Fréttablaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 8
8 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
INNLENT
UPPGJÖR Uppgjör Baugs olli von-
brigðum á markaði og lækkuðu
bréf félagsins. Baugur skilaði 159
milljón króna hagnaði fyrstu sex
mánuði uppgjörsársins. Upp-
gjörsár félagsins er frá 1. mars.
Helstu ástæður slakrar niður-
stöðu er slæm afkoma Bonus Stor-
es í Bandaríkjunum. Félagið hafði
sent frá sér afkomuviðvörun
vegna stöðunnar í Bandaríkjun-
um. Framundan er hlutafjáraukn-
ing í Bonus Stores og hefur stjórn
Baugs samþykkt að leggja til allt
hlutaféð. Gert er ráð fyrir að
reksturinn í Bandaríkjunum skili
hagnaði á næsta ári.
Afkoma Baugs á Íslandi litast
af samdrætti í neyslu almenn-
ings. Kostnaður vegna uppbygg-
ingar í Svíþjóð er gjaldfærður á
tímabilinu. Viðtökur þar í landi
eru betri en áætlanir gerðu ráð
fyrir.
Þriðji ársfjórðungur ræður
miklu um afkomu félagsins vegna
jólaverslunar. Í uppgjöri þess árs-
fjórðungs munu tekjur af sölu
Baugs í Arcadia skila sér í upp-
gjöri. Stjórn Baugs hefur boðað til
hluthafafundar, þar sem liggur
fyrir tillaga um að greiða 15% arð
til hluthafa. 12% arður var
greiddur fyrr á árinu.
Bonus Stores dregur niður afkomuna:
Óviðunandi
afkoma hjá Baugi
LÍTILL HAGNAÐUR
Afkoma Baugs var í samræmi við væntingar eftir að félagið hafði varað við slakri afkomu
Bonus Stores í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn félagsins telja horfur góðar í rekstri Baugs.
FÉLAGAGJÖLDUM SLEPPT Pétur
H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki,
hefur endurflutt frumvarp um að
opinberum starfsmönnum verði
ekki lengur skylt að greiða ið-
gjald til stéttarfélaga sem þeir
kjósa að standa utan.
GENGISHAGNAÐUR HJÁ SKELJ-
UNGI Hagnaður Skeljungs jókst
um 570 milljónir milli níu mán-
aða uppgjöra ársins í ár og í
fyrra. Hagnaður tímabilsins var
974 milljónir króna. Arðsemi eig-
in fjár félagsins var 30% fyrir
fyrstu níu mánuðina sem er tvö-
falt meira en í fyrra. Styrking
krónu gagnvart dollar skilaði fé-
laginu gengishagnaði og skýrir
afkomuna. Viðsnúningur á fjár-
magnstekjum var rúmur 1,1
milljarður.
AFKOMA BATNAR Viðsnúningur
var á afkomu Guðmundar Run-
ólfssonar hf. Nam viðsnúningur-
inn 308 milljónum króna fyrir
skatta. Hagnaður fyrstu níu mán-
uði ársins var 138 milljónir. Við-
snúningurinn skýrist af fjár-
magnsliðum. Velta félagsins
dróst saman um 7%.
SVEITARSTJÓRNIR Hreppsnefnd Mýr-
dalshrepps í Vík í Mýrdal hefur
beint því til eigenda veitingastað-
arins Halldórskaffis „að halda
ekki hávaðasamar skemmtanir
yfir aðalferðamannatímann.“
Rekstur Halldórskaffis hefur
verið eigendum Hótels Lunda þyrn-
ir í augum allt frá
því um verslunar-
mannahelgina árið
2000. Þá skemmti
þriggja manna
hljómsveit gestum.
Lundamenn segja
hávaða frá Hall-
dórskaffi að nætur-
lagi trufla starf-
semi hótelsins. Þar
eru rúm fyrir 22 gesti auk svefn-
pokapláss.
Eigendur Lunda leituðu til sveit-
arstjórnarinnar um að Halldórs-
kaffi verði ekki leyft að selja vín
eftir klukkan ellefu á kvöldin. „Þá
er óskað eftir því að leyfishöfum
Halldórskaffis verði gert að leggja
af allt skemmtana- og dansleikja-
hald á tímabilinu 1. maí til 30. sept-
ember ár hvert,“ segir í bréfi til
Mýrdalshrepps.
Hafsteinn Jóhannsson sveitar-
stjóri og Sigurður Gunnarsson
sýslumaður reyndu að miðla mál-
um: „Ekki verður séð að sveitar-
stjórn/lögregla geti gripið til neinna
ráðstafana gegn staðnum,“ var
þeirra niðurstaða. Ekki hefur það
auðveldað vinnslu málsins að Soffía
Magnúsdóttir, sem rekur Halldórs-
kaffi, er eiginkona Sveins Pálsson-
ar oddvita.
Eftir að eigendur Hótels Lunda
höfðu ítrekað kröfu sína um skorð-
ur við rekstri Halldórskaffis sagði
sveitarstjórnin að ekki væri laga-
skilyrði til þess að hún gripi „til
neinna ráða gegn staðnum.“ Eins og
áður segir var þeim eindregnu til-
mælum þó beint til Halldórskaffis
að halda ekki „hávaðasamar
skemmtanir“ frá maí til september-
loka.
Hótel Lundi og Halldórskaffi
standa hlið við hlið í gamla bæjar-
hlutanum í Vík. Vínveitingaleyfi
Halldórskaffis sem gefið var út í
fyrra gildir til júní á næsta ári. Í því
eru engar takmarkanir á því
hvenær sólarhrings vín er selt á
staðnum. Lengst mun hins vegar
vera opið til klukkan tvö að nóttu
um helgar.
Soffía Magnúsdóttir segir að
þegar hafi verið tekið tillit til óska
hóteleigandans. Til dæmis sé langt
síðan farið var að loka klukkan tvö
um helgar í stað klukkan þrjú áður.
„Það verður að leyfa fólki að sitja
lengur en til ellefu um helgar. Við
getum ekki gert meira,“ segir hún.
Jóna Kerúlf, einn eigenda
Hótels Lunda, segir þá engan áhuga
hafa á því að standa í illdeilum við
nágranna sína: „Við teljum engan
ávinning að því að fjalla um þetta
mál í blöðum, hvorki fyrir okkur né
þá.“.
gar@frettabladid.is
Sveitarstjórnin í Vík í Mýradal beinir þeim eindregnu tilmælum til veit-
ingahússins Halldórskaffis „að halda ekki hávaðasamar skemmtanir.“
Eigendur Hótel Lunda þar við hliðina vildu að skemmtanir og dans-
leikir yrðu bannaðir á Halldórskaffi í fimm mánuði á ári.
Skemmtanir í Vík
séu hávaðalausar
DEILT UM HÁVAÐA
„Það verður að leyfa fólki að sitja lengur
en til ellefu um helgar,“ segir Soffía Magn-
úsdóttir, sem rekur Halldórskaffi í svokall-
aðri Brydebúð í Vík í Mýrdal. Hótel Lundi
við hliðina segir gesti sína ekki hafa svefn-
frið. „Við erum með gluggana sem snúa að
hótelinu lokaða. Við erum að kæfa gestina
okkar,“ segir Soffía um viðleitnina til að
halda friðinn.
Hafsteinn
Jóhannsson
sveitarstjóri og
Sigurður
Gunnarsson
sýslumaður
reyndu að
miðla málum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ORÐRÉTT
ÖSSUR Í SPOR BUSH
Enda má ekki gleyma að um 25%
félagsmanna greiddu stefnu
flokksforystunnar atkvæði sem
er svipað hlutfall og það sem réð
kjöri núverandi Bandaríkjafor-
seta og íslenskir jafnaðarmenn
gerðu náttúrulega ekkert svo lítið
úr kosningu Bush í hittifyrra.
Steinþór Heiðarsson um Evrópukosningu
Samfylkingar. Múrinn, 1. nóvember.
SKEPNURNAR YKKAR!
Sumir ykkar og
aðallega forverar
ykkar tókuð upp á
því fyrir 32 árum
á aðalfundi, sem
þá var haldinn í
Vestmannaeyjum,
að kjósa mig for-
mann samtaka ykkar.
Kristján Ragnarsson lýsti starfsævi
sinni hjá LÍÚ í ræðu á aðalfundi LÍÚ
31. október.