Fréttablaðið - 18.11.2002, Page 8
8 18. nóvember 2002 MÁNUDAGUR
FRAMKVÆMDIR Enn liggur ekki ljóst
fyrir hvenær Þjóðminjasafnið
verður opnað. Jóhann Gunnar
Birgisson, formaður byggingar-
nefndar Þjóð-
m i n j a s a f n s i n s ,
segir að húsið við
Suðurgötu verði
tilbúið í maí eða
júní.
„Þá verður hús-
ið algjörlega
klárt,“ segir Jó-
hann Gunnar. „Það
má vel vera að
húsið verði opnað
strax fyrir al-
menning, en ég geti ekki sagt til
um það hvenær sýningin verður
sett upp.“
Framkvæmdasaga Þjóðminja-
safnsins hefur verið þyrnum
stráð. Upphaflega átti að opna
húsið árið 2000, síðan 2001, en nú
er hugsanlegt að það verði ekki
opnað fyrr en 2004.
„Það er pólitísk ákvörðun
hvenær menn vilja opna sýning-
una. Stefnan var sú að reyna að
opna hana á næsta ári, en endan-
leg ákvörðun hefur ekki verið tek-
in. Ráðherra mun ákveða það í
samráði við bygginganefnd og
þjóðminjavörð. Ein hugmyndin er
að opna sýninguna á afmælisári
heimastjórnarinnar, árið 2004.“
Frá árinu 1991 til 1997 fóru
170 milljónir króna í utanhúss-
framkvæmdir á safnhúsinu við
Suðurgötu. Byggingarnefnd
kynnti síðan nýja framkvæmdaá-
ætlun í desember árið 1997.
Kostnaður vegna endurbótanna
og viðbyggingar er um 740 millj-
ónir króna. Ef inn í reikninginn
eru teknar geymslur sem byggð-
ar voru fyrir safnið í Kópavogi
og flutningur safnsins í bráða-
birgðahúsnæði í Garðabæ, sýn-
ingarhönnun og lóðaframkvæmd-
ir er kostnaðurinn kominn í rúm-
an 1,1 milljarð króna. Þar við
bætast þær 170 milljónir sem
fóru í framkvæmdir milli áranna
1991 og 1997.
Jóhann Gunnar segir að marg-
ar ástæður séu fyrir því að verkið
hafi tafist. Í upphafi hafi flutning-
ur safnsins gengið seint og illa. Í
ljósi þess að tímaáætlanir hafi
þegar raskast hafi ríkisstjórnin
ákveðið að fresta framkvæmdum
um tvö ár vegna þenslu á höfuð-
borgarsvæðinu.
Jóhann Gunnar segir að nú síð-
ast hafi verktakinn Kraftvaki,
sem átti að sjá um lokaáfanga
framkvæmdanna, lent í fjár-
hagskröggum. Framkvæmdasýsla
ríkisins hafi tekið við verkinu.
Kraftvaki hafi átt að skila verkinu
frá sér í mars, en vegna erfiðleika
fyrirtækisins seinki þessu fram í
maí eða júní.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður segir að undirbún-
ingur sé í fullum gangi, bæði hvað
varði framkvæmdir og innra
skipulag, það er sýningar og for-
vörslu. Hún sagðist hins vegar
ekki geta sagt hvenær húsið yrði
opnað. trausti@frettabladid.is
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ VIÐ SUÐURGÖTU
Jóhann Gunnar Birgisson, formaður byggingarnefndar Þjóðminjasafnsins, segir það póli-
tíska ákvörðun hvenær menn vilji opna sýningu í hinu nýuppgerða húsnæði. Stefnan hafi
verið sú að reyna að opna hana á næsta ári, en endanleg ákvörðun hafi ekki verið tekin.
„Það má vel
vera að húsið
verði opnað
strax fyrir al-
menning, en
ég geti ekki
sagt til um
það hvenær
sýningin verð-
ur sett upp.“
SAFNIÐ VAR
STOFNAÐ 1863
Þjóðminjasafn Íslands var stofnað 24.
febrúar 1863 er stiftsyfirvöldin tóku við
gjöf fimmtán forngripa, sem Helgi Sig-
urðsson prestur á Melum sendi landinu
að gjöf sem stofn að innlendu forn-
gripasafni. Hugmyndina átti þó Sigurður
Guðmundsson málari, sem numið hafði
málaralist í Danmörku og kynnst forn-
gripasöfnum þar og hreifst af menning-
arsögu Norðurlanda. Sigurður varð í
reynd fyrsti forstöðumaður safnsins og
gegndi því starfi til dauðadags árið
1874.
Framan af bjó safnið við þröngar að-
stæður á lofti Dómkirkjunnar í Reykja-
vík, ásamt Stiftsbókasafninu, en 1952
voru fyrstu sýningarnar opnaðar í nýju
húsi safnsins við Suðurgötu, sem sér-
staklega var byggt fyrir það.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíku
hefur sýknað íslenska ríkið af rúm-
lega tveggja milljóna króna skaða-
bótakröfu konu sem varð ófrísk eft-
ir að hafa farið í ófrjósemisaðgerð á
Landspítalanum.
Tveimur mánuðum eftir ófrjó-
semisaðgerðina varð konan, sem er
um fertugt, þunguð. Hún er þriggja
barna móðir og sagði hún að með-
ganga yngsta barnsins, sem fæddist
1992, hefði verið mjög erfið meðal
annars vegna sjúkdóma og stoðkerf-
isvandamála, sem hrjáð hefðu hana
lengi. Sagðist hún hafa liðið miklar
sálarkvalir þegar í ljós kom að hún
væri ófrísk og að eftir fóstureyðing-
una hafi líðan hennar oft verið
slæm.
Konan sagðist hafa talið að ófrjó-
semisaðgerðin myndi leiða til full-
komins árangurs og að starfsmenn
Landspítalans hefðu brugðist upp-
lýsinga- og leiðbeiningarskyldu
sinni. Henni hafi ekki verið gerð
grein fyrir því að eitthvað gæti far-
ið úrskeiðis. Læknirinn sem fram-
kvæmdi aðgerðina sagðist hins veg-
ar hafa uppfrætt konuna fyrir að-
gerðina og meðal annars sagt henni
að ófrjósemisaðgerðir væru ekki
100% öruggar, líkur á þungun væru
1:200.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að ekkert benti til þess
að mistök hafi átt sér stað við að-
gerðina, heldur hafi um óhappatil-
vik verið að ræða. Þá taldi dómurinn
að konan hefði verið upplýst um að-
gerðina og að henni hafi verið gerð
grein fyrir því að hún veitti ekki
fullkomna vörn gegn þungun.
LANDSPÍTALINN
Kona um fertugt sagðist hafa talið að
ófrjósemisaðgerðin myndi leiða til full-
komins árangurs og að starfsmenn Land-
spítalans hefðu brugðist upplýsinga- og
leiðbeiningarskyldu sinni.
Ríkið sýknað af tveggja milljóna króna skaðabótakröfu:
Kona varð ófrísk
eftir ófrjósemisaðgerð
KVIKMYNDIR Aðdáendur galdra-
piltsins Harry Potter báðum meg-
in við Atlantshafið hafa tekið
annarri myndinni með opnum
örmum. „Harry Potter and the
Chamber of Secrets“ var frum-
sýnd í yfir 1.000 kvikmyndasölum
í Bretlandi. Odeon bíókeðjan hefur
nú þegar selt yfir um 350 þúsund
miða. Keðjan sýnir nýju Potter
myndina í 228 sýningarsölum sem
er um það bil helmingar sala
keðjunnar. Í Bandaríkjunum var
myndin frumsýnd í 3.682 sýning-
arsölum.
Gagnrýnendur hafa gefið mynd-
inni afbragðsdóma og aðdáendur
bókanna virðast afar sáttir við
kvikmyndaútgáfuna.
Atriði eru í myndinni sem eru
ekki við hæfi allra yngstu barn-
anna, þar á meðal atriði með risa-
vöxnum kóngulóm, en flestir virð-
ast á þeirri skoðun að þrátt fyrir að
myndin sé drungaleg og spennandi
sé hún ekki ógnvekjandi.
Gróði fyrstu myndarinnar um
Potter, „The Philosopher’s Sto-
ne“, var rúmlega 82 milljarðar
króna. Framhaldsmyndinni er
spáð svipaðri velgengni. Sjóræn-
ingjaútgáfur af myndinni hafa
verið á kreiki á Netinu frá því að
myndin var forsýnd. Þar er um
að ræða upptökur af myndinni
sem óheiðarlegur bíógestur hef-
ur tekið upp með myndbands-
upptökuvél.
Önnur myndin um Harry Potter frumsýnd:
Potter slær
aftur í gegn
HARRY POTTER
Leikarinn Daniel Radcliffe snýr aftur í hlutverki sínu sem Harry Potter í myndinni
„The Chamber of Secrets“.
Þjóðminjasafnið opnað
á afmæli heimastjórnar
Formaður byggingarnefndar Þjóðminjasafnsins segir að safnhúsið við Suðurgötu verði klárt í
maí eða júní á næsta ári. Fyrsta sýningin verður samt hugsanlega ekki sett upp fyrr en árið 2004.
Heildarkostnaður er 1,3 milljarðar króna á 11 árum.
ORÐRÉTT
GREYIN ROKKSTJÖRNURNAR
„Ef ég á að vera alveg heiðarleg-
ur er ekkert glys baksviðs og allt
frekar leiðinlegt.“
Guy Berryman, bassaleikari Coldplay,
í viðtali við Fréttablaðið 16. nóvember.
FRUMLEGT!
„Eitt þeirra finnst mér vera að
fækka afbrotum í landinu eins og
framast er kostur.“
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri
vill að lögreglan setji sér skýr markmið.
Morgunblaðið 17. nóvember.
ERFITT LÍF
„Ég var alltaf að
berjast upp brekku
í starfi mínu hjá
Skífunni.“
Steinar Berg segir farir sínar ekki sléttar í
viðtali við Fréttablaðið 16. nóvember.
Sprenging í Kína:
Kviknaði
í olíuskipi
PEKING, AP Olíuskip eyðilagðist í
sprengingu í suðurhluta Kína á
laugardaginn. Um hundrað tonn af
olíu voru um borð í skipinu. Annað
olíuskip skemmdist mikið. Átján
klukkustundir tók að ráða niður-
lögum eldsins, sem kviknaði í olí-
unni í kjölfar sprengingarinnar.
Stjórnvöld segja að rannsókn á
orsök sprengingarinnar standi
yfir. Engar upplýsingar hafa feng-
ist um olíuleka úr skipunum.
Skipin voru í höfn skammt frá
bænum Qingliu, sem er stutt frá
Hong Kong.
SLYSSTAÐURINN
Slysið varð á þjóðvegi M25, nálægt Slough
vestan við London. Rútan er 57 sæta og
var hún full af fólki á heimleið eftir stutta
ferð til Frakklands.
Rútuslys í Bretlandi:
Fimm létust
LONDON, AP. Fimm manns létust og
40 aðrir slösuðust þegar rúta valt
á þjóðvegi skammt fyrir utan
London á laugardag.
Björgunarmenn sögðu að bíl-
stjóri rútunnar hefði misst stjórn
á henni með þeim afleiðingum að
hún fór á hliðina og endaði á akri
við hlið vegarins.
Farþegar rútunnar voru á
heimleið eftir eins dags verslun-
arleiðangur í Norður-Frakklandi.
Flestir hinna særðu meiddust lít-
illega. Tveir eru lífshættulega
slasaðir. Bílstjórarnir tveir, sem
skiptust á að keyra rútuna, létust
báðir.