæjarstjórn Garðabæjar
lagði þunga áherslu á það á fundi
með þingmönnum kjördæmisins,
að mislæg gatnamót yrðu gerð á
Reykjanesbraut samhliða því að
vegurinn yrði tvöfaldaður. Guðjón
E. Friðriksson bæjarritari segir að
samkvæmt hugmyndum Vegagerð-
arinnar eigi að tvöfalda fyrst en
huga síðar að mislægum gatnamót-
um. Þetta gangi í berhögg við for-
gangsröðun sveitarfélaganna á höf-
uðborgarsvæðinu um skiptingu
vegafjár, sem samþykkt hafi verið
á síðastliðnum vetri. Á fundinum
voru þingmenn hvattir til að trygg-
ja að tekið yrði mið af þessari for-
gangsröðun en ekki hugmyndum
Vegagerðarinnar.
Garðabær er klofinn í þrennt af
tveimur af þremur stofnvegum
höfuðborgarsvæðisins, Reykjanes-
braut og Hafnafjarðarvegi. Guðjón
segir brýnt að mislæg gatnamót
verði gerð við Vífilsstaðaveg og
Arnarnesveg. Vegaumbæturnar
eigi ekki bara að snúast um það að
fólk geti ekið í gegnum Garðabæ-
inn heldur líka um hann.
Á fundinum var einnig rætt um
hljóðvist við Reykjanesbrautina.
Ágreiningur er um það hver beri
ábyrgð á hljóðvist við þjóðvegi í
þéttbýli. Forsvarsmenn Vegagerð-
arinnar telja að Vegagerðin beri
ekki þá ábyrgð, en bæjarstjórn
Garðabæjar mótmælir þeirri túlk-
un og telur brýnt að breyta vega-
lögum, þannig að það verði ljóst
hver beri þessa ábyrgð. Ella sé sú
kvöð lögð á sveitarfélögin að bygg-
ja ekki á breiðum spildum beggja
vegna veganna. Hvöttu bæjar-
stjórnarmenn þingmenn kjördæm-
isins til að fylgja málinu eftir á Al-
þingi.
ÁGREININGUR UM HLJÓÐVIST
Ágreiningur er um það hver beri ábyrgð á
hljóðvist við þjóðvegi í þéttbýli. Forsvars-
menn Vegagerðarinnar telja að Vegagerðin
beri ekki þá ábyrgð, en bæjarstjórn Garða-
bæjar mótmælir þeirri túlkun.
Bush hamast í kosningabaráttu
Þingkosningar verða í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Nái demókratar meirihluta snúast þeir
væntanlega af alefli gegn stefnu Bush í utanríkismálum jafnt sem efnahagsmálum. Bush leggur
því alla áherslu á að repúblikanar nái meirihluta í öldungadeild og haldi honum í fulltrúadeild.
MISTÖKIN FRÁ FLÓRÍDA EIGA EKKI AÐ ENDURTAKA SIG
Mistök í forsetakosningunum fyrir tveimur árum urðu til þess að enn ríkir efi meðal sumra
um að George W. Bush sé í raun réttkjörinn forseti Bandaríkjanna. Fyrir nokkrum dögum
undirritaði Bush lög sem eiga að koma í veg fyrir að slík mistök geti endurtekið sig.
AP
/R
IC
K
B
O
W
M
ER
FLUG Íslandsflug hefur tekið yfir
áætlunarflug milli Hafnar í
Hornafirði og Reykjavíkur.
Flugleiðin til Hafnar var boðin
út af Vegagerðinni í sumar og
átti Íslandsflug hagstæðara til-
boð en Flugfélag Íslands.
Íslandsflug mun fljúga átta
sinnum í viku til Hafnar sem er
sami ferðafjöldi og verið hefur.
Flogið verður kvölds og morgna
til Hafnar á mánudögum, mið-
vikudögum og fimmtudögum.
Á föstudögum og sunnudög-
um verður eitt flug í eftirmið-
daginn en ekkert verður flogið á
þriðjudögum og laugardögum.
Fargjöld verða óbreytt en Ís-
landsflug hyggst bjóða sértil-
boð. Öll farþega- og fraktaf-
greiðsla verður óbreytt frá því
sem verið hefur.
Íslandsflug flýgur nú áætlun-
arflug til fimm staða innan-
lands, Hafnar, Vestmannaeyja,
Sauðárkróks, Bíldudals og Gjög-
urs.
Flugfélag Íslands flýgur hins
vegar áætlunarflug innanlands
til Akureyrar, Ísafjarðar og Eg-
ilsstaða, Grímseyjar, Vopna-
fjarðar og Þórshafnar. Að auki
er flogið til Færeyja og Græn-
lands.
MILOSEVIC VEIKUR Veikindi
Slobodans Milosevic, fyrrverandi
forseta Júgóslavíu, urðu til þess
að fresta varð á ný stríðsglæpa-
réttarhöldum yfir honum í Haag í
gær. Óvissa ríkir nú um það hvort
hægt verði að ljúka réttarhöldun-
um samkvæmt fyrirhugaðri áætl-
un. Milosevic er hjartveikur.
FRÉTTAFLUTNINGUR BANNAÐUR
Rússneska þingið samþykkti í
gær lög sem banna að hluta
fréttaflutning af aðgerðum lög-
reglu og hers gegn hryðjuverka-
mönnum. Algjörlega verður bann-
að að birta í fjölmiðlum yfirlýs-
ingar frá hryðjuverkamönnum.
FANGELSI BRANN Að minnsta
kosti 49 fangar brunnu inni þegar
fangelsi í Marokkó brann í gær.
Að auki særðust 90 manns, þar af
tveir fangaverðir. Níu hinna slös-
uðu voru í lífshættu.
ERLENT
Höfn í Hornafirði:
Íslandsflug tekur
við áætlunarflugi
VEISTU SVARIÐ?
Sturla Böðvarsson hefur ráð-
ið starfsmann Ferðamálaráðs
til að tryggja sér gott gengi í
prófkjöri. Hvaða þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæmi ráðherrans eru sagðir
eiga mesta á hættu að falla?
Bókin Ísland á 20. öld er
komin út. Hver skrifaði bók-
ina?
Ron Fitch, sem er Ástrali, út-
skrifaðist fyrir fáum dögum
með doktorsgráðu í verk-
færði. Hversu gamall er Ron?
Svörin eru á bls. 22.
1.
2.
3.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 86.86 -0.70%
Sterlingspund 135.92 -0.40%
Dönsk króna 1 1.59 -0.21%
Evra 86.14 -0.21%
Gengisvístala krónu 129,65 -0,02%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 275
Velta 2.511 milljónir
ICEX-15 1.303 0,8%
Mestu viðskipti
Bakkavör Group hf. 417.935.152
Fjárfestingarf. Straumur hf. 311.331.491
Baugur Group hf. 165.791.893
Mesta hækkun
Vinnslustöðin hf. 5,00%
Baugur Group hf. 3,85%
Bakkavör Group hf. 2,88%
Mesta lækkun
SR-Mjöl hf. -5,56%
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. -5,30%
Þróunarfélag Íslands hf. -3,18%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8479,2 1,00%
Nsdaq*: 1346,8 1,30%
FTSE: 3997 -1,10%
DAX: 3161,2 0,30%
Nikkei: 8685,7 0,50%
S&P*: 892,9 0,80%
KAUPIR BRESKT FYRIRTÆKI Út-
gerðarfélag Akureyringa gekk í
gær frá kaupum á öllum hluta-
bréfum í breska útgerðarfyrir-
tækinu Boyd Line Management
Services Ltd. sem er skráð í Hull
í Englandi. Kaupverðið er 7,0
milljónir punda eða um 950 millj-
ónir króna. Boyd Line er fjöl-
skyldufyrirtæki sem var stofnað
árið 1936 og starfa hjá fyrirtæk-
inu 10 starfsmenn í landi og um
60 sjómenn.