Fréttablaðið - 02.11.2002, Síða 22
22 2. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
Mistök
fyrir
framan
alþjóð
Eva Björk Sólan Hannesdóttir,sem flestir þekkja sem Evu
Sólan þulu úr sjónvarpinu, er þrí-
tug í dag. Í tilefni dagsins ætlar
hún að bjóða vinum og sam-
starfsmönnum til veislu í litlum
sal í miðbænum.
Eva segir að 25 ára afmælið
hafi verið eftirminnilegt. Það var
haldið heima hjá vinkonu henn-
ar. „Hún og systir mín sáu um að
elda fyrir mig og svo bauð ég
fullt af fólki í mat. Ég er nefni-
lega ekki mjög flink að elda,“
segir Eva. Hún segist hafa misst
af tvítugsafmælinu því þá bjó
hún í Bretlandi. „Þar þykir ekk-
ert merkilegt að verða tvítugur,
bara 21 árs því þá fær maður öll
réttindi. Þegar ég kom svo heim
var orðið of seint að halda upp á
það.“
Eva lærði förðun og hárkollu-
gerð í Bretlandi. Fyrst eftir nám-
ið starfaði hún við fagið í lausa-
mennsku en réð sig svo í Sjón-
varpið. Þar var hún í fimm ár en
í ágúst síðastliðnum tók hún við
yfirmannsstarfi förðunar í leik-
myndadeild Borgarleikhússins.
Hún hefur þó ekki alfarið sagt
skilið við Sjónvarpið því hún
vinnur þar enn sem þula og
hleypur stöku sinnum í skarðið í
förðunardeildinni.
„Það hættu nokkrar þulur hjá
RÚV og á sama tíma vantaði mig
aukavinnu og ég sótti um. Þannig
byrjaði starfið,“ segir Eva. Hún
segir starfið ekki erfitt þótt hún
þurfi að koma fram fyrir alþjóð.
„Ég sé ekki þjóðina heldur bara
textavélina mína. Ég er innilokuð
í herbergi og er ekki meðvituð
um þá sem eru að horfa. Mér líð-
ur stundum eins og Palla þegar
hann var einn í heiminum.“
Eva segist nokkrum sinnum
hafa gert mistök í þulustarfinu
og það síðasta var fyrir stuttu.
„Útsendingastjórinn lætur mig
vita þegar tíu sekúndur eru í út-
sendingu og þá þarf ég að horfa
í myndavélina. Það var hins veg-
ar lækkað niður í honum svo ég
heyrði ekki í honum og vissi
ekki hvernig tímanum leið. Síð-
an þegar ég kem í mynd var ég
að laga á mér hárið og festa á
mig hljóðnemann,“ segir Eva
hlæjandi og segir þá Spaug-
stofumenn minna hana á þetta
reglulega.
kristjan@frettabladid.is
ÓKEYPIS
AFMÆLI
Margrét S. Björnsdóttir hefurverið ráðin forstöðumaður
Stofnunar stjórnsýslufræða og
stjórnmála sem er ný stofnun á
vegum Háskóla Íslands, Reykja-
víkurborgar og Landspítalans.
Margrét hefur starfað hjá HÍ í 20
ár, fyrst sem forstöðumaður End-
urmenntunarstofnunar en síðustu
fjögur ár hefur hún gegnt starfi
framkvæmdastjóra þróunar- og
kynningarsviðs Háskólans. Hún
lauk í vor meistaraprófi í opin-
berri stjórnsýslu frá J.F.
Kennedy-skólanum við Harvard-
háskóla.
„Ég fékk leyfi frá störfum til
að ljúka náminu og í framhaldinu
fannst mér ástæða til að líta í
kringum mig eftir nýjum starfs-
vettvangi og það er ekki hægt að
segja annað en að þessi nýja
stofnun eigi vel við mig. Viðfangs-
efni hennar ná í raun til alls þess
sem ég hef verið að fást við í
störfum mínum við Háskólann,
auk þess sem hún tengist námi
mínu beint.“
Stofnuninni er meðal annars
ætlað að vera vettvangur um-
ræðna um stjórnmál, stefnumörk-
un og stjórnun í opinberum rek-
stri. „Það er mikið í húfi varðandi
fagmennsku og skilvirkni í opin-
berum rekstri ekki síður en í
einkarekstri, því um þriðjungur
vinnandi fólks á Íslandi starfar hjá
opinberum aðilum og útgjöld hins
opinbera á árinu 2003 eru áætluð
um 41% af landsframleiðslu.“
Nýja starfið tengist því einnig
aðaláhugamáli Margrétar beint
en þjóðmál í víðasta skilningi þess
orðs eru henni mjög hugleikin.
Hún hefur verið virk í stjórnmál-
um síðustu 25 ár og tók meðal
annars þátt í stofnun R-listans og
Samfylkingarinnar. „Ég held að
það verði lýðræðinu til framdrátt-
ar ef vinstrimenn geta starfað
sem öflug heild líkt og hægri-
menn hafa gert með góðum ár-
angri.“
Margrét S. Björnsdóttir hefur verið ráðin
forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða
og stjórnmála. Starfið tengist beint fyrri
störfum hennar, námi og stjórnmálum sem
eru hennar helsta áhugamál.
Stöðuveiting
Hugsjónirnar fá útrás í vinnunni
FÓLK Í FRÉTTUM
TÍMAMÓT
EVA SÓLAN
Ætlar að bjóða nánustu samstarfsmönnum og vinum til veislu í kvöld. Hún vinnur á
tveimur stöðum og segist því miður ekki geta boðið öllum, þar sem salurinn er svo lítill.
Að spjalla við frambjóðendur.Kostar ekki neitt. Frambjóð-
endur hafa margir opnað kosninga-
skrifstofur og þar er heitt á könn-
unni og jafnvel bakkelsi. Fyrir ekki
neitt. Gaman að kynnast viðhorfum
þessa fólks sem finnur sig knúið til
almannaþjónustu. Yfirleitt vel lesið
og skemmtilegt fólk sem kann frá
ýmsu að segja. Einnig má bera alls
kyns persónuleg vandræði undir
frambjóðendurna því flestir þeirra
eru ekki fæddir í gær. Frambjóð-
endurnir auglýsa kosningaskrif-
stofur sínar svo nú er bara að
ganga hringinn og fræðast og nær-
ast fyrir ekki neitt.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að nýir
eigendur Landsbankans skrifuðu ekki
undir kaupsamning með ósýnilegu
bleki eins og Goði í Costgo þegar hann
fór í Elko.
Leiðrétting
Ljóska og rauðka voru á gangiog áttu leið framhjá blóma-
búð. Þar sáu þær hvar kærasti
þeirra rauðhærðu var að kaupa
blómvönd. Sú dæsti og andvarp-
aði og var augljóslega ekki sátt
með blómakaupin. Ljóskan varð
undrandi á hegðun vinkonu sinn-
ar og spurði hvort henni þætti
ekki gaman að fá blóm. Sú rauð-
hærða játti því en sagði svo. „Ég
nenni ekki að eyða þremur næstu
dögum á bakinu með lappirnar
upp í loft.“ Ljóskan varð enn og
aftur undrandi á vinkonu sinni og
spurði. „Áttu ekki blómavasa?“
MARGRÉT S. BJÖRNSDÓTTIR
„Ég er af þessari svokölluðu 68-kynslóð
sem hafði mikinn áhuga á stjórnmálum og
vildi auk þess vera virk og hafa áhrif og það
er ekki hægt að segja annað en að ég hafi
alltaf fengið útrás fyrir þessa þörf í starfi.“
Í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík er hörð keppni og
þykir sitjandi þingmönnum hart að
sér sótt. Haldi flokkurinn sama
fylgi og síðast má eiga von á allt að
sjö þingmönnum í höfuðborginni,
og eitthvað fleiri ef gengi flokks-
ins heldur áfram að aukast í vetur.
Tveir nýgræðingar eru á siglingu,
og gætu báðir endað sem þing-
menn. Það er Einar Karl Haralds-
son, sem nýtur þess að hafa staðið
með forystunni gegnum þykkt og
þunnt og hafa óskoraða blessun
hennar. Hinn er Ágúst Ólafur
Ágústsson, formaður Ungra jafn-
aðarmanna, en hann er sá fram-
bjóðenda sem kalla má spútník
prófkjörsins. Fæstir áttu í von á að
hann næði lengra en í varaþing-
mannssæti, en framboð hans hefur
fallið í góðan jarðveg og Ágúst er
nú spáð öruggu þingsæti. Össur
Skarphéðinsson var ekki að skafa
utan af hóli sínu um hann í útvarpi
á dögunum, og sagt er að formað-
urinn ráði sér ekki af kæti yfir að
geta von bráðar leitt fram 25 ára
þingmannsefni.
JARÐARFARIR
11.00 Halldór G. Jónsson, Miðtúni 15,
Selfossi, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju.
13.30 Hugborg Benediktsdóttir, Lækj-
artúni, Ölfusi, verður jarðsungin
frá Selfosskirkju.
13.30 Margrét Sigfúsdóttir frá Skálafelli
verður jarðsungin frá Hafnarkirkju,
Hornafirði.
14.00 Cesar Ólafsson verður jarðsung-
inn frá Patreksfjarðarkirkju.
14.00 Ólafur Björgvin Þorbjörnsson frá
Reyðarfirði verður jarðsunginn frá
Reyðarfjarðarkirkju.
14.00 Sigurður Loftur Tómasson,
Hverabakka, Hrunamannahreppi,
verður jarðsunginn frá Hruna-
kirkju.
14.00 Soffía Sigurðardóttir frá Njáls-
stöðum verður jarðsungin frá
Blönduóskirkju.
AFMÆLI
Sjónvarpsþulan Eva Sólan er þrítug.
Kjartan Ólafsson alþingismaður er 49
ára.
ANDLÁT
Grímur Stefán Bachmann, Stóragerði
12, Reykjavík, lést 22. október. Útför
hans hefur farið fram.
Gunnar Guðmundsson, Köldukinn 23,
Hafnarfirði, lést 30. október.
Ólafur G. Hjartarson, Ásvallagötu 33,
Reykjavík, lést 30. október.
Sæunn Guðmundsdóttir, Kambsvegi
23, lést 30. október.
Einar Ásmundsson, Dynsölum 14,
Kópavogi, lést 29. október.
Jón Eyjólfur Einarsson, fyrrverandi full-
trúi hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, lést 29.
október.
Eva Sólan er þrítug í
dag. Hún ætlar að
bjóða vinum til veislu
í tilefni dagsins. Eva
starfar bæði í Borgar-
leikhúsinu og Sjón-
varpinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
LÐ
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Einar Oddur Kristjánsson
og Vilhjálmur Egilsson.
Helgi Skúli Kjartansson.
92 ára.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Fínn Bíll ehf.
Smiðjuvegi 8 • 200 557-6086
893-9780 • finnbill@finnbil.is
Myndir og upplýsingar á
www.finnbill.is
2001 Dodge Durango
2001 Jeep Grand
Cherokee Laredo
2000 Jepp Grand
Cherokee Limited
2000 Jepp Grand
Cherokee Limited
1999 Grand Laredo
2000 Musso E-23
2000 Grand Laredo
1996 Ford Explorer
1994 Grand Laredo