Fréttablaðið - 02.11.2002, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 2. nóvember 2002
Flokksval Samfylkingarinnar fer fram laugardaginn
9. nóvember 2002 í Félagshúsi Þróttar, Engjavegi 7,
í Laugardal, skáhallt á móti Laugardalshöllinni.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á skrifstofu
Samfylkingarinnar að Austurstræti 14, frá klukkan 13:00
til 17:00 í dag og á sunnudag, en aðra daga frá klukkan
13:00 til 20:00.
7. dagar til prófkjörs: 1. dagseðill
Ný Evrópupólitík á Íslandi
Samfylkingin hefur rutt brautina fyrir nýja Evrópu-
pólitík á Íslandi. Nú þurfa Íslendingar að sameinast
um stefnu í aðildarviðræðum við ESB.
Einar Karl Haraldsson hefur verið virkur í stefnumótun
Samfylkingarinnar í Evrópumálum. Hann fyllir flokk þeirra sem
vilja að við tökum fullan þátt í ákvörðunum Evrópumanna og
stöndum með þeim í að efla menningu og samkennd.
Veljum Evrópusinna til framboðs í þingkosningum!
Evrópusinni
býður sig fram
Kynnið ykkur 9. nóvember – framboðsrit stuðnings-
manna Einars Karls Haraldssonar, þar sem greint er frá
tillögum frambjóðandans. Pantið í síma 692 20 70.Mata
rgerð í anda
Nýr
matseðill
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
/ sia
.is
FÓTBOLTI Liverpool, efsta lið ensku
úrvalsdeildarinnar, tekur á móti
West Ham á Anfield Road í dag.
Liverpool er eina liðið sem ekki
hefur tapað leik í úrvalsdeildinni.
Það er með fjögurra stiga forystu í
deildinni og getur aukið forskotið í
sjö stig með sigri. West Ham hefur
unnið þrjá leiki í deildinni, alla á
útivöllum.
Ruud van Nistelroy leikur að öll-
um líkindum með Manchester
United gegn Southampton á Old
Trafford. Hollendingurinn snjalli
hefur misst af síðustu þremur leikj-
um liðsins vegna meiðsla. United er
í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar og
gerði jafntefli við Aston Villa um
síðustu helgi. Southampton er á
miklu skriði í deildinni og hefur
unnið þrjá leiki í röð.
Englandsmeistarar Arsenal,
sem hafa tapað síðustu fjórum
leikjunum sínum, mæta Fulham á
Loftus Road á sunnudag.
Japaninn Junichi Inamoto, leik-
maður Fulham, sagðist í gær vera
staðráðinn í því að sýna Arsena
Wenger, stjóra Arsenal, og aðdá-
endum liðsins hvers hann væri
megnugur.
Chelsea, sem er í þriðja sæti
ensku úrvalsdeildarinnar, sækir
Tottenham heim á sunnudag í mikl-
um Lundúnarslag. Tottenham, sem
byrjað hefur tímabilið vel, hefur
aldrei unnið Chelsea í 20 leikjum
liðanna í úrvalsdeildinni.
Enski boltinn um helgina:
Liverpool getur
náð sjö stiga forystu
ZOLA
Gianfranco Zola, Ítalinn knái í liði Chelsea,
hefur farið á kostum á tímabilinu.
FÓTBOLTI Tony Pulis hefur verið
ráðinn knattspyrnustjóri hjá Ís-
lendingaliðinu Stoke City. Pulis,
sem samdi til þriggja ára, er fyrr-
um knattspyrnustjóri Gillingham
og Portsmouth. Hann segist vera
ánægður með að fá tækifæri til að
komast aftur í knattspyrnuna.
„Stoke er frábært félag. Ég er
afar spenntur yfir nýja starfinu,“
sagði Pulis, sem gerir miklar
væntingar til liðsins. Hann ætlar
að reyna leika eftir afrek Gary
Megson sem kom WBA upp í
úrvalsdeildina.
Upphaflega átti George
Burley að taka við starfinu og
átti hann bara eftir að skrifa
undir þegar honum snerist
hugur.
„Við erum ánægðir með að
hafa krækt okkur í nýjan knatt-
spyrnustjóra,“ sagði Gunnar Þór
Gíslason, stjórnarformaður Stoke.
„Pulis er ekki bara
reyndur stjóri heldur sigursæll
og það orðspor fer af honum að
hann sé góður þjálfari. Allir hjá
félaginu hlakka til að vinna með
honum og við hvetjum stuðnings-
menn okkar til að styðja hann og
liðið.“
Tony Pulis, nýr þjálfari Stoke City:
Spenntur yfir nýja starfinu
TONY PULIS
Pulis hóf þjálfara feril sinn árið 1977, aðeins 19 ára gamall. Hann tekur við
af Steve Cotterill sem yfirgaf félagið fyrr á þessu tímabili.