Fréttablaðið - 02.11.2002, Side 14
14 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
TÓNLIST Kurt Cobain kynntist
Krist Novoselic árið 1985 í smá-
bænum Aberdeen sem er í um
160 kílómetra fjarlægð frá
Seattle. Novoselic kom úr stöð-
ugu heimilisumhverfi en Cobain
hafði flakkað milli ættingja frá
átta ára aldri, frá því að foreldrar
hans skildu. Hann hlustaði mest á
Bítlanna og síðar þungarokk á
æskuárunum. Þegar hann kynnt-
ist Novoselic hafði áhugi hans á
pönktónlist vaxið og saman stofn-
uðu þeir sína fyrstu sveit, The
Stiff Woodies, þar sem Novoselic
lék á bassa en Cobain trommaði.
Sveitin gekk í gegnum nokkr-
ar nafna- og gítarleikarabreyt-
ingar á næstu tveimur árum.
Þegar þeir kynntust trommaran-
um Aaron Burkhart ákvað
Cobain að taka að sér söng og gít-
arleik. Sveitin hét þá, ótrúlegt en
satt, Skid Row. Þegar trommar-
inn Chad Channing tók við af
Burkhart 1987 fékk sveitin nafn-
ið Nirvana.
Sama ár fékk Nirvana plötu-
samning við Subpop eftir mikla
spilamennsku á Seattle-svæðinu.
Fyrsta smáskífan kom út í des-
ember 1988. Það var tökulagið
„Love Buzz“ eftir hollensku
hippasveitina Shocking Blue.
Fyrsta breiðskífan, „Bleach“, var
hljóðrituð fyrir 600 dollara og
gefin út vorið 1989.
Háskólaútvarpsstöðvar um öll
Bandaríkin tóku sveitina upp á
sína arma og við tóku tónleika-
ferðir um allt land. Skömmu eftir
að boltinn fór að rúlla gekk
trommuleikarinn Dave Grohl,
sem áður hafði leikið með pönk-
sveitinni Scream, í sveitina.
Plöturisinn Geffen bauð hæst
í Nirvana og tryggði sér samning
fyrir litla 287 þúsund dollara.
„Nevermind“ var hljóðrituð á
tveimur vikum með aðstoð upp-
tökustjórans Butch Vig. Áður en
hún kom út spáðu bjartsýnustu
menn innan fyrirtækisins að hún
myndi seljast í 100 þúsund ein-
tökum. Öllum að óvörum skaut
lagið „Smells like teen-spirit“
sveitinni upp í hæstu hæðir og
raunin varð að rúmlega 14 millj-
ónir eintaka seldust fyrsta árið.
Eins og allir vita átti Cobain
erfitt með að halda jafnvægi á
einkalífi sínu eftir að heimurinn
opnaðist fyrir sveitinni. Hann
framdi sjálfsmorð 5. apríl 1994,
aðeins ári eftir að þriðja platan
„In Utero“ leit dagsins ljós. Lagið
„You know your right“, sem er
gefið út í fyrsta skiptið á nýju
safnplötunni, var hljóðritað að-
eins tveimur mánuðum áður.
biggi@frettabladid.is
Eftir áralanga deilur eftirlifandi liðsmanna Nirvana og Courtney
Love, ekkju söngvarans Kurt Cobain, er loksins komin út safnplata
með bestu lögum sveitarinnar. Hún inniheldur einnig nýfundna lagið
„You know your right“.
NIRVANA
Kurt var aðeins 20 ára þegar hann stofnaði sveitina ásamt bassaleikaranum Krist, 22
ára, þegar boltinn byrjaði að rúlla og tveimur árum eldri þegar sveitin gaf út „Smells like
teen spirit“. Hann var 27 ára þegar hann framdi sjálfsmorð.
Nirvana 1987 - 1994
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 2 og 3.50
PÉTUR OG KÖTTURINN kl. 2
MR. DEEDS kl. 3.50 og 6
ROAD TO PERD... kl. 2.30, 5, 7.30 og 10
ROAD TO PERD... 4, 6.30, 8, 9, 10.30, 11.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 Powersýning
kl. 4.10 og 6FÁLKAR
kl. 1.50 og 3.40LILO OG STITCH m/ísl. tali
kl. 2VILLTI FOLINN m/ísl. tali - 300 kr.-
MAÐUR EINS OG ÉG kl. 2 og 6
THE BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.20
PORNSTAR-RON JEREMY kl. 10.15
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 2 og 4 VIT429
YA YA SISTERHOOD 5.50, 8 og 10.15 VIT455 HAFIÐ kl. 2, 4 og 6
VIT
433
SIGNS kl. 8 VIT427
MAX KLEEBLE´S.. kl. 2, 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 10.15 VIT427
INSOMNIA kl. 8 og 10.15 VIT444
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15 VIT 448
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.15 VIT 461
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 VIT 462
kl. 2, 5.45, 8 og 10.15HAFIÐ
kl. 3.50 og 8YA YA SISTERHOOD
FUNDIR
13.00 Málþing um trúarstef í kvik-
myndum verður í Árnagarði,
stofu 304. Fyrirlesarar eru úr
hópi kvikmyndafræðinga og guð-
fræðinga sem átt hafa samvinnu
um þetta tiltölulega nýja fræða-
svið um skeið.
13.30 Félag um átjándu aldar fræði
heldur málþing um Magnús Ket-
ilsson í Þjóðarbókhlöðunni.
14.00 Bandalag íslenskra skáta efnir
til fjölskylduhátíðar í Laugardals-
höll í tilefni af 90 ára afmæli fé-
lagsins. Allir eru velkomnir í af-
mælið.
14.30 Sjötti upplýsinga- og baráttufund-
urinn um virkjanaframkvæmdir
á hálendi Íslands verður á
Grand Rokk.
OPNUN
15.00 Sýningin Hraun - ís - skógur
opnar í Listasafni Akureyrar. Hér
er um að ræða listmenntunar-
verkefni sem verið hefur tæp þrjú
ár í undirbúningi. Sýningin er
opin alla daga milli 12 og 17.
Henni lýkur 15. desember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö opnar í Nor-
ræna húsinu.
TÓNLEIKAR
12.00 Björn Steinar Sólbergsson org-
anisti heldur hádegistónleika í
Akureyrarkirkju. Á efnisskrá eru
verk eftir Pál Ísólfsson og Sigfried
Karg-Elert. Lesari á tónleikunum
er Laufey Brá Jónsdóttir. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
15.15 Eþos- Þormóður Magnússon
spilar ásamt Caput hópnum á
15.15 tónleikaröðinni í Borgar-
leikhúsinu.
17.00 Tónleikar kammerkórsins Vox
Gaudiae verða í Hjallakirkju. Að-
gangur er ókeypis og allir hjart-
anlega velkomnir.
17.00 Afmælisveisla kvennakórsins Vox
Feminae hefst með hátíðartón-
leikum í Hallgrímskirkju. Á tón-
leikunum stiklar kórinn á stóru í
sögu kirkjutónlistar. Stjórnandi er
Margrét J. Pálmadóttir.
20.00 Í tilefni af útgáfu disksins Skellir
og smellir heldur Valgeir Guð-
jónsson tónleika í Salnum, Kópa-
vogi.
LAUGARDAGURINN
2. NÓVEMBER
Grafarvogsbúar!
Opið mán.–fös. 10–18
Hverafold 1–5 • s. 567-6511
Sparið tíma og
peninga -
verslið á börnin
í ykkar hverfis-
verslun.
Full búð af nýjum vörum á frábæru verði.
Tilboð á úlpum 2900 kr. Útigöllum á 4300 kr.
Endilegakíkjið við!