Fréttablaðið - 18.11.2002, Síða 16
16 18. nóvember 2002 MÁNUDAGURKÖFUN
KAFAÐI MEÐ ÖSKU KONUNNAR
Kafarinn Francisco „Pipin“ Ferreras kafaði
með ösku látinnar konu sinnar í djúp Atl-
antshafsins undan ströndum Miami. Kon-
an, Audrey Mestre, lést fyrir rúmri viku
undan ströndum Dóminíska lýðveldisins
þegar hún var að reyna að bæta heims-
metið í frjálsri köfun, sem er köfun án
súrefniskúts.
STUTTAR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.05 Stöð 2
Ensku mörkin
16.35 RÚV
Helgarsportið (e)
18.00 Sýn
Ensku mörkin
19.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
19.30 Sýn
19 holan
20.00 Sýn
Spænsku mörkin
22.30 Sýn
Sportið
23.00 Sýn
Ensku mörkin (e)
23.20 RÚV
Markaregn
23.55 Sýn
Spænsku mörkin
Frægasta tenniskon-
an aldrei unnið mót
Hin rússneska Anna Kournikova er frægasta tenniskona heims. Hún
hefur samt aldrei unnið mót í einliðaleik frá því hún gerðist atvinnu-
maður. Kærasti hennar er sonur eins frægasta kvennabósa heims.
TENNIS Rússneska tennisstjarnan
Anna Kournikova er fædd 7. júní
árið 1981 og því 21 árs gömul. For-
eldrar hennar, Sergei og Alla
Kournikova, voru miklir íþrótta-
menn og kepptu í glímu auk þess
sem þau kenndu tennis í hluta-
starfi. Þau lögðu hart að dóttur
sinni að stunda íþróttir og byrjaði
Anna að æfa tennis aðeins fimm
ára gömul. Þegar hún var átta ára
byrjaði hún að keppa á unglinga-
mótum og vakti fljótt athygli fyr-
ir frábæra frammistöðu á vellin-
um. Foreldrar hennar segja að
uppvaxtarár hennar hafi verið
eins og gengur og gerist hjá öllum
unglingum. Hún eyddi miklum
tíma í fatakaup, með vinum sínum
og í skemmtigörðum.
Þegar Alþjóða tennissamband-
ið, ATP, kom á stóru móti í
Moskvu árið 1990 sá Anna sér leik
á borði og ákvað að sýna heimin-
um hversu megnug hún væri. Þá
var hún níu ára gömul. Aðeins
tveimur árum síðar fluttist hún til
Flórída í Bandaríkjunum þar sem
hún æfði undir stjórn hins virta
þjálfara Nick Bolletierri. Bolleti-
erri sá strax hvað í stúlkunni bjó.
„Anna getur búið sér til
ákveðna stöðu á vellinum sem fáir
geta,“ sagði Bolletierri. „Hún er
frábær upp við netið og það eru
fáir sem geta slegið úr öllum
hornum. Sá eini sem ég get líkt
henni við er John McEnroe.“
Anna kom með látum inn í at-
vinnumannaheiminn árið 1995 og
komst í fjórðu umferð á fyrsta
alslemmumótinu, Opna banda-
ríska 1996, sem hún tók þátt í.
Hún komst í undanúrslit á fyrsta
skipti sem hún tók þátt í
Wimbledon-mótinu árið 1997. Þeg-
ar Anna var nítján ára hafði hún
lagt nánast allar bestu tenniskon-
urnar. Hún lagði meðal annars
fjórar af bestu tenniskonum
heims á sama mótinu. Þá komst
hún í úrslit en tapaði fyrir Venus
Williams í þremur settum. Fyrir
vikið náði hún 16. sæti á heims-
styrkleikalista tenniskvenna.
Frægðarsól Önnu hefur skinið
skærar en hjá flestum íþrótta-
mönnum. Hún hefur samt aldrei
unnið tennismót í einliðaleik.
Anna var á tímabili með stærsta
auglýsingasamning heims við
Adidas og hafa fjölmiðlar elt hana
á röndum. Fyrir skömmu tók hún
saman við söngvarann Enrique
Iglesias, son Julio, og hafa skötu-
hjúin verið eitt af eftirlætis
myndaefnum bandarísku press-
unar.
Velgegni Önnu hefur ekki ver-
ið eins mikil eftir að hún náði tví-
tugsaldrinum. Hún hefur hæst
farið í 8. sæti styrkleikalistans en
er nú í því 35. Hún hefur verið
uppteknari af kærasta sínum og
að reyna fyrir sér á leiklistar-
brautinni. Fyrir vikið hefur Adi-
das hótað að lækka peninga-
greiðslur til hennar fari hún ekki
að sýna betri árangur á vellinum.
kristjan@frettabladid.is
ANNA OG ENRIQUE
Útlit Önnu hefur orðið til þess að hún fyllir
nánast hvern einasta völl sem hún keppir
á. Hún er í sambandi með Enrique
Iglesias, einum vinsælasta poppsöngvara
heims. Þau kynntust þegar hún lék í
myndbandi hjá honum.
ANNA KOURNIKOVA
Anna er yngst allra keppenda sem hefur tekið þátt í Fed Cup-móti, þá fjórtán ára. Sama
ár sigraði hún á Evrópumóti og Opna ítalska mótinu fyrir unglinga. Hún náði efsta sæti
styrkleikalista unglinga árið eftir og leiðin í atvinnumennskuna var greið. Hún gerðist at-
vinnumaður í október árið 1995. Bílastæðavandamál ?
Höfum til leigu bílastæði
í vönduðu bílastæðahúsi
við Hlemm.
Lokað húsnæði með fjarstýrðri hurð
U p p l . í s í m a 5 5 2 - 5 7 5 5
HANDBOLTI Haukar eru komnir í 16
liða úrslit í Evrópukeppni bikar-
hafa í handbolta. Haukar sigruðu
ítalska liðið Conversano 26-18 á
Ásvöllum í fyrradag. Fyrri leik
liðanna lauk með jafntefli 27-27
og sigruðu Haukar því samanlagt
53-45.
Það var góður varnarleikur
sem lagði grunninn að öruggum
sigri Hauka. Aron Kristjánsson
var atkvæðamestur Hafnfirðinga
með 8 mörk, en Ásgeir Hallgríms-
son og Halldór Ingólfsson skor-
uðu 4 mörk. Birkir Ívar Guð-
mundsson varði 14 skot, en Guð-
mundur Hrafnkelsson, sem lék
lengst af í marki ítalska liðsins,
varði 11 skot. Blazo Lisicic var at-
kvæðamestur í ítalska liðinu með
4 mörk.
Evrópukeppnin:
Haukar komust í 16 liða úrslit
ARON MARKAHÆSTUR
Aron Kristjánsson var atkvæðamestur
í liði Hauka. Hann skoraði átta mörk
í leiknum.
KÖRFUBOLTI Dallas Mavericks vann
sinn 10 leik í röð á laugardaginn
þegar liðið lagði New Jersey Nets
96-88. Nets var með sex stiga for-
ystu fyrir síðasta leikhluta en Ma-
vericks skoraði 29 stig gegn 15 á
endasprettinum.
Steve Nash var atkvæðamestur í
liði Dallas. Hann skoraði 30 stig og
Michael Finley 20. Jason Kidd bar
höfuð og herðar yfir aðra í liði Nets
og var einu frákasti frá því að vera
með þrefalda tvennu. Hann skoraði
22 stig og gaf 13 stoðsendingar.
Dallas, sem enn hefur ekki tapað
leik, er með besta árangur allra liða
í NBA-deildinni. Indiana Pacers er
með næstbesta árangurinn, en liðið
hefur unnið í átta leikjum og tapað
einum. Detroit Pistons hefur einnig
sigrað í átta leikjum en tapað
tveimur. Liðið sigraði Denver
Nuggets 74-53 um helgina og voru
einungis skoruð 57 stig í fyrri hálf-
leik, sem er met í NBA-deildinni.
Árið 1983 settu þessi sömu lið met
en þá fyrir hæsta stigaskor í leik.
Pistons vann þann leik 186-184 eftir
þrefalda framlengingu.
Latrell Sprewell lék sinn fyrsta
leik fyrir New York Knicks um
helgina, en gat ekki komið í veg fyr-
ir 93-92 tap gegn Philadelphia
76ers. Knicks hefur einungis sigrað
í einum leik það sem af er leiktíma-
bilinu.
NBA-deildin:
Dallas Mavericks
er óstöðvandi
NOWITZKI MEÐ 18 STIG
Dirk Nowitzki skoraði 18 stig og tók 12 frá-
köst í sigurleik Dallas Mavericks gegn New
Jersey Nets.
Nýtt áfall fyrir
Manchester United:
Beckham
meiddur
FÓTBOLTI Rifbein David Beckhams
eru það illa brákuð að búist er við
því að hann geti ekki leikið með
Manchester United í
allt að mánuð. Talið
er að Beckham hafi
meiðst í viðureign
Manchester United
og Southampton
fyrir tveimur vikum
síðan.
Hann lék á móti Bayer Leverku-
sen á miðvikudag en kvartaði yfir
verkjum eftir leikinn og komu
meiðslin fram við læknisrannsókn.
Beckham lék ekki með liðinu í
leiknum á móti West Ham í gær.
Hann gæti líka verið frá í leikjun-
um á móti Newcastle, Liverpool og
Arsenal.
Meiðsli Beckhams eru mikið
áfall fyrir Manchester United, sér-
staklega þar sem Roy Keane, Rio
Ferdinand og Nicky Butt eru allir
meiddir.
Eins og margir muna braut
Beckham bein í vinstri fæti rétt
fyrir heimsmeistarakeppnina í
sumar. Hann á að mæta á fund með
landsliðinu í dag.
Ástralski tennisleikarinnLleyton Hewitt sigraði annað
árið í röð á Masters Cup. Hann
lagði Juan Carlos Ferrero í fimm
lotum. Sigurinn tryggði Hewitt
um 60 milljónir króna í verð-
launafé og nýjan Mercedes-Benz.
Golfarinn Colin Montgomeriesigraði á TCL-mótinu í Kína
um helgina. Hann lék samanlagt
á 16 höggum undir pari, en Tæ-
lendingurinn Thongchai Jaidee
varð í öðru sæti.
Portsmouth sigraði Stoke 3-0um helgina. Þetta var sjöundi
tapleikur Stoke í röð í ensku
fyrstu deildinni. Liðið situr nú í
22. sæti deildarinnar með 14 stig.
Brynjar Björn Gunnarsson,
Bjarni Guðjónsson og Pétur
Marteinsson léku með Stoke.
Evrópumeistarar Magdeburgsigruðu Wisla Plock frá Pól-
landi, 40-32, í meistaradeild Evr-
ópu í handbolta á laugardaginn.
Ólafur Stefánsson var marka-
hæstur í liði Magdeburg með 8
mörk en Sigfús Sigurðsson gerði
4. Magdeburg hefur unnið tvo
fyrstu leiki sína í riðlakeppninni
og er með 4 stig.