Fréttablaðið - 02.11.2002, Side 24
Einhvern tíma er allt fyrst.Gleymi því seint þegar ég stakk
fyrsta krítarkortinu mínu inn í hús-
vegg á Rue de Reves í París og út
streymdu peningar sem ég átti ekk-
ert í. En gat eytt að vild. Börnin mín
lítil stóðu hjá og urðu jafn hissa. Þau
spurðu hvort ég þyrfti þá aldrei að
vinna framar. Síðar undruðust þau
hvernig á því stæði að pabbi væri
alltaf ríkur í útlöndum en fátækur á
Íslandi.
SÍÐAN hef ég átt mörg kort og eig-
inlega ekki getað um frjálst höfuð
strokið. Peningarnir sem streymdu
út úr húsveggnum í París voru upp á
krít. Þá þurfti að endurgreiða. Og
það var ekki hægt nema taka fleiri
peninga út úr öðrum húsveggjum.
Svo koll af kolli þangað til maður fór
að klóra sér í kollinum.
KEÐJUVERKUN krítarkortanna
hefur haft áhrif á fleiri en mig. Öll
þjóðin fór óumbeðin á fyrirfram-
greiðslu hjá Euro og Visa og nær
fyrir bragðið aldrei í skottið á sjálfri
sér. Hér hafa ekki verið verkföll eft-
ir að krítarkortin komu til sögunnar
ef frá er talið verkfall kennara sem
áttu í drjúga sjóði að sækja. Aðrir
hafa ekki efni á því. Fólk er búið
með peningana áður en það fær þá.
Fátt er vitlausara.
ÞÓ krítarkortin geti verið góð á
stundum líkt og sprautan er fíklin-
um þá hafa þau svipt okkur frelsinu.
Gengið til liðs við Íbúðalánasjóð sem
bindur ungt fólk í átthagafjötra með
milljónalánum sem tekur aldarfjórð-
ung að endurgreiða - minnst. Á þeim
tíma fer blómi lífsins oft fyrir lítið.
Það er þreytandi að safna fyrir stey-
pu.
LÖNGU eftir Parísarferðina fór ég
til Krítar með krítarkortin mín. En
þar var ekki hægt að nota þau. Krít-
verjar staðgreiða og vita fyrir
bragðið hvar þeir standa. Þeir geta
líka farið í verkföll þegar þeim sýn-
ist. Sjálfur stefni ég að því að vera
búinn að greiða uppsafnaða skuld
mína við krítarkortafyrirtækin með
36 mánaða raðgreiðslum. Lífið hefur
kennt mér að staðgreiða augnablikið.
Og vera frjáls.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Klikkuð
krít
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni
Laugardagar ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudagar....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudagar - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30((
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
19
25
3
10
.2
00
2
Breytum fallegum hlutum í gjafir
Jólin þín byrja í IKEA
FESTA 5X0,7 m RIMMA 2x0,7 m
120 kr.
RIMMA 10X0,7 m
195 kr.
SAMLAS gjafaborði 100m 150 kr.
150 kr.