Fréttablaðið - 02.11.2002, Síða 10
10 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
LANDBÚNAÐUR
MIKIL FÆKKUN Ársverkum í
landbúnaði hefur fækkað um
15% á fimm árum. Þau voru
5.200 talsins árið 1997 en eru
áætluð 4.400 í ár. Hlutfall starfa í
landbúnaði sem hlutfall af unnum
ársverkum í landinu hefur
minnkað mun meira á sama tíma
eða um nær fjórðung að því er
fram kemur í Hagtölum landbún-
aðarins. Árið 1997 stóðu störf í
landbúnaði undir fjórum prósent-
um ársverka. Í ár er áætlað að
þau séu komin niður í um það bil
þrjú prósent. Þeir sem starfa í
landbúnaði eru 1,5% vinnuafls en
voru 2,6% árið 1990.
VESTFIRÐIR
Hugsað heim í Glæsibæ.
Römm er sú taug:
Vest-
firðingar
í Glæsibæ
HÖFUÐBORGIN Vestfirðingar, bú-
settir á höfuðborgarsvæðinu, ætla
að hittast og slá upp dansleik í
Glæsibæ við Suðurlandsbraut á
laugardagskvöldið. Er þetta fyrsti
dansleikur Vestfirðinga í Glæsi-
bæ en stefnt er að því að Glæsi-
bæjarballið verði árlegur við-
burður í lífi Vestfirðinganna í
Reykjavík. Hljómsveitin Þúsöld
leikur fyrir dansi og lofa for-
svarsmenn dansleiksins ósvikinni
vestfjarðastemmingu.
Ráðgjafakostnaður:
Þenst
stjórn-
laust út
STJÓRNMÁL „Það er ljóst að aðkeypt
ráðgjafarþjónusta hefur þanist
stjórnlaust út,“ segir Jóhanna Sig-
urðardóttir, þingmaður Samfylk-
ingar, um 47% útgjaldaaukningu
vegna ráðgjafarþjónustu frá ár-
inu 1999 til 2001.
Jóhanna segir ljóst að veita
þurfi opinberum aðilum miklu
meira aðhald að þessu leyti. Þarna
sé greinilega hægt að spara fé.
Hún segir að ekki verði annað séð
af þessu en að lítið tillit hafi verið
tekið til athugasemda sem Ríkis-
endurskoðun gerði í úttekt sinni á
ráðgjafarkostnaði.
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
Segir þörf á frekari
skýringum á þeim
upplýsingum sem
koma fram í svar-
inu og hyggst leita
eftir þeim.
HERALD TRIBUNE
Leiðarahöfundur Herald Tribu-
ne segir atburðina í Moskvu
sýna mikilvægi þess að þróaðar
verði aðferðir til að gera hryðju-
verkamenn óskaðlega, án þess
að skaða gísla þeirra.“Rússar
þurfa að gefa nákvæmar upplýs-
ingar um árásina og skaðann
sem hún olli gíslunum. Slíkar
upplýsingar gætu hjálpað
Bandaríkjunum og öðrum þjóð-
um í glímunni við hryðjuverka-
menn.“ Blaðið segir vandamálið
við notkun gass þróað úr svefn-
lyfjum sé að munurinn á sljóvg-
andi skammti og banvænum sé
lítill. „Það er þörf fyrir hættu-
lausri og mannúðlegri aðferð til
að gera fólk óvirkt án þess að
valda því tjóni.“
Leiðarahöfundur segir ýmsar
aðferðir hafa verið þróaðar, allt
frá örbylgjum til ofurhávaða.
Flestar þessar aðferðir virki
annað hvort ekki sem skyldi eða
séu hreinlega of hættulegar.
Blaðið bendir á að öll þróun
slíkra vopna bjóði heim hættu á
misnotkun. „Á tímum hryðju-
verkaógnar væri æskilegt að
þróa efni sem svæfði fólk fljótt,
án þess að valda því skaða.“
MOSCOW TIMES
„Var nauðsynlegt að gera árás?“
spyr dálkahöfundur Moscow
Times. Hann segir yfirvöld hafa,
að lokinni inngöngu, lýst yfir ár-
angursríkri frelsun. Fyrstu tölur
um fjölda látinna hafi verið 30
manns. Höfundurinn, Boris
Kagarlitsky hefur miklar efa-
semdir um að nauðsynlegt hafi
verið að ráðast inn í leikhúsið.
Þar fyrir utan hafi verið óverj-
andi með öllu af hernum að neita
að gefa upp hvaða gas hefði ver-
ið notað við innrásina. Það hafi
kostað fjölda mannslífa.
„Byssumennirnir í leikhúsinu
höfðu, kvöldið fyrir innrásina,
sett fram þær kröfur að þeir
myndu sleppa gíslunum ef skip-
uð yrði nefnd sem settist að
samningaborði við Tjetjena. Var
nauðsynlegt að ráðast inn? Já,
það var nauðsynlegt af pólitísk-
um ástæðum.“ Hann bætir því
við að sú pólitíska ástæða hafi
verið sú, að mannfallið styrkti
stjórnvöld í áróðursstríði gegn
Tjetjenum. Gert þeim kleift að
halda uppi hernaði gagnvart
þjóðinni.
Innrás hersins í leikhúsið
Frelsun gísla tjetjenskra skæruliða hefur
vakið snörp viðbrögð víða um lönd. Leynd
yfir því hvers konar gas var notað við inn-
rásina kostaði á annað hundrað mannslíf.
Úr leiðurum